Fylkir - 08.12.1961, Qupperneq 2
F Y L K I R
Byggingarsjóður
sjúkrahússins
Framhald af 1. síðu
Ákvörðun Sjólfstæðismanna
en ekki róðuneytis.
Einnig staðhæfir Eyjablaðið
afdráttarlaust, að óheimilt sé að
nota ágóðann af kvikmyndahúss
rekstri bæjarins til annars en
til byggingar fyrirhugaðs sjúkra
húss.
Um þetta get ég ekki annað
sagt, en mig furðar á, að mað-
ur, sem er búinn að vera bæjar-
fulltrúi jafniengi og Sigurður
Stefánsson-, og tekið hefur sér
fyrir hendur, að skrifa opinber-
lega um þetta mál, skuli ekki
vita betur né hafa kynnt sér
málið nánar ,en hann virðist
hafa gert, áður en hann notar
slík rök í áróðri sínum gegn
byggingu sjúkrahússins. Maður,
sem vill láta aðra halda ,að hann
sé á hærra siðferðisstigi en al-
mennt gerist, hefði ekki átt að
flaska á þessu.
I bréfi menntamálaráðuneytis
ins, þar sem kvikmyndahús-
rekstur bæjarins er undanþeg-
inn skemmtanaskatti, er það
skýrt og afdráttarlaust tekið
fram, að ágóðinn af rekstrinum
skuli notaður til REKSTURS
sjúkrahúss og elliheimilis kaup-
staðarins. Þar er ekki minnzt
einu orði á byggingarsjóð
sjúkrahússins, það er aðeins á-
kvörðun bæjarfulltrúa Sjálfstæð
isflokksins og flokksins í heild,
en ekki ráðuneytisins. Eg hef
af þessari ástæðu talið nauðsyn-
legt að skýra menntamálaráðu-
neytinu frá ákvörðun okkar um
notkun af ágóðanum af kvik-
myndahússrekstrinum, ef svo ó-
MALGAGN
sjAlfstæðisflokksins
ÚTGEFANm
sjAlfstæðisfélag
VESTM ANN AEYJ A
JUTSTJÓRI og ÁBYRGBARM.:
EINAR H, EIRÍKSSON
S<mi: jo8. — Pónthólt: im.
Ptenumifljan EYRÖN h. t
líklega skyldi vilja til, að í þann
stól settist einhverntíma ein-
hver af flokksbræðrum Sigurð-
ar Stefánssonar, sem væri álíka
illa innrættur í garð þessa máls
og hann, og notaði aðstöðu sína
til þess að kippa skemmtana-
skattsundanþágunni af kaup-
staðnum, á þeim forsendum, að
við hefðum notað ágóðann af
kvikmyndahússrekstrinum til
BYGGINGAR en ekki til
REKSTURS sjúkrahússins ,eins
og til er ætlazt í áminnstu bréfi
ráðuneytisins varðandi þetta
mál.
Allt þetta hlýtur Sigurði Stef
ánssyni reyndar að hafa verið
kunnugt, þar sem bréf menta-
málaráðuneytisins var á sínum
tíma lagt fram í bæjarráði. Eg
held, að af öllu þessu sé auð-
sætt, að allar aðdróttanir og stað
hæfingar Eyjablaðsins í þessu
sambandi séu hrein öfugmæli
og slúður, sem ekkert mark er
á takandi, enda allt úr lausu
lofti gripið, eins og reyndar öll
önnur skrif blaðsins um málið.
Áróðursherferð kommúnista
gegn sjúkrahússbyggingunni.
En hvers végria þá allur þessi
uppblástur Sigurðar Stefánsson
ar og Eyjablaðsins og rógburð-
ur í sambandi við þetta mál?
Til þess liggja tvær orsakir.
í fyrsta lagi eru kommúnist-
ar með þessu að reyna að draga
athyglina frá nekt sinni og póli-
tísku eymdarástandi ,eftir yfir-
lýsingar Krússjefs um svikaupp-
byggingu alþjóðakommúnism-
ans og glæpi erindreka hans.
í öðru lagi veit Eyjablaðið,
að stofnun húsbyggingarsjóðs-
ins og ákvörðunin um byggingu
sjúkrahússins eru hvorttveggja
verk Sjálfstæðisflokksins og að
þetta er vinsælt mál, sem nýtur
fylgis meðal bæjarbúa almennt.
Af þeirri ástæðu álpast komm
únistar í þessa rógsherferð gegn
málinu, sjálfum sér til minnk-
unar og vansæmdar. En sem
betur fer er. málið það vel á
veg komið, að hvorki vesal-
mennska né riagdýrsháttur Sig-
urðar Stefánssonar eða annarra
kommúnista mun torvelda það
eða stöðva héðan af.
Sjúkrasjóður Verkamanna-
félagsins Drífandi.
Vegna staðhæfingar Eyjablaðs
ins hins 29. f. m. í umræðum
þess um sjúkrahússjóðinn, að
aðstandendur þess fína blaðs
séu á því siðferðisstigi, að þeir
megi ekki vamm sitt vita, tel ég
rétt að krefja þá sagna um
sjúkrasjóð Verkamannafélagsins
Drífanda, sem hér starfaði á sín-
um tíma.
Félag þetta hafði komið sér
upp allmyndarlegum sjúkra-
sjóði. Fé í þennan sjóð var ein-
vörðungu safnað með iðgjöld-
um og framlögum ,sem verka-
menn greiddu af launum sínum
þrátt íyrir mjög erfiða afkomu
á þeim tíma. Markmið sjóðsins
var það eitt, samkvæmt lögum
hans, að styðja verkamenn fjár-
hagslega, ef þeir yrðu óvinnu-
færir sökum veikinda. Ráðstöf-
un sjóðsins var því óheimil á
annan veg en í þessu skyni, og
vafalaust siðferðisbrot í augum
þeirra Eyjablaðsmanna.
Nú skeði það, er kommún-
istar yfirtóku félagið með brögð
um, að þá hnupluðu þeir þess-
um sjóði, ásamt öðrum eignum
þess.
Vil ég skora á Sigurð Stefáns-
son og þá Eyjablaðsmenn að
gera grein fyrir þessum sjóði á
sarna liátt og ég hef gert og boð
ist^ til að gera fyrir byggingar-
sjóð sjúkrahússins. Að nafn-
greina þá lánsstofnun, sem sjóð
urinn er geymdur í og tilgreina
númer þeirra bóka eða reikn-
inga ,sem hann er geymdur á,
og gera grein fyrir daglegum
hreyfingum hans, ef þess verður
krafizt. Þetta ætti hinum sið-
væddu Eyjablaðsmönnum að
vera innan handar, þar sem
varla er að óttast, að þeir hafi
dregið sér fé úr sjóðnum í láns
formi eða á annan hátt, eða ráð
stafað honum öðruvísi, en lög
hans mæla fyrir. Tilgangslaust
er fyrir kommúnista að reyna
að skjóta sér undan að koma
fram með þá greinargerð, sem
skorað hefur verið á þá að birta
í þessu sambandi, þar sem þeir
þá eftir öðrum leiðum munu
verða til þess neyddir. Til þess
eru næg úrræði.
Guðl. Gislason.
Þakka hjartanlega hlýhug, gjafir og heillaóskir á 75 ára af-
mceli minu, 2. desember s. L,
Guð blessi ykkur öll.
Kristbjörg Einarsdóttir.
Gefum 10 prósenl afsfáft af öllum
kjólaefnum
TIL JÓLA!
Daglega berasf jólavörurnar!
venzlunin
$ÓE92»«r«rai
Sími 104.
ÚTGERÐ ARMENN!
Get útvegað stálskip, ca. 115 br. tonn, 85 fet að lengd. Full-
smíðað 37. JANÚAR 1962. — Nánari upplýsingar fyrirliggjandi.
JAKOB J. JAKOBSSON.
Norðurhlíð við Suðurlandsbraut,
Reykjavík. - Sími: 32630.;
AUSTFIRÐINGAR!
Austfirðingafélagið heldur aðalfund sinn á sunnudaginn, 10.
desember, kl. 5 í Akóges-húsinu. STJÓRNIN.