Mjölnir - 03.10.1952, Blaðsíða 3
HJOLNIB
s
Fiá 11. þingi Æ. F,
T I L B 0 B
óskast í húsið nr. 28 við Túngötu liér í bæ, eign dánarbús
llagnars Hallgr'mssonar, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum og
hænsnaskúr, sem á Ióðinni stendur og fylgir húsinu,
Tilhoðinu, sem greini, auk nafns og heimilisfangs tilboðs-
gjafa, greiðslumöguleika hans, sendist undirrituðum fyrir 15.
nóvember uæstk.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem eer, eða
hafna öilum.
Skiptaráðandinn í Siglufjarðarkaupstað, 30. sept. 1952
EINAR INGIMUNDARSON
Augiýsing um innsigiun útvarpstækja
Samkvæmt ákvæðum 34. og 35. greina reglugerðar Ríkis-
útvarpsins, lief ég í dag mælt svo fyrir við alla innheimtumenn,
að þeim sé, að 8dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
heimilt og skylí að taka viðtæki þeirra manna, er eigi greiða af-
notagjöld sín af útvarpi, úr notkun og setja þau undir innsigli.
Athygli skal vakin á þ\i, að viðtæki verða því aðeins tekin
undan innsigli, að útvarpsnotandi hafi greitt afnotagjald sitt að
fullu aulí innsiglunargjalds, er nemur 10% af afnotagjaldinu.
Þet/a tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Skrifstofu Ríkisútvarpsins, 10. septem-ber 1952.
UTVARPSSTJÓRINN
M A N N T A L
Samkvæmt bráðabirgðalögum nr. 58/1952 fer fram alls-
íierjarmanntal hinn 16. OKTÓBER n.k. og kemur það í stað
hins venjulega árlega manntals, sem framkvæmt hefur verið
af sóknarprestum og bæjarstjóftium. Teljarar verða sendir um
bæinn I þessu skyni nefndan dag og er húsráðendum skylt að
veita þeim allar upplýsingar um isitt heimilisfólk. Séu upplýs-
ingar ekki réttilega gefnar á tilsettum tíma, varðar það hús-
ráðendur sektum, sem nánar eru tilteknar í lögum þessum.
Siglufirði, 1. október 1952.
BÆJARSTJÓRI
Dagana 12.—14. sept. var
háð á Akureyri 11. þing Æsku-
lýðsfylkingarinnar, sambands
ungra sósíalista. Þingið var
eitt fjölmennasta þingið í sögu
samb. og sóttu það fulltrúar
frá flestum deildum þess.
Flestir voru fulltr. frá
Reykjavík eða rösklega 30. Þá
komu 13 félagar frá Neskaup-
stað, fulltrúar og gestir. Héðan
frá Siglufirði fóru 5 fulltrúar
á þingið.
Þingið var sett kl. hálf tvö
á föstudag að Hótel KEA,
gildaskálanum, og þar fóru
þingfundir fram. Yfir anddyri
hússins blakti islenzki fáninn
og fáni Alþjóðasambands lýð-
ræðissinnaðrar æsku.
Forseti samb. Guðmundur J.
Guðmundsson setti þingið með
ræðu og í upphafi hennar
minntist hann hins látna leið-
toga íslenzkra sósíalista, Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar, og
vottuðu þingfulltrúarnir minn-
ingu hans virðingu sína með
því að rísa úr sætum.
Einar Olgeirsson ávarpaði
þingið og flutti þvi kveðjur
Sósíalistaflokksins. Ræddi hann
síðan um ástandið í innanlands-
málum og hlutverk þeirrar
kynslóðar, sem nú er að alast
upp. Brýndi hann fyrir þing-
fulltrúum það mikla hlutverk,
sem hvíldi á herðum hennar og
sýndi fram á, að við, sem nú
erum ung, eigum fyrst allra
Islendinga möguleika á að sjá
vonirnar rætast um hamingju-
ríkara og farsælla líf i betri
og friðsælli heimi.
Þess vegna erum við rík mitt
í fátækt okkar, ef við aðeins
trúum á sigur sósíalismans og
leggjum fram okkar skerf til |
þess að þeir, sem á eftir koma, |
fór fram hér á Siglufirði að
þessu sinni, dagana 13.—15.
sept. Fjögur félög tóku þátt í
mótinu, Akureyrarfélögin Þór
og K.A., Völsungur frá Húsa-
vík og Knattspyrnufélag Siglu-
fjarðar.
Fyrsti leikurinn milli K.S.
og Þórs hófst kl. 2 á laugar-
dag (13. sept.) K.S. sigraði
með 4:2. Um leikinn er lítið
hægt að segja annað en að K.S.
hafi verðskuldað sigurinn, þótt
óvæntur væri, en hvorugt liðið
lék vel.
Kl. 6 sama dag hófst leikur
milli K.A. og Völsungs. Sigraði
K.A. með 6:2. Knattmeðferð
og samleikur K.A. var með
ágætum. Sérstaka athygli vakti
Haukur Jakobsson fyrir
skemmtilegan leik og öruggan.
Völsungar voru auðsjáanlega í
lítilli þjálfun og óvanir svo
hörðum velli, sem hér er. —
Heima á Húsavík hafa þeir
grasvöll. En þeir eru duglegir
og sístarfandi og áhuginn jafn
allan leikinn út. Maður hafði
aldrei á tilfinningunni, að bar-
átta þeirra væri vonlaus, enda
kom í ljós síðar, að þeir hörðn-
uðu við hverja raun.
Á sunnudag kl. 2 hófst leik*
þurfi ekki að sjá á bak vona
sinna, eins og allir hinir, sem
á undan eru gegnir.
Að ræðu Einars lokinni voru
kosnir starfsmenn þingsins. —
Þingforseti var kosinn Sigurð-
ur Guðgeirsson úr Reykjavik,
1. varaforseti Þórir Dan'íelsson,
Akureyri og 2. varaforseti
Böðvar Pétursson, Reykjavík.
Hófust síðan þingstörf af
fullum krafti og voru miklar
umræður um málefni Æsk-
unnar og sérstaklega um störf
og skipulag ÆF. Þingfundir
stóðu í þrjá daga.
Á föstudagskvöldið var
kaffisamsaéti að Hótel KEA.
Var þar mikill gleðskapur,
mikið sungið, kveðnar rímur og
lesið upp. Þá flutti Helgi Vil-
hjálmsson klæðskeri ferðasögu
"frá Austur-Þýzkalandi og sagði
frá IV. þingi Æskulýðsfylk-
ingarinnar þýzku, en hann sat
það sem áheyrnarfulltrúi fyrir
Isl. hönd.
Á laugardagskvöldið var
danselikur, sem Æ.F.A. gekkzt
fyrir. Var húsfyllir og komust
færri en vildu inn.
Þinginu lauk á sunnudag
laust fyrir kl. sjö. Hafði þá
farið fram kosning sambands-
stjórnar og var Guðmundur J.
Guðmundsson endurkosinn for-
seti sambandsins.
Að síðustu sungu allir full-
trúarnir Alþjóðasöng lýðræðis-
sinnaðrar æsku og Alþjóða-
söng verkalýðsins.
í næsta blaði verður sagt
nánar frá gangi einstakra
mála á þinginu og birtar álykt-
anir, sem það gerði um
menntamál, hernámsmál og úr-
dráttur úr ályktun um verka-
lýðsmál. (
ur milli Völsungs og K.S., sem
lauk með sigri K.S. 5:1. I fyrri
hálfleik skoraði K.S. 2 mörk,
en Völsungur 1; hefði getað
skorað annað, en mistókst
vítaspyrna. Kom boltinn nær
því beint á Viðar. —. Síðari
hálfleik ,,átti“ K.S., og lék nú
betur en áður. Þó gerðu Völs-
ungar marga harða hr'ið að
marki K.S., en Viðar varði allt,
m.a. aðra vítaspyrnu. Frammi-
stöðu Viðars í þessum leik, og
reyndar hinum líka, er ekki
hægt að líkja við neitt, sem
sézt hefur hér, nema Jón E.
Sig., þegar hann var upp á
sitt beata.
Kl. 5 þennan dag hófst leik-
ur Akureyrarfélaganna. Það
var skemmtileg viðureign, sem
lauk með sigri Þórs 3:2.
Þegar hér var komið, hafði
K.S. 4 stig, K.A. og Þór 2
hvort og Völsungur 0. Nægði
því K.S. jafntefli við K.A. á
mánudag, en færi svo, að K.A.
yrði hlutskarpara og Þór sigr-
aði Völsung, voru K.S., Þór og
K.A. jöfn, en það þýddi, að
Akureyrarfélögin yrðu að
koma aftur um næstu helgi og
berjast til þrautar við K.S.
Var því leikð K.S. og K.A.
beðið með mikilli eftirvæntingu.
■ Kl. 2 á mánudag hófst svo
þessi leikur. K.A. lék undan
vindi (suðvestan kalda) <[ fyrri
hál lejk. Þrátt fyrir það lá
boltinn ekki meira á K.S.,
nema síður væri. Voru K.S.-
ingar auðsjáanlega staðráðnir
í að vinna meistaratitilinn. —
Voru upphlaup þeirra vel
byggð upp, en tækifærin við
mark K.A. oft herfilega mis-
notuð, a.m.k. þrjú dauðafæri.
K.A. komst tvisvar í slíkt færi
og notaði þau til fulls. Hálf-
leiknum lauk því með 2:0 K.A.
í vil.
I seinni hálfleik voru K.S.-
ingar því nær óslitið í sókn.
K.A. gerði nokkur upphlaup,
en hættulítil. Þessi mikla sókn
bar þó ekki árangur fyrr en
20 mínútur voru eftir af leikn-
um. Þá fékk K.A. á sig víta-
spyrnu, og Gústaf skoraði auð-
veldlega. Herti nú K.S. sókn-
ina, en K.A. svaraði með varn-
arleik, sem einkenndist mjög
af útafspyrnum.
Þegar 7 mínútur voru eftir,
fékk Jóhann Ólafsson, hægri
framvörður K.S. knöttinn
nokkuð framan við vítateig
K.A. og sendi hann með föstu
föstu skoti að marki K.A.
— Markverðinum, Sveini Krist-
jánssyni, sem hafði leikið
af snilld alla leikina, tókst ekki
að verja. Var nú meistaratitill-
inn tryggður K.S. og ætluðu
fagnaðarlæti siglfirzku áhorf-
endanna nú allt um koll að
keyra.
Kl. 4 hófst síðasti leikurinn,
milli Þórs og Völsunga. Virt-
ust Völsungar nú vera betri
en í fyrri leikjunum, því mark
Þórs var jafn oft í hættu og
þeirra. Leikurinn var jafn, en
ekki góður. Sigur Þórs, 3:2
var harðsóttur og tæpur, því
sigurmarkið kom ekki fyrr en
undir leikslok.
Dómari í öllum leikjunum
var Hannes Sigurðsson knatt-
spyrnudómari frá Reykjavík.
Er óhætt að fullyrða, að á
engu Norðurlandsmóti hefur
verið jafn vel dæmt, nema ef
vera skyldi á Akureyri 1947,
þegar Guðjón Einarssondæmdi.
Dómarinn átti sinn mikla
þátt í því, hve vel leikirnir
fóru fram. Drengskapur og
sannur íþróttaandi settu svip
sinn á þetta mót, og má full-
yrða, að allir aðilar hafi verið
ánægðir með dómarann, en það
er meira en sagt verður um
mörg fyrri Norðurlandsmót.
Að loknum síðasta leiknum
afhenti Bragi Magnússon form.
ÍBS, sigurvegurunum Þórs-bik-
arinn og sleit mótinu með því
að biðja alla viðstadda að
hrópa ferfalt húrra fyrir K.S.
Var ekki svikizt um að verða
við þeirri beiðni.
K.S. hlaut 5 stig á mótinu,
Þór 4, K.A. 3, Völsungur 0.
Eftir gangi leikjanna er K.S.
vel að sigrinum komið, þó
þjálfun liðsins hafi verið með
lakasta móti í sumar. Næsta
ár er því óhætt að taka á
sparikröftunum, því Akureyrar
félögin hafa fullan hug á að
sjá um varðveizlu bikarsins. '
Þátttaka Völsungs var mjög
ánægjuleg, og vonandi heldur
hann þátttöku sinnj áfram. •—
Með góðri æfingu geta þeir
fljótlega orðið hinum félögun-
um þungir í skauti.
Ólafsfirðingar og Skagfirð-
ingar eiga sæmileg lið, sem vel
hefðu getað tekið þátt 'i þessu
móti, og það er vissulega kom-
inn tími til, að þeir hyggi á
þátttöku. Þeir eiga nóg af góð-
um efnum, sem fyrirhuguð þátt
taka í Nl-móti mundi glæða
áhugann hjá, svo þjálfun yrði
meiri og reglulegri.
„Fár er smiður í fyrsta sinn“
Óttinn við að tapa stendur öll-
um framförum fyrir þrifum.
Það var ekki fyrr en eftir 13
ára stöðuga þátttöku í Nl-
mótum, að K.S. tókst að vinna
1946.
Á sunnudag bauð K.S. öllum
þátttakendum, starfsliði og
nokkrum öðrum gestum til
kaffisamsætis og dansleiks að
Hótel Hvanneyri. Formaður
K.S., Eiríkur J. B. Eiríks'son,
stjórnaði hófinu og bauð gesti
velkomna. Ragnar Steinbergs-
son þakkaði fyrir hönd. aðkomu
félaganna móttökur, fram-
kvæmd mótsins og dómaranum
fyrir góða dóma. Form. iB.S.
ávarpaði aðkomumenn f.h. K.S.
inga. Ennfremur tóku til máls
Hannes Sigurðsson dómari og
Jón Kjartansson, bæjarstjóri,
sem flutti snjalla hvatningar-
ræðu til 'íþróttamannanna.
Mótið fór í alla staði vel
fram og var Siglfirðingum til
sóma. Hafi mótstjórn K.S.
þökk fyrir framkvæmd móts-
ins, og kapplið K.S. fyrir
frammistöðu sína.
Talsvert bar á því, að áhorf-
endur hliðruðu sér hjá að
greiða aðgangseyri að leikjun-
um, og er það þeim til minnk-
unar. Ætti mönnum ekki að
vera þungbærara að greiða 5
kr. í aðgangseyri að skemmti-
legum kappleik en að greiða
svipaða eða hærri upphæð í að
gangseyri á bíó. Einnig er
þetta mjög bagalegt fyrir
K.S., sem ekki hefur aðrar
tekjur en aðgangseyrinn til að
standa undir kostnaðinum við
mótið.
I kappliði K.S. voru þessir
menn: Viðar Gunnlaugsson,
Gunnlaugur Skaftason,% Ás-
gr'imur Einarsson, Stefán
Skaftason, Anton Jóhannsson,
Jóhann Ólafsson, Jóhann G.
Möller, Guðmundur Árnason,
Gústaf Nílsson, Henning
Bjarnason, Jónas Ásgeirsson
og Friðleifur Stefánsson,
Knattspyrnumót Norðuriands 1952