Fylkir


Fylkir - 17.04.1959, Page 1

Fylkir - 17.04.1959, Page 1
Máfgagn Sjálfstæðis- ffokksins í% 11. árgangur. Vestmannaeyjum 17. apríl 1959 14. tölublað. K j ördæmamálið Frumvarp að breyttri kjördæmaskipon lagt fyrir Alþingi. Flutnings- menn eru: Ólafur Thors, Einar Olgeirsson og Emil Jónsson. Alþjóð er nú kunnugt orðið um efni þess fraumvarps, sem lagt var fram á Alþingi fyrir síðustu helgi, um breytingu á þeirri kjördæmaskipan, sem hingað til hefur gilt. Samkv. frumvarpinu verður landinu skipt í 8 kjördæmi, þ. e. Reykja vík með 12 þingmenn, Vestur- lands-, Vestfjarða-, Norðurlands kjördæmi vestra, Austurlands- og Reykjaneskjördæmi, hvert þeirra um sig með 5 þingmenn, Norðurlandskjördæmi eystra og Suðurlandskjördæmi með 6 þingmenn hvort. Auk þess verði úthlutað 11 uppbótarþing sætum, svo að hver flokkur fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við atkvæðaLölu sína við almennar kosningar. Sam- kvæmt þessu verða þingmenn samtals 60, og sú breyting verð- ur á skipun uppbótarsæta, að þau eru fastbundin við töluna 11, en samkvæmt gildandi !ög- um má úthluta allt að 11 upp- bótarsætum, en sú heimild oft- ast verið notuð. Á hverjum framboðslista, er lagður verður fram í hverju kjördæmi, skulu að jafnaði verða tvöfalt fleiri menn en kjósa á í kjördæminu. Aðdragandi: í greinargerðinni segir, að lengi hafi mönnum verið ljóst, að óhjákvæmilegt væri að taka stjórnarskrárákvæðin um kjör- dæmaskipun til gagngerðrar endurskoðunar, og hafi kjör- dæmáskipun um langt skeið verið undirrót misréttis í þjóð- félaginu og liafi tafið mjög fyr- ir lýðræðislegri þróun. Á ýmsum tímum hafi orðið allmikil átök á Alþingi um kjördæmamálið, og síðast, þeg- ar kjördæmaskipuninni ' var breytt, og komið var á hlut- fallskosningum í tvímennings- kjördæmum 1942, urðu mikil átök um það mál. Þó kastaði tólfunum, þegar efnt var til Hræðslubandalags- ins sáluga í kosningunum 1956, þ. e. bandalags Alþýðu- og Framsóknarflokksins um algert samstarf við kosningarnar með það fyrir augum að ná Iirein- um meirihluta á Alþingi. Svo nærri stappaði, að tilræði þetta tækist, að ekki munaði nema fáum atkvæðum, raunverulega aðeins 14, til þess .að þetta bandalag fengi hreinan meiri- hluta — 27 þingmenn — á Al- þingi út á nálægt 34% atkvæða. Þetta athæfi hefur Einar Ol- geirsson kallað, að smíðaður hafi verið „þjófalykiH“ að Al- þingi, enda þótt hann og hans flokkur gengi síðan fram fyrir skjöldu og hyrfi frá sínum ,þjófnaðarásökunum‘, en leggði blessun sína yfir „þjófalykil- inn“ svo sem hann játaði í um- ræðunum á Alþingi á þriðju- daginn var. Þegar V-stjórnin leið undir lok og Hræðslubandalagið sundraðist í lok síðasta árs, brugðust Framsóknarmenn ó- kvæða við þeirri breytingu á kjördæmaskipuninni, sem Sjálf stæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn sömdu um að koma 'fram á Alþingi. Hafa þeir síð- an ekki á heilum sér tekið, enda hafa þeir að öllu leyti fleytt rjómann af því hróplega misrétti, sem ríkt hefur á landi voru í kjöidæmamálunum. í vandræðum sínum hefur flokk- urinn borið fyrir sig hverskon- ar fjarstæður í málflutningi sín- um. Hafa þeir lent út í ýmsar Á/oyggjur Framsóknarblaðsins Framsóknarblaðið, sem út kom 8. apríl er með nokkrar á- hyggjur út af framboði mínu og vangaveltur um hvernig muni fara með starf mitt sem bæjarstjóra, ef ég verði kosinn á þing. Eg get fullvisað blaðið um, að það þarf engar áhyggj- ur af þessu að hafa. Eg gaf kost á mér til framboðs, af þeirri ástæðu fyrst og fremst, að ég tel mig hafa sterkari aðstöðu til þess að vinna að framfara- málum Vestmannaeyinga, ef ég á sæti á Alþingi, heldur en þó ég starfi að bæjarmálunum ein- göngu. Það vita allir, að fjár- mál bæjanna eru orðin mjög samtvinnuð fjármálum ríkisins og að engum stærri framkvæmd um verður komið áfram nema með samþykki ráðuneyta og op- inberra stofnana í Reykjavík, þannig að það er óyggjandi styrkur fyrir byggðarlagið í heild, að þeim mönnum, sem kunnugastir eru þessum mál- nm og að framgangi þeirra vinna, þ. e. bæjarstjórninni, sé sköpuð sem sterkust aðstaða hjá þeim aðilum, sem bæjarfé- lagið þarf að sækja undir. Eg endurtek, að það er fyrst og fremst af þessari ástæðu, að ég gaf kost á mér til framboðs fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn hér í Vest mannacyjum. Þá þykir mér rétt að geta þess, að gefnu tilefni að skrif Framsóknarblaðsins um að ég muni flytja úr bænum, ef ég verði kosinn á þing, eru algerlega tilefnislaus. Eg mun ógöngur sem vonlegt er, og virð ast nú orðnir ráðvilltir í vesal- dómi sínum. Þeir hafa sem sé aldrei gert sér ljóst, hver er kjarni málsins, sem sé sá, að gera verður upp á milli hags- Framhald á 2. síðu. halda bæjarstjórastarfinu svo lengi, sem mér verður fyr- ir því trúað og held- ur ekki sleppa hendinni af því þann tíma, sem ég nauðsynlega þarf að dvelja í Reykjavík, ef ég næ kosningu, þó það hins- vegar leiði af hlutarins eðli, að ég veiði að setja einhvern fyrir mig til að annast afgreiðslu mála hér heima yfir þingtím- ann. Eg vil nota tækifærið og leið- rétta þá firru Framsóknarblaðs- ins í leiðara þess 8. þ. m„ að hætta sé á, að frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins verði svo neðarlega á sameiginlegum lista Suðurlandskjördæmis eftir kjör dæmabreytinguna, að hann komist ekki að. Sjálfstæðisflokk urinn hér í Vestmannaeyjum iiafði um síðustu bæjarstjórnar- kosninga hærri kjósendatölu en flokkurinn á í nokkurri hinna sýslanna, sem í Suðui'- landskjördæminu eru. Haldi flokkurinn þessu fylgi í þing- kosningunum í vor, eru Vest- mannaeyingar öruggir með, að fulltrúi flokksins héðan, verð- ur hafður í alveg öruggu sæti á hinum sameiginlega lista, eft- ir að fyrirhuguð kjördæma- ’breyting hefur komizt á og með an hún verður í gildi. Kjósendur hér í Vestmanna- eyjum geta því í kosningunum í vor alveg skýlaust tryggt sér ■ þennan rétt með því að greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt. Eg efast ekki um, að marg ir, sem áður hafa greitt Sjálf- stæðisflokknum atkvæði sitt, munu athuga þessa aðstöðu og haga atkvæði sínu samkvæmt því og þar með tryggja og styrkja aðstöðu Vestmannaey- inga til áframhaldandi íhlutun- ar um málefni þjóðarinnar. Guðl. Gislason.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.