Nýi tíminn - 22.01.1947, Side 7

Nýi tíminn - 22.01.1947, Side 7
Idiðvikudagur 22. jan. 1947 NÝI TlMINN 7 ??Ólíkt höfiimsÉ vié að?? þar spjöll á mannvirkjum. Væri ekki ráðlegra að hús freyjan ynni sér störfin svo- lítið léttari, en gæfi sér tíma til að líta í bók, ganga úti sér til hressingar eða tæki sér eitthvað fyrir hendur. sem gagnlegt er -og skemmti legt? Annríki hennar er að miklu leyti tilbúið en ekki raunverulegt. Húsfreyjan í Reykjavík kvartar áreiðanlega meira um annríki en sveítakonan. Og vöntun á húsrými kvart- ar hún um, ef ekki er sín hræðan í hverju herbergi og eldhús að auki. Leiti lang ferðamaður á náðir kunn- ingja sinna í Rvík, vegna þess að gistihúsin eru troð- full, fær hann oft bending- ar um, hve mikla fórnfýsi það kosti að hýsa hann og verður þeirri stundu fegnast ur, þegar hann heldur heim- leiðis. Heyrt hef ég getið um pilt, sem kom austan yfir heiði og var úthýst af þrem- ur systkinum sínum. Ein hús freyjan bar því við, að ekki mætti sofa í stofunni vegna blómanna. Hélt hún að mað urinn æti blómin? Eins og kunnugt er, eru húsnæðisvandræðin í Reykja vík ekki að öllu leyti raun- veruleg, heldur tilbúin- Leigj andinn er ekki velkominn undir þak fyrir sanngjama leigu, þó að húsrými sé nóg. Húsvilltum manni virðist gestrisnin, þetta göfuga þjóð areinkenni Islendinga, vera flúin úr höfuðstaðnum, en sjálfselskan, kaldrifjuð og heimsk, glotta úr hverjum glugga. Fjárgræðgin er bókstaf- lega orðin faraldur. Það er ónotalegt að frétta það allt í einu um kunningja sinn, að hann sé farinn að féfletta einhvem hiisnæðisleysingj- ann og gera Við hann leigu- samning, sem ekki er var- legt að skrifa á blað og setja nafnið sitt undir. Eru það nú bara karlmenn irnir, sem eiga sök á þess- um ósóma? Fara þeir á bak við konurnar sínar með þessa lítilmannlegu ágirnd9 Betur að hver húsfreyja í Reykjavík hefði þar hrein- an skjöld, og væri ekki eftlr bátur stallsystur sinnar i sveitinni, hvað snertir rausn og mannúð! Eða hefur Reykjavíkurkonan gleymt gestrisninni, sem er jafn- gömul þjóðinni sjálfri? Get- ur það verið, að konan sé samsek í því að féfletta hús- villta nágranna sína? Ef ég væri spurð að því, hvar á landinu ég kynm bezt við mig, mundi ég svara: Ekki á neinum sér- stökum stað, heldur á ferða lögum um sveitir landsins, það vekur ættjarðorást í brjósti ferðamannsins, að finna, að hann er velkominn á hvaða heimili, sem honum dettur í hug að beiðast gist- ingar. íslenzka sveitakonan mun jafnan varðveita þá þjóðar- sæmd, sem gestrisnin er. Oddný Guðmundsdóttir. Viðræður um borð í „Aiigusta“ Framhald af 3. síðu. ar föstu skoðunar, að ef vér eigum að öðlast varanlegan frið, verði hann að fela í sér þróun hinna frumstæðu landa- Hinna frumstæðii þjóða. En hvernig á að gera það? Auðsjáanlega ekki með aðferðum frá 18. öld. Það er að segja ....“ „Hver talar um aðferðh’ frá 18. öld?“ „Allir ráðherrar yðar fylgja þeirri pólitík, að taka frá nýlendunum hinar ríku legu hrávörur þeirra án þess að veita íbúunum nokkuð í staðinn. Aðferðir tuttugusiu aldarinnar fela í sér að flytja iðnaðinn til þessara ný- lendna. Aðferðir tuttugustu aldarinnar gera þjóðirnar rík ari með því að bæta lífskjör þeirra, með því að veita þeim góða skóla, góð heilbrigðis skilyrði — með því að tryggja þeim heiðarlegt verð fyrir þau hráefni sem lönd þeirra hafa að geyma.“ í herberginu sátum við hinir og hlustuðum með athygli ..... Ghurchill leit sjálfur út eins og hann væri að fá slag! „Þér minntuzt á Indland“, urraði hann. „Já, ég hef enga trú á því að við getum barizt gegn þrældómi fasismans, ef við gerum ekki jafnframt allt sem við getum til að losa alla íbúa jarðarinnar við úrelta nýlendupólitík“- „Hvað þá um Filipseyjar9“ „Eg er feginn að þér minnt uzt á þær. Þessar eyjar verða eins og þér vitið, sjálfstæðar 1946, og þær hafa fengið ný- tízku heilbrigðisskilyrði, ný- tízku skólakerfi. Fjöldi þeirra sem hvorki geta lesið og skrifað minnkar stöð- ugt ....“ „Það er enginn sem fær leyfi til að hrófla við fjár- .málasamningum heimsveldis ins.“ j „Þeir eru óeðlilegir...“ „Það er á þeim sem vald okkar hvílir“. „Friðurinn“, sagði faðir minn ákveðinn, ,,má ekki fela í sér framhald heims- valdastefnunnar. Sjálf gerð friðarins verður og mun einn ig fela í sér jafnrétti allra þjóða. Jafnrétti þjóðanna fel ur í sér fullkomið frelsi til verzlunarsamkeppni. — Það er varla nokkur sem neitar því að tilraunir Þýzkalands til að einoka verzlunina ; Mið-Evrópu áttu mjög mik- inn þátt í því að stríð skall á“. — ... Klukkan var farin að ganga þrjú þegar Bretarnir fóru loksins. Eg hjálpaði föð ur mínum inn 1 káettu hans og fékk mér sæti og reykti eina sígarettu með honum- Faðir minn muldraði: . Er hann ekki hreinræktaður gamall íhaldsmaður? Hrein- ræktaður gamall íhaldsmað- ur, af gamla skólanum?“ „Eg hélt um stund að hann' myndi springa, pabbi.“ Hann brosti: „O, við get- um eflaust unnið saman. Þú þarft ekki að kvíða um þaö. Okkur mun semja ágætlega“. ,.Meðan þú nefnir ekki orðið Indland“. „Ja, það er ég ekki viss um. Eg býst nú við að við tölum eitthvað meira '.m> Indland áður en lýkur. Burma. Og Indókína. Og’' Indónesíu- Og allar nýlend- umar í Afríku. Og Egypta-' land og Palestínu. — Við1' munum ræða um þær allar/ Einu máttu ekki gleyma! Winnie hefur eitt mikið hlut verk hér i lífinu, en aðeins eitt. Hann er fullkominn for sætisráðherra á stríðstímum. Hið eina og mikla hlutverk hans er að koma Englandi- gegnum þetta stríð heilu á húfi“. „Eg verð að segja að hami kemur manni þannig fyrir að honum muni takast það“. „Já, en hefur þú ekki tek- ið eftir hvernig hann skiptir um umræðuefni þegar talað ér um tímann eftir styrjöld- ina“. ,,Jú, það hafði óþægileg á- hrif þetta sem þú minntist á. Óþægileg áhrif á hann!“ „Það er einnig allt önnur ástæða- Það e.r vegna þess að hugarfar hans hæfir her- foringja. En að láta Churc- hill stjórna Englandi eftir stríð? Það myndi aldrei fara vel“. Það kom síðar í ljós að brezka þjóðin var sammála föður mínum um það atriði. Alþýðuflokkurinn Framhald af 4. sdðu. ber einn sökina á því að lanct ið hefur verið stjómlaust síðan. Það er Alþýðuflokkurinn einn sem ber dbyrgð á því að ekki hefur þegar tekizt að mynda róttæka umbóta stjóm í samrœmi við vilja allrar alþýðu. McKellar, öldungadeildarþingmaður „alsráðandans“ Crumps, er formaður fjárveitinganefndar öidungadeiidarinnar, valdamestu nefndar þjóðþings Bandaríkjanna. Framh. af 6. síðu. honum gagnlegir þjónar, að hann ætti allskostar við verkalýðssam- bandið. Hann vildi sýna Samtök unum um heiðarlegar kosning-l ar hver væri „húsbóndinn á heimilinu“. Svarið við hinni spurningunni er nokkuð margbrotnara. Hvaða samband er milli Crumps og byssuskotanna í At’nens Tenn, og hvers vegna er ekkert gert til að kippa þessu ástandi í lag í Memphis? Athens er McMinn-fylki. Póli- tískur allsráðandi þar er Paul Cantrell, öldungadeildarþingmað- ur i ríkisþinginu, sem hefur '■et- ið áð völdum í áratug. Yfirmað- ur kjörstjórnar er Georg Wood, ríkisþingmaður og forseti full- trúadeildar ríkisþingsins sem. skipað er Crumpsmönnum. Þetta er aðeins einn liðurinn í yfirráðavél Crumps og manna hans yfir ríkinu. í Athens hafa þeir árum saman notað hina alræmdu „Crumps-talningu”. Við þessar kosningar báru hermenn úr stríðinu fram lista við fylkis- kosninguna á móti lista Cantrells manna. Hótanir Fyrir kosningadaginn voru uppi hótanir um að notuð myndu skotvopn í Athens. Her- mennirnir kröfðust að atkvæði væru talin „eins og þau voru greidd“. Fulltrúar Cantrells í kjörstjórninni vildu láta eftirlits menn með kosningunni fara út áður en farið væri að telja at- kvæðin. Hermennirnir neituðu að fara, og skothríðin hófst. Daginn eftir töluðu báðir öld- ungadeildarþingmenn Tennessee- ríkis á Bandaríkjaþingi. Þeir sögðu að McMinnfylki væri langt frá Shelbyfylki og herra Crumps væri ekkert við þetta riðinn, — hann væri ágætur heiðursmaður. En hvers vogna er ekkert gert? Forseta Bandaríkjanna var fyr- ir kosningar skýrt frá ástandinu í Tennessee og þörfinni fyrir að I . hafa ríkislögreglumenn viðstadda kosningarnar. Dómsmálaráðherra, Tom Clark, var beðinn að láta þetta mál til sin taka, og hann kvaðst myndu gera það eí sér bærist ósk um það frá kjósendum í Tennessee. Gott og vel. Tiu þúsundir manna í Tennessee skrifuðu undir áskor un til hans um að grípa í taum ana og honum var færð þessi áskorun. Samtökin um heiðarlegar kosn ingar sendu kosninga- og rétt- indanefnd öldungadeildarinnar mótmæli gegn því, að þeir hefðu verið sviptir fundafrelsi og mál frelsi með því að synja þeim um fundarstað. Málinu var vísað til annarrar nefndar í öldungadeild inni. Svörin Svarið við öllu þessu er senni- lega það sem nokkrir heiðarleg- ir öldungadeildarþingmenn á Bandaríkjaþingi sögðu við höf- und þessarar greinar: K. D. Mc Kellar er formaður fjárveitinga- neíndar öldungadeildarinnar, sem er valdamesta nefndin í Capitol Hill. (Aðsetri Bandaríkjastjórn- ar. Hann hefur umsjón með fjárveitingum til allra stjómar- deilda, líka dómsmálaráðuneytis- ins. Við munum vel orð blaðamann anna í Memphis sem sögðu: — „Eina ástæðan fyrir því að Crumps lætur McKellar vera í Washington er sú, að hann hef- ur gert samkomulag um að ríkis lögreglumenn verði ekki látnii hafa eftirlit með kosningunum í Tennesseeríki." Önnur áskorun um rannsókrt í þessu máli hefur nú verið gerð til dómsmálaráðuneytisins. — i: þetta sinn eru skjallegar sann- anir. Samtökin um heiðarlegar kosningar fengu öllum kosninga- eftirlitsmönnum sínum pappírs- blokk og blýant á kosningadag- inn. Þeim var sagt að forðast deil- ur og illirrdi. Þeim var sagt að skrifa — skriía — skriía. í McMinnfylki notuðu þeir byssukúlur. f Shelbyfylki not- uðu þeir minnisblöð. Margir hafa spurt mig hvort. þetta sé satt. Eg veit að það er erfitt að trúa því. Fólk á erfitt með að skilja að slíkt geti átt sér stað. „Þetta er þó ennþá Ameríka", segjum við. „Ameríka eítir stríð- ið“. En þetta gerðist allt i Memp- his, og Ed Crump á heima þar.

x

Nýi tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.