Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1938, Síða 18

Sameiningin - 01.07.1938, Síða 18
112 Hvað eru kirkjuþing Mótmælenda. Mikið skraf um margvisleg störf, og stundum innblástur frá Guði. Hvða eru kirkjuþing hinna kaþólsku? Það get eg ekki sagt neitt um, því eg hefi aldrei verið á neinu. Hitt veit eg, að þeir halda sjaldan kirkjuþing, sízt til að ræða starfsmál. Þess gjörist engin þörf, því þar er ekki fólkstjórn heldur klerkavald. Klerkarnir ráða, en fólkið hlýðir. Við höfum þá hugmynd almertt, að klerkavaldið sé hrylíilegt, og óneitanlega hefir það stundum verið tilfellið; en er þá fólksvaldið óskeikult? Gæti það ekki orðið til einhvers góðs að hugsa þetta mál alt frá rótum? R. M. Kirkjuþingið minnist hins nýlátna leiðtoga, dr. Björns B. Jónssonar, sem í hartnær fjörutíu og fimm ár starfaði sem prestur kirkjufélagsins, var forseti þess i þrettáu ár, ritstjóri Sameiningarinnar um 20 ár, gegndi skrifara starfi og öðruin ábyrgðarstöðum um lengri tíma, ásamt fleiru, með eftir- fylgjandi yfirlýsingu: 1. Þingið lýsir sorg sinni og' söknuði út af fráfalli þessa merka leiðtoga og dugandi kennimanns er lengstan starfs- tíma hefir átt í þess þjónustu af öllum prestum í sögu þess. 2. Þingið minnist þess mikla starfs, er dr. Björn leysti af hendi í þarfir kirkjufélagsins með þakklæti og tilfinningu fyrir að með honum sé hniginn einn mesti atkvæðamaður, sem vestur-íslenzk ki'istni hefir átt. 3. Þingið vottar ekkju hans frú Ingiríði, börnum hans og ástvinum hjartfólgnustu hluttekningu í þeirra þungu sorg. 4. Þingið vottar Fyrsta lúterska söfnuði í Winnipeg smahygð sína í sambandi við fráfall síns mikilhæfa kenni- manns. 5. Þingið ráðstafar því að nú sé stofnaður sjóður til að heiðra minningu hins látna leiðtoga. Beri sjóðurinn nafnið: Minningarsjóður dr. Björns B. Jónssonar. Stofnun sjóðsins fari fram við minningarathöfn þá, er haldin verður á þessu þingi, og sé í hann safnað frjálsum gjöfum fram að næsta kirkjuþingi. Alt sem inn kemur gangi til starfs kirkjufé- lagsins og leggist í kirkju félagssjóð. Framkvæmdarnefndin annist sjóðmyndunina að öllu leyti. 6. Afskrift af þessari yfirlýsingu sé send fjölskyldu hins látna, embættismönnum Fyrsta lúterska safnaðar og birt á viðeigandi hátt.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.