Fylkir


Fylkir - 08.12.1961, Síða 1

Fylkir - 08.12.1961, Síða 1
Málgagn Sjálfstæðis- f lokksins 13. árgangur. Vestmannaeyjum, 8. desember 1961. 24. tölublað. 1Byggingarsfóður sfákrahússins Sfúkrahússióður Verkalýðsfélagsins Vrífanda „Að hilma yfir sök, þýðir meðsekt, á því siðferðis- stigi eru ekki þeir, sem standa að Eyjablaðinu/' Þessi spaklegu orð er að finna í Eyjablaðinu hinn 29. f. m. um húsbyggingarsjóð hins fyrirhug- aða sjúkrahúss. Það verður að teljast kok- hreysti mikil, að blað kommún- ista, og kannski sérstaklega Sig- urður Stefánsson, sem mun vera höfundur umræddrar greinar, skuli yfirleitt þora að minnast á siðferði, eins og aðstöðu þeirra manna er nú háttað, sem gerzt hafa virkir meðlimir fimmtu herdeildar kommúnista hér á landi, þegar það nú liggur ó- véfengjanlega fyrir, samkvæmt opinberum yfirlýsingum frá æðstu mönnum alþjóðakomm- únistaflokksins, samanber yfir- lýsingu Krússjefs, að allt starf flokksins og deilda hans utan Rússlands, jafnt á íslandi sem annars staðar, hafi um áratuga bil grundvallazt í aðalatriðum jafnt og hinum smærri, á sið- lausri svikastarfsemi, þar sem hvorki hafi verið hlíft mann- orði né lífi eigin flokksmanna eða öðru í hinni æðisgengnu valdabaráttu innan flokksins. Þeir, sem áður voru átrúnaðar- goð, jafnvel dýrlingar, eins og Stalin bóndi í Kreml, standa nú uppi afhjúpaðir, samkvæmt yf- irlýsingum æðstu manna al- þjóða kommúnista, sem múg- morðingjar og stórglæpamenn á alþjóðamælikvarða. Og svo koma smákommapeð hér í Vestmannaeyjum, göngu- móðir erindrekar hins alþjóð- lega kommúnisma, eins og Sig- urður Stefáhsson, og lýsa því kinnroðalaust yfir, að bæði hann og aðrir kommúnistar séu á því siðferðisstigi, svo þeirra eigin orð séu notuð, að þeir megi í engu vamm sitt vita. Og þessu er lesendum Eyjablaðsins ætlað að trúa. Verður það að teljast vandræðafálm frekar en bjartsýni, svo miklar öfgar, sem það eru. Húsbyggingarsjóður sjúkrahússins. Eyjablaðið heldur áfram skrif um sínum um húsbyggingarsjóð liins fyrirhugaða sjúkrahúss og árásum sínum á mig, fyrir þá ákvörðun að láta sjóðinn lána bæjarsjóði Vestmannaeyja til bráðabirgða kr. 200 þús. út á ríkisframlag, sem bæjarsjóður á kröfu til samkv. lögum. Eg gerði grein fyrir þessu máli hér í blaðinu fyrir nokkru og tilgreindi í því sambandi númer þeirra reikninga í banka og sparisjóði, sem fé sjóðsins væri geymt á, samhliða því sem ég gerði grein fyrir, að allt það fé, sem í sjóðinn hefur komið frá byrjun, bæði ágóði af kvik- myndahússrekstri kaupstaðar- ins, gjafir ásamt vöxtum, stæði inni á þeim reikningum, sem ég tilgreindi. Hefur Eyjablaðið ekki treyst sér til að véfengja þetta. Sé ég því ekki ástæðu til nánari greinargerðar í því sam- bandi, en vil þó benda þeim Eyjablaðsmönnum á, að ég er hvenær sem er og hvar sem er reiðubúinn að gera grein fyr- ir öllum hreyfingum á sjóðn- um frá degi til dags, sem átt liafa sér stað í umræddum reikn ingum, þannig að ljóst liggi fyr ir hvernig þessi mál hafa gengið fyrir sig frá byrjun. Hinsvergar tel ég rétt að leið rétta tvær af hinum staðlausu staðhæfingum, sem fram koma í umræddri grein í Eyjablaðinu. Ekkert aS fela. Eyjablaðið er með fullyrðing- ar um, að ég hafi ætlað að leyna ákvörðun minni um umrætt lán. Þetta er svo fjarstætt raun- veruleikanum sem frekast getur verið. Sama daginn og lánið var veitt, var það að sjálfsögðu fært í sjóðbók bæjarsjóðs og þess sérstaklega getið, að það væri frá húsbyggingarsjóði sjúkrahússins. Um þetta vissu því allir starfsmenn bæjarins, sem bókhald bæjarsjóðs annast. Einnig hlaut þetta að liggja ljóst fyrir endurskoðendum bæj arsjóðs og þá jafnt fyrir hinum kjörna fulltrúa minnihluta bæj arstjórnar sem öðrum. Auk þess eiga allir bæjarfulltrúar aðgang að bókhaldi bæjarins hvenær sem er, þannig að ég held að það hljóti að teljast hreint öfug mæli, að þarna hafi um nokk- urn feluleik verið að ræða, enda í fyllsta máta ekki nokkur ástæða til þess. Hitt er að sjálfsögðu skiljan- legt, að þeir Eyjablaðsmenn, sem um áratugabil hafa í dag- legu lífi sínu og flokksstarfi siglt undir fölsku flaggi, lifað á hreinum blekkingum og orðið að fela hið sanna eðli sitt undir því yfirskini að þeir væru ís- Lánlökur og lánstraust Blöð minnihluta bæjarstjóm- ar, Eyjablaðið og Framsóknar- blaðið hafa að undanförnu gert sér nokkuð tíðrætt úm lántök- ur og lánstraust kaupstaðarins. Hefur satt að segja verið allerf- itt að fylgjast með og átta sig á þessum skrifum þeirra. Stundum hafa þau skammað mig fyrir miklar lántökur og haldið því fram, að fjárhag kaupstaðarins væri stefnt í beinan voða þeirra vegna, sam- anber skrif Framsóknarblaðsins á s. 1. sumri og oftar. Aftur á móti sást það ekki ósjaldan í þessum sömu blöðum, saman- ber síðasta Eyjablað, að kaup- staðurinn hafi ekkert lánstraust og sé fjárhag kaupstaðarins einn ig af þeim ástæðum stofnað í voða. Hvorttveggja eru þetta að sjálfsögðu beinar öfgar og hald laust vandræðafálm hjá minni- hlutanum. Eg mun að sjálfsögðu, þegar tími er til kominn, birta grein- argerð um allar lántökur kaup- staðarins frá því að ég tók við bæjarstjórastarfinu, og gera grein fyrir skuldaaukningu kaupstaðarins sama tímabil. Mætti segja mér, að blöð minnihlutans teldu sig þurfa eitthvað annað áróðursefni á meirihluta bæjarstjórnar, þegar Ijóst liggur fyrir hvernig þessi mál hafa raunverulega gengið fyrir sig undanfarin átta ár. Guðl. Gislason. lenzkur flokkur, — ætli öðrum það, sem þeir hefðu vafalaust sjálfir gert. Framhí ld á 2. síðu.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.