Fylkir


Fylkir - 26.02.1977, Blaðsíða 4

Fylkir - 26.02.1977, Blaðsíða 4
FYLKIR 4 SIGURBJÖRG AXELSDÓTTIR: PUNKTAR Færeyjaför Pegar ég fyrir skömmu skrif aði í Fylki og gagnrýndi stjórn. un bæjarins hjá Páli Zóp og varabæjarstjóra GHT, lét bæj- arráð hafa sig út í það að víta mig fyrir. Enginn treysti sér til að andmæla skrifunum, því vitað er að svona eru stað- reyndir, því miður. Þegar ég svo á næsta bæjarstjórnarfundi bar upp vítur á hegðun GHT fyrir upplýsingar hans um greiðslur eins skattborgara, var þrælsóttinn svo mikill að enginn treysti sér til að taka undir og tillagan var felld bæjarfulltrúum til háðungar. Bæjarráð verðlaunaði reyndar GHT með Finnlandsferð og upp lýsti að hann væri svo góður samningamaður!!!! . Nú hafa fjármálahæfileikar GHT enn komið í ljós, þegar hann talar um 22 millj. kr. ferjulægi, en Þ.M. 37 millj. kr. Mér var tjáð þegar ég spurðist fyrir um þennan mikla mun að tekið hefði verið saman, leg- ið hefði hjá bókhaldinu plagg um tölurnar 24 — 25 millj., en Þ.M, hefði hinsvegar farið beint í bókhaldið sjálfur og tekið endanlegar tölur þar. , Nú er mikið skrifað og talað um fjármál Guðbjörns Páls. sonar í R.vík (Batta rauða). Kristján Pétursson upplýsir í Vísi, að tekin hafi verið skulda bréf til greiðslu á vangoldnum gjöldum skipasmíðastöðvar Njarðvíkur, sem hann segir eins dæmi Ekki veit alþjóð hvað hér hefur verið gefið fordæmi fyrir, þegar GHT fékk 1972 að kaupa íbúðina af bænum með skuldabréfum á nafnverði, ser.i hann hafði keypt með stórum afföllum og borgaði gjöldin sín fyrirfram með afganginum. Þetta athæfi hefur bæjarstjórn- armeirihlutinn þáverandi lagt 'blessun sína yfir. Magnús Magnússon upplýsti að hann einn væri ábyrgur fyrir þessu athæfi og þar sem búið væri að, reka sig, þá væri ekkert hægt að gera. Það er hans skoð un, ábyrgð GHT og bæjarráðs er ekkert minni. Erfitt verð- ur fyrir MM að fara í kosninga baráttu til þings með svona mál á herðum sér ásamt öðru. Aldrei hefur GHT verið valda meiri en nú. Virðist hann efl. ast við hver mistök sem hann er viðriðinn. Nú logar allur»< bærinn yfir álögðum dráttar- vöxtum á fasteignagjöld og út- svör. Þótt fólk hafi gert allt upp fyrir áramót, koma nú í ljós áfallnir dráttavextir. Þeg. ar fólk fær þau svör að það sé skuldlaust um áramót og fær jafnvel til baka, þá skiptir skökku við að fá svo áfallna dráttarvexti löngu seinna. Það er ekki .endalaust hægt að kenna kerfinu um. í fyrsta skipti síðan „einræð- isherrarnir” tóku við, fór fram mannaráðning í gegnum bæjar- stjórn. Ráðin var kona til að hugsa um kaffið á bæjarskrif- stofunum. Svo til einhvers er gagnrýnin. í viðtali við Pál Zóp í Dag- skrá í síðustu viku, segir hann að hann og bæjarráð séu ein. huga um framkvæmdir. Svo gjörsamlega erum við minni- hlutamenn hunsuð að við frétt- um yfirleitt síðust af öllum hvað Páll, Georg og bæjarráð er að bauka, því þar er margt ákveðið sem ekki er bókað um. Og ef störfin eru gagnrýnd þá heitir það áróður. Nú hefur td. verið tilkynnt að bæjarstjórnar fundur verði laugard. 26. feb. Bæjarstjóri var búinn að lofa því að áður yrði fundur með úttektarnefnd, en fjárhagsáætl- un yrði samþykkt. Nú kemur það í ljós, að það er hunsað eins og annað. Páll segist sjálf- ur ætla að tala við nefndina í R.vík, það á að vera okkur nóg. Er ég viss um að slíkt einræði er einsdæmi. í útvarpinu heyrði maður þær fréttir að, bæjarráð hafi gefið Handknattleikssamband- inu 50 þús. kr. og eftirgefið af leigu íþróttahússins, hugs. aði ég sem íþróttaunnandi: Hvers konar framkvæmdasemi er þetta? Hvergi er þess getið að beðið hafi verið um styrk. Verra finnst mér að gefa eftir leigu af íþróttahúsinu, þar finnst mér ekki mega gefa eft. ir. Þegar íþróttafélögin hér fá enga eftirgjöf er alls engin á- stæða að hyggla öðrum. Eg hélt að svona yfirlýsing um gjafir í útvarpi væri gagnvart úttekt- arnefnd kanski flottræfilsgang- ur. Að ég tali ekki um að þar hefði þurft samþykki bæjar. stjórnar við. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem bæjarstjórn fær svona utan að komandi fréttir. Til gamans má geta þess að formaður Handknattleiks- sambandsins er einn af topp- um Breiðholts hf., svo þar skír. ast línur hve höfðinglega og fljótt var við brugðist. Einnig frétti maður í útvarpinu að 1. verðlaunahafi Elin Corneit hafi komið hingað að líta á bæinn. Vonandi hefur verið betur tek- ið á móti henni en þeim sem fengu 2. verðlaun. Það var 5 manna hópur, sem tilkynnt var um að mæta ætti kl. 2 þann sunnudag sem opnunin fór fram. Þessu unga fólki var ekki boðið í hádegisverðinn og fengu ekki svo mikið sem kaffibolla á vegum bæjarins. Eflaus þyrfti hér siðameistara til að sjá um opinbera móttökur, svo við verð um okkur ekki sí og æ til háð- ungar. S. A. FJÁRÖFLUN í FERÐASJÓÐ. f 12. tbl. Fylkis frá s.l. ári var vikið að fjáröflun ýmissa hópa og talað um að blaða- sala gæti verið ein leiðin til þeirra hluta. Nú hefur það skeð, að hópur Landakirkja. Barnaguðsþjónusta n.k. sunnu dag kl. 11 f.h. Guðsþjónusta kl. 2. Skúli Svavarsson kristniboði prédikar. drengja, sem fara ætlar í sýn- ingarferð til Færeyja um pásk. ana, hafa tekið að sér, undir handleiðslu stjórnenda sinna, að selja Fylki, fyrst um sinn til ágóða fyrir ferðasjóðinn. Sölulaun þeirra fyrir síðasta blað, nam kr. 12.000,oo í ferða- sjóðinn. 20,30. Sóknarprestur. Betel. Bamaguðsþjónusta kl. 13 n. k. sunnudag. — Almenn guðs- þjónusta kl. 16,30. Allir velkomn ir. U5á Y 1977 HEIMA ER BEST Næst þegar þú tryggir þá er gott að líta við hjá okkur. SKRIFSTOFA BÁTAÁBYRGÐARFÉLAGSINS, Strandvegi 63, homi Heiðarvegar, er opin kl. 10 til 12 f. h. og kl. 2 til 5 e. h. SÍMINN ER 1862 Talið frá vinstri: Oskar Sigmundsson, Viktor Scheving, Jón Kristinn Jónsson, Sigurhjörn Egilsson, Bergur Agústsson, Páll Scheving, Hlynur Stefánsson, Stefán Olafsson, Þorgeir Richard- son, Vignir Oláfsson, Bjarni Sveinbjörnsson, Gunnar Jónsson, Sigurpáli Scheving, Davíð Guðmundsson, Jón Atii Gunnarsson, Sigurgeir Scheving og Gísli Magnússon. Föstumessa n.k. fimmtudag kl.

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.