Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1938, Side 17

Sameiningin - 01.07.1938, Side 17
m Hátíð mikil var haldin hcr í Canada dagana 22.—26. júní. Hún var haldin af rómversk-kaþólsku kirkjunni og staðurinn var Abrahamsvellir. í sept., árið 1759 var þar háður blóðugur bardagi milli Englendinga og Frakka. Þeir voru víggjarnir keppinautar um yfirráð í Norðurhluta Norður-Ameríku, og þarna, á fletinum fyrir vestan horgina Quebec, á norðurbakka St. Lawrence fljótsins stóð úrslita orustan. Wolfe var fyrirliði Englendinga, Montcalm hinna frönsku. Báðir hershöfðingjarnir biðu bana, en Englending- ar unnu frægan sigur. Þetta var að vísu ekki seinasti bar- daginn í stvrjöldinni, en úrslita orusta engu síður. Þess má geta, að löngu seinna, var báðum hershöfðingj- unum reistur sameiginlegur minnisvarði á þessum orustu- velli. Og nú efndi kaþólska kirkjan i Canada til kirkjuþings á þessu sama svæði. Það var nefnt “Eucharistic Congress,” en eucharist nefna kaþólskir menn altarisakramentið. Það gefur til kynna, að sakramentið hafi verið miðpunkturinn í þessu hátíðarhaldi. Að þessu þingi streymdi t'ólk frá öllum hlutum Canada og margt fólk úr Bandaríkjunum. Eklci kemur fregnunum alveg saman um það, hvað margir hafi verið viðstaddir. Ein fregnin segir að mannfjöldinn hafi verið 100,000, önnur að 300,000 manns hafi þarna komið saman. Hitt er þó víst, að mannfjöldinn var afar mikill. Sennilega er þetta fjöl- mennasta kirkjumálasamkoma sem haldin hefir verið í þessu Iandi. Æðsti maðurinn á þessu móti var Villeneuve kardínáli, eini kárdínálinn í Canada. Reist hafði verið á staðnum afarmikið altari. Þar var hjartastaður allrar samkomunnar. Messur voru sungnar og ræður voru íluttar. Páfinn sjálfur ávarpaði þingheim frá Castel Gondalfo á ítalíu. Hvað sem villutrú og kenningar- ósannindum kaþólsku kirkjunnar líður, lítur svo út að þarna hafi verið feikna hrifning og þátttaka fólksins afar sterk. Þetta þing getur verið gagnlegt umhugsunarefni fyrir Mótmælendur. Hefir eitthvað tapast, þegar böndin við Róm voru slitin?

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.