Mjölnir - 31.03.1948, Side 3
f
MJÖLNIR
8
Fermingarbörnin
F
GULLNA HLIÐIÐ
eftir DAVÍÐ STDFÁNSSON
I
var sýnt hér á annan í pásk-
um af Leikfélagi Sauðárkróks
við húsfyllir og ágætar undir-
tektir áheyrenda.
Undanfarnar vikur hefur
Leikfélag Sauðárkróks sýnt
Gullna hliðið . Alls mun félagið
hafa ha!ft 13 sýningar og alltaf
við húsfyllir. Sóttu sýningar
þessar fólk viðsvegar að úr hér-
| aðinu og sveitum vestan Skaga-
fjarðar. Nú um hátíðina kom
svo leikflokkurinn hingað til
Siglufjarðar og hafði fyrstu
sýningu á annan í páskum í
Sjómannaheimilinu. Það virðist
í allmikið ráðist hjá Leikfélagi
Sauðárkróks að taka til sýning-
ar Gullna hliðið bæði vegna þess
að leikurinn - útheimtir stórt
^ leiksvið, og ennfremur vegna
þess, að sum hlutverkin eru
mjög vandasöm og erfið. Um
fyrra atriðið er það að segja,
að leiksviðið í Sjómannaheimil-
inu er alltof þröngt fyrir jafn-
f jölmennan leikendahóp og er í
Gullna hliðinu, og af þeim or-
sökum njóta leikendurnii- sín
ekki ens vel og ef um stærra
leiksvið væri að ræða. Sama er
að segja um senumar, sérstak-
| lega í síðasta þætti. Sjálft hið
gullna hlið er svo að segja fram
á brún leiksviðsins. Þrátt fyrir
þessa annmarka og aðra örðug-
leika, sem lítil leiksvið skapa,
tókst leikendunum alveg furð-
anlega vel að leysa hlutverk sín
af hendi, og sumum með ágæt-
um.
Helztu hlutverk:
Jón kotbónda leikur Guðjón
K Sigurðsson. Hann leikur þennan
harðsvíraða syndasel og laga-
brjót ágætlega; er mátulega
óforskammaður og hressilegur
allan leikinn út og fatast aldrei
í málsvörninni fyrir sjálfan sig,
ekki einu sinni fyrir framan
sjálfan dyravörð himnaríkis:
Lykla-Pétur.
Kerlinguna, konu Jóns, leikur
frú Guðrún Pálsdóttir. Hlutveric
f þetta er mjög erfitt og veltur
leikurinn að miklu leyti á þvi,
hvernig með það hlutverk er
farið. Frú Guðrún leysir það
hlutverk ágætlega af hendi. —
Röddin er skýr, tilbrigði og
hreyfingar allar í góðu samræmi
við efni og anda hlutverksins.
Övininn leikur Eyþór Stefáns-
son, sem jafnframt er leikstjóri
ásamt Valgarð Blöndal. Það
dylst engum, sem sér leik Ey-
þórs, að þar er á ferðinni
ágætur leikari, sem hvert leikfé-
lag, hvar sem væri, gæti verið
stolt af að hafa innan sinna vé-
banda. Leikur hans í gervi Óvin-
arins er að mínum dómi með
aJfbrigðum góður; ekki of
frekur eftir því, sem til er ætl-
ast af hendi höfundarins, alltaf
tilbúinn að hremma það, sem
ekki fær inngöngu í salarkynni
í himnaríkis. Vonbrigðin eðlileg,
þegar bráðin tapast. 1 upphafi
leiksins las Eyþór upp For-
spjallið að leiknum. Er það
meistaralega samið af hendi höf
I undarins, ljóslifandi sett fram í
; stuttu en skýru máli ástandið
eins og það var á mestu niður-
iægingartímabili íslenzku þjóðar
innar. Eyþór Stéfánsson túlkaði
anda og efni Forspjallsins það
vel, að trauðla verður betra
kosið,
Um önnur hlutverk er það að
segja, að flest þeirra eru sæmi-
lega af hendi leyst, sérstaklega
þegar þess er gætt, að margt
af leikendunum eru viðvaningar
á leiksviði. Til dæmis eru gerfi
og meðferð á hlutverkum Lykla-
Péturs og Páls postula góð.
Hefðu þó mátt vera dálítið
ákveðnari í viðræðunum við
syndaselinn Jón.
Frú Jórunn Halldórsdóttir er
ágæt í gervi Vilborgar grasa-
konu, forneskjuleg og vel trúuð
á drauga og púka; er samt ekki
nógu grimm við hina illu anda,
sem sækja að Jóni á dauða-
stundinni, Söngurinn í fyrsta
þætti er full yfirdrifinn, sérstak-
lega eru áherzlur Vilborgar
grasakerlingar ekki nógu eðli-
legar.
Söngur Friðlaugs (Svavar
Þorvaldsson) í þriðja þætti er
góður. Sama er að segja um
sönginn í síðasta þætti.
Hér hefur nú verið drepið á
nokkra af leikendunum og með-
Sjaldan hafa bæjarbúar orðið
eins átakanlega varir við það,
hve gjörsamlega ófært það
ástand er, sem ríkir hér í bæ
með dreifingu mjólkur, og nú
um hátíðisdagana. Mjólkurbúö
KEA, sem hefur á sinni hendi
alla mjólk, sem kemur frá Akur
eyri og Sauðárkróki hafði mjólk
urbúð sína lokaða yfir föstu-
daginn langa og páskadaginn.
Bæjarbúar höfðu því ekki urn
amiað að velja en að reyna að
fá mjólk í mjólkurbúð bæjarins.
Á föstudaginn langa safnaðist
þangað hinn mesti fjöldi og
höfðu starfsstúlkurnar ekki
undan að afgreiða og myndað-
ist fyrir framan búðina mikill
fjöldi fólks, sem ekki komst inn.
I búð bæjarins er ekki selt skyr
eða rjómi en hvomtveggja var
til í KEA. Mjólk sú, sem KEA
hafði sent upp eftir varð brátt
upp selt og leit út fyrir, að fólk
yrði að fara heim án þess að ta
mjólk. Var nú það ráð tekið, að
fá forstjórann fyrir mjólkurbúð
KEA til að opna búðina niður
frá. Mun lögreglan ásamt fleir-
um hafa haft rnn það forgöngu.
Eftir allmikið þóf var búðin
opnuð og fólk afgreitt, en að-
eins með mjólk. Skyr eða rjómi
var e’kki afgreitt. Á páskadag-
inn endurtók sig sama sagan.
Ekkert afgreitt í búð KEA,
aðeins í mjólkurbúð bæjarins.
Þrengslin voru þá ekki eins
ferð þeirra á hlutverkum sínum.
Það væri vitanlega hægt að
skrifa mikið lengra mál um leik-
inn almennt og meðferð hinna
ýmsu leikenda á hlutverkum
sínum, en það verður ekki gjört
nú að þessu sinni. Eins og áður
hefur verið tekið fram er leik-
urinn í heild mjög sæmilegur og
betri en hægt er að búast við,
þegar tekið er tillit til allra að-
stæðna. Það er sannarlega ekki
- lítið verk fyrir fámennt leikfé-
lag að koma upp stórum og
vandasömum leik, en það dylst
engum, sem séð hafa, að Leik-
félag Sauðárkróks á ágætum
leikkröftum á að skipa og góða
stjórnendur.
Á Sauðárkróki var sýning
Gullna hliðsins hátíðasýning í
tilefni 60 ára afmælis leikstarf-
seminnar þar á staðnum. Hafa
Sauðárkróksbúar á myndarleg-
an hátt minnzt þessa merka af-
mælis með því að taka til sýn-
ingar þetta alþýðlega leikrit
Davíðs Stefánssonar.
Siglfhðingar mega vera þakk-
látir Leikfélagi Sauðárkróks
fyrir komuna; fyrir vel sýndan
leik og góða skemmtun. Er ekki
að efa, að Siglfirðingar munu
fylla Sjómannaheimilið þau
kvöld, sem leikurinn verður
sýlndur hér. Áhorfandi.
mikil, því fólk hafði reynt að
byrgja sig upp með mjólk á
laugardaginn. Á annan voru
báðar búðirnar opnar, en sam-
lagsmjólkin varð brátt uppseld
í mjólkurbúð bæjarins, svo aðal
þröngin var nú niður við KEA,
enda var nú afgreitt skyr og
rjómi. Af því sem hér hefur nú
verið bent á, er það ljóst, að
slíkt ástand og hér er með sölu
mjólkur er í alla staði ófært.
Fyrst KEA er búið að ná undir
sig einkasölu á aðfluttri mjólk
til bæjarins, verður að gjöra þá
kröfu til forráðamanna þess
fyrirtækis, að komið verði upp
fleiri útsölum, til dæmis einni
suður á bökkum og annari fyrir
útbæinn. Þá verður að kref jast
þess, að samsalan sjái búð bæj-
arins fyrir nógri samlagsmjólk.
Þá verður að krefjast þess af
sömu aðiljum, að mjólkin sé
seld alla daga, en ekki eins og
nú er, loka vissa hátíðisdaga,.
Annars er það mála sannast, að
mjólkurmál Siglfirðinga eru
í hinu mesta ófremdarástandi.
Mjólkurbúð bæjarins getur á
engan hátt fullnægt eftirspum
eftir barnamjólk og marga daga
er enga mjólk að fá í bænum,
mest vegna skipulagsleysis á
flutningi mjólkur frá Akureyri
og Sauðárkróki. Þó er það, sem
út yfir tekur, og það er, að sú
mjólk, sem til bæjarins kemur,
er léleg vara, oft margra daga
Næstkomandi sumiudag fer
fram ferming í Siglufjarðar-
kirkju og verða þá fermd eftir-
talin börn:
Stúlkur:
Aðalbjörg Jónsdóttir,
Hvamieyrarbraut 20.
Bera Kristjánsdóttir,
Ráðhústorgi 1
Edda Jónasdóttir, Eyrarg. 28
Edda Thorlacíus, Suðurg. 52
Elísabet Björg Jónsdóttir,
Grundargötu 19
Erla Halldóra Árnadóttir,
Hvanneyrarbraut 52
Guðný Soffia Þorvaldsdóttir
Hvanneyrarbraut 57
Guðrún Anna Ingvadóttir,
Hólaveg 10
Hanna J. H. Hannesdóttir,
RánargÖtu 16
Halla Haraldsdóttir,
Hvanneyrarbraut 49
Hólmfríður Erla Arnkelsdóttir,
Hólaveg 23
Hulda Sigurjónsdóttir,
Aðalgötu 16
Ingibj. Ragnhildur Eiríksdóttir,
Túngötu 3
Ingibjörg Þorleifsdóttir,
Suðmgötu 42.
Jóhanna Vernharðsdóttir,
Laugaveg 5
Kristín Jóhanna Hólm,
Hafnargötu 20
Kristín Hólmfríður Pétursdóttir
Aðalgötu 25
Magdalena Björk Jóhannes-
dóttir, Hvanneyrarbraut 23
Margrét Helga Jónsdóttir,
Suðurgötu 3
Margrét Sólveig Júlíana Ein-
arsdóttir, Grundarg. 9
Minnie Gunnlaug Leósdóttir,
Hverfisgötu 11
Ólafia Sveinína Ölafsdóttir,
Eyrargötu 3
Ragna Lisa Eyvindsdóttir,
Snorragötu 3
Rósa Eðvaldsdóttir,
Hvannej'rarbraut
Sigríður Bjamey Bjarnadóttir,
Suðurgötu
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
Eyrargötu 28
Stefania Árný Friðgeirsdóttir,
Hlíðarvegi 34
Stella Clausen, Vetrarbr. 17
Steinunn Sveinsdóttir, Túng. 40
Svanhildur Kjartansdóttir,
Hlíðarvegi
Þóra Sigríður Jónsdóttir,
Háveg 8
Drengir:
Ásbjörn Skarphéðinsson,
Hafnargötu 2
Björn Grétar Ólafsson,
Aðalgötu 22
gömul, og flutt á dekki óvarin
fyrir frosti eða hita. Við Sigl-
firðingar emm mörgu vanir í
viðskiptum okkar við mjólkur-
samsölu KEA, en takmörk
hljóta að vera fyrir því, hvað
hægt er að þola í slíkum málum
sem þessum, og fyrr eða síðar
hljóta Siglfirðingar að taka
þessi mál upp til viðræðna og
úrbóta við aðilja, sem skilja
betur hvað á við í mjólkurmál-
um Siglfirðinga, en forráða-
menn KEA virðast fram að
þessu hafa gert.
Brandur Franklin Karlsson,
Túngötu 25
Friðrik Eiríksson, Þorm.g. 23
Guðbjörn Hallgrimsson, Bakka
Guðfinnur Grétar Aðalsteinsson
Eyrargötu 5
Gimnar Jón Finsson,
Suðurgötu 40
Gústaf Friðþjófur Nílsson,
Hólaveg 6
Héðinn Skarphéðinsson,
Hverfisgötu 5
Halldór Stefán Pétursson,
Hólav. 19
Hilmir Guðmundsson, Hólav. 12
Hjálmar Stefánsson, Eyrarg. 20
Ingimar Vorm Antonsson,
Eyrargötu 8
Jóhann Sverrir Jónsson,
Norðurgötu 13
Hreinn Steinsson, Hverfisg. 9
Jón Friðrik Hallgrímsson,
Hólav. 14
Jón Þórir Hartmann Gestsson,
Laugarvegi 42
Jón Viðar Gunnlaugsson,
Hverfisgötu 5
Jón Vídalín Halldórsson,
Hvanneyrarbraut 6
Kristinn Björgvin Árdal,
Eyrargötu 6
Kjartan Kjartansson,
Lækjargötu 4
Ivristmann Einar Guðmundur
Hermannsson, Gránugötu
Steingrímur Kristinsson,
Mjóstræti 1
Valbjörn Þorláksson, Bakka
Þórir Bjömsson, Hafnarg. 6
Austurbreidd
— Nýtt tilbrigði í gamallí grein.
1 síðasta Einherja birtist
grein undir fyrirsögninni: Að
loknum eldhúsdegi. Er með þess
ari fyrirsögn átt við eldhúsum-
ræðurnar, sem fi'am fóru á dög-
unum, og fjallar greinin að
venju mest um vonzku komm-
únista, hérlendis og erlendis.
Verður henni ekki svarað hér,
þar sem það hefur oft áður
verið gert hér í blaðinu, því
þetta er i rauninni bara gamla
greinin, sem birzt hefur í nærri
því hverju einasta Einherja-,
Neista- og Siglfirðingsblaði, er
út hefur komið, með svo lítið
bréyttu orðalagi, að maður tek-
ur ekki dftir neinum mismun
nema með nákvæmum sarnan-
burði. Þó er í henni nýtt til-
brigði, sem hvorki Neisti né
Siglfirðingur hafa fundið upp
áður, en það er þar sem talað er
um „austurbreidd" —„hugarfar
landsmanna sé ekki réttri gráðu
austurbreiddar. “
Nú langar mig til að fá að
vita. Hver er þessi nýja breidd,
sem blaðið talar um? Er það
einhver spánný Framsóknar-
breidd? Eða er svo komið, að
allt umturnist svo í kollinum á
blaðamönnum Einherja, að þeir
rugli algengum hugtökum þegar
þeim kemur orðið austur í hug ?
Eða eru þeir farnir að skrifa
gömlu greinina umhugsunar-
laust, eins og skriffinnar Mogg-
ans, sem stöðugt eru að rugla
löndum, borgum og mönnum í
Austur-Evrópu ? Forvitiinn.
Ofær afgreiðsla