Fylkir


Fylkir - 09.04.1981, Qupperneq 4

Fylkir - 09.04.1981, Qupperneq 4
UR VERINU Nýir pennar Þeir Ásmundur Friðriksson og Sigurgeir Ólafsson bætast nú í hóp þeirra sem skrifa í þáttinn ÚR VERINU og munu þeir sjá að mestu um skrif og efnis- öflun. Frá sama tíma lætur Magnús Kristinsson af störfum sem umsjónarmaður þáttarins, en hann hefur heitið því að leggja til greinar af og til. Blaðið vill þakka Magnúsi fyrir mikið og gott starf við þáttinn undanfarin 2 ár, en í hans tíð var tekin upp sú ný- breytni að birta myndir af öll- um fiskibátum og togurum Eyjaflotans og er í gangi mynd- birting af Eyjaskipstjórum. Óþarft er að kynna þá Ása Friðriksson og Sigga Vídó fyrir lesendum þáttarins og munu þeir hafa með sér verkaskipti þannig að Ási mun leggja á- herslu á aflafréttir o.þ.h., en Siggi greinar og hugleiðingar um sjávarútvegsmál. Blaðið býður þá félaga velkomna til starfa. A.S. Aflabrögð Ágætis fiskirí hefur verið að undanförnu. Netabátarnir suður í kanti hafa gert alveg ljómandi róðra. Glófaxi, Suðurey, Valdimar Sveinsson svo að nokkrir séu nefndir hafa verið með 25-35 tonn eftir eina lögn. Fleldur hefur það verið lakara hjá bátunum inn á Grunni, en vonandi á fiskurinn eftir að ganga meira þangað. Allir bátarnir af heimaslóð lönduðu á mánudagskvöld, en helgarfrí var hjá netabátum. Voru þeir með góðan afla, Álsey 35 tonn, Glófaxi 46 tonn, Suð- urey 41 tonn, Valdimar Sveins- son 41 tonn, Katrín 50 tonn, Þórunn Sveins. 73 tonn og Bylgja 75 tonn, en þeir síðast- nefndu eru austur í bugt og hafa gert það ágætt í vetur. Trollbátarnir hafa einnig gert það gott. Á þriðjudags- morgun landaði Freyja 75 tonnum eftir fjóra sólahringa austur á Vík og Björg 35 tonn- um, en hún var fyrir vestan Eyjar. Einnig hefur verið gott fiskirí hjá Baldri, Þóri, Sæfaxa og Haferni, en þeir hafa sótt hér inn og vestur með. Togararnir hafa allir landað upp á síðkastið. Breki landaði fullfermi á miðvikudag í síðustu viku, Sindri var með fullfermi á föstudag og Klakkur á laugar- dag. Vestmannaey var svo á mánudag með fullfermi. Vest- mannaey fékk aflann fyrir sunnan Eyjar, en hinir fýrir austan land. Þorskur var megin uppistaðan í afla togaranna. Huginn var búinn að landa 260 tonnum af spærlingi á þriðjudagsmorgun. Að sögn Guðmundar Inga er ekki mikill spærlingur í Háfadýpinu frekar en í fyrra. Bergur er að klára loðnuskammtinn, á eftir ca. 300 tonn, en hann tafðist frá veiðum vegna bilunar í spil- tengsli. Aflaskýrslan: Mikil spenna er á toppi skýrslunnar og er ekki að efa að allir þessir harð- duglegu sjómenn eiga eftir að bæta um betur fyrir lok. Skýrslan miðast við þriðju- dag 7. apríl og allar tölur miðast við óslægðan fisk Botnvarpa: Freyja 369,1 tonn Björg 224,2 tonn Baldur 181,0 tonn Sigurbára 142,8 tonn Haförn 108,4 tonn Sæfaxi 104,9 tonn Draupnir 102,3 tonn Þórir 87,5 tonn Sjöfn 77,5 tonn Júlía 64,0 tonn Hafliði 53,4 tonn Erlingur 49,2 tonn Net: Þórunn Sveinsd. 865,4 tonn Suðurey 829,9 tonn Glófaxi 778,2 tonn Valdimar Sveins. 721,5 tonn Gjafar 661,1 tonn Álsey 656,1 tonn Gandi 604,5 tonn Togarar: Breki 1.468,9 tonn Klakkur 1.408,3 tonn Vestmannaey 1.240,1 tonn Sindri 1.135,7 tonn Ásmundur Friðriksson Stórhugur sjómanna Fylkir hefur frcgnað að áhöí'n og útgerð eins neta- báts héðan úr Eyjum hafi gefiö andviröi afla úr róðri í gær til styrktar málefnum fatlaöra, þ.e. til byggingar vinnustaðar handa þcim. Ber þetta vitni um mikinn stórhug, og ekki að efa kjör fatlaös fólks taka stökk- breytingum ef aðrir bæjar- búar taka viö sér af þessu tilefni. Það vröi Vestmann- eyjum til sóma._ Eyjaskipstjórar 1981 Siguijón Óskarsson F. 03. 05. ’45 M.b. Þórunn Sveinsdóttír VE 401 Matthías Óskarsson F. 16. 01. ’44 M.b. Bylgja VE 75 Kristján Óskarsson F. 13. 05. ’46 M.b. Enuna VE 219 Þórður Rafn Sigurðsson F. 09. 01. ’43 M.b. Ölduljón VE 130 Steingrímur Sigiuðsson F. 04. 01. ’42 M.b. Bjamarey VE 501 Hilmar Rósmundsson F. 16. 10. ’25 M.b. Sæbjörg VE 56 Fróðlegur fundur Þriðjudaginn 31. mars sl. buðu Rotaryfélagar nokkrum hópi útgerðarmanna, skip- stjóra og áhugamönnum um sjávarútveg til fundar í veit- ingastaðnum Skútanum til þess að hlýða á erindi Hjálmars Vilhjálmssonar fiskifræðings, sem þeir Rotaryfélagar buðu hingað, til þess að kynna fyrir fundarmönnum hvernig fiski- fræðingar finna og reikna út stærð loðnustofnsins. Fundurinn hófst með vel til- reiddum kvöldverði. Þegar menn voru mettir setti forseti Rotaryklúbbsins hér Ólafur Gránz fundinn og bauð Hjálm- ar og aðra gesti fundarins velkomna. Ólafur fléttaði inn í létt spjall sitt um heimabyggð Hjálmars og æskustöðvar, að það væri von þeirra Rotaryfé- laga að heimsókn Hjálmars yrði þeim félögum og gestum þeirra til gagns og fróðleiks um mikil- væg störf fiskifræðinga. Hjálmar flutti síðan mjög ítarlegt og fróðlegt erindi um mælingu á stofnstærð loðnu- stofnsins, ástand hans og göngu. Ekki er hægt að segja að niðurstöður þær sem draga mátti af erindi Hjálmars vektu hjá fundarmönnum bjartsýni á arðvænlega framtíð loðnu- veiða, ef haldið yrði áfram, sem nú horfir. Kom þar margt til, eins og t.d. veiði annarra þjóða Grænlandsmegin við miðlínu, Jan Mayen veiðarnar, veiði okkar eigin flota í íslenskri lög- sögu, náttúruleg afföll stofnsins o.fl. o.fl. Varaði Hjálmar alvar- lega við því, að ganga svo nærri hrygningarstofninum að hann gæti ekki séð um eðlilegt við- hald sitt. Þó var að heyra á Hjálmari að von væri á sterkari stofnum en þeim stofni sem verið er að veiða úr nú, sem er að stærstum hluta frá árinu 1978. En það ár staðnæmdist loðnugangan við Ingólfs- höfða, en gekk ekki vestur á sínar venjulegu og hefðbundnu hrygningarstöðvar fyrir suður ströndinni og Faxaflóa. Mikil afföll urðu í hrygningu og klaki þetta ár. Að loknu erindi Hjálmars lögðu fundarmenn fyrir hann margskonar spurningar, sem hann svaraði greiðlega. Út úr því spjalli kom meðal annars, að Hafrannsóknarstofnun skortir mjög fé til þess að geta haldið uppi nauðsynlegum og eðlilegum rannsóknum á fisk- stofnum okkar. Það er nöturleg staðreynd að landsfeður skuli halda að sé höndum í fjárveit- ingu til þess að kynna sér hvað er í Búrinu til framtíðarfóðurs. Hjálmar brást ekki vonum þeirra Rotaryfélaga. Fundur- inn var allt í senn gagnlegur, fróðlegur og skemmtilegur. Hafi þeir þökk fyrir framtakið, sem renndi enn styrkari stoðum undir þá nauðsyn að fólk almennt kynnist betur þeim mikilfenglegu störfum sem okkar ágætu fiskifræðingar vinna. sÓV. Því ekki það? í ræðu og riti hefur á undan- förnum árum oft og mikið verið rætt um aukið sjálfstæði sveitarfélaganna, sem mikið réttlætismál sem leiða myndi til ýmisskonar hagræðis og sparn- aðar fyrir landsmenn, ef breyt- ingar nái fram að ganga. Ein- hver .óskiljanleg tregða er af stjórnvöldum að breytingar nái fram að ganga og haldið er í miðstýringuna nánast af allra flokkaráðamönnum, þegar þeir eru komnir í stólana. Það væru ákaflega sjálfsögð stjórnlagaákvæði, að bæjar- stjórnir sem kjörnar eru hver í sínu héraði á 4ra ára fresti væri t.d. trúað fyrir hinum ýmsu gjaldskrám, á hverjum tíma í stað þess að þurfa að bera allt slíkt undir stofnanavaldið á höfuðborgarsvæðinu, sem oft hefur takmarkaða þekkingu á séraðstöðu á hverjum stað. Aðhald kjósendanna væri nægilegt til þess, að ráðamenn í héruðum yrðu að taka tillit til þeirra við ákvarðanir sínar. En meðal annarra orða: eru ekki fleiri en undirritaður orðnir leiðir á neyðarkalli þjónustustofnana ríkisins, á nokkurra vikna fresti um hækkanir á þjónustu sinni? Hefur aldrei komið til orða, að breyta um stjórnendur, eins og gjarnan gerist í rekstri félaga og einstaklinga. Gæti ekki verið að ekki hefði alltaf hist á þann eina rétta fyrir þjónustustofn- anir ríkisins? Myndi ráðning þeirra til 3ja-4ra ára í senn svipað og þingmanna ekki geta komið hreytingu og bættri skipan á gang þessara mála? Mál er að linni og breyting á þessari skipan hlýtur að verða landsmönnum til hagsbóta. Jóh. Friðf.

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.