Fylkir - 08.10.1977, Side 1
29. árg. Vestmannaeyjum 8. okt. 1977 14. tbl.
Topparnir í Ráðhúsinu
f síðustu Dagskrá ritar Magn
ús frá Hafnarnesi, starfsmað-
ur bæjarins í 14 ár, dálitla hug-
vekju um ráðamenn bæjarins
og logandi ljós allar nætur í
Ráðhúsinu. Hann spyr: Eru
menn að snapa sér vinnu á
kosnað skattborgarans? Vegna
Þessara skrifa fór ég á stúfana
til þess að athuga hvað þessi
ljósagangur langt fram á nótt
í Ráðhúsinu þýddi í peningum
hjá æðstu mönnum bæjarins.
í samningum Starfsmanna-
félags Vestmannaeyjabæjar og
bæjarstjórnar Ve stendur svo í
11. grein um yfirvinnukaup:
Forstöðumenn (og þá væntan-
lega topparnir) eiga ekki rétt á
yfirvinnugreiðslu skv. tíma-
kaupi. Þurfi þeir þó að vinna
yfirvinnu vegna anna í starti,
er heimilt að greiða þeim sér-
staka þóknun til viðbótar mán-
aðarlaunum þeirra. Slíka
greiðslu ákveður bæjarstjórn
með samkomulagi við viðkom-
andi starfsmenn og vitund
Starfsmannafélags Vestmanna-
eyjabæjar.
Hér á eftir fara launagreiðsl-
ur 3ja toppa í Ráðhúsinu:
Bæjarstjóri: laun alls aukav.
maí 298.971 35 kl
júní 319.093 35 kl
júlí 331.854 35 kl
ágúst 331.854 35 kl
september 344.897 35 kl
Skriftofustj. og varabæjarstj laun alls aukav.
maí 314.398 40,5 kl
júní 455.124 94,0 kl
júlí 563.315 130,0 kl
ágúst 347.945 21,0 kl
september 661.473 143,5 kl
Lögfræðingur og innh.stj.: laun alls aukav.
maí 327.329 57,0 kl
júní 283.637 29,0 kl
júlí 348.090 51,0 kl
ágúst 281.387 31,5 kl
september 409.419 61,0 kl
Þegar barnaheimila og leik-
vallanefnd var beðin um að at-
huga hvort ekki mæt.ti draga
úr þeirri litlu yfirvinnu sem
þar er, (en við verðum að
opna l'h fyrir þá sem mæta í
vinnu kl. 8 og Va — 1 á kvöldin)
en samanlagt eru aukavinnu-
klukkustundirnar t.d. á Sóla
160 gegnum sneitt á allar stúlk-
urnar, en þær eru 9, yfir mán-
uðinn. Þá lögðum við okkur í
líma til að athuga hvort ekki
mætti eitthvað draga saman.
En vissum þó að ef það yrði
gert mundum við missa okkar
góðu starfskrafta, því ekki er
kaupið svo gott.
En þegar það sést áþreifan-
lega að þeim sem trúað er fyr-
ir að reyna að hafa útgjöld
bæjarins sem allra hagkvæm-
ust, þá virkar það sem kjafts-
högg að sjá að hægt er að
skammta sér kaup að eigin vild.
Bæjarstjóra til hróss, þá hlýtur
hann því að fá ekki meira í
aukavinnu en honum ber. Hitt
er svo stjórnleysi hans að láta
starfsfólk sitt skammta sér
kaup að vild.
Þó að Þórarinn Magnússon
hafi sagt að skrifstofustjórinn
væri óborganlegur, þá efast ég
100 ára ártíð
ENGILBERTS GÍSLASONAR
Málara.
Þann 12. okt. n.k., eru 100 ár
liðin frá fæðingu Engilberts
Gíslasonar málara. Engilbert
fæddist hér í Eyjum og hér
ól hann allan sinn aldur, en
hann lést desember 1971, 94
ára að aldri.
Engilbert heitinn var kunnur
og mikilsvirtur borgari þessa
oæjar, afbragðs fagmaður, en
kunnastur mun hann vera fyr-
ir Iistaverk sín á sviði málara-
listarinnarinnar sem til munu
vera á mörgum heimilum inn-
an bæjar og utan, og glatt hafa
margt augað í gegnum tíðina.
Væri nú ekki vel til fundið
að Byggðasafnið, sem senn
kemst í gagnið í nýja Safna-
svona bókstaflega, eða hvað?
Minna má á það að þegar
Jóhann P var ráðinn, lét Sigur-
geir Kristjánsson bóka það að
Mm. hefði sagt að G.H.T.
mundi hætta störfum í sumar.
Nú er kominn október. f sept-
ember höfðu þeir G.H.T. og
J.P.A. samanlagt. 1.070.892.
Þess skal að lokum geta, að
sumaífrí er tekið að einhverju
leiti á þessum mánuðum og í
maí-mánuði var yfirvinnubann.
húsinu, gengist fyrir sýningu á
verkum þessa látna heiðurs-
manns í tilefni af þessum tíma-
mótum. Gaman væri að opna
í hinum nýju húsakynnum með
sýningu á verkum Engilberts.
LÖNG VORU ÁRIN
í KRATAVISTINNI
Eftir áralangt hlé hefur Fram
sóknarblaðið séð dagsins ljós.
Ber því að fagna, að fram
sóknarmenn skuli hafa hert sig
úpp í blaðaútgáfu. Vitað er, að
framsóknarmenn hafa átt mjög
óhægt um vik og eru ekki bún-
ir að ná sér eftir ósigur K-list-
ans við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar.
í ágætri grein eftir Sigurgeir,
sem hann kallar „Kratapólitík”
byrjar Sigurgeir að rifja upp
samstarfsárin með Magnúsi,
einhverra hluta vegna talar
hann um að Magnús hafi hrökl-
ast úr sæti bæjarstjóra eftir
ellefu ára setu. Þá veit maður
það, 8 árin að viðbættu 1 til
reynslu eða samtals 9 ár, hafa
verið 11 ár, þegar fyrrverandi
forseti, Sigurgeir, lítur yfir far-
inn veg.
Löngu er vitað, hve illa
Sigurgeir leið í samstarfinu, en
engan mun hafa órað fyrir því
að svo slæmt hafi það verið að
þessi 9 ár hafi verið Sigurgeir
11 ára hrollvekj"
Er fróðlegt að lesa lýsingu
á misnotkun og fjármálaspill-
ingu er viðgekkst undir handar
jaðri Magnúsar, og heppnir voru
þeir, Georg og Magnús, að eng-
inn Vilmundur skyldi hafa ver-
ið nærri til að skýra alþjóð frá
sukkinu og mikið má langlund
argeð Sigurgeirs hafa verið að
vera öll þessi ár, hinn þægi og
prúði maður, sem lét allan
þennan ósóma viðgangast, þótt
greinilega hafi ýmsu verið hald
ið kyrfilega leyndu fyrir hon-
um. En alltaf verður hans hlut
ur stór fyrir að segja hingað
og ekki lengra, er það meira
en hægt er að segja um aðra er
haldið var, að myndu eiga þann
try nndóm, og Slgurgeir átti
þótt betur hefði verið, að hann
hefði fylgt þessu betur eftir og
ekki látið aftur falla í sömu
gryfjunna eins og yfirstjórn
bæjarmála er komin í.
Jóh. Friðf.
um að hann hafi meint það
S.A.
KRAFA BÆJARBÚA ER:
BURT MEÐ SUKKIÐ 0G ÓRÁÐSÍUNA
Því miður er frekar dauft yfir atvinnulífi Eyjanna um
þessar mundir. Aflabrögð eru í lakara lagi og sjósókn
minni, en oftast áður.
Einhæfni atvinnulífsins er ennþá svo mikil, að ef ekki er
sæmilegur afli, sem berst á land, er það fljótt að segja til
sín í byggðarlaginu.
Einn er þó sá vinnustaður í bænum sem virðist blómstra
en það er Ráðhúsið. Þarna hefur verið komið fyrir ágætri
aðstöðu fyrir yfirstjórn kaupstaðarins og vonir stóðu til,
að ýmiskonar mistök og stjórnleysi sem afsökuð voru
með lélegum aðbúnaði og þrengslum vær.u úr sögunni.
Þetta ætlar þó að fara á annan veg. Nú er komið í
ljós, að þeir svartsýnustu á forustuleysi bæjaryfirvalda,
hins „sterka” meirihluta með bæjarstjórann í broddi fylk-
ingar höfðu á réttu að standa.
Bæjarbúum er nú að verða æ ljósari sú staðreynd, að
breytinga er þörf ef ekki á að kollsigla bæjarfélagið.
Það gera sér allir grein fyrir því, hvar í flokki sem þeir
standa, að þegar störf í Ráðhúsinu gefa tveim, að vísu
háttsettum í embættisliðinu, tækifæri til að labba út með
um 1100 þús kr. segi ég og skrifa ellefuhundruðþúsund kr.
fyrir vinnu sína einn mánuð, þegar ekki er vitað til þess
að neitt sérstakt sé við að vera, hljóta að vakna ýmsar
spurningar.
I fyrsta lagi: Er fjármufium bæjarbúa vel varið með
slíku háttálagi? Er fjárhagsstöðu kaupstaðarins þannig
háttað í dag, að svona framferði sé réttlætanlegt? Hve
stórkóstlega skaðar þetta álit byggðarlagsins hjá lána-
stofnunum? Erú þessir meun færir um að gæta hagsmuna
bæ j arfélagsins?
Svona mætti áfram spyrja og svar bæjarbúa verður nei
og aftur nei.
Þetta staðfestir svo ekki verður um villst, að við Sigur-
björg vorum fyrst og fremst að gæta hags bæjarfélags-
ins, er við reyndum að stöðva óheillaþróunina sem varð
þegar liðið í kring um Magnús var tryggt í sessi með
ráðningu núverandi bæjarstjóra, sem virðist dyggilega
feta í fótspor lærimeistara síns.
Jóh. Friðf.