Nýi tíminn - 14.04.1955, Page 10
NÝI TlMINN — Fimmtudagur 14. apríl 1955
10) -
2
3
Ævintýraskáldið
Framhald af 1. síðu.
intýrin. í framsetningu í
ævintýraforminu naut
hann sín til fullnustu.
Þar komu fram draum-
órar hans, samlíkingar úr
kynjaheimum og hugar-
flug.
Hann var ákaflega
barngóður og haf ði yndi af
að segja börnum sögur og
ævintýri. Hvar sem hann
kom á heimili þar sem
börn voru, tók hann að
segja ýmsar kynjasögur
og ævintýri og samdi oft
jafnharðan og hann sagði
frá. Stundum lék hann
einnig ævintýrin fyrir
börnin, svo það var síst
að undra þótt hann yrði
vinsæll hjá smáfólkinu.
Hjá fullorðna fólkinu
mætti hann ekki skiln-
ingi fyrr en löngu síðar.
Og það voru tvö ágæt ís-
lenzk skáld, sem vöktu
athygli Dana á þessu ein-
kennilega skáldi þeirra.
Það voru þeir Jónas Hall-
grímsson og Grímur
Thomsen.
Er ekki að orðlengja
það, að H. C. Andersen
ritaði nú hvert ævintýrið
öðru fegurra, sem síðan
bárust út, ekki einungis
til hans eigin þjóðar,
heldur um víða veröld.
Stedngrímur Thorsteins1-
son skáld þýddi á ís-
Jenzku margt eftir And-
ersen. Síðan hafa einnig
aðrar þýðingar verið
gerðar á mörgum verk-
■um hans. Þið kannist við
svo mörg ævintýrin hans:
Litla stúlkan með eld-
spýturnar, Ljóti andar-
unginn, Það er alveg á-
reiðanlegt, Nýju fötin
keisarans og mörg, mörg
önnur.
H. C. Andersen er eitt
frægasta skáld Dana og
verður nú minnst í 60-70
þjóðlöndum. Svo er sagt,
að þegar Andersen var
enn á barnsaldri hafi
spákona spá því fyrir
honum, að fæðingarborg
hans myndi einhvemtíma
verða ljósum skreytt
hans vegna. Það er nú
komið fram. í dag verða
mikil hátíðahöld í Od-
ense. Öll borgin verður
skreytt. Húsið, sem
hann bjó í, hefur
verið tekið undir minja-
safn um skáldið. Hef-
ur fáum skáldum hlotn-
azt frægð til jafns við
Andersen og um lang-
an aldur munu ævintýri
hans verða lesin af ung-
um og gömlum um víða
veröld.
L. .
Teikning úr verðlaunasamkeppni Óskastundarinnar:
Jólasveinn efitr Hún B. Snædal 10 ára
Heiðarrósin
Skrítlur
Samkvæmt óskum birt-
ist nú danslagatextinn
Heiðarósin, sem vinsæll
hefur orðið. Hann er eft-
ir N.N. og Guðm. Sig-
urðsson, en Öskubuskur
hafa sungið hann inn á
hljómplötu.
Komdu vinur, kvöldlð er svo fagurt
hlýtt og bjart,
klætt sig hefur jörðin í sitt
fagra sumarskart,
blómin fögur breiðast yfir bala
hól og tún,
blrkið grænt í hiiðunum og lyng
á f jallabrún.
Og lóukliður I lofti er,
og lækjamlður við eyra mér,
og sólin glltrar á sæ og grund,
og sál min titrar, hvilík gleðistund.
Aftankyrrðin breiðist yfir brekku,
grund og dal,
blandast ldlðl fuglanna hlð mjúka
lindarhjal.
Undir leika djúpum rómi hljómsterk
fossaföU
á fiðlu sina i næturinnar söng
og tónahöU.
Við teygum unað þeim óml frá,
og aUtaf munum við hijóma þá,
hvert yfir helminn, sem okkur ber,
þeir eUíft geymast i hjarta mér.
Bar na rökfr æði.
Siggi: Hvert fór hann
pabbi?
Mamma: Hann fór að
veiða tófur.
Siggi: Hvers vegna er
hann að því?
Mamma: Af því að tóf-
an drepur kindumar.
Siggi: Hver veiðir þá
hann Guðmund, sem
slátraði hjá okkur í
haust?
Ebbi litli: Heyrðu
pabbi, sást þú konung-
inn, þegar hann kom til
hans Valda?
Faðirinn: Af hverju
spyrðu að því?
Ebbi: Það stendur
hérna í bókinni að kon-
ungurinn hafi komið til
valda fyrir 10 árum.
Artölin 874 og 1874
Mikilvæg
spurning
— Komdu inn fyrir,
Mikki, sagði bóndinn við
manninn, sem stóð hik-
andi fyrir utan garðshlið-
ið.
— Fjárans læti eru í
hundinum þínum, sagði
Mikki og gaut augunum
til seppa, sem stóð innan
við hliðið og gelti að hon-
um af öllum mætti.
— Veiztu ekki, að
hundar, sem gelta, bíta
ekki, sagði bóndinn.
— Jú, ég veit það, sagði
Mikki, en veit hundurinn
það?
Árið 874 er talið að fs-
landsbyggð hefjist, en þá
komu þeir hingað til
landsins fóstbræðurnir
Ingólfur Arnarson og
Hjörleifur Hróðmarsson.
Árið 1874 var haldið há-
tíðlegt þúsund ára af-
mæli íslandsbyggðar. Þá
kom hingað til lands
Kristján IX. Danakon-
ungur. Hann veitti ís-
lendingum stjórnarskrá
og með henni var merk-
um áfanga náð í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinn-
ar. En það var ekki fyrr
en 1944, með lýðveldis-
stofnuninni, að íslend-
ir.gar losnuðu að fullu úr
tengsium við Danmörku.
Ártölin 1118
og 1918
Hvaða minnisverðir at-
burðir úr íslandssögunni
eru bundnir við ártölin
1118 og 1918? — Hugleið-
ing til næsta laugardags.
Gátur 1. Hvaða fugl er
líkastur rjúpukarra?
• ----------
2 f hvaða mánuði er
minnst étið?
• ---------
3. Hvað er milli eins og
tveggja?
KLIPPIÐ H É R !
Blóð í morgunsórinu
ERLEND
Framhaíd af 6. síðu.
ríkjastjórn muni ekki ræða
Þýzkalandsmálin nema á f undi
þar sem stjórn Vestur-Þýzka-
lands eigi fulltrúa.
Stórveldafundur sem haldinn
kann að verða eftir full-
gildingu samninganna um her-
væðingu V-Þýzkalands verður
auðvitað með allt öðru sniði
en ef orðið hefði af fundi á
síðasta ári. Sovétstjórnin hef-
ur margsinnis lýst því yfir að
þýðingarlaust sé að ræða um
sameiningu Þýzkalands meðan
Vesturveldin gera kröfu til að
fá að innlima sameinað Þýzka-
land í hernaðarkerfi sitt. Hún
kveðst ekkert hafa á móti því
að ræða Þýzkalandsmálin við
Vesturveldin eftir að hervæð-
ingarsamningarnir hafa verið
fullgiltir, en fyrsta krafa henn-
ar í slíkum viðræðum verði
að samningarnir séu felldir
úr gildi. Fyrr sé ekki hægt
að ræða sameiningu Þýzka-
lands. Þess er getið til að
markmiðið með hinum nýju
tillögum sovétstjórnarinnar
um friðarsamning við Austur-
ríki sé að skapa fordæmi, sem
heimfæra megi á Þýzkaland.
Molotoff hefur skýrt sendiherra
Austurríkis í Moskva frá að
ekkert eigi að vera því til.fyr-
irstöðu að samið verði við
Austurríki og allt hernámslið
verði á brott að "því tilskildu
að tryggilega verði frá því
gengið að landið sameinist
i. ,. ..... f .....
M'ijVO'Á^iu;dÍlíXí:v r-2 í<T>ilHÍW-fii \ %&•
TIÐINDI
ekki Vestur-Þýzkalandi og
standi utan allra hernaðar-
bandalaga. Þessum uppástung-
um hefur verið tekið vel í
Austurríki en með mikilli ó-
lund í London og Washington.
Ýmsir geta þess til að heim-
sókn Gromikos aðstoðarutan-
ríkisráðherra til Stokkhólms í
síðustu viku sé þáttur í við
leitni utanríkisráðuneytis So-
vétríkjanna að skilja hernaðar-
bandalögin í Austur- og Vest-
ur-Evrópu að með hlutlausu
belti þvert yfir álfuna frá Sví-
þjóð í norðri yfir Þýzkaland,
Austurríki og Sviss til Júgó-
slavíu í suðri.
IMrálgögn sænsku ríkissjórn-
J-'-l arinnar hafa oft hreyft
þessari hugmynd um hlutlaust
belti, nokkurskonar höggdeyfi
milli hinna andstæðu fylkinga,
Hlutlaust og sameinað Þýzka-
land er einng stefnumál sósíal-
demokrata, helzta stjórnarand-
stöðuflokksins í Vestur-Þýzka-
landi. Hinir fjölmörgu and-
stæðingar vesturþýzkrar her-
væðingar í nsér öllum flokkum
í Frakklandi, Bretlandi og öðr-
um Vestur-Evrópulöndum eru
sama sinnis. Háskinn sem því
er samfara ef Austur- tíg Vest-
ur-Þýzkaland hervæðast hvort
gegn öðru er svo augljós að öll-
um sem umhugað er um varð-
veizlu friðarins í Evrópu hlýtur
að hrjósa hugur við.
M. T. Ó.
* í i (l í•’ .■» • ■: - Já v.
:!j V uit.': v:l
Framhald af 4. síðu.
glamur, spýtnabrak. Skipið
kastast til á sjónum. Tréverk-
ið við vantinn brotnar í spón,
fulla ferð áfram! — afturábak!
— áfram! Vélarnar þrymja,
þagna, þrymja. Byssan er hlað-
in í skyndi með sprengikúlu.
Hlaupið sígur. Stynjandi skepn-
an nálgast með boðaföllum.
Fætur skyttunnar tifa ótt og
járnhandriðið sópast fyrir borð
og bakborðssíðan fer í kaf í
sælöðrið.
Skipið hörfar hratt aftur á
bak. Síðan glymja skothvellirn-
ir einn af öðrum í morgun-
kyrrðinni og hvalur og hval-
fangari, umluktir perlugráum
púðurreik, byltast til og frá í
særótinu.
Og enn glymja skothvellirnir.
Þeir halda áfr.am að skjóta
unz þeir hafa skotið í skepn-
una 900 pundum af járni og
10 sprengikúlum. Síðasta skotið
hæfir hana í lungun. Þá gefur
hún frá sér þunga stunu, blæs
feiknlegum blóðstrók í síðasta
sinn, eins og í formælingar-
skyni, yfir skipið. Blóðgusan
brotnar sem holskefla á brúnni
og skorsteininum; veikir kippir
fara um skrokk skepnunnar,
ferð hennar er lokið — og hægt
og þunglamalega veltur hún
um hrygg í blóði sínu, kvið-
urinn upp.
Hvalfangarinn plægir sjóinn
á hægri ferð. Þeir hafa hlekkj-
að bráðina við skipssíðuna,
skorið hana eftir endilöngum
kviðnum, og úr sárínu fossar
• M»5í:aii‘íy,» ij'.uJ<:■-«.<
í sífellu blóð, það skolast aftur
með síðunni, þykkt, heitt og
rjúkandi, og í iðukastinu frá'
skrúfunni blæs það upp í glitr-
andi froðu.
Þeir í brúnni skima þög-
ulir; glampa slær á sjón-
glerin, síðan beinast þau
skyndilega öll í sömu átt. Snör
hönd lýstur vélsímann. Góann!
Vélstjórinn hverfur í iðandi
gufumökk; svitinn perlar á
enni hans og á ljósavélina i
falla tiðir glampar framan af
fírplássinu. Skipið tekur við-
bragð; blóðfroðan blæs upp.
Skorsteinninn þeysir eldi og
sóti til himins; blóðið á honum
hristist uppi lögun risakrabba,
vellur og sýður á sjóðheitu
járninu, og hnarreist skipið,
knúið allri orku sinni, þenur
sig yfir hafflötinn með þungum
túrbínudyn.
Það fjarlægist meir og meir
unz það er .aðeins lítill depill
í fjarska — sem að lokum
hverfur í morgunsárið. Og inn-
an stundar er ekkert lengur
sem minnir á tilvist þess, blóð-
flekkirnir leystir upp, skothríð-
in þögnuð — og hafið er aftur
flekklaust og hreint, slétt og
glitrandi eins og fægður spegill.
Gerizt áskrif-
endur að
Nýja tímanum
w* *i'l.Í4Á.' ■ .V-A&l.h liUll !&zi
:zi~i£n&ntsl$'iú v stt-i
Utvarpið
Framhald af 4. síðu.
um daginn og veginn. Það er
alltaf eitthvað hressilegt við
málfar hans, hann hefur
menningaráhuga og frásagn-
argleði. Hann talaði um H.C.
Andersen og svo um móður-
málið og varðveizlu þess og
síðast um. verkföll, rifjaði upp
svo bráðskemmtileg atvik úr
verkfallasögu okkar og sagði
þau svo skemmtilega að það
hrein ekki á manni frekar en
stökkt væri vatni á gæs, þó
að skilningur hans á eðli
verkfalla svamlaði í miðju
kafi án viðhlítandi fótfestu.
---- Vilhjálmur útvarpsstjóri
kom víðar við en á einum
stað í þættinum um bækur og
menn, en fátt af því man mað-
ur að vikunni liðinni. —
„Hinn dauðadæmdi frammi
fyrir hetjunni“ eftir von Heid-
enstam, sem Helgi Hjörvar
las í hléi milli útvarpssagna,
er spekiþrunginn skáldskapur,
en mun við hæfi fremur fárra
og meir til að liggja yfir í ró
og næði en hlýða á af ann-
arra vörum, þótt vel sé flutt.
— Sigurði Ólafssyni þakka
ávallt margir léttan og hljóm-
fagran söng, og ekki ber að
láta þess ógetið hve þakk-
samlega það er þegið, að hann
flytur okkur lög ungrar kyn-
slóðar tónskálda og kynnir
þau. — G. Ben.
: !■ ■ í. - Í.f..‘híV'L.' •;
mtú&wj :c-l mwiidnv. -.
í. tíU.A