Ný vikutíðindi


Ný vikutíðindi - 19.07.1968, Síða 5

Ný vikutíðindi - 19.07.1968, Síða 5
NY VIKUTIÐINDI 9 æ Ur heimspressunni * „SEX“ Tveir frægir kvikmyndaleikarar, þeir Kex Harrison og Richard Bnrton, hafa samþykkt að leika tvo hómósexú- alista í kvikmyndinni ,,Stiginn“ eftir samnefndri sögu eftir Charles Dyer. Ehzabeth Taylor, kona Burtons, hefuí ekkert við þetta að athuga, en ýmsar óánægjuraddir hafa komið fram frá aðdáendaskara Harrisons, því hann hefur ver- ið uppnefndur „Sexy Rexy“. „GLAHA EKKJAN“ Odile Rubirosa, hin þrítuga ekkja gleðimannsins Por- firio Rubirosa er beið bana í bílslysi fyrir nokkrum ár- um, býr nú í París og tekur svo mikið þátt í skemmt- analífinu þar, að hún er kölluð „Káta ekkjan.“ Hún klæðir sig mjög djarflega og gerir mikið af því að ganga í gagnsæum blússum, án þess að vera með brjóstahöld, en það er nú að færast í tízku. BLÓM OG HUNDUR Brigitte Bardot, franska sexstjarnan nr. 1, vekur allt af mikið umtal. Nýlega heimsótti hún borgina Granada á Spáni og gekk þar um götur í uppháum leðuflstígvélum og svo stuttu pilsi að vegfarendur stönzuðu og gláptu á hana, svo að umferðin komst á ringulreið. Og þegar borgar- stjórinn ætlaði að hylla hana með blómsveig, sendi hún honum hann til baka með þeim ummælum, að „hún tæki við blómum frá ókunnugum karlmönnum!" Þegar hún svo var á fer-ðalagi um Sviss í snjóhvítum Rolls Royce. sem kolsvartur negri ók (sjálfsagt vegna kontrastanna). kom hún auga á grindhoraðan flækings hirnd á vegimun. Hún tók hundinn upp í bílinn, ók til næstu kráar og gaf honum mat og mjólk. — Nú eltir hundurinn hana hvert sem hún fer. ÓTRÚLOFUÐ Dóttir Charles Chaplins, Josephine, sem er 18 ára, var nýlega á ferðalagi um Irland með 29 ára gömlum grísk um milljónamæringi, Nicholas Sistovaris. Þegar blaðamenn spurðu, hvort þau ætluðu að gifta sig, svaraði hún með klassiska svarinu: „Við erum bara góðir vinir!“ — Sistovaris kvað þau ekki vera opinber- lega trúlofuð, en að frídagarnir á Irlandi gæfu tækifæri til þess að ræða ítarlega þetta athyglisverða umræðu- efni. „RÆKJAN“ KAUPIR LÓÐ Dýrasta fyrirsæta eða model í heimi, Jean Shrimpt- on, „Rækjan'* svokallaða, hefur nýlega keypt séi' lóð á eyjaklasanum Seychellene í Indverska hafinu fyrir 150.000.00 krónur. Ætlar hún sér að byggja þar, hvenær sem það verður. En erfitt verður að ferðast þangað. Fyrst þarf að fara í flugvél til hafnarborgarinnar Mombasa í Kenía á austurströnd Afríku, og þaðan á ferjubát sem fer á hálfsmánaðar fresti og err þrjá daga hvora leið. Þá hlyti að vera betra að kaupa sér hús til dæmis í baðstrandarborginni Brighton, en þangað er klukku- tíma ferð með járnbrautarlest frá London. HÆTTIR AÐ LEIKA Enski kvikmynda- og sjónvarpsleikarinn David Niv- ien verður sextugur á næsta ári og hefur þá ákveðið að hætta að leika og helga sig einkalífi sínu. Kveðst hann ætla að kynnast betur konunni sinni, Hjördísi, sem er sænskrar ættar og fædd í Svíþjóð. Eilíf ferðalög í sambandi við kvikmyndaleik, hefur valdið því, að hann hefur ekki getað helgað konu sinni og tveimur dætt'um nema litlu af tíma sínum, þau 11 ár, sem þau hafa verið gift. En nú skal þessu breytt! AUÐUG SKÁLDKONA Ameríski rithöfundurinn Edna Ferber er nýlátin, 80 ára að aldri. Hún var dóttir kaupmanns af gyðingaætt- um í smáborg í Iowa, þar sem mikið gyðingahatur' ríkti. Edna ákvað því st.rax í æsku að verða fræg til þess að geta skákað hrokagikkunum í heimaborg hennar. Hún varð heimsfræg fyrir margar bækur sínar, t.d. „Show Boat“ sem kvikmynduð varl og Ava Gardner lék 1. Alls skrifaði hún 42 bækur, sem prentaðar voru í milljónum eintaka. , Þegar hún andaðist, lét hún eftir sig tvær milljónir dollara, svo að hún hafði sýnt það svart á hvítu, að á- stæðulaust var að sýna henni fyrirlitningu. Segjum svo að maður geti ekki orðið ríkur á því að skrifa! EKKJA NAKIN I BELTISSTAÐ Það varð uppi fótur og fit í þýzka kauptúninu Mark- öbel í Hessen, ekki alls fyrir löngu, þegar fertuga ekkj- an Edda Sch., spígsporaði um göturnar nakin í mittis- stað. Lögregluþjónn þorpsins fór með ekkjuna heim til hennar, en kortéri síðar var hún aftur komin út á götu eins klædd og áður. Nú varj farið með hana á lögreglu- stöðina, og þar sagði Edda, sem er frá Beriín, að sig hefði langað til að lífga svolítið upp á þetta leiðinda- pláss. Hún fékk 1500 króna sekt fyrir „götuóspektir" — en sjálfsagt hefur henni fundist tilraunin borga sig! 1 Þýzkalandi er refsivert að sýna sig fáklædda, en í Bandaríkjunum tíðkast nú æ meir> að sýna líkamshúðina sem mest nakta, eftir því sem vikublaðið TIME segir. Tízkufrömuðurnir þar setja nú t.d. á markaðinn kjóla, sem eru berir í bakið niður fyrir rófubein! ývingjarnlegt. 7. Dragðu úr slúðursögum. Gerðu þér að reglu að segja aldrei neitt um aðra, nema það sé eitthvað gott. 8. Sýndu nærgætni og taktu fullt tillit til tilfinninga meðbræðra þinna. Glósur og gamansögður' á annarra kostnað svara sjaldan kostn- aði og geta sært, þar sem sízt mátti eiga á von. 9. Taktu ekkert tillit til móðgana og illgjarnra orða í þinn garð. Láttu bara eins og enginn trúi þeim. 10. Vertu ekki of upptek- in af skyldum þínum. Leystu verk þitt vel af hendi, vertu þolinmóð og skapgóð, hugs- aðu sem minnst um mikil- vægi sjálfs þín, og þér mun launað verða. — ☆ — Ertu ástfangin? Ert þú raunverulega ást- fangin ? Ef þú svarar eftirfarandi spurningum af nákvæmni og samvizkusemi — muntu kom ast að raun um hvort þú ert raunverulega ástfangin eða hvort þú lætur aðeins blekkj- ast af augnablikshrifningu og góðu útliti. 1. Hafið þið mörg sameig- inleg áhugamál? 2. Finnur þú til stolts, þeg ar þú berð hann saman við vini þína eða kunningja? 3. Verður þú vör eirðarleys is í fjarveru hans? 4. Nýtur þú samverunnar með honum, jafnvel þegar þið rífist ? 5. Finnur þú til löngunar til að þóknast honum, og læt ur þú með gleði imdan, til < þess að halda friðinn ? 6. Langar þig í raun og veru til að giftast honum ? 7. Hefur hann eitthvað við sig, sem þú vildir að kæmi fram í bömum þínum? 8. Dást vinir þínir eða kunningjar að honum og á- líta þeir ráðahaginn heppileg- an? i-s KVENNADALKAR //// Aðalreglur umgengnismenningar 1. Segðu alltaf minna en þú hugsar. Temdu þér lága, sannfærandi rödd. Oft hefur meiri þýðingu, hvernig þú segir eitthvað, heldur en hvað þú segir. 2. Vertu spai' á loforð, en haltu þau alltaf, hvað svo sem það kann að kosta þig. 3. Hrósaðu því, sem vel er gert, hver sem í hlut á. Ef þörf er á gagnrýni, þá ætti W- m hún alltaf að vera leiðbein- andi, aldrei illgimisleg. 4. Hafðu áhuga á öðrum; áhuga á störfum þeirra og fjölskyldu. Láttu sérhvern, sem verður á vegi þínum, hversu smár sem hann kann að vera, finna, að þú álítur hann mikilvægan. 5. Vertu léttlynd. Feldu þrautir þínar, áhyggjur og vonbrigði á bak við bros. 6. Rökræddu, en stældu ekki. Það er táknrænt fyrir menntað og gáfað fólk, að geta andmælt, en þó verið<vanum 9. Halda foreldrar þínir að þú sért ástfangin ? (Þeir eru mjög glöggskyggnir á slíkt). 10. Ertu farin að ráðleggja — að minnsta kosti með sjálfri þér — hvers konan brúðkaup á að fara fram, eða hvemig þú vilt að heim- ilið og börnin verði? Ef þú, án þess að brjóta í bága við sannfæringu þína, svarar 7 eða fleirum játandi, ertu án efa ástfangin. En ef þú getur ekki svarað 7 ját- andi, er hæpið að þú sért það. Vera kann að það stafi þó af of lítilli kynningu og getur því hæglega lagast með tím-

x

Ný vikutíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný vikutíðindi
https://timarit.is/publication/881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.