Mjölnir - 23.11.1962, Qupperneq 2
MJÖLNIR
Útgefandi:
Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi vestra.
Ábyrgí5arma8ur:
Hannes Baldvinsson.
Afgreiðsla: Suðurgötu 10 — Sími 194.
Prentsmiðja Björns Jónssonor h.f.
Akureyri.
1-------------------------------------------------------------♦
Kjarhleysi tg smðsdlarshapur,
sem bíður þess að slys og óhöpp knýi á um fram-
kvæmdir, er hemill framfara á Siglufirði.
/ 15. tbl. Siglfirðings, sem út kom 5. nóv. s. L, er gerð að um-
talsefni grein í Mjölni um framtíð Siglufjarðar. í Mjölnisgreininni
var vikið að jrásögn Sigljirðings af erindi Halldórs Kristinssonar,
fyrrv. héraðslœknis, og sagt, „að allt það, sem H. K. segir
um undirstöður og framtíð Siglufjarðar er hárrétt“. Vegna þessara
orða lœtur Siglfirðingur að því liggja, að Mjölnir hafi samþykkt
allt rétt, sem H. K. sagði, sbr. jyrirsögn innan gœsalappa: „Allt það,
sem hann sagði er liárrétt“. Slíkar tilraunir til falsana eru vissulega
í samrœmi við starfsaðjerðir þeirra, sem mestu ráða um efni Sigl-
firðings.
Allir, sem lásu greinina í Mjölni, skildu, að þar var verið að und-
irstrika það, að menn greindi ekki á um þau undirstöðuatriði, sem
framtíð bœjarins verður að byggjast á, um þau erum við Alþýðru-
bandalagsmenn sammála Halldóri Kristinssyni og hverjum öðrum,
sem af alvöru og ábyrgðartilfinningu rœðir þau mál. Fulltrúar sós-
íalista og Alþýðubandalags hafa verið óþreytandi við að benda á
leiðir og úrlausnir, bera jram tillögur um það, hvernig hagkvœmast
vœri að byggja á þeim undirstöðum, sem segja má að allir séu sam-
mála um. Þessar tillögur hafa fœstar náð fram að ganga, þar hefur
ajturhaldssemi og smásálarskapur íhaldsfulltrúanna látið til sín taka
og fellt þœr eða svœft. Og þess vegna er ástandið hér í Siglufirði
svo alvarlegt sem það er í dag. Það breyta engar kosningagyllingar
þeim staðreyndum, sem við blasa um skammsýni og kjarkleysi
þeirra manna, sem á undanförnum árum og áratugum hafa öllu
ráðið um málefni bœjarins, þeirra manna, sem hafa verið þeir
byggingameistarar, sem byggja áttu á hinum góðu undirstöðum að
glœsilegri framtíð, sem Siglufirði hlotnaðist úr náttúrunnar hendi.
Siglfirðingur býður oklcur alþýðubandalagsmenn (kommúnista,
sem hann kallar) velkomna til samstarfs, ef við teljum leið bœjar-
stjórnarmeirihlutans þá réttu leið. Það þarf ekki að bjóða okkur
sérstaklega velkomna til samstarfs um hag og heill bœjarins. Við
liöfum alltaf verið reiðubúnir til þess samstarfs, buðum upp á slíkt
samstarf strax í byrjun þessa árs, áður en undirbúningur að bcejar-
stjórnarkosningum hófst. Tilboði okkar var hafnað, án þess að at-
hugað vœri, hvort leiðir gœtu legið saman í stefnu bœjarmálanna.
I kosningabaráttunni skorti ekki fögur fyrirheit og stór loforð meiri-
lilutaflokkanna, en eftir kosningarnar, þegar gera átti ráðstafanir
til efnda loforðunum, þá kom annað hljóð í strokkinn. Þá skildu
leiðir okkar og þeirra og við höfum œ betur sannfœrst um, að þeirra
leið er röng og ekki fœr um að leysa á skjótan hátt þann mikla
vanda, sem að Siglujirði steðjar nú.
SLYSA- OG ÓHAPPASTJÓRN BÆJARMÁLANNA.
Það er mjög athyglisvert, að öll helztu framkvæmdaatriðin, sem
meirihlutinn gortar nú af og telur vera efndir á kosningastefnuskrár-
loforðum, öll eru þau komin á framkvœmdastig vegna slysa og stór-
kostlegra óhappa. Skal nú ögn að þessu vikið.
a) Hafnarbryggjan. Endurbygging og stœkkun hafnarbryggjunn-
ar var hafin, þegar sýnt var, að gamla bryggjan myndi hrynja
þá og þegar. Nú má það kallast lofsverð forsjálni, að ekki skyldi
beðið með að hefja framkvœmdir þar til stórslys hafði orðið á
mönnum og tækjum.
b) Útgerðarmálin. Stefna bœjarstjórnarmeirihlutans í útgerðarmál-
um hefur verið neikvœð og er sama, hvort um hefur verið að
rœða bátakaup eða fyrirgreiðslu um bœtta aðstöðu í landi. Það
er fyrst eftir að hið mikla slys verður, er togarinn Elliði fórst,
að tal um bátakaup verður allhávært. Annar meirihlutaflokkur-
inn reyndi að gera bátakaupamálið að kosninganúmeri fyrir sig
og lofaði góðu skipi fyrir síðustu síldarvertíð. Enn hefur ekki
frétzt neitt af því síldarskipi. Sé um þróun að rœða í útgerðar-
málum, þá er það Elliðaslysið, sem er aflvaki þeirrar þróunar.
c) Flóðvarnargarðurinn. Þrátt fyrir liggjandi fjárfúlgu á banka til
viðgerðar Flóðvarnargarð'sins, er sú viðgerð ekki framkvœmd
fyrr en stórjelld óhöpp og tjón hafa hlotizt af flóðum yfir eyrina.
d) Fjallskurðurinn. Þrátt fyrir árlegt tjón af völdum flóða úr
2) — Mjölnir
Ibflld oo hrator bern dbvrgðind sdneiginlegd
(Framhald af 1. síSu).
9. þ. mán., hefur leitt í ljós að
bæjarstjóri, Sigurjón Sæ-
mundsson, hefur vanrækt að
láta framkvæma viðgerð þá á
þessu mannvirki, sem honum
var með samþykkt bæjarstjórn-
ar 14. sept. 1961 falið að láta
framkvæma þá um haustið, og
þar sem bæjarstjórn telur, að
reynsla sanni, að bæjarstjóra
skorti nægilega yfirsýn yfir
þau verkefni, sem vinna þarf
að á vegum bæjarins á hverj-
um tíma, samþykkir bæjar-
stjórnin að víkja honum úr
starfi nú þegar og ráða annan
bæjarstjóra.
Greinargerð með tillögunni
fylgir hér með.
Virðingarfyllst,
Benedikt Sigurðsson.
Hannes Baldvinsson.
GREINARGERÐ
með tillögu um brottvikningu
bœjarstjóra, Sigurjóns Sœmunds-
sonar, úr starfi.
Á fundi í hafnarnefnd Siglu-
fjarðar 25/3 1958, er vakin at-
hygli á háskalegu ástandi Oldu-
brjótsins og Vigfús Friðjónsson,
þáverandi fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, flutti þar tillögu um að
framkvæma rannsókn á ástandi
bryggjunnar og hvað gera þurfi
til að fyrirbyggja frekari skemmd-
ir. Tillaga Vigfúsar var að vísu
ekki samþykkt af þáverandi meiri-
hluta, en engu að síður vakin at-
hygli ráðamanna á að þarna væri
framkvæmda þörf.
Sama ár í desember er lögð
fram skýrsla frá Áge Johansen,
sem þá hafði kafað við Öldubrjót-
inn og athugað skemmdir þar, en
engin ákvörðun tekin um viðgerð
á skemmdunum.
18. sept. 1959 skrifaði hafnar-
vörður, Þórarinn Dúason, bréf
til hafnarnefndar, þar sem hann
bendir á, að ástand Öldubrj ótsins
sé orðið mjög varhugavert og
leggur eindregið til að skemmd-
irnar verði athugaðar af sérfróð-
um manni og hafizt handa um úr-
bætur. Á fundi hafnarnefndar
25/9 ’59, sem um bréfið fjallar,
var samþ. að fela Þorláki Helga-
syni verkfr. ásamt hafnarverði og
bæjarverkstjóra, að athuga ástand
Öldubrjótsins og skila álitsgerð til
hafnarnefndar.
1. apríl 1960 skila þeir þre-
menningar áliti og tillögum til úr-
bóta, bæði um heildarviðgerð og
bráðabirgðaviðgerð og á fundi í
hafnarnefnd, sem um bréf þeirra
fjallar, er bókað inn álit Þorláks
Ilelgasonar, þar sem hann telur
nauðsynlegt, að bráðabirgðavið-
gerð fari fram á bryggjunni þegar
á næsta sumri.
Bæði á undan og eftir hefur oft-
lega verið minnt á hættulegt
ástand Öldubrjótsins, á fundum
hafnarnefndar og eins í blaða-
skrifum um mannvirkið.
Þann 12. sept. 1961 er svo sam-
þykkt í hafnarnefnd skrá yfir fyr-
irhugaðar framkvæmdar á hafnar-
mannvirkjum þá um haustið, og
er VIÐGERÐ Á ÖLDUBRJÓTN-
UM talin efst á þeirri skrá. Sam-
þykkt þessi er síðan staðfest í bæj-
arstjórn 14. sama mán. og bœjar-
stjóra þar með falin framkvœmd
verksins.
Af ofangreindu má sjá, að bæj-
arstjóra, Sigurjóni Sæmundssyni,
hlýtur um langt árabil að hafa
verið Ijóst hættulegt ástand Öldu-
brjótsins, enda höfðu á þessu
tímabili skeð óhöpp á bryggjunni,
svo sem að bílar duttu niður úr
dekkinu, þó að ekki hafi orðið
slys á mönnum fyrr en nú. Þá van-
rækir bæjarstjóri að framkvæma
skýlausa samþykkt hafnarnefndar
og bæjarstjórnar um viðgerð á
bryggjunni, jafnvel þó hann hafi
í höndum álit verkfræðings o. fl.
um það, hvernig verkinu skuli
hagað.
Ekki er unnt að afsaka fram-
taksleysi bæjarstjóra með því að
fé hafi skort til framkvæmdanna,
því að samkvæmt aðalbók hafn-
arsjóðs og uppgjöri bæjargjald-
kera, nam sjóðseign hafnarsjóðs
Siglufjarðar um áramótin 1961—
1962 kr. 1.120.250,71, svo að
nægilegt fé til framkvæmdanna
hlýtur að liafa verið fyrir hendi
þegar verkið skyldi vinnast.
Sökina á vanrækslu þessari á
því bæjarstjóri, Sigurjón Sæ-
mundsson einn, og er eitt út af
fyrir sig nægileg ástæða til að
víkja honum úr starfi.
í síðari hluta tillögunnar er
látin í ljós sú skoðun, að bæjar-
stjóra, Sigurjón Sæmundsson,
skorti nægilega yfirsýn yfir þau
verkefni, sem vinna þurfi á veg-
um bæjarins á hverjum tíma. I
þessu sambandi minnum við á
tvö mál frá síðustu mánuðum, en
hægt væri að tilfæra mörg fleiri.
Flóðvarnargarðurinn. Það hef-
ur verið öllum sýnilegt mörg und-
anfarin misseri, að skemmdir á
flóðvarnargarðinum norðan á
Þormóðseyri gætu leitt til stór-
tjóns á eyrinni, ef ekki væri að
gert. Árið 1959 var veitt fé á fjár-
lögum til verksins, auk þess, sem
heimilt var að ráðstafa fé úr hafn-
arsjóði til verksins. Þrátt fyrir það
að ekki skorti fé til framkvæmd-
anna og þrátt fyrir samþykktir
bæjarráðs og bæjarstjórnar um að
hefja verkið, lét hann það drag-
ast þar til eftir að flóð hafði
gengið yfir eyrina og valdið mikl-
um spj öllum.
F jallalœkurinn. Lækur þessi
hefur valdið spjöllum undanfarin
ár, og hafa íbúar þessa bæjar-
hverfis, sem hann hefur leikið
verst, og bæjarráð, bæjarfulltrúar
og blöð bæjarins hvað eftir annað
vakið athygli á því, að þörf væri
aðgerða til að hindra stórfellt tjón
af völdum hans. Þrátt fyrir þetta
lét bæjarstjóri verkið dragast unz
lækurinn hafði valdið stórtjóni.
Vanrækslan á að gera við Öldu-
brjótinn er nýjasta dæmið um
það, hve litla yfirsýn bæjarstjóri
virðist hafa yfir þau verkefni, sem
vinna þarf á vegum bæjarins á
hverjum tíma. Það virðist sem sé
ekki duga minna en stórfellt tjón
eða slys til þess að hann veiti at-
hygli þeim verkefnum, sem kalla
að um úrlausn á hverjum tíma.
Teljum við af ofangreindum
ástæðum, að Sigurjón Sæmunds-
son sé óhæfur til að vera bæjar-
stjóri í Siglufirði, og leggjum til,
að tillagan um brottvikningu hans
verði samþykkt.
Siglufirði, 12. nóv. 1962.
Benedikt Sigurðsson.
Hannes Baldvinsson.“
Orðsending fró
Eyrarbúðinni
Væntanlegt mikið
úrval af ýmsum
jólavörum með
næstu ferðum.
EYRARBÚÐIN
Þvottaefnið
m tg BETT
Lækkað verð.
LITLABÚÐIN
fjallskurðinum er það ekki fyrr en af afstöðnu stórflóði með
miklum skemmdum, að hajizt er handa um aðgerðir til að fyr-
irbyggja flóð og skemmdir. Hraði þessara framkvæmda vœri
sérstaks umtals verður, en þœr hafa staðið yfir í um það bil
þrjá mánuði, og er enn langt frá því að vera lokið.
e) Oldubrjóturinn. Þetta mannvirki, sem hefur algerlega gleymst í
afreksverkaupptalningu meirihlutans, minnti lieldur óþyrmilega
á sig hér á dögunum, þegar krani féll niður um dekk þess og
stjórnandi kranans slasaðist mikið. Þetta slys mun sennilega
ráða því að hafin verður sú endurbygging mannvirkisins, sem
óhjákvœmileg var talin í sept 1959.
f ) Innri-höfnin. Það slys, að meirihluti íhalds og krata með Sigur-
jón Sœmundsson í broddi jylkingar skyldi 1958 fella fram-
kvœmdatillögur alþýðubandalagsmanna, hefur valdið Siglufirði
óútreiknanlegu tjóni. Það eru áhrif frá þessu tjóni, sem nú rek-
ur meirihlutann til smávœgilegra framkvœmda við Innra-liafn-
arsvœðið.
A f þessari upptalningu má sjá, að það eru slysin og óhöppin, sem
rekið hafa ráðamennina til einhverra athafna. Það er svo eftir skap-
ferli hvers og eins, hvort liann hœlir þeim fyrir athafnasemina eða
ekki.
Föstudagur 23. nóvember 1962