Framsókn - 15.09.1958, Page 1
FRAMSOKN
BÆ J ARM ÁLABLAÐ
5. árgangur. Vestmannaeyjum 15. sept. 1958. 15. tölublað
+.............................. .............—- ■■■ ■■ - - — ...-....................—— — - - ---------------■_■-—+
Guðlaugur Gíslason hefur lállð bæjar
stjérnina samþykkja, að ný atkvæða
grelðsla fari fram um enduropnun á
fengisúfsölu í Yestmannaeyjum.
Áfengisútsölunni í Vestmanna
cyjum var á sínum tíma
lokað að undangenginni al-
mennri atkvæðagreiðslu um að
komið væri á héraðabanni í
Eyjum.
Reynsla hérðaðabannsins í
Vestmannaeyjum er tvímæla-
laust sú, að drykkjuskapur hef-
ur minnkað meðal íbúa Eyj-
anna til mikilla muna, en aft-
ur á rnóti hafa komið í ljós ýms-
ir ágallar og spilling og meira
og minna opinber vínsala þró-
ast ekki sízt í skjóli lélegrar lög
gæzlu og í skjóli andúðar sumra
þeirra valdsmanna, sem gæta
eiga framkvæmda héraðsbanns-
ins.
Á þeim tímamótum, sem
Guðlaugur bæjarstjóri gengur
nú fram fyrir skjöldu í annað
sinn til þess að þrýsta áfengis
sölu inn á Vestmannaeyjar, er
eðlilegt að rekja mál þetta og
málsmeðferð alla nokkru nán-
ar.
Upphaflega var Guðlaugur
Gíslason forgöngumaður þess
að héraðsbann við sölu áfengis
var sainþykkt í Vestmannaeyj-
um og var tilgangurinn sá einn,
og enginn annar en sá að koma
pólitískum andstæðingi frá
starfi, sem viðkomandi starfs-
maður iiafði rækt án réttmætr-
ar gagnrýni.
Eftir að Guðlaugur var svo
orðinn bæjarstjóri í Vestmanna
eyjum í meirihlutaaðstöðu með
stuðningi og fyrir beinan at-
beina ríkisstarfsmanns þess, sem
Guðlaugur hrakti frá störfum
og samkvæmt einkasamningi við
Þorstein Þ. Víglundsson, þá
breyttust viðhorf Guðlaugs.
Guðlaugur taldi sér hentugt að
fá hinn starfssvipta mann aftur
til starfa, en liann á samnings-
bundið loforð fyrir áfengissölu-
starfinu, ef til enduropnunar á-
fengisútsölu kemur. Guðlaugur
saknaði útsvarstekna frá Áfeng-
isverzluninni og ýmsir flokks-
bræður Guðlaugs töldu sér ó-
þægindi að því og tilgripaseinna
að þurfa að panta áfengið frá
Reykjavík.
Það er opinbert leyndarmál,
að bæjarfógetinn, sem er á tak-
mörkum þess að vera drykkju-
sjúklingur, er mótsnúinn hér
aðsbanninu og horfir yfirleitt
fram hjá yfirtroðslum á því og
innan lögreglunnar eru bæði
gamlir og núverandi drykkju-
menn svo lítils stuðnings hefur
verið þaðan að vænta.
Þrátt fyrir lokun áfengisút-
sölunnar, hefur í framkvæmd-
inni verið opin áfengisafgreiðsla
á pósthúsinu í Vestmannaeyj-
tim, þar sem áfengi hefur verið
afgreitt gegn póstkröfum og var
svo komið á tímabili að sérstak-
ur eftirvinnu afgreiðslutími á
laugardögum var hafður aðal-
lega til afgreiðslu á áfengi.
f skjóli þess, hversu lögreglu
stjórinn hefur \erið greiðugur
á milligöngu um leyfisveitingar
til áfengisveitinga á mannamót-
um, hefur mikill fjöldi og vax-
andi fjöldi drykkjusamkvæma
stöðugt færzt í vöxt og umkomu
litlir auðnuleysingjar verið hafð
ir til.milligöngu um að panta
áfengi, sem þeir hafa síðan miðl-
að til annarra gegn því að fá
hluta af áfenginu fyrir milli-
gönguna.
Áfengissala í bílum hefur
færzt í vöxt og áfengissala starf
að í Eyjum sérstaklega á vetrar
vertíð um lengri og skemmri
tírna, án þess að hafi verið gert.
Loks má á það benda, að Þor-
steinn Þ. \bglundsson, sem um
skeið var einn af hörðustu bar-
áttumönnum gegn áfengisböl-
iini felldi hendur í skaut í þeim
efnum og felldi líka niður alla
starfsenri góðtemplara í Eyjum.
Andmælendur héraðsbannsins
halda því fram, að áfengisneyzla
ungmenna og kvenfólks hafi
aukizt og benda á áberandi
drykkjuskap sérstaklega á vetrar
vertíð, mikið áfengissmygl og
að vermenn bókstflega fældust
frá Eyjum vegna erfiðleika með
aðdrætti á áfengi.
Sannleikurinn er hinsvegar
einfaldlega sá, að héraðsbannið
liefur aldrei náð upphaflegum
tilgangi sínum vegna þess að
valdhafarnir hafa vanrækt fram-
kværnd þess. Því verður ekki
trúað, að Áfengisverzlun ríkis-
ins myndi afgreiða áfengi til
margra þeirra, sem nú eru
helztu móttakendur áfengis í
Eyjum, ef lögreglustjóri sæi á-
fengisverzluninni fyrir skrá yfir
þá menn, sem óheimilt er að
selja áfengi. Líka er það vitað,
að lögreglan ætti mjög lrægt
með að útiloka meirihluta þeirr-
ar áfengissölu, sem nú fer fram
í bílum og á annan hátt og lög-
reglustjórinn gæti mjög dregið
úr hinum tíðu og sífjölgandi á-
fengisveitingasamkomum. Loks
er ekki ólíklegt, að tollgæzlan
gæti haft meiri hemil á smygli
en verið hefur. Áður en dæmt
er um þann árangur, sem orðið
hefur af héraðabanni í Eyjum,
þá er réttmætt að athuga þá að-
búð, ekki sí/.t af opinberri
hálfu, sem héraðabannið hefur
átt við að búa og þann tilgang,
sem það er sprottið upp úr.
Hér skal ekki um það spáð,
hver árangur hinnar nýju at-
kvæðagreiðslu kann að verða.
Hitt er aftur á móti óhæfileg
meðferð mála, sem hér hefur
átt sér stað, sem er sú, að Guð-
laugur Gíslason gengur fram
fyrir skjöldu án nokkurra til-
mæla frá nokkrum félagssam-
tðkum í bænum og knýr fram
bæjarstjórnarsamþykkt um nýja
atkvæðagreiðslu um enduropn-
Framh. á 4. síðu.
Spurningallsti.
1. Hvaða persónulegar hvatir
standa að baki aðgerða Guð-
laugs Gíslasonar til þess að koma
aftur á áfengisútsölu í bænum?
2. Telur Ársæll Sveinsson end
uropnun áfengisútsölu í sam-
ræmi við anda og starf föður
síns?
3. Telur Páll Scheving endur
opnun áfengisútsölu vélstjóra-
stéttinni til góðs?
4. Hefur stjórn Sjálfstæðisfé-
lags Vestmannaeyja krafizt at-
kvæðagreiðslu um enduropnun
áfengisútsölunnar í Eyjum?
6. Hefur Félag ungra sjálf-
stæðismanna borið fram óskir
um atkvæðagreiðsluna um end-
uropnun áfengisútsölunnar í
Eyjum?
6. Óskar Sjálfstæðiskvennafél-
lagið Eygló eftir enduropnun á-
fengisútsölunnar?
7. Standa persónulegar óskir
fyrrverandi og tilvonandi af-
greiðslumanns áfengisútsölu í
Eyjum að baki atkvæðagreiðsl-
unni um enduropnun áfengis-
útsölu?
8. Óskar forstjóri Áfengis-
verzlunar ríkisins eftir endur-
opnun áfengisútsölu í Eyjum?
9. Hver liefur komið þeim
orðrómi á flot, að enduropnun
áfengisútsölu í Eyjum gæti orð-
ið til að greiða fyrir auknum
fjárframlögum til Vestmanna-
eyja?
10. Ætlar Jóhann Þ. Jósefsson
sem V estmannaeyjaþingmaður
og kona hans að koma til Eyja
og beita sér fyrir enduropnun á-
fengisútsölunnar?
11. Hafa góðtemplararnir í
Eyjum lofað að draga sig í hlé
og láta atkvæðagreiðsluna um
enduropnun áfengisútsölunnar
afskiptalausa eða jafnvel að
stuðla að henni?
12. Óskar séra Jóhann Hlíðar
sem kennimaðnr og æskulýðs-
leiðtogi eftir því, að flokkur
hans láti enduropna áfengisút-
sölu í Eyjum?
13. Óskar Kvenfélagið Líkn
eftir því, að áfengisútsala í Eyj-
um verði enduropnuð?
Framhald á 2. síðu.