Nýi tíminn


Nýi tíminn - 26.06.1952, Blaðsíða 6

Nýi tíminn - 26.06.1952, Blaðsíða 6
6) — NÝI TÍMINN — Flmmtiiiogar 23. júíií 1952 og áhrif hennar á efnahagsþráun islendinga Framhald af 2. síðu Ennfremur segir Benjamín: „Ef fluttar eru inn vörur fyrir Marshallfé og þser seldar innan- lands og andvirðið síðan lagt inn á banka, fara áhrifin eftir því, hvaðan féð kom til að greiða innílutíu vörurnar með. Komi féð úr nýjum útlánum seðlabankans verða verðhjöðnunaráhrifin eng- in. Komi féð af tekjum manna og úr rekstri fyrirtækja þá verða verðhjöðnunaráhrifin sem svarar upphæð fjárins". Til skýringar á þessu er bezt að gera sér fyrst ljóst hvað við er átt með orðinu verðhjöðnun. Það kemur fram í skýrslu hins bandaríska' Marshallsérfræðings um ísland, sem birt var í Al- þýðublaðinu 1948, og segir þar svo m. a.: „Þannig gæti viðreisn Evrópu orðið til þess að ísland kæmi efnahag sínum á réttan kjöl, án þess að fórna'öllum þeim fríð- Indum, efnahagslegum og félagslegum, sem þaS nú getur boðið íbúum sínum, enda þótt það geti. ekki meðan á viðreisninni stendur, náð efnahagslegu jafnvægi án þess að skerða lífskjör þeirra allverulega“. Þarna höfum við það. Samkvæt áliti Marshallsérfræðingsins átti ísland að skerða lífskjör íbúa sinna allverulega. Á umbúða- lausri hreinni íslenzku þýðir þetta: Að, skapa kreppuástand. Sama hvort það þá er kallað „ að fórna efnahagslegum og félags- legum fríðindum“, sem áunnin' voru. MarshalKéð var hin fyrirhugaða leið að þessu marki, og Benja- mín sagði fyrir hvernig féð þyrfti að notast til þess að markinu yrði náð. Til þess þurfti að flytja inn vörur frá Bandaríkjunum, vörur, sem íslenzka ríkið fékk að gjöf en þurfti þó að greiðast með innlendum peningum. Þessir peningar máttu ekki koma úr nýjum útlánum seðlabankans svo sem gert hefði verið, ef vörurnar hefðu verið greiddar með innlendum útflutningsvörum. Heldur skyldu þeir peningar takast af tekjum manna og úr rekstri fyrir- tækja, svo takast mætti þannig að draga fé úr höndum bæði einstaklinga og atvir.nulífsins innanlands. Ennþá skýrar kemur þó þetta í Ijós, þegar flett er upp á næstu blaðsíðu í þessu hagmálaáliti. Þar stendur þessi vísdómur. ,,Ef E. C. A. (þ. e. efnahagssamvinnustofnunin) hefur fyrst og fremst áhuga á því að komið sé á peningalegu jafnvægi á ís- landi, þá er eðlilegt að sem stærstur hluti Marshallfjárins sé veittur sem óskilorðsbundið framlag. Mótvirði þarf áðeins að greiða fyrir þannig framlög, og mótvirðissjóðurinn er það fé, sem bein áhrif hefur á hið peningalega jafnvægi. Af þessu leiðir -að eðlilegast er að, sem mest af fénu verði veitt sem óskilorðs- bundið framlag, og í öðru lagi að leyft væri að verja fénu eftir því sem þurfa þykir til innflutnings á neyzluvörum og rekstrarvörum“. Hér flettir Benjamín ennþá frekar ofan af hinni raunverulegu tilætlun. Þegar hann telur að Marshallféð eigi helzt að fást allt sem gjafir. Því að gjafirnar eru eina aðferðin, sem hægt er að nota til þess að draga innlenda féð, úr höndum einstaklinganna. Gjafirnar ásamt hækkuðu verðlagi gera þannig einstaklinginn fátækari, þótt íslenzka ríkið verði gjöfunum auðugra. í stað hinnar stórkostlegu risaáætlunar um uppbyggingu nýrra atvinnufyrirtækja er nú tilgangurinn orðinn sá einn að draga sem mest fé úr höndum einstaklinga og atvinnufyrirtækja, festa það 1 mótvirðissjóðnum, sem ekki má ráðstafa nema með leyíi Banda- ríkjanna. Þetta heitir að ná peningalegu jafnvægi. En hvað er átt við með peningalegu jafnvægi? Það skýrist einnig bezt með litlu dæmi. Þegar ríkisstjórnin var komin í þrot með gengislækkunina í ársbyrjun 1951 var.það ráð tekið að taka upp bátagjaldeyrisfyrir- komulagið og betlað stóraukið Marshallfé til þess að auka vöruinn- flutninginn og gefa verzlunina frjálsa, sem kallað var. Áhrifum þessara ráðstafana á verðlagið þarf ég ekki að lýsa. í aprílmán. s. ár flutti viðskiptamálaráðherra erindi í útvarpið um þessa frjálsu verzlun. Hann talar þar m. a. um skort sem verið hafi á jafn- vægi í viðskiptalífinu, og segir síðan: „Gengisbreytingin og aðrar ráðstafanir sem gerðar hafa verið llafa nú gert það að verkum aö þetta jafnvægi hefur náðst. „ . . . Þrátt fyrir hækkandi vöruverð cr hér ekki um verðbólgu- fyrirbrigði að ræða meðan ekki hefst kapphlaup um kaup- gjaldið“. Þar • höfúm við einnig það. Hið peningalega jafnvægi þýðir hækkandi vöruverð án þess að tekjur einstaklingsins megi hækka á móti. Þýðir sama sem minnkandi tekjur, afleiðingin af því minnkandi kaupgeta, afleiðingin, af henni sölutregða og afleið- ipg af henni minnkandi framleiðsla. Það sem átt er við með að skapa peningalegt jaínvægi er því umbúðalaust sagt, KREPPA. Hinri 19. sept. 1949 var gerigi krónunnar lækkað'um 30% gagn- vart dollar og hækkaði þá verð á öllum dollaravörum um 44 prósent. Ekki var þó þetta talið nægilegt. Mestur hluti þingsins ' 1949 fór í átök um hina algeru gengisiækkun er fram fór í marz 1950, og hækkaði þá gengi alls erlends gjaldeyris gagnvart ísl. kr. um hvorki meira né minna en 74,3%. Þótt þetta væri gert undir því yfirskyni að verið væri að bjarga bátaútveginum og útflutningsverzluninni þá vita engir betur en sjálfir þeir valdhafar, er þessu réðu að gengislækkunin var framkvæmd, samkvæmt vestrænni skipun, í samræmi við skil- yrðið um að viðhalda réttu gengi. Bezta sönnun þess, að gengislækkunin kom útveginum ekki að gagni er sú, að réttu ári síðar en hún var framkvæmd þurfti aö grípa til nýrra ráðstafana. Vár þá bátagjaldeyrisfyrirkomulag- ið upp tekið og í því fólgið að bátaútvegsmenn fengu allmikinn hluta gjaldeyrisins, er þeir mega flytja fyrir ákveðnar vöruteg- undir inn í landið og fá jafnframt einkaleyfi til að selja þær á því verði er þeim sýndist. Þetta er því ekkert annað en dulin gengis- lækkun er nær til viss hluta af bæði framleiðslunni og inn- -ílutningnum. En þetta sýndi sig vera einnig bráðabyrgðaráðstöfun, því í janúar 1952 varð að útvíkka þetta fyrirkomulag og láta það ná til margskonar nauðsynjavara, og gengislækkunin þar með gerð ennþá víðtækari. Nú hefur það raunar komið í ljós, að það varð ekki útgerð- in, sem fleytti rjómann af þessum ráðstöfunum. Birtar hafa verið tvær opinberar skýrslur frá verðgæslustjóra hin fyrri í sept. og hin síðari í des. s. 1. ár. Samkvæmt fyrri skýrslunni liggur fyrir athugun á vörumagni, sem í innkaupi kostaði 1 milíj. 958 þús. kr. Síðan bættust við það bátagjaldeyrishagnaður 738 þús. kr., verzlunarálagning 2 millj. 413 þús. kr. og frakt, tollar og söluskattur 2 millj 391 þús. kr. Útsöluverð 7,5 millj. kr. Síðara dæmið innifelur vörumagn sem í innkaupi kostaði 2 millj 316.000 kr. en útsöluverð yfir 9 millj. Af þeirri nærri 7 millj. kr. hækkun sem á þessu varð fékk bátaútvegurinn 941- þús. kr. Hitt fer til verzlunarstéttarinnar og ríkisins. Jafnframt þessu var tekið á móti 200 millj. kr. í Marshallgjafir á einu ári til þess að auka innflutning og gefa verzlunina frjálsa sem kallað er, eins og fyrr er sagt. Einn af þingmönnum Alþýðu- flokksins upplýsti það í þingræðu, að þær 114 millj. kr. frá Greiðslubandalagi Evrópu sem í þessu tilíelli bættist við, væru bundnar því skilyrði að kaupgjald yrði ekki látið hækka þrátt fyrir þær gífurlegu verðhækkanir, er öllum þessum ráðstöfunum fylgdu. Þessu hefur ekki verið mótmælt enda mun Alþýðuflokk- urinn kunnugur innan stjórnarherbúðanna. Þetta fé hefur því að verulegu leyti farið fyrir neyzluvörur, og jafnframt orðið til þess að auka stórkostlega á kreppuna. Það gerist á þann hátt, að stórkostlegt vörumagn ér flutt inn í landið, sem fyllir allar verzlanir. Þetta vörumagn þarf að greiða af því fjármagni sem í umferð er í landinu. En af því að gjaldeyririnn sem fenginn er fyrir þessar vörur kemur ekki frá íslenzkum út- flutningstekjum, heldur sem gjöf, þá fá atvinnufyrirtækin og einstaklingarnir aldrei í hendur þær eðlilegu tekjur, sem þeir þurfa til þess að geta greitt þessar vörur. Andvirðið verða þeir að taka af því fjármagni sem þeir höfðu fyrir, því_ þeir fá engar tekjur á móti slíku vörumagni. Hinar íslenzku krónur sem greiddar eru fyrir vörurnar verða eigri ríkisins, í mótvirðissjóðnum, sem ekki má ráðstafa nema með amerísku leyfi. Hér er náð því marki, sem Benjamín ræðir um, þegar hann segir að andvirði varanna þurfi að koma af eignum manna og úr rekstri fyrirtækja, það er að einstaklingar og fyrirtæki eiga að verða andvirðinu fátækari. Þetta er því einn þátturinn og ekki sá minnsti í því að skapa kreppuna, og þetta er munurinn á því að þjóðin fer að lifa á gjöfum í stað þess að lifa á eigin framleiðslu. Lánsfjárbannið En ein aðferðin, sem hefur verið notuð til að skapa þessa kreppu er lánsfjárbannið, sem svo hefur verið nefnt, eða fyrir- brigði það sem allir þekkja í formi lánsfjárkreppunnar, er nú þjakar atvinnulífið. Hver maður sem á annað borð skilur eðli hins kapitalistíska þjóðfélags veit, að atvinnulíf þess verður á erigan hátt rekið nema hæfilegt magn lánsfjár sé í umferð. Til að sinna þessu hlutverki er bankakerfi landanna byggt upp. Því meira sem til er af framleiðslutækjum og tæknimögu- leikarnir meiri því meira lánsfé þarf að hafa í umferð. Fyrir- tæki sem reka milljónaveltu þurfa mikið rekstrarfé, sem í flestum tilfellum verður að fá að láni, en trygging þess á að vera fólgin í væntanlegri framleiðslu fyrirtækjanna. Atvinnuþróun hér á íslandi hefur verið geysi ör hin síðustu ár. Framleiðslutæknin hefur aukizt svo mjög að slíks höfum við aldrei þekkt dæmi fyrr á jafn skömmum tíma. Nægir að benda á að á síðustu fimm árum höfum við eignast 40 nýja togara. Áður var kominn fjöldi vélbáta einnig fjöldi hraðfrysti- húsa, fiskimjölsverksmiðja, fiskþurrkunarhúsa og annarra iðju- fyrirtækja. Mun áreiðanlega ekki ofmælt, þótt fullyrt sé, að framleiðslugeta þjóðarinnar hafi aukizt um helming s. 1. ára- tug. En af því leiðir aftur það, að rekstrarféð, sem þarf að vera- í umferð þarf að aukast mjög. Þetta rekstrarfé verður að fást að láni í lánsstofnunum þjóðarinnar ef atvinnutækin eiga að nýtast til fulls/svo framleiðslan ekki bíði tjón. Hver hefur svo verið stefna ríkisstjórnar þeirrar, sem með völd hafa farið s. 1. fimm ár í þessu máli. I stað þess að gæta þess að nægilegt rekstrarfé geti verið í umferð vegna atvinnu- tækjanna og lata það aukast með auknum framleiðslutækjum, hefur markvisst verið stefnt að því að draga inn það fé, sem í umferð var og hefur Marshallstefnan verið drjúg til liðveizlu í því starfi, enda er við það átt, þegar Benjamín ræðir um það að peningarnir fyrir Marshallvörurnar eigi að koma af tekjum ein- staklingsins og úr rekstri fyrirtækja. Þannig hafa verið dregnar 375 millj. kr. úr rekstri atvinnulífsins með stofnuri mótvirðis- sjóðsins. Hann verður að vísu eign ríkisins og það verður þeim mun auðugra, sem einstaklingarnir verða fátækari og atvinnulífið í meiri.fjárþröng. En þetta hefur ekki verið látið nægja. Með gengislækkuninni hefur allt laust fjármagn í landinu verið lækkað, svo erlendur gjaldeyrir hækkaði í verði um 73,4%. Ef slík ráðstöfun átti ekki að hefta atvinnulífið og fram- leiðsluna þurfti auðvitað jafnframt að stórauka bæði útlán bank- anna og seðlamagnið sem í umferð var. En því’fer fjarri að svo hafi verið gert. í des. 1949 námu heildarútlán bankanna 904 millj. kr. Síðan kemur gengislækkunin í mars 1950 með hinni gífurlegu verðfellingu á krónunni, er áftur jók þörfina fyrir aukinn krónufjölda. Framhald, ( _ , | \ jj-Lu ^ t L_u J, i v , Lý Framhald af 1. síðu. ýmsu þjóða, telur hún-nauðsyn- legt eftir atvikum að gera fyrirvara um að hún áskilur sér rétt til skaðabóta frá ís- lenzku ríkisstjórninni að því er. snertir hverskonar afskipti af brezkum fiskiskipum á svæðum sem brezka ríkisstjórnin telur vera á úíhafinu. (Leturbreyting Nýja Tímans). Ég leyfi mér,- herra utaurík- isráðherra ,að votta yður á ný sérstaka virðingu mina. (sign) P. Lake“. NæTbosni í íi©lsissé3 Framhald af 5. síðu. sjálfsögðu opna lionum dyr Sínar uþp á gátt, ög er þann- ig séð fyrir því áð þessi merki legu tíðindi fari ekki framhjá Islendingum. Bíða menn þess nú með spenningi að prófess- orinn lýsi einhverri þessari nærbuxnaorustu af andagift sinni. Munu atburðir þessir lífga mjög upp frásögn hans, og er ekki að efa að hinum glæsta sigurvegara efasemd- anna hafi fundizt mjög til uin . það óvenjulega einstaklings- framtak sem undirfatastríð þetta vitnar um. Oss er sem vér sjáum hvar hann stendur i húsagarði eins háskólans í hvíta flibbanum sínum stíf- aða, og tekur í upphafi bar- dagans hattinn ofan af brillj- antíninu, af virðingu fyrir the American way of liberty. Siv út um gluggahn á efri liæð- unum veifa amerískir mennta- menn bleikum og bláum silki- nærbuxum ungra stúlkna í sjálfu sólskini frelsisins. Það var engin lífsnauðsyn að sigr- ast á efasemdunum í fyrra við komu varnariiðsins. Eða hver mundi ekki láta saim- færast við slíka sýn? Og maður veifar hattinum til buxnanua. ÞETTA er það sem koma skal. Frelsið er aftur í sókn. Stór- þjóðir með Bandaríkin í broddi fylkingar kosta sér nú öilum til að verja sjálfstæði sitt og menningu fyrir aust- rænni kúgun, kommúnískri undirokun. Loksins hefur. vestrænum þjóðum skilizt að allt verður að leggja í sölurn- ar fyrir frelsið — ef því er að skipta: félagslegar fram- farir, atvinnuþróun, friðimi og lífið. Eða hvað stoðar það manninn að varðveita friðinn en glata frelsinu. Ekkert skiptir máli nema það að varðveita frjálsræði þjóðanna.. Kvenbuxnaórustur banda- rískra menntamanria eru að svo stöddu háþúnkturinn í hinni nýju upplyftingu vest- ræns frelsis. Vér neitum opin berri íhlutun um einkamál vor. Einnig í þessu fátæka landi eru að verki sterk öfl sem vinna að slíku sjálfstæði ein- staklingsins. Beint og óbeint er verið að kenna unga fólk- inu okkar samskonar frelsis- hug og þann sem lýsir sér í hinni harðskeyttu baráttu bandarísku menntamannanna fyrir nærbuxum skólasystra sinna. Morgunblaðið, Tíminn og AB eru meðal þessara sterku afla. Éitt kvöid rekur að því að dóttursonur Ólafs Thors læðist að snúrunni og hefur á brott með sér haldið af sonardóttur Eysteins Jóns- sonar. Og daginn eftir kallar AB þvílíka frelsislund hið æðsta unað. B.B, ,

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.