Nýi tíminn - 05.05.1949, Qupperneq 2
NÝI TÍMINN
Orðsending til Eysteins
Hr. Eysteinn! Það er gam-
all flokksbróðir þinn sem
skrifar þessar línur, sem er,
undr^ndi yfir framferði þínu
þessa síðustd og verstu daga.
Það er hart fyrir gamla
flokksmenn þína, sem gerðu
sér vonir um þig, að verða að
játa að allur þinn pólitíski
ferill er eintóm sorgarganga,
og nú hin síðasta verst.
Manstu fyrstu árin eftir
1930? Hvað var þá á dagskrá?
Togaranjósnarar, svikin síld-
armál, illa mæld mjólk.
Ósvífið kaupsýslubrask, heild
sala og annarra arðræningja,
arðrændur, atvinnulaus og
hungraður verkalýður. Ég
held að þú hafir verið einna
dómfrekastur af okkur öllum
í garð andstæðinganna. Öllu
átti að breyta og allt átti að
bæta, og allt var betra en
íhaldið.
í herbúðum íhaldsins var
það helzt á dagskrá, að stofna
þyrfti 500 manna varalög-1
reglu til að berja á helvítis
framsóknar-kommunum
sem ekki væru íslendingar,
og stjórnað af þessu illþýði
frá Moskva, eins og þá var
komizt að orði hjá hinu sál-
sjúka peningavaldi.
En hvernig tókst ykkur nú
herrar mínir, sem þá fóruð
með stjórn landsins, að ráða
fram úr vandamálum dags-
ins. Það tókst með fæstum
orðum þannig. Meira atvinnu
leysi, meiri fátækt, meiri
sultur, meira arðrán, sam-
dráttur atvinnulífsins, óhag-
stæður verzlunarjöfnuður,
og sí vaxandi skuldir utan-
lands og innan. (Gott fólk!
svona var nú stjórnað af A1
þýðufl. og Framsóknarfl. á
þeim árum.) Um síðir sáuð
þið ýkkar óvænna, skriðuð
upp úr skuldafeni úrræða-
leysisins og rennduð ykkurj
í rassvasa íhaldsins og báðuð .
um hjálp. Á því herrans árij
sem Alþýðufl. krafðist þess^
að Kveldúlfur yrði gerður
upp vegna skulda og þjóð- j
nýttur, ef það hefði náð
fram að ganga, hefði Tórs-
arafjölskyldan eflaust orðið
landflótta, og hefði þá senni-
lega staðið í öllum auðvalds-
blöðum heimsins: Valdarán á
íslandi! Stæðsti útgerðarmað
ur landsins, brautryðjandi í
útgerðarmálum, gerður land-
rækur, allar eigur hans gerð-
ar upptækar! En úr þessu
varð nú ekki. Þið Framsókn-
armenn, hlupuð fram fyrir
skjöldu hiá togaranjósnur-
um og síldarmáls-svikurum
og björguðuð þeim frá
pólitískum og fjárhagslegum
dauða.
Maður skyldi nú ætla að
þessi mikla hjálp ykkar við
auðvaldið, yrði nú munuð
við ykkur, og þið látnir njóta
þess. En hvað skeður? . .
Þið fenguð það heitt þráða 'l
takmark að komast í stjórn
með Ólafi Thórs. Við stjórn-
armyndunina gaf Ólafur
ykkur, eftir því sem þið seg-
ið sjálfir frá, „drengskapar
loforð, að ekki skyldi verða
hreift við af honum eða
hans flokki, vissu máli, sem
ykkur Framsóknarm. varðaði]
miklu, meðan stjórnarsam-
vinnan stæði”.. En þetta lof-
orð sveik hann. Eftir því
sem ykkur segist frá, er
Ólafur drengskaparníðingur
af versta tagi, og er það tal-
inn einhver versti glæpur
meðal siðaðra manna. En
hvar ert þú nú staddur
Eysteinn á þinni pólitísku
braut? Stendur mitt á með-
al drengskaparníðinga, gjald-
eyrisþjófa faktúrufalsara,
svartamarkaðsbraskara og
föðurlandssvikara. Setur
nafn þitt ásamt þessum
herrum undir nokkurskonar
herútboð, sem er það fárán-
legasta er nokkru sinni hef-
ur heyrst í sögunni. Eru þið
annars orðnir hringlandi
vitlausir í ríkisstjórninni?
Hefði ykkur ekki verið nær
ef þið voruð hræddir við slag,
að biðja konur og börn og
annað friðsamt-fólk að sitja
heima, í staðinn fyrir að
bjóða það út, og láta spor-
hunda þessara glæpamanna,
sem þú og blað þitt hefur svo
meistaralega afhjúpað, berja
það til óbóta. Köld eru örlög
þín Eysteinn! Nú verður þú
að skjóta þér undir vernd
þess nazistaskríls, sem einu
sinni var ætlaður til að berja
á þér og flokki þínum. Stend-
ur í sporum landráðamanns-
ins, lýgur að löndum þínum
gegnum útv^rpið: engar her-
stöðvar á íslandi! Vitandi
það að hér er einhver stæðsti
hervöllur heimsins í hönd-
um bandarikjahersins. Og
,adlt skraf ykkar ráðherr-
anna við utanríkismálaráð-
herra Bandaríkjanna, er
heimskan, helber. En hvað
veldur öllum þessum ósköp-
um? Mig skortir hugsunar
dýpt til að skilja það. Ertu
ekki annars prestssonur
Eysteinn? Varaði ékki faðir
þinn þig og söfnuðinn við
samneyti ■ við farisea og
drengskaparsnauða skin-
helgis hræsnara; Eða móðir
þín? Ég er viss um að þú
hefur átt góða móður. Kenndi
hún þér ekki í bænum þín-
um, að elska sannleikann og
réttlætið. Hvernig hefur þú
ávaxtað það pund? Nú skalt
þú svara sjálfur Eysteinn.
Hvað heldur þú að prest-
urinn bróðir þinn hugsi?,
sem samstarfsmenn þínir kalla
hempuklætt skrílsmenni.
Ætli honum finnist ekki
þörf að 'biðja fyrir sálu þinni
í prédikunarstólnum, þó
haim geri það ikanski í hljóði
ennþá Nei, Eysteinn? hu er
tími til kominn að þú leggir
niður þína pólitísku rófu, og
skríðir að fótum foringja
flokks þíns og biðjir hann
afsökunar á skemmdarstarfi
þínu. Kalla ég að þú sleppir
vel, ef þú í náinni framtíð
þekkist á öðru en eyrunum
Ég hef oft óskað þess í hug-
anum að þið Framsóknar-
menn bæruð gæfu til þess
að fylkja ykkur undir merki
Hermanns, hann virðist vera
sá eini sem er fær um að
bera merkið uppi. En því
hefur nú ekki verið að heilsa
með ykkur. Það virðist eins
og kominn sé sjúkdómur
upp á meðal ykkar Fiam-
Fimmtudagur 5. maí 1949.
sóknarmanna — í*að er
hugsunarleti. Þið eruð hættir
að nenna að hugsa rökrétt..
Þessi sjúkdómur gerir oft
vart við sig hjá mönnum,
sem eru komnir í feitar og
góðar stöður. Góðu gömlu
samherjar: þið verðið að
reyna að draga af ykkur
slénið og byrja á nýjan leik.
Bóndi úr Flóanum
«
Hótel Iskaríot
Níunda apríl voru liðin
rétt níu ár frá því að her-
sveitir þýzku nazistanna
réðust inn í Danmörku og
Noreg með hjálp þarlendra
kvislinga og fimm ára nátt-
myrkur undirokunar og kúg-
unar skall yfir nánustu
frændþjóðir okkar. Þessa
sögulega afmælis var minnzt
hér á landi á mjög svo
verðugan hátt. Hernámsþjóð-
in bauð helztu fyrirmönnum
Islendinga suður á aðalbæki-
stöðvar sinar í ný húsakynni
sem vígð voru á þessum sig-
urdegi fyrirrennaranna. Voru
þar samankomnir þrjátíuog-
sjömenningarnir með ráð-
herrana sex í broddi fylking-
ar og fjölmargir aðrir virð-
ingarmenn íslenzkrar borg-
arastéttar. Og á sama tíma
og Norðmenn og Dariir
drjúptu höfði og minntust
eins dekksta dags sögu sinn-
ar löptu skælbrosandi agent-
ar tollsvikna, smyglaða
kokkteila í húsi því sem
gengur undir nafninu Hótel
Iskariot.
★
Sú tíð er nú löngu liðin að
fyrir því sé haft að kalla
Keflavíkurflugvöllinn alís-
lenzkan völl undir alíslenzkri
stjórn. Jafn barnalegur fyrir
sláttur, sem auk þess er
móðgandi fyrir herraþjóðina,
er nú talin óþarfur. Það
voru þess vegna hvorki flug-
málaráðherra Islands, vest-
urfarinn Eysteinn Jónsson,
né flugráð sem stóðu að
vígslu nýja hótelsins 9. apríl
1949, heldur Locheed Air-
craft Overseas Airlines,
bandaríska auðfélagið sem
hreppti Island á síðasta upp
boðinú fyrir vestan haf. Boðs
bréfin voru auðvitað á banda
rísku, túngu herraþjóðarinn-
ar. Og til þess að erigin bar-
baríska flekkaði hina virðu-
legu athöfn hófst hún á þvi
að íslenzk kona, sem til
þessa liefur heitið mjög svo
þjóðlegu íslenzku nafni, var
skírð upp og nefnd ,,Mrs.
Stephansson". Síðan var
henni leyft að vigja hið er-
lenda hús.
★
Agentarnir undu sér vel í
Hótel ískaríot, 9. april er
enn þeirra dagur á íslandi,
Óg þeír lýstú fögnuði sírium
óg hrifningu á háværri og
hiklausri leppensku eftir
fyrstu kokkteilana. Allt var
fullkomið, jafnvel barinn
sem verið hafði áhyggjuefni
Víkverja í heilt ár stóð þarna
fagur og gljáandi, þrátt fyr-
ir alla áfengislöggjöf þeirra
innfæddu og allar þeirra á-
fengisvarnarnefndir. Og þeg
ar þeir óku burt höfðu þeir
eignazt nýjan himin og nýja
jörð. „Reykjanesfjallgarður
inn hefur löngum verið öm-
urlegur á að líta . . .. “ sagði
Hannes á horninu í blaði sínu
daginn eftir, en „nú hefur
verið úr þessu bætt, sem bet-
ur fer.“
ir
En það nægir því miður
ekki að framkvæma banda-
ríska andlitslyftingu á ömur-
legum fjallgörðum Islands,
því alltaf virðast þau verða
sannari og sannari vísuorð
kaupmannsins: „Landið er
fagurt og frítt, en fólkið er
bölvað og skítt.“ Þeir inn-
bornu, að agentunum und-
anskildum, virðast þvi miður
hafa mjög takmarkaðan
skilning á fegrunarstarfi því
sem bandarískir menn vinna
á íslenzkri náttúru. Daginn
eftir að Hótel Iskariot var
. vígt þusti mikill mannfjöldi
suður á Keflavíkurflugvöll
til að glápa á mannvirkið.
Þeir innbornu hafa nefnilega
ekki sjálfir fengið að byggja
hús síðan fyrsta stjórn Al-
þýðuflokksins var sett á lagg
irnar og eru að sjálfsögðu
forvitnir að sjá slík furðu
verk. Enda höfðu Ferðaskrif
stofan og flugfélögin skilið
þörfina og skipulagt hópferð
ir á vettvang til þess að sem
flestir fengju’ að sjá nýtt
hús.
Það reyndust vera 5000
Reykvíkingar sem langaði
til að sjá nýtt hús, að sögn
Víkverja, og væntanlega
hafa það einkum verið íbúar
bragga, kofa, kjailara og
þakherbergja. Og það er
bezt að láta Víkverja lýsa því
hvernig þeir höguðu sér þá
loksins að þeir komu í hús:
„I flugstöðinni var brotið og
bramlað, húsgögn og ann-
að .. Þá var hreinlega stol-
ið silfurmunum, borðbún-
aði og jafnvel svo litlum
hlutum sem pipar og salt
baukum . . .;. Þessir menn
li'afa nötað tækifærið tiT þess
að krota á veggi í snyrtiher-
bergjum oþverraorðbragð,
klám og skammir um Banda
ríkjamenn." Það kom þannig
í ljós að þeir innbornu eru
„skemmdarverkamenn og
þjófar“ og „skrílmenni, sem
ekki eru hæfir innan um
heiðarlegt fólk“ eins og Vik-
verji komst að' orði. Og hann
bætir réttilega við: „Er ó-
þarfi að spyrja af hvaða
sauðahúsi þeir menn eru sem
að þessum óþverra standa.“
★
Þannig fór það þegar þeir
innbornu fóru að skoða hús
og komust í félagsskap
„heiðarlegs fólks“ og munu
slíkar aðfarir vissulega ekki
óþekktar meðal annarra
frumstæðra þjóða. Hitt lýs-
ir mikilli kurteisi hins heið-
arlega fólks að' leyfa þeim
innbornu að koma inn í nýtt
hús og sýnir bezt lýðræðis-
ást herraþjóðarinnar. En
nú mun hún sem betur fer
hafa lært af reynslunni.
„Það verður að hafa lög-
regluþjóna allsstaðar", segir
hinn heiðarlegi Víkverji og
telur að vonum að hinum inn
bornu hæfi engin hús nema
tukthús: Ef innfædd skríl-
menni nálgast Hótel Iskaríot,
á heiðarlegt fólk „að gera
sér það að skyldu að kæra
þá fyrir lögreglumönnunum
þar og láta þá bera ábyrgð
og hljóta hegningu fyrir.“
Og í vissu þess að hinir inn-
bornu myndu treglega láta
sér segjast tók Alþingi sama
daginn 100.000 kr. frá börn-
unum og afhenti þær saka-
dómaraembættinu og lög-
reglustjórninni.
Vonandi tekst að koma
upp nægilega öflugum verði
í kringum Hótel Iskaríot.
Það nýja hús á að verða
einskorðað við heiðarlegt
fólk, eins og Víkverji komst
að orði, Mr. and Mrs. Step-
hansson og aðra veizlugesti
frá 9. apríl. Að ógleymdri
sjálfri hei'raþjóðinni og þeim
fermingartelpum innbornum
sem hún velur sér til fylgi-
lags og myndatöku. Og vön-
andi eiga eftir að rísa fleiri
slík erlend hús á sama tíma
og innboi'in ráð banna inn-
bornu fólki að koma sér upp
þaki yfir höfuðið. Því hvern-
ig færi ef ekki væri bætt
úr ömurfegum fjallgörðum
Islands með erlendum liús-
um,; Og þau. verða byggð.
.. „Sem betur fer.V .1 r.*