Nýi tíminn - 14.04.1955, Qupperneq 5
Fimmtudagur 14. marz 1955 — NÝI TÍMINN — (5
Bevan bar sigur af hólmi í á-
tökunum við hægrimennina
MiSsfjórnin heykist á oð vikja honum ur
flokknum - ASeins tiu vildu rekahann
Aneurin Bevan, leiðtogi vinstriarms brezka Verka-
mannaflokksins, bar sigur af hólmi í viðureig-ninni við
hægrimennina í miöstjórn flokksins. Miðstjórnin sam-
þykkti 1 gær að víkja Bevan ekki úr flokknum og voru
aöeins 10 af 28 miðstjórnarfulltrúum með brottvikningu
hans.
í ályktun, sem samþykkt var
á fundi miðstjórnarinnar í gær
með 16 atkv. gegn 10, en 2 sátu
hjá, segir að miðstjórnin telji
ekki ástæðu til að víkja Bevan
úr fiokknum, þar sem hann hafi
heitið því að brjóta ekki í bága
við yfirlýsta stefnu flokksins.
Miðstjórnin lýsir sig hinsvegar
samþykka þeirri ákvörðun
stjórnar þingflokksins að víkja
Bevan úr þingflokknum og segir
að ef hann geri sig sekan um
frekari agabrot muni gripið til
róttækra aðgerða. Attlee var
einn þeíma 16, sem greiddu
þessari ályktun atkvæði.
Mikill sigur fyrir Bevan
Þessi ákvörðun miðstjórnar-
innar er mikill sigur fyrir Bevan
og síuðningsmenn hans í flokkn-
um. í yfirlýsingu þeirri sem
hann gaf miðstjórninni áskilur
hann sér rétt til að halda áfram
að gagnrýna það sem hann á-
lítur miður fara í stefnu flokks-
ins og baráttuaðferðum og skuld-
bindur sig aðeins til að hlýða
settum flokksreglum svo fremi
sem aðrir leiðtogar flokksins
geri slíkt hið sama. Hann biður
Attlee afsökunar á því, að hægt
hafi verið að leggja orð hans
Aneurin Bevan
í ræðum út á þann veg, að hann
efaðist um forustuhæfileika hans
og segir það ekki hafa verið
ætlun sína.
Getur aftur sótt
um inngöngu
Það er viðtekin regla í Verka-
mannaflokknum, að þingmaður,
Tekjur af ferðamönnum einn
mesti þáttur heimsviðskiptanna
Ferðamenn frá 41 landi eyddu 2,4
milljörðum dollara erlendis árið 1953
Tekjur af ferðamönnum eru að verða ein mesta gjald-
eyristekjulind margra þjóða og þarmeð einn stærsti liður-
inn í alþjóðaviðskiptum. Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar
verið beðnar að stuðla að auknum ferðamannastraumi
milli landa.
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um, sem birtar hafa verið í
Washington er búizt við að um
ein milljón Bandaríkjamanna
taki sér ferð á hendur til út-
landa áður en árið er liðið. Bú-
izt er við að þessir ferðalang-
ar eyði samtals 1,5 þúsund
milljón dollurum á ferðalögum
sínum og eru þá fargjöld að
heiman og heim ekki talin með.
Talið er að um helmingur þess-
ara ferðamanna, eða um
500.000, ferðist um V-Evrópu-
lönd, en hinn helmingurinn til
Kanada, Mexíkó og S-Ameríku-
ríkja.
Mönnum er nú farið að verða
Ijóst, að hinar duldu gjaldeyr-
istekjur ýmsra þjóða af ferða-
mönnum eru svo þýðingarmikl-
ar, að þær ríða baggamuninn í
greiðslujöfnuði fjölda þjóða og
að það eru miklir ónotaðir
möguleikar til að auka þessar
gjaideyristekjur.
Skýrslur, sem Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum í Washington hafa
borizt .frá 41 landi sýna, að ár-
ið 1953 eyddu ferðamenn, sem
svarar 2,4 milljörðum dollara
erlendis. I þessari upphæð eru
ekki talin með fargjöld til
skipafélaga og flugfélaga.
Ferðamannatekjur
í tölum.
Hér fara á eftir nokkrar
tölur, sem sýna auknar tekjur
nokkurra þjóða af ferðamönn-
um á undanförnum árum:
Vestur-Evrópuþjóðir hafa
aukið dollaratekjur sínar af
ferðamönnum úr $225.000.000
árið 1950 í rúmlega $330.000.00
1954. Ef fargjöld eru reiknuð
með má telja víst, að Evrópu-
þjóðir munu hafa rúmlega 1,5
milljarð dollara tekjur af er
lendum ferðamönnum 1955.
Tekjur Breta af erlendum
ferðamönnum jukust úr $171.
000.000 1950 ' í $246.000.000
1954. í Þýzkalandi jukust tekj-
ur af ferðamönnum úr $32.000.
000 1950 í 130.000.000 1954. í
ítalíu úr 83.000.000 dollurum í
147.000.000.
Alþjóðagjaldeyrisviðskipti
vegna ferðamanna árið 1953
námu álíka upphæð og
sem vikið hefur verið úr þing-
flokknum, en fær áfram að vera
í stjórnmálaflokknum, getur sótt
um inngöngu í þin'gflokkinn aft-
ur eftir nokkurn tíma. Litill vafi
er á því, að Bevan mun aftur
tekinn í þingflokkinn, þegar
hann sækir um unotöku.
2000 ára gamlir
hestar sýndir
Hestar með skrautlegum
reiðverum, sem legið hafa
grafnir í.ireðjtuun.jarðvegi Sí-
beríu í meira en 2000 ár eru
nú til sýnis á safni í Lenín-
grad. Sovézkir fommenjafræð-
ingar fundu hestana í höfð-
ingjagröfum í Pasirikdalnum í
Altaifjöllum.
Nýr heimskauta-
leiðangur
Sovézkir vísindamenn eru nú
að koma sér upp þriðju rann-
sóknarstöðinni á ísnum á Norð-
ur-íshafinu. Prófessor Volkoff
frá haffræðistofnunipni í Lenín-
grad og félagar hans lögðu af
stað flugleiðis í gær norður á
ísinn. Þeir sem starfað hafa und-
anfarna mánuði í tveim eldri
rannsóknarstöðvunum eru á
heimleið.
39 tróðust undir
í brennandi bíói
Á sunnudaginn tróðust 39
menn, 20 þeirra börn, undir
til dauðs þegar kviknaði í
kvikmyndakúsi í smábæ ná-
lægt Liége í Belgiu meðan á
barnasýningu stóð. Ofsa-
hræðsla greip áhorfendur og
myndaðist þvaga við dyrnar.
Margir hlutu brunasár.
Orsakir flugslysa
rannsakaðar
Alþjóðaflugmálastofnunin í
Montreal (ICAO) hefur birt yf-
irlit um orsakir 33 flugslysa
er urðu á árinu 1953. Samkv.
yfirliti þessu urðu 44% slys-
anna er flugvélar. voru í lofti,
40% við lendingu og 16% urðu
við flugtak.
Orsakir 55% af þessum 33
slysum voru „sennilega mistök
flugstjóra, segir í yfirlitinu. En
ICAO tekur vara á þessari tölu
vegna þess hve skiptar skoðan-
ir séu um hvað telja beri mis-
tök flugstjóra.
Fjögur slysanna eru talin
stafa af ónógu eftirliti og við-
haldi vélanna, en fjögur slys
stöfuðu af slæmu veðri
Yfirlit þetta er byggt á flug-
slysum er urðu í Argentínu,
Burma, Kanada, Honduras, Ind-
landi, Israel, Saudi-Arabíu,
Tyrklandi, Bretlandseyjum, N-
Atlantshafi, Kyrrahafi, Mexíkó-
flóa og í Bandaríkjunum.
Ráðstafanír gegn ofskipulagn-
ingu í sovézkum landbúnaði
Ýtt undir íramtak og ábyrgðartilíinningu
bænda með því að ge.fa þeim frjálsar
hendur
Ríkisstjórn Sovétríkjanna og miðstjórn kommúnista-
flokksins hafa í sameiningu gefið út tilskipun um gagn-
gerða breytingu á skipulagningu landbúnaöarframleiðsl-
unnar.
anir og gera tillögur um
breytingar ef þær tryggja ekki
að uppfyllt verði afhendingar-
skylda á afurðum til ríkisins.
Hefur staðið framleiðslunni
fyrir þrifum.
I tilskipuninni, sem Búlganín
forsætisráðherra og Krútsjoff
aðalframkvæmdastjóri Komm-
únistaflokks Sovétríkjanna
undirrita, segir:
„Til þess að tryggja fram-
leiðslu nauðsynlegs magns
hinna ýmsu landbúnaðarafurða
Ráðuneyti þau sem fara með
landbúnaðarmál eru harðlega
gagnrýnd fyrir rangar starfs-
aðferðir og skriffinnsku.
Skipulagning neðanfrá
Lýst er yfir að það sé óhag-
kvæmt og vonlaust verk að
ætla að skipuleggja landbúnað-
arframleiðsluna ofanfrá úr
einni miðstöð. Með því sé fram-
taki þeirra bem !að sjálfri
framleiðslunni vinna á hverjum
stað sniðinn of þröngur stakk-
ur.
Hér eftir eiga samyrkjubúin
sjálf að semja áætlanir um
jarðrækt sína og kvikfjárrækt
í samráði við vélastöðvarnar
með það fyrir augum að nýta
allt ræktað land sem bezt.
Framkvæmdanefndir í hverju
héraði eiga að fara yfir áætl-
er engin þörf á að ráðuneytin
sendi samyrkjubúum og ríkis-
búum allar þessar áætlanir um
hvað eigi að rækta á hve
miklu landi eða hve stórum
bústofni eigi að koma upp.
Slíkar starfsaðferðir hindra
að samyrkjubúin og ríkis-
búin geti sýnt framtak um
rétta og skynsamlega búskap-
arhætti.“
Enfremur er komist svo að
orði að rangar skipulagsaðferð-
ir hafi „veikt ábyrgðartilfinn-
ingu og áhuga í samyrkjubú-
unum og vélastöðvunum á fram
þróun landbúnaðarins og þetta
hefur síður en svo orðið til að
auka afraksturinn."
Skipt uín ráðherra.
Nokkru áður en tilskipunin
var gefin út var skipt um
landbúnaðarráðherra og ráð-
herra ríkisbúanna.
Búlganín og Krútsjoff segja,
að skipulagning í landbúnaðin-
um verði að miða , að því að
raunverulegt framleiðslumagn
verði sem mest en ekki að því
að hafa sáðlandið sem stærst
eða búpening sem flestan.
Með tilskipun þessari eru
framkvæmdar ákvarðanir sem
teknar voru á fundi miðstjórn-
ar komrnúnistaflokksins í jan-
úar. Kom þar fram hörð gagn-
rýni á ýmsa misbresti í málum
landbúnaðarins.
Mest rennur
fil fangelsa
Brezka nýlendustjórnin í
Kenya tilkynnti í gær að hún
hefði ákveðið að leggja fram
23.5 milljónir sterlingspunda til
að „efla atvinnuvegina og bæta
kjör almennings". Stærsti lið-
urinn á framkvæmdaáætluninni
er bygging fangelsa og efling
lögregluliðsins. Til þess verður
varið tæpum fimm milljónum
punda.
Þjóðverjar vilja losna vlð
bandarisk kjamorkuvopn
Tillaga sósíaldemókrata á fylkisþingi
Rínarlanda-Pfalz um bandarískar
kjarnorkufallbyssur
1
1
Harðar umræður urðu fyrir skömmu á fylkisþingi Rín-
arlanda-Pfalz í Vestur-Þýzkalandi um kröfu um að banda-
rísk kjarnorkuvopn verði flutt brott úr fylkinu.
Sósíaldemókratar, sem eru í
andstöðu gegn fylkisstjórninni,
báru fram tillögu um að fela
henni að fá sambandsstjórnina
í Bonn til að koma því til leiðar
við yfirherstjórn A-bandalags-
ins að bandarískar fallbyssur
til að skjóta úr kjarnorku-
sprengikúlum verði f jarlægðar.
Ræðumenn sósíaldemókrata
sögðu, að bandaríski herinn
hefði gert Rínarlönd-Pfalz að
púðurtunnu, sem myndi rjúka
í loft upp ef til vopnaviðskipta
kæmi.
Allir aðrir hafa neitað
Bent var á að Bandaríkja-
menn hefðu sjálfir skýrt frá
því að í Rínarlöndum-Pfalz
hefðu verið byggðir hermanna-
skálar og gerðir hernaðarflug-
vellir fyrir hálfan annan millj-
arð marka (sex milljarða.
króna). Þar væru mestu olíu-
geymslur í Evrópu og að sögn
bandarísku herstjórnarinnar
sjálfrar 22 kjarnorkufallbyssur.
Öll önnur A-bandalagsríki í
Vestur-Evrópu hafa neitað að
láta Bandaríkjamenn koma sér
fyrir með kjarnorkuvopn í lönd-
um sínum vegna þeirrar gífur-
legu árásarhættu sem þeim
fylgir, sögðu sósíaldemókrat-
arnir.
Meirihluti Kristilega lýðræð-
isflokksins og Frjálsa lýðræðis-
flokksins á fylkisþinginu vísaði
tiliögunni frá. j
íj r'i/l x*>/éUíí
uriext
attthrsb ~i
'Bv bn"
rtnalialí