Mjölnir - 19.05.1967, Page 3
Ríhísstjórnin riöor til falls
6
Fellur ríkisstjórnin í komandi
kosningum? Fœr nýi, óhóði flokk-
urinn þingsæti? Getur Fromsókn
nokkurs staðar unnið monn? Eða
getur Alþýðubandalagið nóð upp-
bótarþingsætum af stjórnarflokk-
unum og fellt þannig ríkisstjórn-
ina? Um allt land velta menn fyrir
sér þessum spurningum.
Óháði lýðræðisflokkurinn
virðist almennt ekki talinn lík-
legur til að geta unnið þing-
sæti, en þó má heita víst, að
hann tekur tvö til.þrjú þúsund
atkvæði samtals frá stjórnar-
flokkunum og jafnvel eitthvað
frá Framsókn. Ef þanmig fer,
verður miklu auðveldara fyrir
Alþýðubandalagið að vinna
uppbótarþingsæti frá stjómar-
ffokkunum, að minnsta kosti
eitt og jafnvel tvö.
f Reykjavík hafa verið hoðn
ir fram tveir listar í nafni Al-
þýðubandalagsins, og þótt ann-
ar verði merktur utan flokka,
hefur landskjörstjórn lýst yfir
því, að atkvæði beggja list-
anna verði talin til Alþýðu-
bandalagsins við úthlutun upp-
bótarþingsæta. (Nýkjörið Al-
þingi hefur þó fullnaðarúr-
skurð um málið). Á lista Hanni
bals eru nokkrir kunnir verka-
lýðsleiðtogar, sem fylgt hafa
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkn-
um fram að þessu, og er því
allt sem bendir til þess, að báð-
ir listarnir fái samanlagt tals-
. v.ert meira fylgi en Alþýðu-
bandalagið hefur áður fengið
í Reykjavik. Með hliðsjón af
þessu, er alls ekki ólíklegt, að
Alþýðubandalagið geti unnið
tvö uppbótarþingsæti af stjórn-
arflokkunum.
Það hefur lengi verið ljóst,
að aðeins sigur Alþýðubanda-
lagsins getur orðið ríkisstjórn-
inni að falli, vegna þess að ekki
er unnt að benda á eitt einasta
kjördæmi, þar sem Framsókn
hefur verulega von í nýju þing-
sæti. Þar að auki hefur Fram-
sókn í þingliði sínu að minnsta
kosti einn mann, sem sýnt hef-
ur við fjöldamargar atkvæða-
greiðslur á Alþingi, að hann
. er reiðubúinn að styðja Bjarna
Benediktsson, ef hann þarf á
að halda. Björn Pálsson mun
sennilega ná kosningu, en ef
hann skyldi falla, fækkar ekki
stjórnaramdstæðingum við það.
Vonin um fall ríkisstj órnar-
innar er því fyrst og fremst við
það bundin, hvert verður heild
aratkvæðamagn Alþýðubanda-
lagsins og hve mörg uppbótar-
þingsæti það fær. Hvert at-
kvæði greitt Alþýðubandalag-
inu kemur að fullum notum í
baráttunni gegn nveramdi
stjórnarmeirihluta, en það mun
engu breyta, þótt Framsóknar-
flokkurinn bæti við sig fylgi.
ingu. Þar á ég við frændur okkar
á Norðurlöndum. Það er rétt, að
við megum ekki einangra okkur,
og nánari samvinna við 'hin Norð
urlöndin er tvimælalaust farsæl-
asta leiðin.
1R ALÞYÐU-
BANDALAGIÐ
AÐ KLOFNA?
— Hvað segirðu um átökin inn-
an Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík?
■— Alþýðubandalagið er yngsti
stjórnmálaflokkur landsins og um
leið mikilverðasta tilraunin, sem
gerð hefur verið til að samfylkja
vinstrimönnum. Fyrir meira en
áratug, eða áður en Alþýðubanda
lagið var stofnað, voru forystu-
menn þess í þremur andstæðum
stjórnmálaflokkum, Alþýðuflokki,
Þj óðvarnarflokki og Sósíalista-
flokki, og lentu þá oft í hörðum á-
tökum. Að sjálfsögðu tekur það
nokkurn tíma. að losna algjörlega
yið tortryggni frá fyrri tíð. En það
er mikíð í húfi fyrir íslenzka
vinstrimenn að Alþýðubandalag-
inu farnist vel, og þeir hljóta því
að sýna þolinmæði, þótt nokkur á-
tök verði í einu eða tveimur kjör-
dæmum landsins.
Mér hefur alltaf virzt, að stjórn-
málaflokkur geti ekki klofnað,
meðan enginn ágreiningur er um
stefnumálin. Hvort sem mönnum
líkar betur eða verr, þá hlýtur það
að fara svo,.að þeir menn sem eru
sammála um öll höfuðatriði ís-
lenzkra stjórnmála, lenda óhjá-
kvæmilega í sömu, óskiptu fylk-
ingunni. Þess vegna er Alþýðu-
bandalagið til og þess vegna verð-
ur það áfram óklofið. En lítum síð
an á flokk eins og Framsóknar-
flokkinn. Hann hangir saman,
jafnvel betur en aðrir flokkar þessa
dagana. En vegna sundurlyndis
undir niðri og gagnstæðra skoð-
ana, kæmi mér ekki á óvart, að
sá flokkur klofnaði fyrr eða síðar.
í fyrra deildu Alþýðubandalags
menn um skipulagsmál sín, en
hafa nú endanlega leyst. það mál.
í vetur er deilt um menn á fram-
boðslista í Reykj avík og afleið-
ingin varð sú, að fram komu
tveir listar í nafni Alþýðubanda-
lagsins. Hvort sem atkvæði list-
anna verða Iögð saman eða ekki,
. en landskjörstjórn hefur lýst yfir
að svo verði, þá er hitt Ijóst, að
Alþýðu'bandalagið er ekki klofið
og getur ekki klofnað, meðan sam-
staða er um málefni.
Eg vil ítrcka þessa afgerandi sfað-
reynd. Alþýðubandalagsmenn eru ein
huga í öllum mélum, hvort sem litið
er til efnahagsmóla og kjarabaróttu,
stóriðjumóla, atvinnuméla eða her-
stöðva- og utanríkismóla. Það er
mcira en unnt er að segja um aðra
flokka. Og einmitt þessi órjúfandi
samstaða mun færa okkur sigurinn.
ÚRVALSRÉTTIR
á virkum dögum
oghátiöum
Á matseðli vikunnar:
STEIKT LIFUR
BÆJAJRABJÚGU
KINDAKJÖT
NAUTASMÁSTEIK
LIFRABKÆFA
A hverri dós er tillaga
um framreiðslu
. KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ.
xG
FRAMFARIR í
GATNAMÁLUM
Síðan síðasti Mjölnir kom út,
ihefur verið unnið nokkuð að
hreinsun aðalumferðargatnanna
í bænum. Og þá hafa líka þau
undur gerzt, að gatnamálasér-
fræðingar bæjarins hafa fundið
það út, að betra væri að ræsa
vatn af götunum heldur en láta
það renna um þær miðjar. Hafa
því á nokkrum stöðum verið gerð
ir svolitlir skurðir meðfram göt-
unum svo vatn geti síast í þá, en
víðast er þó vatn og bleyta enn
mest í miðjum götum. En allt
er gott sem til framfara bendir.
VALDAHLUTFÖLL Á ALÞINGi
STJÓRNARANDSTÆDINGAR:
íííiftiíí • fífftitiffífifiíff = 27
Samf'als 27 þingmenn Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins (að Birni Pólssyni und-
anskildum).
STUÐNINGSMENN
RÍKISSTJÓRNARINNAR:
32 þingmenn Alþýðuflokks og Sjólfsfæðis-
flokks ,-j- varaskeifa stjórnarflokkanna, Björn
Pólsson.
Sérhver ríkissfjórn verður að hafa meirihlufa i bóðum
deildum þingsins fil þess oð geta stjórnað eða samtals 32
þingmenn. Núverandi rikisstjórn styðst við 32 þingmenn
Alþýðu- og Sjólfstæðisflokksins og ef þörf krefur getur hún
reitt sig ó stuðning Björns Pólssonar. Samtals 33 þingmenn.
Ef rikisstjórnin ó að falla, verður Alþýðubandalagið að
vinna 2 af þessum 33 þingsætum, þar sem Framsókn getur
hvergi unnið þingsæti af stjórnarflokkunum.
MENN í ÖLLUM
STJÓRNMÁLAFLOKKUM
SKIPTA VIÐ
AIHEHHAR TRVCGIHCAR
TILKYNNING
um lóðahreinsun í Siglufjarðarkaupstað
Lóðaeigendum og umráðamönnum lóða er skylt að halda
lóðum sínum hreinum og þrifalegum. Ber þeim að flytja burtu
af lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði eða óprýði og hafa
lokið því fyrir 10. júní nk. Hreinsunin verður að öðrum kosti
framkvæmd á kostnað lóðaeigenda.
Á það skal bent, að sorptunna eða tunnur með loki skulu
vera við hverja íbúð. Sorptunnur fást í áhaldahúsi bæjarins
og lok á þær í verzlun Georgs Fanndal. Gengið verður ríkt eft-
ir því, að þessu verði framfylgt.
Einnig skal tekið fram, að stranglega er bannað að fleygja
sorpi eða rusli ánnars staðar í lndi bæjarins en á sorphaug-
ana eða eftir tilvísun bæjarverkstjórans.
Siglufirði, 11. maí 1967.
______________________HeilbrigSisnefnd.
Mjölnir — (3