Mjölnir - 04.12.1970, Blaðsíða 4
Framleiðir Sigló fyrir
sœnskan markað 1971?
Möguleikar á 4000 tunna vinnslu fyrir Svía, auk 8000 tunna
framleiðslu fyrir Sovétmarkað.
Sœnskt fyrirt&ki, G. Richter,
hefur fyrir nokkru leitaS eflir
kaupum á niðurlagSri sild frá
Sigló-verksmiSjunni, allt aS 4000
iunna framleiðsíu.
Ekki hefur stjórn S. R., sem
enn ræður málefnum Sigló, þar
sem ríkisstjórnin hefur enn ekki
efnt loforð sitt um að skipa
verksmiðjunni sérstaka stjorn,
tekið tilboði Svíanna ennþá, en
telja verður vafalaust, að gert
verði út um það alveg á næst-
unni.
Ágreiningur mun vera um
verð. Telja hinir sænsku aðilar,
að vinnslukostnaður í Sigló sé
óeðlilega hár, og hafa boðið að-
stoð við vinnuhagræðingu i
verksmiðjunni, í því skyni að
lækka vinnslukostnaðinn. Yrði
þá tekið upp ákvæðisvinnu-
fyrirkomulag að meira eða
minna leyti. — Starfsfólk verk-
smiðjunnar samþykkti nýlega á
fundi fyrir sitt ieyti slikt fyrir-
komulag, að því tiiskildu, að
tryggt yrði lágmarkskaup, skv.
iaxta. Jafnframt skoraði það á
stjórn S. R. að semja við Svi-
ana.
Verksmiðjan hefur nú fest
kaup á um 8000 tunnum af sild
til vinnslu fyrir aðra markaði,
i'yrst og fremst Rússlandsmark-
: aðinn. Ekki mun enn vera bú-
| ið að semja við Sovétmenn um
söluna þangað, en líklegt er að
það verði gert mjög l'ljótlega.
Eki virðist neití áliorfsinál
fyrir verksmiðjuna að taka lil-
boði Svíanna, jafnvel þótt þvi
fylgi áhætta á smávegis tap-
rekstri, sem þó er mjög vafa-
samt að yrði. Það mundi tryggja
verksmiðjunni vinnslumögu-
leika allt árið og starfsfólkinu
örugga atvinnu. Starfsfólkið,
bæði stjórnendur og verkafólk,
gæti öðlazt mjög dýrmæta þjálf-
un og reynslu, þjóðarbúið fá
margfaldar gjaldeyristekjur fyr-
ir síldina, og síðast en ekki sizt
kæmust Islendingar með þessu
móti inn á sænska markaðinn
fyrir niðurlagðar síldarvörur,
en Svíar eru sem kunnugt er,
i einliverjír mestu síldarneytend-
ur lieimsins. Þeir eru líka rík
þjóð, sem er reiðubúin til að
borga góða vöru háu verði,
fremur en að verða af henni.
Og orsök þess, að þeir leita nú
eftir niðurlagðri síld héðan, er
vitanlega sá síldarskortur, sem
nú er i heiminum. Þeir eiga
í vaxandi vandræðum með að
afla hráefnis fyrir niðurlagn-
ingarverksmiðjur sínar, sem
aftur leiðir til rekstrarerfið-
leika, er valda því, að í sumum
tilfellum er hagstæðara að kaupa
síldina fullunna af þeim þjóð-
um, sem veiða hana.
Það væri stórfurðulegt, ef
þeir ráðherrar, sem annast is-
lenzk sjávarútvegsmál og iðn-
aðarmál, létu þetta tækifæri til
að koma íslenzkri síld fullunn-
inni á markað einnar mestu
sildarþjóðar heimsins, fara
fram hjá sér. Þess vegna ætti
að vera óhætt að slá því föstu
nú þegar, að samningar verði
gerðir við hina sænsku kaup-
endur, og verksmiðjunni þann-
ig tryggt ársverkefni.
Sigiufjarðarprentsmiðja gefur út
12 nýjar bækur
MeSal þeirra eru fjórar ævin-
tgrabækur fyrir yngstu lesend-
urna. Eru þaS hin heimsþekktu
Grimmsœvintýri öskubuska og
RauShetta, og GrenitréS og
Svanirnir eftir H. C. Andersen,
í nýjum þýSingum eftir Jón S.
Sigurjónsson og meö mjög
skrautlegum litprentuSum mynd
um.
Þá eru þrjár bækur byggðar
á kunnu sjónvarpsefni. Er það
Dísa, Bonanza og Guslur. Koma
þar við sögu sömu persónur og
í sjónvarpsþáttunum. Rækurnar
eru allar myndskreyttar, Ron-
anza og Gustur með teikning-
um, en Dísa með myndum úr
kvikmyndum.
Lotta bjargar öllu, Díana
veröur skyttudrottning og Sigga
lœtur gamminn geysa, eru
telpnabækur. Hafa áður komið
út bækur um söguhetjur þessara
bóka og hlotið miklar vinsæld-
ir. Siggu-bókin er sú 16. í röð-
inni og Lottu-bókin sú 10. Af
Díönu-bókunum hefur ein kom-
ið út áður á íslenzku. Höfund-
ur hennar, Rolf Ulrici, mun
vera þýzkur, en hinar tvær eru
eftir Grethe Stevns, sem er
Stióm Sjúkrahússins.
A síðasta bæjarstjórnarfundi
var kosin sérstök stjórn, er hafa
skal með höndum málefni
Sjúkrahúss Siglfjarðar. Aðal-
menn voru kjörnir Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson, Guðmundur Jón
asson og Kristján Sturlaugsson.
Varamenn eru Einar M. Alberls-
son, Sigurður Gunnlaugsson og
Rjarki Árnason.
Qr og skartgripir
Svavar Kristinsson
úrsmiður
meðal þekktustu unglingabóka-
höfunda á Norðurlöndum.
Þá er ný Jonna-bók, sem ber
nafnið Jonni knatispyrnuhetja.
Jonna-bækurnar hafa orðið vin- Qeymig gkkÍ qII ÍÓla-
sælar drengjabækur. J °
Loks er svo Tarzun hinn
sigursæli, ný Tarzan-bók. Að
fróðra manna sögn slaga Tarz-
an-bækurnar hátt upp í bibli-
una og rit Karls Marx og Lenins
að lesendafjölda, og segir það
sína sögu um vinsældir þeirra,
þótt ólíku sé saman að jafna
hvað efni snertir.
Randið á bókum Siglufjarðar-
prenlsmiðju virðist vera í röð
þess bezta, sem gerist um for-
lagsband á Islandi.
Allar
MATVÖRUR
á sama stað.
innkaup til síðustu
daga fyrir jól.
Mjólkursamsaian
Siglufirði
Jólapóstur
Vegna mikilla anna fyrir jólin er fólki vinsam-
lega bent á að skila jólapóstinum sem fyrst, eink-
um þó bögglum. Athygli er vakin á ferð Gullfoss
til Bretlandseyja og Norðurlanda 9. des. n. k.
Póstafgreiðslan
Brunabótaiðgjöldin
féllu í gjalddaga 15. okt. s. 1. Góðfúslega greiðið
iðgjöldin á skrifstofu vorri. — Opið frá kl. 1 til 4
e. h. og fyrir hádegi á laugardögum.
Brunabótafélag íslands
Umboðið á Siglufirði:
ÞORMÓÐUR EYÓLFSSON h. f.
Hvers sem þér þarfnist í
jólabaksturinn
eða 1
jólamatinn
er það til hjá okkur.
Pantið tímanlega (fáið pöntunarlista)
Sími 71162. Við sendum yður heim.
Opnum B A Z A R í dag.
Gestur Fanndal
Ný markaskrá
Samkvæmt lögum verður gefin út markaskrá
fyrir Eyjafjarðarsýslu, Akureyri, Ólafsfjorð og
Siglufjörð árið 1971. Handrit af skránni þarf að
vera fullbúið fyrir miðjan desember n. k.
Hólmsteinn Þórarinsson annast söfmm marka
í Siglufjarðarkaupstað og gerð Siglufjarðarkafla
markaskrárinnar. Gjald fyrir hvert mark er kr.
150,00 og fyrir brennimark kr. 100,00, sem greiða
ber til Hólmsteins nú þegar. Markeigendur þurfa
að tilkynna mörk sín, ný og gömul, til Hólmsteins,
fyrir 10. desember n. k.
Þetta tilkynnist hér með viðkomendum.
Siglufirði, 10. nóvember 1970.
Bæjarstjórinn í Siglufirði
Hafið áhrif á upphæð útsvars
yðar 1971.
ABEINS þau útsvör, álögð 1970, sem verða að
fullu greidd fyrir áramót n. k., fást dregin frá á-
lagningarskyldum tekjum viðkomenda á næsta ári.
Skilvísi kemur því fram í verulega lægra útsvari,
en vanskil í hærra útsvari yðar á næsta ári. Það
er því beggja hagur, bæjarsjóðs og yðar, að þér
séuð skuldlaus við kaupstaðinn um áramót. Með
því móti hafið þér áhríf á upphæð væntanlegs út-
svars yðar til lækkunar.
GERIÐ ÞVÍ SKEL á útsvari yðar sem allra fyrst.
Siglufirði, 10. nóvember 1970.
Bæjarstjórinn I Siglufirði
4 _ MJÖLNIR