Mjölnir - 07.04.1982, Qupperneq 6
Úrbóta er þörf í
atvinnumálum
%
Erfiðir tímar virðast nú framundan í atvinnu-
málum Siglfirðinga. Ástæður þessa eru lesendum
Mjölnis kunnar og þarf út af fyrir sig ekki að fjöl-
yrða um þær. Bæjaryfirvöld hafa að undanförnu
fjallað um þessi mál, m. a. í bæjarráði og atvinnu-
málanefnd. Á almennum fundi AB í Alþýðuhúsinu
þ. 13. mars s.l. urðu miklar umræður um þessi mál,
sem og á sveitarstjórnarráðstefnu flokksins.
Á fundi bæjarráðs 18. mars s.I. lagði Gunnar
Rafn Sigurbjörnsson fram eftirfarandi tillögur sem
samþ. voru:
1. UmS. R.
Bæjarráð samþ. að fara þess
á leit við hæstvirtan sjávarút-
vegsráðherra, að hann hlutist
til um að sett verði á stofn
nefnd til að gera tillögur um
breyttan starfsgrundvöll S.R.,
m. a. með það fyrir augum, að
núverandi aðstaða fyrirtækis-
ins nýtist til atvinnu- og verð-
mætasköpunar.
2. Um samvinnunefnd.
Bæjarráð samþ. að fara þess
á leit við hæstvirtan félags-
málaráðherra að hann hlutist
til um að sett verði á stofn
samstarfsnefnd fulltrúa Siglu-
fjarðarkaupstaðar og ríkis-
valdsins til að gera tillögur um
úrbætur og ráðstafanir vegna
hins alvarlega atvinnuástands
á Siglufirði. Störfum nefndar-
innar verði flýtt eftir því sem
mögulegt er.
Ráðstefna um atvinnumálin.
Einnig kynnti Gunnar ný-
verið í bæjarráði hugmyndir
AB um ráðstefnu um at-
vinnumálin með þátttöku
þingmanna, fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar, framkvæmda-
stofnunar og byggðasjóðs,
fulltrúum frá Útvegsbanka Is-
lands, Sparisjóði Siglufjarðar,
A.S.Í. og fleiri aðiljum. Und-
irbúningur slíkrar ráðstefnu er
þegar hafinn.
Á fundi bæjarráðs 22. mars
lagði Jóhann G. Möller fram
all ýtarlegar hugmyndir Al-
þýðuflokks um atvinnumálin
sem umræðugrundvöll.
Margir munu eflaust velta
því fyrir sér hvort nokkurt
gagn sé af nefndarskipunum
eða ráðstefnum um þessi mál.
Því er til að svara að nauðsyn-
legt er að kynna þann vanda
sem við blasir hér á Siglufirði
á sem flestum vígstöðvum og
fá viðbrögð þeirra, sem geta
haft úrslitaáhrif á þróun mála
hér á næstunni. Meðal þeirra
eru auðvitað þingmenn, eig-
andi stærstu fyrirtækjanna,
þ.e.a.s. ríkið, og síðast en ekki
síst þeir sem peningunum ráða
— bankastofnanir og sjóðir.
Þar að auki gildir í þessu máli
sem öðrum sá sannleikur, að
orðin eru til allra hluta fyrst.
OPIÐ BRÉF
til sjávarútvegsráðherra
Steingríms Hermannssonar
Trillukarl, 8782-9731, á Siglufirði sendir
eftirfarandi bréf:
Vill hv. ráðherra koma því í gegn að leyfðar verði veiðar
með troll, flotvörpu og snurvoð innan þeirrar línu, sem er í
gildi núna? Eins og nú er virðist friðunin helst leiða af sér
offjölgun krossfiska, en af honum er orðið það mikið að hann
er kominn á króka um leið og línan er komin niður og fiskur
kemst þar ekki að. Það sýnir sig best á Hvammstanga, þar
hafa sjómenn hreinsað Vatnsnesál með rækjutrolli og þar
með hreinsað botninn af krossfiski, og þeir hafa fengið ágætis
afla síðan á því svæði.
Mér þætti ekki rnikið þótt ríkisstjórnin léti varðskipin fara
með slóða og hreinsa upp krossfisk á miðum smærri línubáta.
Þá mætti athuga hvort kolastofninn væri ekki vannýttur.
því grásleppunetin fyllast af honum á þeim svæðum, sem
hann hrygnir á, og mikið er af eldgömlum kola, kannski
20—30 ára gömlum. Eins ætti að ráða fiskifræðing til að
rannsaka hvort ná megi hrognum úr grásleppunni lifandi og
sleppa henni svo, líkt og gert er með laxahrygnur.
Þá er mér spurn, hvort hv. ráðherrann vilji beita sér fyrir
athugunum á því, hvort ekki sé mögulegt að hluti loðnuflot-
ans fái að fara á veiðar með íslenska flotvörpu fyrir þorsk,
ufsa, kolmunna og jafnvel síld? Það er enginn vandi að útbúa
þau veiðarfæri svo að gagni komi. Einnig má spyrja hvort
ekki komi til mála að bátar fái að fara á síldveiðar með nót,
sem er 27'/2” á alin og 33ja faðma djúp. Einnig með síldartroll
og flotvörpu.
Virðingarfyllst
8782-9731
KRISTJAN SIGTRYGGSSON I
Kristján Sigtryggsson var
fæddur á Giljum í Vesturárdal
í Skagafirði 27. okt. 1906.
Hann lést 11. janúar í vetur.
staddur í Reykjavík.
Foreldrar Kristjáns voru
Sigtryggur Friðfinnsson bóndi
á Giljum og Ingibjörg Páls-
dóttir kona hans. Kristján ólst
upp í foreldrahúsum, vann
það sem vinna þurfti á sveita-
heimili, greip í bókband og
smíðar með föður sínum og
mun snemma hafa þótt hand-
laginn. Er hann hafði aldur til
gerðist hann nemi í hús-
gagnasmíði hjá Steindóri
Jónssyni á Sauðárkróki og
setti þar upp verkstæði að
námi loknu. Meðan hann var
að læra kynntist hann fóstur-
dóttur Steindórs meistara síns,
Aðalbjörgu Pálsdóttur, og
kvæntist henni. Aðalbjörg var
að nokkru alin upp hjá Stein-
dóri og konu hans, Maríu
Pálsdóttur, en foreldrar
hennar voru Páll Guðmunds-
son og Halldóra Stefánsdóttir,
sem bjuggu hér á Siglufirðú
Árið 1934 fluttust Kristján
og Aðalbjörg til Siglufjarðar,
sem þá var einn mesti upp-
gangsstaður landsins með
fjölbreyttu athafnalífi og
miklum framkvæmdum.
Kristján byggði steinhús við
Vetrarbraut, hafði verkstæði
sitt á neðri hæðinni en íbúð
uppi. S.R. keyptu seinna þetta
hús og höfðu þar efnarann-
sóknarstofu sína um langt
árabil.
Á stríðsárunum byggði
Sósíalistafélag Siglufjarðar í
áföngum eina húshæð fyrir
starfsemi sína á lóðinni nr. 10
við Suðurgötu. Hús þetta var
að ýmsu leyti af vanefnum
gert og félaginu ofviða að
byggja á lóðinni eins og
skipulag útheimti. Það varð þá
að samningum milli þess og
Kristjáns, að hann byggði við
húsið og tvær hæðir ofan á
það. Hafði hann þar síðan
verkstæði sitt meðan hann rak
það, en er hann hætti rekstri
þess keypti verkalýðsfélagið
Vaka hans hluta af húsinu og
hefur þar nú skrifstofur sínar
og fundaherbergi.
Kristján og Aðalbjörg eign-
uðust fimm börn. Eitt þeirra,
Pál, misstu þau á barnsaldri.
Hin fjögur eru: Steindór, bif-
reiðastjóri á Siglufirði, kvænt-
ur Sæunni Hjaltadóttur. Sig-
tryggur, framleiðslustjóri hjá
Húseiningum hf. á Siglufirði,
kvæntur Pálínu Gústafsdótt-
ur. Páll, sjómaður, kvæntur
Halldóru Björnsdóttur, bú-
settur í Reykjavík, og Ingi-
björg, gift Jóni Björgvinssyni,
einnig í Reykjavík. Ekki veit
ég tölu á barnabörnum og
barnabarnabörnum þeirra
Kristjáns og Aðalbjargar, en
það mun vera allstór hópur af
mannvænlegu fólki.
Aðalbjörg lést 15. ágúst
1979.
Kristján Sigtryggsson var
ákaflega hlédrægur maður og
lítið gefinn fyrir að skipta sér
ótilkvaddur af hlutum, sem
ekki komu honum beint við.
En hann átti hugðarefni, sem
hann taldi sér skylt að leggja
lið og gerði það af óeigingirni
og hollustu við málefnið.
Hann kynntist ungur kenn-
ingum sósíalismans, sem vís-
uðu veg út úr því svartnætti
fátæktar, misréttis og úrræða-
leysis, sem ríkti á kreppuár-
unum, gekk í deild kommún-
istaflokksins á Sauðárkróki og
starfaði 1 henni og síðar í
Siglufjarðardeild flokksins,
þar til hún sameinaðist vinstra
armi Alþýðuflokksins 1938.
Eftir það mun hann oftast eða
alltaf hafa átt sæti í stjórn og
fulltrúaráði Sósíalistafélags
Siglufjarðar, meðan það starf-
aði. Hann starfaði einnig
nokkuð í Alþýðubandalaginu
og var þar hollráður og ein-
lægur félagsmaður, þótt hon-
um sem fleirum þætti yfir-
bragð þess á stundum í fölara
lagi. Þá starfaði hann um langt
árabil að tónlistarmálum hér í
bænum; voru það einkum
Tónskóli Siglufjarðar og
Lúðrasveit Siglufjarðar, sem
nutu verka hans. Og þrátt fyrir
hlédrægnina komst hann ekki
hjá því að gegna ýmsum
borgaralegum skyldum og
trúnaðarstörfum. Hann
var í stjómum Iðnaðar-
mannafélagsins og Trésmiða-
félagsins, prófdómari við iðn-
próf, sat í nefndum á vegum
bæjarfélagsins o.fl. Hann var
einn af forgöngumönnum að
stofnun Húseininga hf„ sat í
stjórn þess fyrirtækis meðan
það var að komast yfir byrj-
unarörðugleikana og starfaði
síðustu árin í tæknideild þess.
Kristján vann öll sín störf af
trúmennsku og vandvirkni.
sem ávann honum traust og
virðingu. Hann hafði orð á sér
fyrir sérstaka vandvirkni og
hagleik, enda beygði hann sig
alltaf skilyrðislaust undir
kröfur hvers þess verkefnis,
sem hann tókst á hendur.
Smíðisgripir hans urðu traust-
ir, vandaðir og yfirlætislausir,
eins og maðurinn sjálfur, sem
alltaf efndi það sem hann lof-
aði og oftast heldur meira.
Kristján hafði allt að því of-
næmi fyrir fúski og óvand-
virkni. Mér er minnisstætt
þegar tveir annálaðir dugnað-
armenn, hvor í sitt skipti,
hættu störfum á verkstæðinu
hjá honum og fengu sér aðra
atvinnu. Hvorugan þennan
mann var hægt að saka um
óvandvirkni; hinsvegar létu
þeir ekki hvaða smámuni sem
voru aftra afköstum sínum. En
það var eins og talsverðu fargi
væri af Kristjáni létt þegar
þeir hættu; voru þeir þó báðir
persónulegir vinir hans. En
vandvirkniskröfur þeirra voru
ekki jafn skilyrðislausar og
hans, og honum var raun að
bera ábyrgð á jafnvel smá-
vægilegustu göllum.
Hinsvegar gat breyskur
hagleiksmaður, sem átti til að
kasta af sér reiðingnum og
fara að skemmta sér, þegar
mest lá á að koma verkum
áfram á verkstæðinu, gengið
áratugum saman að vísu starfi
hjá Kristjáni, hvenær sem
honum hentaði.
Þessum línum er ætlað að
votta Kristjáni Sigtryggssyni
þakklæti mitt fyrir samfylgd-
ina, sem staðið hefur í meira
en hálfan fjórða áratug, án
þess að valda mér vonbrigðum
í eitt einasta skipti. Ég veit, að
undir þetta taka þeir, sem eftir
eru af gömlum félögum okkar
úr samtökum sósíalista á
Siglufirði.
Benedikt Sigurðsson.
*
Lenging flugvall-
arins á Siglufirði
Á fundi sínum í mars sam-
þykkti bæjarstjórn Siglufjarð-
ar tillögu Flugmálastjórnar
um lengingu flugvallarins á
Siglufirði.
Eins og fram hefur komið
voru skiptar skoðanir um
hvernig heppilegast væri að
standa að þessum fram-
kvæmdum. Tvær hugmyndir
höfðu komið fram. Önnur var
sú að flytja Skútuá til norðurs
með því að stífla hana og leiða
í skurði til norðurs í fornum
farvegi hennar. Þessar fram-
kvæmdir hefðu haft í för með
sér töluverð landspjöll og
mættu andspyrnu. Einnig
hafði verið rætt um að setja
Skútuá í stokk undir flug-
brautina. Sú tilhögun þótti of
dýr og var hafnað á þeirri for-
sendu.
Flugmálastjórn tók því
málið til nýrrar skoðunar og
lagði fram tillögu, sem bæjar-
stjóm samþykkti einróma. Sú
tillaga gerir ráð fyrir því að
Skútuá verði áfram í farvegi
sínum, en skurður verði graf-
inn til norðurs austan vænt-
anlegrar flugbrautar og til
sjávar norðan við Ráeyri.
Framkvæmdir munu hefjast í
vor.
Siglfirðingar
Kynnið ykkur PLÚSLÁN, TEKJULÁN
VERÐTRYGGÐ PLÚSLÁN og ÁBYRGÐARTÉKKA.
Plúslán hefur engin áhrif á aðra fyrirgreiðlsu
sem lántaki kann að njóta í Útvegsbankanum.
ÚTVEGSBANKl ÍSLANDS
Útibúið á Siglufirði
MJÖLNIR
6