Fylkir - 24.09.1977, Qupperneq 4
FYLKIR
Neoan rí sió
Aflabrögð og veðrátta: Segja
má að veðráttan hafi verið all
sæmileg seinustu viku. Að vísu
þokusúld og dimmt yfir, en
sem sé, þokkalegt. Nú er orð-
ið dauft yfir trollinu. Líklega
aðeins 14 bátar að veiðum. Um
aflabrögð er í raun lítið að
segja, kannske einna helst það
að um kropp sé að ræða. Um
helgina landaði Andvari 54 tonn
um, Sigurbára með 25 og á
miðvikudaginn var Ölduljón
inni með 41 tonn. —
Togararnir: Klakkur var inni
á mánudag með 116 tonn, prýð-
is fiskur, þar af 80 tonn af
þorski. Vestmannaey hélt áleið-
is til Þýskalands sl. miðviku-
dag með um 150 tonn af fiski,
mest ufsa. Er fyrirhúgað að
skipið selji í Cuxhaven næst-
komandi mánulag. Þennan afia
fékk Vestmannaey á 10 dögum.
Að því er Magnús Kristinsson,
framkvæmdastjóri útgerðarinn-
ar, tjáði mér, hefur Vestmanna
ey gengið vel að undanförnu.
Fékk í ágúst 329 tonn, að skipta
verðmæti tæpar 25 milljónir
króna Sindri var um miðja
vikuna kominn með um 60
tonn, og er búist við honum
til löndunar á mánudaginn. —
Síldin: Nú er síldardeilan
leyst, svo þá á söltun að geta
hafist. Það ég best veit eru
allar stöðvarnar tilbúnar til
móttöku. Eftirtaldir Eyjabátar
fengu leyfi til síldve *.a í nót:
Andvari, Álsey, Bergur, Bjarn-
arey, Bylgja, Glófaxi, Gunnar
Jónsson, Heimaey, Kópavík,
Stígandi, Suðurey, Þorbjörn,
Þórunn Sveinsdóttir og Eyja-
ver. Leyfi til reknetaveiða
fengu: Árni í Görðum, Dala-
Rafn, Danski Pétur, Guðrún
Magnúsdóttir, Hrauney, Kópur,
Surtsey og Ölduljón.
Ekki er fullvíst um, hvort
allir þessir bátar nota leyfin.
Sýnilegt er þó, að einhverjir
heltast úr lestinni. 2 rekneta-
bátar eru byrjaðir veiðar, Dala-
Rafn og Surtsey. Ég hef haft
takmarkaðar fréttir að austan,
þó vissi ég að Surtsey var hér
inni á fimmtudaginn með 30
tunnur, og daginn áður land-
aði Dala-Rafn 70 tunnum á
Hornafirði. Tveir bátar, Bjarn-
arey og Gunnar Jónsson eru
farnjr til síldveiða í nót, en þær
veiðar voru leyfðar frá 20. þ.
mánaðar.
Skipasölur: Alltaf er einhver
hreyfing á skipamarkaðnum.
Nú mun til að mynda afráðið
að Valdemar Sveinsson verði
seldur til Grindavíkur. Hyggst
Sveinn Valdemarsson stækka
við sig og fá nokkru stærri
bát.
Þá hafa þeir Kristján Thor-
berg og Jón Ásgeirsson keypt
mb. Stakk ÁR 32, um 50 lesta
bát, sem gerður hefur verið út
frá Þorlákshöfn.
Spærlingur: Þó talsvert líf
hefur verið í spærlingsveiðinni
að undanförnu. Einna harðast-
ur hefur verið mb. Friðrik Sig-
urðsson úr Þorlákshöfn. Hefur
sá bátur landað 191 smálest á
viku. Af Eyjabátum er það að
frétta, að sl. mánudag lönduðu
eftirtaldir bátar: Bylgja 110
lestum, Þristur 42, Bergur 51,
Stígandi 33, Gjafar 37, Eyjaver
54, Þorbjöm II. 72. í fyrradag
lönduðu svo Óli Vestmann 17
tonnum, Eyjaver 69 og Þristur
39. —
Bj. Guðm.
SAMNINGAR NÁÐUST
Svo sem kunnugt er, hefur
að undanförnu staðið yfir deila
millum verkalýðsfélaganna og
vinnuveitenda um kaup og kjör
við síldarsöltun. Leit jafnvel
svo út um tíma, að ekkert yrði
saltað hér af síld á þessu hausti.
Deilan snerist einkum um það,
hvort hér skyidu gilda samn-
ingar þeir, er undirritaðir voru
í gúst sl. austur á Hornafirði
og giltu nánast fyrir allt land-
ið. Verkalýðsfélögin vildu ekki
alfarið una þeim samningum,
en vinnuveitendur buðust til að
undirrita þá óbrytta.
Á þriðjudagskveeldið náðist
svo samkomulag í þessari
deilu. I aðalatriðum varð sam-
komulag um að Homafjarðar-
samningarnir skyldu gilda hér.
Einhverjar smábreytingar munu
þó vera frá þeim samningum,
og þá einkum frekar tæknilgs
eðlis, ef svo má að orði kom-
ast, heldur en fjárhagslegs.
BETEL
Guðsþjónusta næstkomandi
sunnudag kl. 16.30, þriðjudag og
föstudag kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Betelsöfnuðurinn.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
Nýr sölulisti vikulega.
Skrlfsioft Vm.: Birn(. t, t. h*ð
ViðUUtíml: liJO—19, mlðvikud.
—ftetadafs- Sinrt 1M?.
Skrlfstofm Rrik: Gmrðutnetl 11-
VUUlstiml: Miandmcm Of þrifljn-
dm<m. — Siml ÍIMI.
JÚN HJALTASON, hrl.
Söluverðlaun
50 þúsund króna verðlaton
Ritstjórn Fylkis hefur ákveð-
iðið að efna til sölukeppni með-
al sölubarna blaðsins. — Hefst
keppnin frá og með næsta tölu
blaði, er kemur út 1. október
n. k. —
Keppnin er á þann veg, að
veitt verða 3 verðlaun, 25 þús.
kr., 15 þús. kr. og 10 þús. kr.
Fyrstu veerðlaun, 25 þús. kr.
fær það sölubarnið, er flest
eintök selur af blaðinu á tima-
bilinu 1. októbr til jóla, að jóia
blaði meðtöldu, 2. verðlaun exu
svo 15 þús. kr. og rennur sú
fjárhæð til þss barns er næst-
flest blöð selur, o. s. írv.
Verðlaunin verða svo afher.t
daginn fyrír Þorláksmessu, 22.
desember.
Auk þssara verðlauna verða
svo greidd sölulaun af hverju
blaði eins og venjulega, en það
er 25 krónur á hvert blað.
Sölubörn, verið með frá byrj-
un. Vinnið ykkur inn aukapen-
ing fyrir jólin. —
FIRMAKEPPNI í
INNANHÚSSKNATTSPYRNU
Ákveðið hefur verið að ár-
leg firmakeppni í innanhúss-
knattspyrnu verði háð um mán
aðamótin október-nóvember n.
k. Rétt til þátttöku hafa að-
eins fyrirtæki, og liðin skulu
vera skipuð föstum starfsmönn
um fyrirtækisins, sem hafasitt
aðalstarf hjá fyrirtækinu og
hafa verið á launaskrá hjá því
sfðustu 10 dagana áður en
keppnin hefst. Hvert fyrirtæki
má aðeins senda eitt lið í
keppnina. Keppnin er útslátt-
arkeppni, þannig að lið er úr
keppninni eftir tvö töp.
Þau fyrirtæki, sem ætla að
taka þátt í keppninni í ár skulu
sækja um það skriflega til
Knattspyrnuráðs Vestmanna-
eyja fyrir 10. október n. k. —
Þátttökugjald er kr. 5.000,00 og
verður þátttökutilkynning því
aðeins tekin gild, að gjaldþetca
fylgi með.
Hafi fyrirtæki áhuga á því
að fá úthlutað æfingatímum í
íþróttahöllinni, ber þeim að
snúa sér til stjórnar ÍBV, sem
annast um úthlutun tíma í hus
inu. Leigugjald er kr. 2.400,00
á æfingatímann.
KRV væntir góðrar þítttöku
í firmakeppninni eins og und-
anfarin ár og eru fyrirtækin
hvött til þess að senda inn
þátttökutilkynningar sínar, á-
samt þátttökugj aldinu, sem
allra fyrst.
Fréttatilkynning frá KRV
ixj«x>yt?yeQPQPQL>y£?yoQoyoQPQCQeyc>yL>yfc>yÉ?QCQPQ0QOQPQP^^<^t»^^tt?Q0^QC>QOQ0QPQOQ0^^^>a?cx>
“ *
88
§8 AÐALFUNDUR
| Aðalfundur Isfélags Vestmannaeyja hf., fyrir
| árið 1976, verður haldinn í húsi félagsins við
88
88
88
86
38
88 Strandveg í Vestmannaeyjum, laugardaginn
| 19. nóvember n. k. og hefst kl. 2 e. h.
| Dagskrá:
1 Samkvæmt félagslögum. StjÓrnÍH.
98
'ÖC OO öo oC ðo cC X (X ðo oB ðíS ðo SS <Xt ðö ðc ðö ðö ðö IX/ iTi ðO ðC <X> oo oo oo <X> <X/ m X/ ot X/ X X ro X X X
88
88
88
88
88
88
88
88
88
LANGAR ÞíG í BITA
ÞÁ ER BARA AÐ LÁTA OKKUR VITA
Nú fer hver að verða síðastur að ná sér í
kindakjöt á gamla verðinu.
1/1 skrokkar 636,00 kr. pr. kg.
Súpukjöt €67,00
Valið súpukjöt .... 728,00
Framhryggur .... 979,00
Læri .... 772,00
Lærissneiðar .... 979,00
Hryggur .... 793,00
Kótelettur .... 878,00
Slög .... 550,00
Saltkjöt .... 793,00 kr. pr. kg.
Pitt að velja — Okkar að selja
VERSLUN
GUNNARS ÖLAFSSONAR & co.
Strandvegi 47 — Sími 1052