Mjölnir - 07.04.1982, Blaðsíða 8

Mjölnir - 07.04.1982, Blaðsíða 8
Ovissa um rekstur Sigló Mikil óvissa er um áframhaldandi rekstur Sigló-verksmiðjunnar, en verið er að leggja niður úr síðustu tunnunum. sem keyptar voru af söltun ársins 1980. DRANGS-MALIÐ eða sástu hvernig ég tók hann Mjölnir hitti Hannes Bald- vinsson stjórnarformann að máli og innti hann eftir fram- tíðarhorfum. „Þær hanga nú fremur í lausu lofti þessa dagana, væg- ast sagt. Það er verið að leggja niður í síðustu dósimar, en ekkert hráefni hefur verið keypt til áframhaldandi gaff- albitavinnslu. Þó er verið að kanna mögu- leika á að kaupa u.þ.b. 1500 tunnur af síld, sem enn eru til í landinu, en um endanlega ákvörðun er ekki hægt að fullyrða að svo stöddu. Hefur stjórn verksmiðjunn- ar ekki tekið ákvörðun um kaupin? „Jú, jú! Með tilliti til hins alvarlega atvinnuástands, sem nú er hér á Siglufirði hefur stjómin einróma samþykkt að óska eftir fyrirgreiðslu til hrá- efniskaupa. En hinu er ekki að leyna, að miðað við mjög hátt hráefnisverð annars vegar og verðfall og samdrátt á mörk- uðum hins vegar og fyrirsjá- anlegan taprekstur á vinnsl- unni, þá liggur í augum uppi að það er á brattann að sækja, hvað varðar heimild stjórn- valda.“ Hafa núverandi stjórnvöld þá neikvæða afstöðu til Sigló-verksmiðjunnar? „Nei, síður en svo. Ef ekki hefði komið til sérstakur vel- vilji og skilningur ráðherra, þá hefði verksmiðjunni líklega verið lokað um það bil sem núverandi verksmiðjustjóm var skipuð, því þá kom fljót- lega í ljós að reksturinn var kominn í alger óefni. En með framlögum af fjárlögum og lántökum tókst að halda rekstrinum áfram. En hinu er ekki að leyna að bæði iðnaðarráðherra og fjár- málaráðherra hafa sætt harkalegri gagnrýni af hálfu stjórnarandstöðuþingmanna, ekki síst Alþýðuflokksins, vegna þeirrar fyrirgreiðslu, sem verksmiðjan hefur notið.“ En ekki duga 1500 tunnur af síld til að tryggja rekstur verk- smiðjunnar? „Nei, það er alveg rétt, en þær gætu vissulega hjálpað til að draga úr atvinnuleysis- vandanum eitthvað fram á sumarið. Það hefur lengi verið eitt aðal vandamál fyrirtækis- ins hvað framleiðslan er ein- hæf og bundin við ákveðinn markað, þ. e. gaffalbitafram- leiðsla fyrir Rússlandsmarkað. Það var meðal annars með þennan vanda í huga, sem ég beitti mér fyrir _því árið 1973 eða ’74, en ég átti þá sæti í stjóminni, að verksmiðjan keypti „autoklaf" til fram- leiðslu á niðursoðnum vörum. En þrátt fyrir það að þetta er enn eitt fullkomnasta tæki sinnar tegundar á öllu land- inu, hefur ekki tekist að út- vega verkefni á þessu sviði, nema hvað lítið eitt af rækju var soðið niður s.l. ár. Nýlega undirritaði Sölu- stofnun lagmetis stóran samn- ing um sölu á niðursoðinni rækju og takist að útvega hrá- efni upp í þennan samning, má telja öruggt að eitthvað kemur í hlut Sigló af því verk- efni. Þá er nú þessa dagana unnið að tilraunaframleiðslu og markaðskönnun á niður- soðinni síld og silungi, á veg- um verksmiðjunnar og SL hjá Rannsóknarstofnun fiskiðn- aðarins, en á þessu stigi er ekki hægt að fullyrða neitt um Dagana 13. og 14. mars sl. efndi kjördæmisráð AB í Norðurlandskjördæmi vestra til ráðstefnu um sveitarstjórn- armál. Var hún haldin á Siglu- firði í húsnæði Alþýðubanda- lagsins þar í Suðurgötu 10. Ráðstefnan byrjaði rétt eftir hádegi á laugardag og lauk síðdegis á sunnudag. Hana sóttu sveitarstjómarmenn og áhugamenn um sveitarstjórn- armál frá flestum þéttbýlis- stöðum kjördæmisins, samtals um 30 manns. Auk þess litu allmargir heimamenn inn og hlýddu á umræður lengur eða skemur, þótt þeir tækju ekki beinan þátt í fundarstörfum. Tveir af ráðherrum AB komu á ráðstefnuna, þeir Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson. Héldu þeir báðir framsöguræður og tóku þátt í almennum umræðum um þau málefni, sem á dagskrá voru. Sigurður Hlöðvesson tæknifræðingur, Siglufirði, setti ráðstefnuna og stjómaði henni, en fundarritarar voru þeir Hinrik Aðalsteinsson og Benedikt Sigurðsson. Framsöguerindi fluttu: Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga, um sam- skipti ríkisins og sveitarfélaga, endanlegan árangur. Sölu- j horfur eru þó taldar góðar að því er síldina varðar. Einnig verður gerð tilraun til að selja gaffalbita í glösum á Amer- íku-markaði, en þar hefur Sölustofnun nýverið komist í1 1 aðstöðu til að bjóða slíka vöru.“ Nú, horfumar eru þá kannski ekki svo slæmar, þegar allt kemur til alls? „Jú, það er því miður eins og ég sagði í upphafi. Þetta hangir allt í lausu lofti og þó að yfirstandandi athuganir skili ef til vill einhverjum ár- angri, þá er of mikil bjartsýni að reikna með að þar sé að finna lausn á öllum vanda fyrirtækisins. Árangur af starfi S.L. hefur því miður ekki bor- ið þann árangur sem menn gerðu sér vonir um í upphafi og þar til viðbótar hefur mér fundist Sigló-verksmiðjan vera hálfgerð homreka í þeirri stofnun. En kannski breytist þetta til einhvers batnaðar, þegar umboðslaunin af gaff- albitasölunni hætta að standa að stærstum hluta undir rekstrarkostnaði Sölustofnun- ar. Nú verður að gera alvarlegt átak í sölu- og markaðsmál- um, ef lagmetisiðnaðurinn í heild á ekki að lognast út af og deyja drottni sínum.“ Gunnar Rafn Sigurbjömsson, bæjarfulltrúi á Siglufirði, um tekjustofna og ráðstöfunarfé sveitarfélaga, og Kolbeinn Friðbjarnarson, bæjarfulltrúi á Siglufirði, um þátt sveitarfé- laga í atvinnumálum. Þá flutti Baldur Óskarsson, framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins, erindi um sveit- arstjómarkosningamar, sem fram eiga að fara í vor. Ráðherramir gerðu í fram- söguræðum sinum einkum grein fyrir viðhorfum ríkis- stjómar og Alþingis til ákveð- inna þátta sveitarstjómar- mála, og lagasetningum varð- andi sveitarstjómarmál, sem nú eru til umfjöllunar á Al- þingi eða í undirbúningi í ráðuneytum þeirra. Fjölsóttur opinn fundur Kl. 5 á laugardaginn hófst opinn fundur í Alþýðuhúsinu. Fluttu ráðherramir þar fram- söguræður, en síðan var orðið gefið frjálst. Tóku margir til máls, mörgum fyrirspumum var beint til ráðherranna og varð þetta mjög líflegur og skemmtilegur fundur. Fundarstjóri var Gunnar Rafn Sigurbjömsson. Fund- inn sóttu um 100 manns. í síðasta Einherja birti Bogi Sigurbjörnsson langhund um sig og Drang. Að hætti skáld- sagnahöfunda færir hann í stílinn, kryddar frásögnina með frægðarsögum af sjálfum sér, en sleppir leiðinlegum köflum. 1 allri þessari miklu þraut liggur svo sannleikurinn óbættur hjá garði. Eins og svo oft áður hefur verið getið um hér í Mjölni virðist minni Boga Sigurbjörnssonar á eigin gerðir ná ótrúlega skammt. Þannig er einnig málum farið nú. Ákvörðun um að auka hlutafé Siglufjarðar í Drang h.f. var tekin á fundi bæjar- stjómar 12/11. 1981 — með öllum atkvæðum. Meðal þeirra sem sátu þann fund og samþ. hlutafjáraukningu var Bogi Sigurbjömsson. I þessu Drangs-máli er það auðvitað sú ákvörðun sem máli skiptir og er aðal atriðið. Vissulega kostar sú ákvörðun peninga og þeir fjármunir hafa þegar fengist. Bogi er þar með kom- inn í hóp þeirra sem hann, úr glerhúsinu sínu, kallar glópa í fjármálum. Já, þar fór nú í verra og þama hefur ritstjór- inn stigið ofan á tærnar á bæjarfulltrúanum. Að vísu er vegur sannleikans þröngur og torsóttur, en meira að segja í pólitík er það besti vegurinn. Af einhverjum ástæðum skiptir Bogi um kúrs, þegar kemur að því að veita sjálf- skuldarábyrgð vegna kaupa á nýju skipi, en til þess var Hannes Baldvinsson flutti nýlega á Alþingi frumvarp um niðurfellingu söluskatts á snjómokstri á vegum sveitarfélaga. Hannes hefur áður hreyft þessu máli á Alþingi en án árangurs. Nú eru taldar líkur á því að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Hér er á ferðinni sjálfsagt jafnréttis- og hagsmunamál þeirra sveitarfélaga sem verða að verja stórfé til þess að halda opnum samgönguleiðum innan sinna sveitar marka. Sem dæmi má nefna að á árinu 1981 var varið rúmri 1 millj. kr. til þessara þarfa á Siglu- firði og um 2 millj. kr. á Akureyri. Hér fer á eftir greinargerð Hannes- ,i ■— ii—. Um kvöldið var kvöldvaka í Suðurgötu 10. Var húsið þétt- skipað, og undu menn sér hið besta við veitingar og skemmtan fram undir mið- nætti. Ráðstefnan hófst aftur á sunnudagsmorgun og lauk um fjögurleytið. Bæði ráðstefnan og opni fundurinn tókust mjög vel, og sýna vaxandi viðgang Al- þýðubandalagsins og áhuga á starfsemi þess. híutafé fyrirtækisins aukið. Nú spáir hann því að bærinn muni þurfa að greiða þessa ábyrgð og fyrirtækið sem hann samþykkti að auka hlutafé í þann 12. nóv. verði „fallit“ bráðlega. Hvar var nú fjármálavitið fræga í nóv. s.l.? Hefði ekki verið nær að beita því þá? í grein sinni í Einherja getur Bogi þess í framhjáhlaupi, að 8 bæjarfulltrúar hafi samþ. umrædda sjálfskuldarábyrgð. Meðal fjármálaglópanna 8 var Sveinn Bjömsson, stjórnar- maður í Drang hf. og bæjar- fulltrúi framsóknar. Hann er því kominn í „meirihlutann“ og sóar fjármunum bæjarins, „tekur rekstur Drangs inn í rekstur bæjarins“ og er þar með bersyndugur orðinn. Sá gmnur hlýtur að læðast að mönnum að útkoma Sveins Bjömssonar í prófkjöri fram- sóknar eigi sér skýringu í því, að honum hefur orðið á sú skyssa að óhlýðnast foringj- anum. Hann hlýtur því örlög hins ónýta fats, og þykist nú flokkur hans trúlega hafa haft það gagn af honum sem dugar í bili. Kjami þessa Drangs-máls er ósköp einfaldur. — Viljum við Siglfirðingar áfram hafa þá þjónustu og það öryggi sem Drangur hefur veitt okkur í gegnum árin? Það er skoðun 8 bæjarfulltrúa áf 9. Til þess að tryggja það var hlutafé bæjar- ins í Drang hf. aukið og til þess var sjálfskuldarábyrgðin veitt. ar með frumvarpinu: „Það hefur lengi verið þymir í augum sveitarstjóma í snjóþungum héruðum landsins, að þeim er gert að greiða söluskatt af þeirri óhjá- kvæmilegu þjónustu að ryðja snjó af götum í þéttbýli að vetrarlagi. Gildir þar einu hvort notaðar eru vmnuvélár 1 eigu viðkomandi sveitarfélags eða verktaka sem lög- um samkvæmt ber að innheimta söluskatt af leigu vinnuvéla sinna. Skattheimta þessi kemur mjög misjafnlega þungt niður á hinum ýmsu sveitarfélögúm og er óréttlát vegna þess að hún kemur þyngst niður á þeim er búa fyrir við veru- leg óþægindi og aukakostnað, sem óhjákvæmilega hlýtur að fylgja byggð í snjóþungum landshlutum. Tilraunir sveitarstjóma til að ná fram leiðréttingu þessara mála hafa fram til þessa ekki borið árangur og því borið við meðal annars, að til þess skorti heimildir í lögum. Með fmmvarpi þessu, ef að lög- um verður, er opnuð leið til að endurgreiða sveitarfélögum sölu- skatt, sem sannanlega hefur verið goldinn af kostnaði við snjómokst- ur, og með því móti stigið skref í átt til þess að jafna skilyrði til búsetu hvar sem er á landinu." Vel heppnuð ráö- stefna umsveitar- stjórnarmál SÖLUSKATTI VERÐI LÉTT AF SNJÓMOKSTRI ELÐHÚSINNRÉTTINGAR INNIHURÐIR FATASKÁPAR VIÐARKLÆÐNING BAÐINNRÉTTINGAR Itiiíuri. i’ Sími 7-13-33. ÚTIHURÐIR BÍLSKÚRSHURÐIR GLUGGAR NÝBYGGINGAR > MJÖLNIR

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.