Prentarinn - 01.12.1950, Side 4
Vorsins sonur, sólar vinur!
Sveipi gróður þínar slóðir.
Blómaföng og birki-angan
blessi þig og geðið hressi.
Hlýir vindar um þig andi
ár og síð á komandi tíðum. —
Heill að starfi með dáð og djörfung,
drengskap, snilld og hreinum skildi!
„Hin gömlu kynni gleymast ei!“
Skál, gamli vinur!
/-. H.
Jan Tschichold og verk hans.
(Frh.)
Undirstaða myndunar í nýju prentlistinni er
auðkennd af einfeldningslegu ofmati á hinum svo-
kölluðu tæknilegu framförum. Sá, er starfar með
þeim 'hætti, sér eitthvað óvenjulega mikilfenglegt í
vélknúinni framleiðslu á nauðsynjavörum, en það
er líka sannarlega einkenni nútímans. Það verður
ekki heldur umflúið að búa til þess konar hluti og
nota þá. Samt hæfir ekki að búa þá dýrðarljóma,
af því að þeir séu leiddir fram á flutningsborða og
kornnir til við einbeitingu allra nýjustu aðferða til
„gernýtingar".
Vélar geta allt. — Þær eiga sér þó engin eigin-
lögmál og geta ekki einar ráðið nokkurri myndun.
Það er maðurinn, vilji uppástungumanns, sem mót-
ar framleiðslu þeirra, jafnvel þá, er hann hyggur
sig starfa í anda þeirra og er sannfærður um, að
„eðlileg", skrautlaus myndun eftir sig sé „ósérlát-
leg“. Afrek uppástungumanns, „nýtízks" að hund-
rað hundraðshlutum, eru langt um sérgæðingslegri
en metnaðarlauss manns, það er að skilja: komin
fram tilgangslaust og nafnlaust, og má það þó ann-
ars ekki meina oss að þykja hin fyrr nefndu fögur
á sinn hátt og nota þau heldur en hin, ef þau að
eins hæfa tilgangi sínum jafn-vel, en listgáfulaus
maður lætur sig ekki vitund varða, hvort lágmarki
vinnuafls hefir verið eytt við framleiðslu ritvélar
hans t. d., svo að lagsniðsvíl hafi ekki verið ofboðið
við hana. Hann hirðir ekki einu sinni um, hvort
verkamenn, er smíða vélarnar, fái réttmætt kaup, og
ætti hann þó eiginlega að varða um það. Nei-nei.
Hann krefst þess eins, að ritvélin sé í alla staði not-
hæf, og er feginn, ef hún er auk þess ódýr.
Beiting gernýtilegra vinnuaðferða varðar eigi að
eins verkamenn, sem dag eftir dag verða að festa
sams konar skrúfu í ritvél; hún snertir líka at-
hafnir „Nóa Nóasonar" eða fyrirætlanir hvers ann-
ars uppástungumanns sem er. Dagleg vinna fær sem
sé hreint mannlega skoðað ekki veitt þessum verka-
manni neina svölun, og því reynir hann að létta á sér
við íþróttir á sunnudögum eða sýsl við frímerkjasafn
sitt á kvöldin eða annað dund. Þá er eitthvað annað
um garðyrkjumann t. d., sem vinnan sjálf er svöl-
un; honum kemur áreiðanlega ekki í hug að leita
sér léttis við íþróttir eða með því að sækja kvik-
myndahús.
Vélræn framleiðsla gildir þannig mikið og ban-
vænt áfall á sérmannlega vellíðun verkamanns, og
það er því gersamlega út í hött að hreykja henni
upp á einhvern hefðarstall. Fyrir því, að hún sé
„nýtízk", þarf hún ekki jafnframt að vera verð-
mæt eða góð; þvert á móti — hún er miklu fremur
af hinu illa, en úr því að vér fáum ekki komizt af
án afurða hennar, verðum vér að sætta oss við þær
án þess þó að dýrka þær sakir framleiðsluháttarins.
Fegurðarfræðilega menntaður maður fær ógeð á
talsíma með ljótu lagi, en oss myndi þó aldrei
koma í liug að álíta fallega lagað tæki listaverk
eða ímynd þess. Það er einungis áhald, rétt eins og
hamar, ekkert annað. Einungis það, sem unnt er
að afreka með því, hefir gildi.
Talsími er tæki, sem lögun þess er nú fyrst nokk-
urn veginn fullmynduð. Það eru til margir slíkir
hlutir, sem fyrst hafa komið fram á vorum dögum
og bera svip af verkfræðilegum aðferðum iðnaðar-
framleiðslu. Lögun þeirra, t. d. bifreiðar, flugvélar,
hefir tekið örum umbótum, og þessir hlutir eru
vafalaus framleiðsli vorra tíma, jafnvel þótt þeir séu
ef til vill í raun og veru án nokkurs gildis. Nýleg-
ustu afrek „menningar" vorrar eru V-sprengjan og
kjarnorkusprengjan. Þeim virðist þegar ætlað að
breyta lifnaðarháttum vorum.
Framfaratrúaðir menn þykjast nú einnig þurfa að
umbæta gamla hluti til samræmis við nýja. Meðal
gamalla hluta eru þess konar tíl, að jafnan hefir
mátt breyta þeim, af því að þaraðlútandi aðstæður
breytast öðru hverju. Þetta á t. d. við um lampa.
Að búa rafmagnslampa til í hinum alræmda „átt-
hagastíl“ eins og steinolíulampa er fullkominn aula-
skapur. En auk þessara breytilegu hluta eru líka
til ýmsir, sem hafa þegar fyrir löngu þróast til end-
anlegrar myndunar, t. d. hnakkur, skæri og hnappur.
Myndun bókar hefir líka fyrir löngum tíma
lokið þróun sinni af. Að því slepptu, að pappírinn
kann að vera orðinn flekkaður, miður hreinlegri
prentun með köflum og gömlu stafsetningunni, er
bck frá því fyrir hundrað árum nákvæmlega jafn-
36 PRENTARINN