Fylkir - 24.09.1977, Side 3
FYLKIR
Aivinnumálin
Miklar blikur eru á lofti
víðasthvar á landinu í atvinnu-
inálum vegna rekstrarörðug-
leika frystihúsa, sem víðast eru
máttarstólpar atvinnu og af-
komu fólks. Svo langt hefur
þetta gengið, að uppsagnir
verkafólks hjá þessum fyrir-
tækjum hafa víða átt sér stað.
Góðu heilli hefur ekki ennþá
komið til slíkra ráðstafana hér
og verður vonandi ekki.
Miklar umræður urðu um
þessi mál á síðasta bæjarstjórn
arfundi, einkum vegna þeirrar
deilu, er upp var komin útaf
verkun síldar. Svo og þeirri
stöðu, að ekki væri nóg að gera
heildarsamninga, eins og í þessu
tilfelli, vegna aukakrafna, sem
upp komu innanbæjar frá verka
lýðsforustunni, eftir að samn-
ingum hefur verið náð, sem
gilda eiga annarsstaðar.
Kom fram vilji hjá öllum
bæjarfulltrúum til þess að
þessi deila mætti leysast sem
fyrst, svo mikið sem í húfi
væri. Kom fram, að á síðastl.
hausti hefðu vinnulaun í síld-
arverkun verið yfir 70 milljón-
ir króna. Síðan hefði kaup-
'gjald hækkað um 40%, svo
miðað við svipaða framleiðslu
og þá, er um mikla fjármuni
að ræða, beint og óbeint, ef
allt er tekið með.
Til þess að reyna að koma
hreyfingu á málin flutti minni-
hlutinn eftirfarand tillögu:
„Þar sem fyrir liggur, að at-
vinnurekendur í Vestmannaeyj-
um eru tilbúnir að ganga inn
í kjarasamninga um síldarsölt-
un, er gerðir voru á Hornafirði
12. ágúst sl. milli fulltrúa at-
vinnu'rekenda (Vínnuveitenda-
sambandsins og Vinnumála-
stofnunar samvinnufélaganna)
og fulltrúa verkalýðsfélaganna
á Austurlandi, Suðurnesjum,
Akranesi og í Reykjavík, skor-
ar bæjarstjóm Vestmannaeyja
á verkalýðsfélögin hér að end-
urskoða afstöðu sína, þar sem
sýnt er, að annars gæti svo
farið að engin síldarsöltun yrði
hér á haustinu, sem þýða myndi
stórkostlega afkomuskerðingu
fólks og byggðarlagsins á þeim
viðsjárverðu tímum, sem nú
ríkja.
Vestmannaeyjum, 8. sept. 1977.
Jóhann Friðfinnsson,
Sigurbjörg Axelsdóttir.“
Var tillagan felld með 7 at-
kvæðum meirihlutans gegn 2
atkvæðum minnihlutans.
En samþykkt var eftirfarandi
tillaga frá Sigurgeir Krist-
jánssyni:
,Jdeð hliðsjón af þeirri stöðu
sem hér er komin upp, þar sem
allt útlit er fyrir að engin ríld
verði söltuð hér í fcaust og þar
með glatist stór möguleiki til
fjáröflunar í byggðarlaginu, þá
skorar bæjarstjórn Vestmanna
eyja á deiluaðila að gera sitt
ýtrasta til að leysa málið. Fel-
ur hún forseta bæjarstjórnar
og bæjarstjórn að kveðja að-
ila Saman til fundar um mál-
ið.“
Af þessu geta bæjarbúar séð,
að eins og við var að búast,
eru sjónarmiðin um leiðir ekki
þau sömu, þótt markmið séu
svipuð.
Sem betur fer hafa ábyrgir
aðilar tekið höndum saman að
|í:ysa vandann, sem upp var
kominn, er það vel og von
allra að veður og aflabrögð
verði hagstæð, svo bæjarbúar
og byggðarlagið megi njóta
þeirra athafna, sem framundan
eru.
Jóh. Friðf.
Hver ræður?
Framhald af 1. síðu.
mönnum bjóðandi aö nytja mn
og kostar bæjarfélagið stórfé
að laga og þrífa).
Nú líður og bíður og ekkert
gerist í málinu. Svo að á sið-
asta bæjarstjórnarfundi kom
ég með eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn samþykkir að
teleskóphúsin í Bessahrauni
verði lagfærð, hreinsuð og
pökkuð saman jafnóðum og
þau losna.“
Rökstuddi ég tillöguna með
því að nú þegar væri farið að
úthluta lóðum á þessu svæði
og einstaka teleskóphús væri
nú þegar fyrir. Benti ég og á,
að t. d. Akureyri hefði aðeins
um 30 íbúðir á sínum vegum.
Tillagan var samþykkt með
9 atkvæðum. Pegar þetta er
ritað, á miðvikudagsmorgni,
hefur ekkert gerst í málinu.
Mér finnst helv ... hart, að
bæjarstjóijl, sem á að láta
framkvæma samþykktir bæjar
stjórnar, skuli komast upp
með að hunsa gjörðir hennar.
Spumingin er því einu sinni
enn, en ég hef oft spurt áður
hins sama: Til hvers er bæjar-
stjórn eiginlega, ef bæjarstjóri
getur gert eða ekki grt ná-
kvæmlga það sem hann vill
sjálfur og lætur sem vind um
eyru þjóta hvað samþykkt er
eða ekki?
S. A.
U5ár
IÖT7
Bátaábyrgðarfélagið þakkar Eyjabííum ánægju-
leg samskipti á umliðnum tíma.
'lvlú hefur starfsemi félagsins verið breytt,
þannig, að það getur annast alhliða tryggingar-
þjónustu.
Viljum við sérstaklega benda á:
☆
Heimilis .................... T
Húseigenda .................. R
Bifreiða .................... Y
Ferðaslysa .................. G
Innbús ...................... G
Slysa ....................... I
Ábyrgðar .................... N
☆ G
☆ U
Nú haustar að og nauðsyn tryggingar aldrei
brýnna. — Gjalddagi eignatrygginga er 1. okt.
Takmarkið er:
Iðgjaldagreiðslur til ávöxtunar innanbæjar.
Stefnum að því að svo niegi verða með því
að beina öllum tryggingaviðskiptum til Báta-
ábyrgðarfélagsins.
Skrifstofa Bátaábyrgðarfélagsins, Strandvegi 63,
homi Heiðarvegar, er opin kl. 10 tii 12 og kl.
2 til 5 e. h.
SIMINN E R 1862
iv» yo «jo ui <jo UO 'JL' 'JL> 'X' <X> <JL> <3L> !X> QO <JO QO (X> QO QO QO ^IQPQÓQ0 00 00 QD QD QD QD QD QD QD QD
8P
88
88
88
88
88
88
88
38
38
36
38
38
38
38
i Fyrn' umsóknir endurnýist.
38
FRÁ SAMKÓR VESTMANNAEYJA
Óskum eftir að fjölga í kórnum, alíar raddir
koma ti! greina. - Þeir, sem hafa áhuga,
hringi í stjórnanda kórsins, Sigurð Rúnar Jóns-
son sem fyrst. sími 1823. Vinnusími 1944. -
Stjórnin.
8f
88
88
86
88
88
88
88
86
38
36
38
36
88
38
38
38
36
8886!*! 38 88 88 36*® 88 86 86 86 83 86 86 88 86 36 86 86 86 86 868886 888886888888888686888888868888 86 86 86