Fylkir - 20.10.1967, Page 3
FYLKIR
3
Auglýsing um bótagreiðslur vegna
laga um hægri handar umferð.
Við viljum vekja athygli á eftirfarandi greinum í lögum
nr. 65„ 13 maí 1966 um hægri handar umferð:
5. gr.
Kostnaður, sem leiðir af breytingu úr vinstri í hægri
handar umferð, greiðist úr ríkissjóði samkvæmt því, sem
nánar segir í lögum þessum.
6. gr.
Bæta skal kostnað vegna eftirtalinna framkvæmda:
1. Kostnað við nauðsynlegar breytingar á vega- og gatna-
kerfi landsins, þar með taldar breytingar á umferðar-
ljósum og umferðarmerkum.
2. Kostnað við nauðsynlegar breytingar á bifreiðum og
öðrum vélknúnum ökutækjum.
3. Annan óhjákvæmilegan beinan kostnað, sem leiðir af
breytingu umferðarlaganna.
Eigi skal bæta annað en beinan kostnað. Eigi skal held-
ur bæta fyrstu 1000 kr. af kostnaði við breytingu á hverju
ökutæki.
7. gr.
Bótarétt samkvæmt 6. gr. eiga veghaldarar, skráðir eig-
endur ökutækja, svo og aðrir þeir, sem eins stendur á um.
8. gr.
Hver sá, sem telur sig eiga rétt til bóta samkvæmt 6. gr.,
skal áður en framkvæmdir hefjast, senda framkvæmda-
nefnd nákvæma greinargerð um þær breytingar, er fram-
kvæma skal, ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun.
Eigi skal bæta kostnað, nema framkvæmdanefnd hafi
fallizt á nauðsyn breytingar og kostnaðaráætlun, áður en
ráðizt er í framkvæmd.
9. gr.
Bætur skal að jafnaði greiða eftir á, þegar framkvæmd
er að fullu lokið. Heimilt er þó að greiða bætur að nokkru
eða öllu leyti fyrr, ef um meiri háttar framkvæmd er að
ræða, gegn tryggingu, sem framkvæmdanefnd tekur gilda.
10. gr.
Greinargerðir og áætlanir samkvæmt 8. gr. skulu hafa
borizt framkvæmdanefnd eigi síðar en 1. janúar 1968.
Kröfur um greiðslu bóta skulu hafa borizt framkvæmda- 1
nefnd innan þriggja mánaða frá því er verki lauk. j
Framkvæmdanefnd getur þó í einstökum tilvikum veitt j
undanþágu frá ofangreindum frestum, þannig að frestur
samkvæmt 1. mgr. geti orðið til ársloka 1968, en frestur !
samkvæmt 2 mgr. lengist í allt að sex mánuði frá því j
verki lauk. j
Kröfur, sem berast síðar en að framan getur, verða
eigi teknar til greina. !
I
FRAMKVÆMDANEFND HÆGRI UMFERÐAR,
Auglýsing um sveinspróf.
Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram um land
allt í október og nóvember 1967.
Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próf-
töku fyrir þá nemendur sína, sem lokið hafa námstíma og
burtfararprófi frá iðnskóla. Ennfremur er heimilt að sækja
um próftöku fyrir þá nemendur, sem eiga 2 mánuði eða
minna eftir af námstíma sínum, enda hafi þeir lokið iðn-
skólaprófi. Umsóknir um próftöku sendist formanni við-
komandi prófnefndar fyrir 1. október n.k., ásamt venju-
legum gögnum og prófgjaldi.
Meistarar og iðnfyrirtæki í Reykjavík fá umsóknar-
eyðublöð afhent í skrifstofu iðnfræðsluráðs, sem einnig
veitir upplýsingar um formenn prófnefnda.
Reykjavík 15. september 1967.
IÐNFRÆÐSLURÁÐ
Hugmyndasamkeppni
Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar hefur í samvinnu
við Húsnæðismálastofnun ríkisins ákveðið að efna til hug-
myndasamkeppni um uppdrætti að einbýlishúsi, sem henta
mun til fjöldaframleiðslu á íslandi.
Hugmyndasamkeppni þessi er boðin út samkvæmt sam-
keppnisreglum Arkitektafélags íslands.
Heimild til þátttöku hafa allir íslenzkir ríkisborgarar.
Keppnisgögn eru afhent af trúnaðarmanni dómnefndar,
Ólafi Jenssyni, fulltrúa, Byggingaþjónustu A. í. Laugavegi
26, gegn kr. 500,00 þátttökugjaldi.
Verðlaunaupphæð er samtals kr. 260.000,00 er skiptist þannig:
1. verðlaun kr. 130.000,00
2. verðlaun kr. 80.000,00
3. verðlaun kr. 50.000,00
Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt
að kr. 40,000,00 .
Skila skal tillögum til trúnaðarmanns dómnefndar í síðasta
lagi kl. 18. 31. janúar 1968.
D ÓMNEFNDIN.
_________________________________________________
I TILKYNNING
!
I
I
i
í
i
I
Fjallskilanefnd kaupstaðarins vekur athygli á
að hagaganga sauðfénaðar er óheimil á Heima-
ey, utan girðingar, nema frá 15. október ár
Þetta er birt öllum þeim, er hlut eiga að máli.
hvert.
Fjallskilanefnd.
Leigjum út sali fyrir
fundi og samkvæmi.
MATST0FAN
DRÍFANDA.
Sími 1128.
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmannabraut 31, Kaupangl.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Sími 1878. — Heima 2178.
JÓN HJALTASON. hrl.
Skrifstofa: Drífanda við Bárugötu,
Viðtalstími: kl. 4,30 — 6 virka daga
nema laugardaga kl. 11 — 12 f.h.
Sími 1847.
Blómlaukar.
Nýkomið mikið úrval
af blómlaukum.
ALDA
BJÖRNSDÓTTIR.
Kirkjulundi.
Sími 1163.
Fast fæði —
lausar móltíðir —
gisting. -
MATSTOFAN
DRÍFANDA.
Sími 1128.