Nýi tíminn - 09.04.1945, Qupperneq 3

Nýi tíminn - 09.04.1945, Qupperneq 3
NÝI TÍMINN 3 Skúli Guðjónsson: * Framsóknarannáll * „Aldrei var því um Álftanes spáð" „Framsóknarflokkurinn er flokkur bænda“. Maður er nú nokkrum sinnum búinn að heyra hana, lexíuna þá arna. En nú eru þeir farnir að iða í skinninu af álruga fyrir róðrum og sjómennsku, framsóknarpost- ularnir. Manni dettur einna helzt í hug, að þeir Hermann og Ey- steinn séu búnir að kaupa sér trillubát og ætli að stunda sjó, en nota Þórarinn til að beita. En hvað sem unr þetta er breiða þeir nú náðarfaðm sinn á móti sjó- mönnum og bjóðast til að vernda þá gegn hinni vondu ríkis- stjórn. Eg er landkrabbi og hætti mér ekki út í það að ræða sjávarút- vegsmál, enda hef ég ekki vit á þeim fremur en skrifarar Tím- ans. En undarlegt þykir mér það, að ef verið er að beita sjómanna- stéttina einhverjum brögðum, að þeir skuli þá ekki skrifa sjálfir um það í Tímann. Þeir ættu að geta trúrra um talað en þessir stofulærðu sjófræðingar Fram- sóknar. Hlutverk — köllun Mörg — mörg undanfarin ár hefur Framsókn verið að ræða við sjálfa sig um hlutverk sitt í lífinu og mikla fyrir sér ágæti þess og göfgi. Hún ætlaði að fara í föt Þorgeirs sáluga ljósvetninga- goða og gerast sáttasemjari milli hinna stríðandi stétta í þjóðfé- laginu. Og til þess að sýna það eins og svart á hvítu að hugur fylgdi máli, stuðlaði núverandi formaður hennar að því, meðan hann sat í sínum forsætisráð- herradómi, að lögreglan í Rvík fengi gnægð góðra morðvopna. En svo þegar það gerist einn góð- an veðurdag að hinar andstæðu sveitir, sem Framsókn ætlaði að sætta, gera með sér vopnahlé, hættir hún af skiljanlegum ástgeð- um að tala um hlutverk, því henni mun vafalaust vera ljóst, að hún hefur ekkert hlutverk að vinna framar hér í táradalnum. En nú eftir áramótin, þegar hún virðist vera búin að sætta sig við að hlutverkinu sé lokið, þá fær hún köllun, frá æðra heimi að því er manni skilst, líkt og þegar menn fá köllun til þess að starfa að kristniboði í Kína, eða eitthvað þess háttar. Og köll- unin er hvorki meira né minna en það, að hún á að ganga á milli og skirra vandræðum, þegar stjórnarflokkarnir taka að kroppa augun hver úr öðrum. Það mun margur mæla að Framsókn reki slíka köllun af álíka mikilli trúmennsku og hún hefur reynzt hlutverki sínu vax- in. Vasaútgáfa Forráðamenn Tímans munu hafa komizt á snoðir um það, að hinar löngu og leiðinlegu rit- smíðar þeirra Þórarins, Eysteins og Hermanns eru yfirleitt ekki lesnar af bændum. Þegar blaðið stækkaði nú fyr- ir skömmu bættu þeir nýjum pósti í það, sem þeir kalla: Úr mínum bæjardyrum. Höf.: Karl í Koti. Þetta á að vera stæling á hinum pennalipra Gáin ísafold- ar. Reyndar kemst Karl í Koti ekki þangað með tær, sem Gáinn hefur hæla. Það má segja um hann líkt og Gáinn, að ekki er sennilegt að hann fáist við bú- skap. Er illt til þess að vita, að þeir menn, sem í blöð rita og þykjast vera bændur, skuli breiða yfir nafn og númer, líkt og veiði- þjófar í landhelgi. — Ef að það sæist svart á hvítu, að þeir væru í hópi vinnandi bænda, mætti frek- ar upp úr því leggja, er þeir hefðu fram að færa. Reyndar er það guðsþakkar- vert fyrir þá sem hafa litinn tíma til lesturs að fá pistla Karls í Koti. Þeir innihalda útdrætti úr rit- um stóru spámannanna, sem fyrr voru nefndir, ásamt tilheyrandi hnútum til kommúnista. Roosevelt Tíminn er bálreiður út af því að kommúnistar og jafnvel sjálf- stæðismenn líka séu að eigna sér Roosevelt. Það er von að blaðinu gremjist þetta, því það er nú búið að telja Roosevelt til framsóknarmanna í mörg þerrans ár og stundum jafnvel notað hann eins og vöru- inerki utan um þær þjóðmálatil- lögur, sem mest hafa þótt orka tvímælis. En hvort slík notkun hins bandaríska forseta er gerð með hans góða samþykki eða ekki, skal ósagt látið. „Ekki er gaman aS guSspjöllunum" Ég var að líta yfir Tímann, sem kom með síðasta pósti. — Kennir þar fárra nýrra grasa. Hefur hann allmjög dregið úr sprettinum og er hógværari um flest en verið hefur. Með mik- ili mælgi útskýrir hann og afsak- ar spretthörku sína undanfarna mánuði. Þegar frá er tekið lítils háttar nöldur um dýrtíð og hrun, hefur hann sér helzt til afþrey- ingar, að hotta á eftir ríkisstjórn- inni í fisksölumálunum. Allt er þetta þó kraftlaust, svo auðfund- ið er, að lítill hugur fylgir þar miklu máli. Lesendurnir geta því sagt eins og kerlingin: Ekki er gaman að guðspjöllunum, því fenginn er í þeim bardaginn. Eitt mikið ljós Hermann lætur ljós-sitt skína á sjálfri Kyndilmessu. Hann birt- ir þá grein, samsetta í vísinda- legum landsföðurtón. Kennir þar nokkurra merkra grasa, svo sem vænta má hjá manni, er veit skil á öllu milli himins og jarð- ar, nema því hvernig eigi að breyta afurðasölulögunum. Rauði þráðurinn í þessu Kynd- ilmessuskrifi er sá, að lýðræðinu sé það lífsnauðsyn að einhverir séu í andstöðu við ríkisstjórnina á hverjum tíma. Sú andstaða á að eggja hana til framtaks og dáða og vera henni sem leiðarljós á lífsins ólgusjó. Styður Hermann þessa skoðun sína með mörgum dæmum erlendum, svo sem títt er um spaka menn og lærða. Þessi kenning Hermanns mun vera eitt af því fáa, sem hann hefur numið síðan hann felldi niður sinn forsætisráðherradóm. íþann tíð, sem hann var valda- mesti maður þessa lands, var henni ekki á lofti haldið af hon- um eða formælendum hans. Hins vegar var því veifað framan í landslýðinn svo skilmerkilega, að ekki varð uxn villst, að stjórn- arandstaða væri ekki einungis ó- þörf og réttlaus, — heldur blátt áfram þjóðhættuleg. Úr djúpi sálarinnar Hermann gefur eina mjög merka upplýsingu í áðurnefndri grein. Sú er sálræn að eðli og uppruna. Hann heldur því fram, að mikil völd spilli stundum þéim, sem með þau fara. Varla getur hann verið að sneiða að núverandi ríkisstjórn, því svo skammt er síðan hún tók við völdum, að nýliðar hennar geta tæplega verið búnir að líða mikið sálartjón enn. Munu því margir ætla, að Hermann mæli hér af eigin raun og að þessari sannleiksperlu liafi skotið upp úr djúpum sálar hans á einhvern yfirnáttúrlegan hátt. Einhverjir munu vafalaust líta svo á, að játning þessi sé knúin fram af innri þörf og einlægri löngun til þess að vinna aftur það, sem tap- azt liefur. Aðrir, sem minna eru góðgjarnir, munu halda því fram, að þetta hafi gloppast upp úr manninum alveg óvart og að hann hafi skort vizku og náð til þess að leyna því, sem ekki átti að verða lýðum ljóst. En hvernig sem þessu er háttað, rnunu allir óska þess, að hann nái sér til fulls eftir það afhroð, sem hann kann að hafa goldið, vegna hins skjóta jarðneska frama, sem féll honum í skaut. „Utan við alfaraleið" Síðan Vilhjálmur Þór var leyst- ur frá sínum herradómi á síðast- liðnu hausti, hefur Tíminn sveitsts blóðinu fyrir því, að korna lionum í lielgra manna tölu. Vilhjálmur gerði þetta og Vilhjálmur gerði liitt og allt var það harla gott. Ráðsnilli hans og manndómur stendur sem himin- hrþpandi andstæða gegn ráðleysi og vesalmennsku núverandi stjórnar. Því er haldið að lesend- unum með hinni alkunnu fram- sóknarþrákelkni, að ráðherra- dómur Vilhjálms liafi verið hvít- ur og flekklaus, eins og jakkinn, sem hann íklæddist, þegar hann gekk fyrir Roosevelt forseta. En þá kemur Gunnar í Grænu- mýrartungu, eins og fjandinn úr sauðaleggnum og kveður upp úr með það, að þessi hreini Vil- hjálmur hafi svikið bændur um það verð, sem hann lofaði þeim, að þeir skyldu fá fyrir smjörið. Gunnar er meira að segja svo staffírugur, að hann vill láta Bændaráðstefnan og Alþýðusamb.þingið 1. des. f. á. nefnir Tíminn Bændaráðstefnuna og Alþýðu- sambandsþingið í sömu andránni og er mikið niðri fyrir. Hann flytur lesendum sínum þær fréttir, að ályktanir Bænda- ráðstefnunnar hafi verið afhentar landbúnaðarnefnd Alþýðusam- bandsþingsins, en hún var skipuð „óháðum mönnum“ og vildi því ekki við þeim líta, heldur bjó til aðrar rniklu betri, sem hið vonda Alþýðusambandsþing vildi svo ekkert með hafa, en vísaði til stjórnarinnar í þeim tilgangi að hún gerði á þéim bragarbót, þannig að þær féllu í kram kommúnista. Við þessa frásögn blaðsins, sem er að vísu miklu lengri, rituð á venjulegu fram- sóknarmáli, er nú ýmislegt að at- liuga. Það er þá fyrst þess að geta, að ekki var hægt að láta landbún- aðarnefnd Alþýðusambands- þingsins í té ályktanir Bændaráð- stefnunnar af þeirri einföldu á- stæðu, að ráðstefnan starfaði sam- tímis þinginu og ályktanir henn- ar voru ekki tilbúnar til afhend- ingar einum eða neinum, fyrr en eftir að þinginu hafði verið slitið. Er því fullyrðing blaðsins þessu viðvíkjandi tilhæfulaus lygi. Hitt verður hver og einn að gera upp við sjálfan sig, hvort hann heldur að hinir „óháðu“ verkamenn, sem Tíminn vefur að hjarta sínu, liafi vitað gerr, hvar skórinn kreppir að íslenzk- um landbúnaði, en bændurnir, sem sátu bændaráðstefnuna. Að lokum má svo geta þess framsóknarmönnum til hug- hreystingar, að það mun ekki vera meiningin að gera neinn holskurð á tillöguln hinna „ó- háðu“, heldur aðeins að færa þær það mikið í stílinn að þær verði prenthæfar og geti þannig orðið ljós á vegum Tímans og lampi fóta hans. Skipulögn f r amleið slunnar (Bréfkafli úr Borgarfirði) .... Næsta Alþingi, sem kem- ur saman í haust, á að skipa nefnd til að skipuleggja landbún- aðinn. Það má ekki dragast leng- ur. Það er t. d. óverjandi að hafa sauðfjárrækt í allstórum stíl, þar sem hvert strá er kúgæft. Á Hvít- árvöllum í Andakíl eru nú 12 kýr og um 100 ær, mætti nú hafa þar 50 kýr án þess að auka rækt- un. Annað dæmi: Að Hesti í Andakíl rekur íslenzka ríkið sauðfjárræktarbú (mæðiveiki og kláða, segja gárungarnir). Á Hesti er hægt að hafa milli 10 og 20 kýr. Fyrst ríkið vildi nú auka dómstólana sanna sökina upp á manninn. Það má því segja, að Gunnar hafi villzt allmjög af leið sinna sálufélaga og má guð vita, hvern endi það hefur, ef lionum kemur ekki hjálp að ofan. við sig taprekstri á landbúnaði frá því sem var, þá átti það að hafa þennan búskap á sæmilegri fjallajörð en ekki á Andakíl, þar sem ekki ætti að liafa annað en kýr. Svona dæmi eru víða, þótt sleppt sé þeim jörðum, sem gróss- érarnir í Reykjavík kaupa og leggja alveg í eyði, jafnvel á beztu mjólkurframleiðslusvæðum á landinu (Lundur í Lundareykja- dal o. fl.) Við, sem búum í þeim sveitum, sem hafa bezt skilyrði til mjólkurframleiðslu, eigum að gefa sauðfjárræktina eftir til þeirra, sem hafa ekki önnur bú- skaparskilyrði en hana. . . . Raddir úr sveitinni Framhald af 1. síðu. skjótlega bætta efnahag margra. En meinið er, að flestar þessar framkvæmdir eru þannig úr garði gerðar, að þær gefa sára- litla tryggingu fyrir því að létta afkomu manna við breytt tekju- skilyrði, svo sem lækkað afurða- verð, afnám uppbótafjár og tak- markaðrar hlaupavinnu við sjó- inn. í Jeppbíl á beitarhúsin .... Byggðin hér í sveit á að færast saman. Dalbæir 5 að leggj- ast í eyði. Eitt byggðahverfi stórt að rísa upp í miðri sveit og tvö minni sitt á hvorum enda. Ef til vill aðeins beitarhús, en fjár- mennirnir koma heim að kvöldi í Jeppbílum sínum, því að upp- hleyptur vegur hér í hreppi fer aldrei undir fönn.... Bændur vantar samtök . . .Hagsmunafélagsskap vant- ar bændur tilfinnanlega. Búnað- arfélögin hafa reynzt einskis- virði o gsýndi það sig gleggst á síðasta hausti, er Búnaðarþing, í algerðu heimldarleysi, rændi bændur 10% af umsömdu af- urðaverði, kaupi þeirra. Hvað myndu verkamenn og sjómenn segja, ef Alþýðusamband íslands gerði slíkt hið sama? Ég þarf ekki svar við því, við vitum báðir vel, hvað þeir myndu gera. Við bænd- ur erum brjóstumkennanlegir í félagsskap okkar. . . . Liðinn tími .... Ég held, að þeir tímar séu að nokkru leyti liðnir, þegar fólk va rsvo að segja fætt til vissra stjórnmálaflokka. ... Þá setti hljóSa .... Áður en stjórnin var mynduð var viðhorf manna til stjórnmálaflokkanna þannig, að alltaf strandaði á Sósíalista- flokknum til stjórnarmyndunar, og það væri ósköp eðlilegt, því að liann væri ábyrgðarlaus flokk- ur. Þegar það kom svo á daginn, að það voru ekki Sósíalistar, held- ur Framsókn, þá setti menn hljóða, og ég hef ekki viljað angxa þá með því að ræða stjórn- mál við þá. . . .

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.