Mjölnir - 26.08.1954, Síða 2
• 3
MJÖLNIE
_r j- j- r~ r~ _m~ — — — — .
BÆJARPÚSTURINN
MJÖLNIR
Útgefandi:
SÓSlALISTAFÉLAG SIGLUFJARÐAR
Rits|jóri og dbyrgðarmaður:
! BÉKÉDIKT siCurðsson
I Aslcriftargjald kr. 38.00 árg.
I Afgreiðsla Suðurgötu 10. ,
Simar: 194 og 130.
Siglufjarðarprentsmiðja h. f. . ,
Nú gildir það, að stað-
ið sé við storu orðin.
/
Góðir Siglfirðingar! Það þykir nú
útséð um, að sumarið sé á enda
:hvað síldaratvinnu snertir, og eru
allir sammála um, að aldrei hafi
verið svo þröngt fyrir dyrum að
. sumri loknu hjá þessu bæjarfé-
lagi sem nú. Mjölni finnst því
ástæða til að minna ykkur á,
hverjir það eru, sem hafa kosið
að veita forsjá þessu bæjarfélagi,
einir og óstuddir, með minnihlutá
kjósenda á bak við sig, en af-
þökkuðu alla hlutdeild hinna, sem
höfðu meirihluta kjósenda á bak
við sig. Mennirnir eru þessir:
Ölafur Ragnars, Baldur Eirlks-
Son, Georg Pálsson, Ragnar Jó-
hannesson og Bjarni Jóhannsson.
Þrír eru fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins og tveir eru fulltrúar
Framsóknarflokksins.
Undanfariri kjörtímabil hefur
það verið viðkvæði þessara flókka
að þeir yrðu að fá meiri „áhrif“
iniian bæjarstjórnar til þess að
þeir gætu látið þar að sér kveða
svo sem þyrfti. Sjálfstæðisflokk-
urinn Iiamraði á því, að hann
þyrfti að fá „áhrifamann“ á Al-
þing, mann, sem nyti trausts og
álits og hefði stærsta þingflokk-
inn á bak við sig. — Kjósendur
hér í bænum urðu við þessari
kr’öfu á s.l. ári. Og nú á víst
Siglufjörður raunverul. „áhrifa-
mann“ á Alþingi skv. skrifum
Siglfírðings. Þegar þingmaðurinn
var fenginn upphófst krafan um
aukin „áhrif“ í bæjarstjórn, og
var öllu fögru heitið ef sú krafa
yrði uppfyllt. Blaðið Siglfirðingur
sagði svo: „— Þeir lofa því einu
að taka á hverju máli af ábyrgð
og festu, og keppa að því marki
að hér verði blómleg byggð, þar
sem fólkið hefur verk að vinna og
getur unað glatt við sitt.“
Og Einherji sagði:
„Enginn, sem gefur B-listanum
atkvæði sitt, þarf að iðrast þess.
Fulltrúar listans munu hér eftir
sem hingað til hugsa fyrst og
síðast umvelferð bæjarins“.
Kjósendur í bænum urðu einnig
við þessari kröfu og meira til.
Þeir yeittu hvorum stjórnarflokki
aukin áhrif í bæjarstjórn, sem
nam einum fulltrúa og veittu
þeim sameiginlega hreinan meiri-
★ Hvaö á kjötiS uö kosta? Húsmæð-
ur liafa komið að máli við Bæjar-
póstinn og beðið liann að hafa upp
á réttu verði á dilkakjöti. Segja þær,
að hér í kjöthúðinni sé t.d. tvenns-
konar verð á súpukjöti án þess að
þar sé um flokkamun að ræða. —
Framleiðsíuráð landbúnaðarins hefur
liirt auglýsingu um verð á kinda-
kjöti af nýslátruðu sumarið 1954, og
er liún birt í Lögbirtingablaöi nr.
54 þann 18. ágúst is.l. Þar segir svo:
„Frá 24. ágúst til 30. ágúst: A .Heild-
söluverð: I. veröflokkur kr. 22,90 pr.
kg. II. verðfl. kr. 10,00 pr. kg. B.
Smásöluverð:
I. verðflokkur:
Súpukjöt ........... kr. 27,00 pr. kg.
Heil læri .......... — 29,50 --------
Sneidd læri ........ — 31,20---------
Ilryggir .1......... — 30,00 --------
Kótelettur ......... — 30,80 — —
II. verðflokkur:
Súpukjöt ........... — 18,90 pr. kg.
Þetta er sem sagt bið rétta verð,
því engin klásúla er um það í þess-
ari auglýsingu, að það skuli vera
mismunandi eftir landshlutum eða
þótt flytja 'þurfi kjötið frá slátrunar-
stað til sölustaðar. Og nú geta liinar
ágætu lnismæður gert sinn saman-
burð á verði Kjötbúðarinnar og þess,
,sem auglýsingin kveður á um.
Og svo eru það tilmæli, sem marg-
oft er búið að biðja Bæjarpóstinn
að koma á framfæri við Kjötbúðina.
En þau eru, að tekið verði upp betra
afgreiðslufyrirkomulag, sem útiloki
að fólk þurfi að bíða svo og svo
lengi eftir afgreiðslu, vegna þess, að
það notar ekki frekju til að troða
sér fram að afgreiðsluborðinu. Engin
von er til, að afgreiðslufólkið geti
fylgzt ineð í hverri röð fólk kemur
inn í búðina og veit því ekkert um
hluta. Og þar með var uppfyllt
óskin um það, að þessir tveir
flokkar gætu einir og óstuddir
stjórnað bænum á „farsælan“ hátt,
án „spillandi“ samstarfs við
komma eða krata, og svo vitan-
lega með náðarsól ríkisstjórnar-
innar skínandi yfir sér.
En hvenær hefur Siglfirðingum
riðið meir á, að á málefnum bæj-
arfél. sé tekið með festu og á-
byrgð ef ekki einmitt nú? Og hve-
nær hefur þeim meira riðið á að
eiga áhrifamann á þingi, sem
getur og vill koma einhverju máli
fram til hagsbóta fyrir þetta bæj-
arfélag, en einmitt nú? Og er
ekki einmitt NÚ kominn tími til
þess að hugsa „fyrst og síðast
um velferð bæjarins“? Það skal
viðurkennt að uppbygging at-
vinnulífs í Siglufirði tekur pinn
tima. EN EINHVERNTlMA ER
ALLT FYRST, og því ríður á,
að liafizt sé handa, en ekki flotið
sofandi að feigðarósi.
Siglfir.ðingar! Þið hafið verið
lofsamlega greiðviknir við menn
þessa og flokka, veitt þeim þá
aðstöðu til áhrifa og stjórnsemi,
sem þeir þóttust öllu fremur
verða að fá.
Nú gildir að þeir standi
við orð sín og sýni, að þeir
eéu þeir karlar, sem af tali
þó einliver bíði lengur en hann ætti
að gera. Því er það tillaga, að tekiö
verði upp númerafyrirkomulag, sem
víða er farið að tíðkast í búðum,
sem mikið verzla og hætta er á ös
á vissum tímum. En fyrirkomulagið
er þannig, að viðskiptavinurinn tek-
ur sér númeraspjald, sem hangir við
dyrnar, þegar liann kemur inn, og
svo er afgreitt eftir númeraröðinni.
Á árum vöruskortsins var þetta fyrir-
konnilag notað hér í K.F.S. og reynd-
ist vel. Er því vonandi, að forstjóri
Kjötbúðarinnar taki þetta fyrirkomu-
lag upp áður en afgreiðslutími stytt-
ist aftur á laugardaga.
★ Andlát. Þann 6. ág. s.l. a’ndaðist
frú Sigrún Guðlaugsdóttir Henriksen
að heimili sínu Aðalgötu 2 hér í bæ.
Banameinið mun hafa verið heila-
blóðfall. Hún var kona Olav Hen-
riksen síldarsaltanda. Sigrún sál. var
mikil sæmdarkona og hugljúf öllum,
sem kynntust henni. Jarðarför henn-
ar fór fram að viðstöddu fjölmenni
þann 20. ágúst s.l.
★ Dauöaslys. Þann 16. ágúst s.l. vildi
það slys til á Keflavíkurflugvelli, að
verkamaður liéðan úr bænum, Hilm-
ar Jónsson (Jónssonar frá Tungu)
féll úr mikilli bæð til jarðar, þar
sem hann var að vinna. Lézt hann
nokkru síðar. Hilmar sál. var um
fertugt, er hann lézt, og lætur hann
eftir sig konu og börn. Jarðarför
hans fór fram þann 21. ág. s.l. að
viðstöddu fjölmenni. Hann var vel
látinn maður af öllum, sem þekktu
★ Andlát. Þann 15. ágúst s.l. lézt
Sigríður Stefánsdóttir, Lindargotu
6 B, kona Friðleifs Jóhannssonar. —
Hún var rúml. áttræð að aldri. —
Jarðarförin fór fram s.l. þriðjudag
★ Andlát. Þann 22. óg. s.l. lézt á
sjúkrahúsi Sauðárkróks Pétur Björns-
þeirra mátti ráða að þeir
væru.
Nú eru hér erfiðari ástæður en
nokkru sinni fyrr og því reynir
nú á karlmennskuna og mann-
dóminn. Nú gildir ekki gum og
gaspur, lýðskrum og blekkingar,
heldur dirfska og áræði, kjarkur
og þrautseigja, festa og harð-
fylgi, hyggindi og ráðsnilld. —
Vegna bæjarins okkar og allra
íbúa hans, vill Mjölnir óska, að
þeir fimm menn, sem með stjórn
hans fara að eigin ósk, reynist
nú þeir menn, sem þeir gáfu í
skyn, að þeir væru, þegar þeir
biðluðu til fylgis kjósenda, og
ennfremur, að þeir góðu eigin-
leikar, sem áðan voru taldir,
fyrirfinnist í ríkum mæli hjá
þeim öllum. Verði svo má treysta
því, að góð ráð og velmeintar til-
lögur frá minnihlutanum verði
ekki huslaðar sem hræ í rusla-
kistu bæjarráðs athugunarlaust.
Það er vel hálfnað fyrsta ár
þessa kjörtímabils og nú þegar
er tendrað bál þess hreinsunar-
elds, sem bæjarstjórnarmeirihlut-
inn verður að ganga í gegn um.
Stenzt hann eldskírnina eða ekki?
Um það spyrja siglfirzkir kjós-
endur nú, bæði minnihlutinn á
bak við meirihlutann og meiri-
hlutinn á bak við minníhlutann.
son, fósturfaðir Péturs Laxdals, tré-
smíðameistara hér í bæ. Pétur sál.
var rúmlega níræður að aldri, þegar
hann lézt.
Sjötugsafmæli átti Símon Sveins-
son, verkamaður, Hafnargötu 2, hér í
bæ 12. ágúst s.l. Símoh er mikill elju
og dugnaðarmaður og vel kynntur.
Hann skipaði sér á yngri árum í rað-
ir hins róttæka verkalýðs, og hefur
jafnan verið góður liðsmaður í verka
mannasamtökunum hér og Sósíalista-
fiokknum. Mjölnir færir Símoni lieilla
óskir í tilefni afmæiisins og þakkar
veitta liðsemd á liðnum árum.
Vísnaþátturinn
Framh. af síðasta þætti.
Elzta sléttubandavísa, sem varð
veizt hefur, er í hinum frægu
Rollandsrímum Þórðar á Strjúgi,
lokaerindi 15. rímu. Bragarháttur
Fléttubönd minni, síðasta vísa
sléttubönd ort fyrir 1590. B.K.Þ.
Rímur fyrir 1600.
VI. Sléttubönd aldýr.
Mettur rómur meyrnar mér,
máttur Glettu góma;
dettur tómur lieyrnar hér
háttu sléttu óma.
Hér ríma öll vísuorð saman á
víxl og hvert orð rímskorðað.
Skáldið byrjar vísuna sýnilega
með Fléttubönd í huga (bragar-
hátt rímunnar) en lendir út af
og á ljóðstöfun Sléttubanda og
það virðist ráða úrslitum.
Á 17. öld er vísan ort upp og
hátturinn nefndur Sléttubönd.
Léttur vandi meyrnar mér,
máttur Glettu anda;
réttur standi heyrnar hér
háttur Sléttubanda.
(B.K.Þ. rímur fyrir 1600 bls. 72)
Sléttubönd, frumsneydd og tá-
sneydd.
Máttur réttur snjalla snill
snara færa kinni;
háttur sléttur valla vill
vara tæra minni.
Síðasta erd. 17 r. af Flóres og
Leó eftir séra Hallgrím Péturs-
son. — Þessari vísu breytir séra
Helgi Sigurðsson á 48 vegi. (Brag
fræði ísl. rímna bls. 125—128).
Sléttubönd, frum- og tálykla
sneydd.
Nettubanda máttinn minn
meiri gallar kliður.
Sléttubanda háttinn hinn
heyri falla niður.
Úr Ðragða-iMágusarrímum eftir
Jón Laug. Jónsson. Bragða-Mág-
usarrímur eru lengstu rímur, sem
til eru, 70 að tölu.
Sléttubönd, þráhend, hringhend,
frumtáskeytt.
Kvíða Góa færir fjær,
fríðu glóa kvöldin;
þýða skóga bærir blær
blíðu frjóa völdin.
(Benedikt Guðm.son frá H'úsavík.
VII. Sléttubanda afdráttur.
Sléttum, hróður, teflum taíl,
teygjum þráinn snúna.
Léttum róður, eflum afl,
eygjum ráðin núna.
(Sveinn Hannesson)
(Framhald á 4, síðu)