Nýi tíminn - 22.09.1955, Page 5
Fimmtudagur 22. september 1955 — NÝI TlMINN — (5
Sovétríkin afsala sér herstöð sinni á
Sovétstjórnin skorar á öll önnur ríki að fara að dæmi
hennar og leggja niður herstöðvar í öðrum löndiun
Sovétríkin haía ákveðið að aísala sér her- og
ílotastöðinni á Porkkalaskaga í Finnlandi, sem þau
íengu til 50 ára með vopnahléssamningnum 1944
og munu flytja burt allt herlið sitt þaðan. Jafnframt
hefur Búlganín, forsætisráðherra Sovétríkjanna,
skorað á öll ríki, er herstöðvar hafa í öðrum löndum,
að fara að dæmi Sovétríkjanna og flytja burt allt
herlið sitt af erlendri grund.
Frá þessu var skýrt í Moskva um þess, muni ríkin koma hvort
s.l. laugardag eftir fyrsta við-! öðru til aðstoðar. Samningur-
ræðufund þeirra Búlganíns og inn framlengist sjálfkrafa um
Kekkonens, forsætisráðh. Finn-
lands.
Vegua bættra
frioarhorfa
Strax í upphafi fundarins
sagði Búlganín, að þar sem frið-
arhorfur hefðu batnað i heimin-
um að undanfömu og sambúð og
vinátta Finnlands og Sovétríkj-
anna væri á traustum grundvelli
áliti sovétstjómin nú mögulegt
að afsala sér herstöðinni á
Porkkalaskaga og flytja burt
herlið sitt þaðan.
Á því leikur enginn vafi,
sagði Búlganín ennfremur,
að ástand í alþjóðamálum
myndi stórum batna ef önnur
ríki færu að dæmi Sovétríkj-
anna og legðu niður herstöðv-
ar sínar í öðrum löndum.
Siíkt myndi draga úr tor-
tryggni og tryggja friðinn i
heiminum.
Þessi ákvörðun sovétstjómar-
innar er í samræmi við allt starf
ihennar til að draga úr viðsjám
í iheiminum og bæta sambúð við
önnur lönd, ekki einungis Finn-
land heldur öll önnur ríki heims,
sagði Búlganín. Sovétstjómin
er þess fullviss að þessi ákvörð-
un mun bæta mjög friðarhorfur
í heiminum.
Vináttusamningur
framlengdur
Þá spurði Búlganín hvort
finnska stjómin myndi fús til
að framlengja vináttusamning
Finnlands og Sovétríkjanna,
sem gerður var árið 1948 til 10
ára. Hann sagði að sovétstjórn-
in áliti að samningurinn og
framkvæmd hans hefði uppfyllt
þær vonir sem stjómir landanna
gerðu sér með hann, er hann
var undirritaður; hann væri sá
grundvöllur sem hin góða sam-
búð og samvinna ríkjanna væri
byggð á. Sovétstjórnin áliti því
rétt að framlengja samninginn
þegar hann rennur út árið 1958.
Kekkonen þakkadi fyrir hönd
stjómar sinnar og finnsku þjóð-
arinnar hið rausnarlega boð
sovétstjórnarinnar og sagðist
vera á sömu skoðun og Búlgan-
ín um nauðsyn þess að vináttu-
samnmgurinn væri endurnýj-
aður.
í vináttusamningnum er m.
a. gert ráð fyrir, að ef ráðizt
yerði á Finnland eða árás gerð
á Sovétríkin yfir finnskt land
af Þýzkalandi. eða bandamönn-
5 ár, segi hvoragur aðili .honum
upp með lögmætum fyrirvara.
Nefnd skilar tillögum
fyrir fund á morgun
Tilkynnt var í Moskva í gær-
kvöld, að samkomulag hefði
orðið um að setja á laggirnar
nefnd, skipaða fulltrúum beggja
aðila, til að gera tillögur um
nánari framkvæmdaratriði við
brottflutning sovézka herliðsins
og afhendingu herstöðvarinnar.
Kom nefndin þegar saman á
fund í gærkvöld og á hún að
leggja tillögur sínar fyrir fund
forsætisráðherranna á. morg-
un.
Þessum fréttum hefur eðli-
lega verið fagnað mjög í Finn-
landi. Fréttaritarar segja, að
þær hafi komið mjög á óvart
þar og svo hafi virzt í fyrstu
sem Finnar tryðu þeim ekki.
Brátt tók þó mannfjöldi að
safnast saraan á götum úti í
Helsinld og lét óspart í Ijós
fögnuð sinn yfir endurheimt
Porkkala og endurnýjun rín-
áttusamningsins við Sovétríkin.
Fagerholm, forseti þingsins,
varð fyrstur stjórnmálamanna í
Finnlandi til að láta í ljós fögn-
URHO KEKKONEN,
forsætisráðlierra Finnlands.
uð sinn yfir fréttunum frá
Moskva. Hann er sjálfur fæddur
í Porkkalahéraði.
I
Svíar samíagna Finnum
j Undén, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, varð fyrstur erlendra
' stjómmálamanna til að ræða
gleðitíðindin frá Moskva. Sagði
hann að Svíar hlytu að sam-
jfagna Finnum með þau, en þetta
væra gleðitíðindi fynr allar
þjóðir heims, til þess fallin að
bæta sambúð þjóða og draga úr
stríðsóttanum.
I
39 ár eftir aí samnings-
tímanum
; Þegar samið var vopnahle
milli Sovétríkjanna og Finn-
lands árið 1944, fengu Sovétrík-
in umráð yfir Porkkalaskaga til
50 ára og era því eftir 39 ár af
samningstámanum nú, þegar
Sovétríkin afsala sér herstöð-
inni.
Porkkalaskagi er um 20 km
frá höfuðborg I'innlands, Hels-
inki, og landsvæði það sem Sov-
étríkin hafa haft til umráða er
um 1.800 ferkilómetrar. Það var
eitt frjósamasta landbúnaðar-
hérað Finnlands og bjuggu þar
um 12.000 manns, þegar Sovét-
ríkin tóku við herstöðinni 29.
september 1944. Þeir voru all-
ir fluttir á brott og komið fyrir
í öðrum héruðum Finnlands og
fengu skaðabætur greiddar úr
finnska ríkissjóðnum. Sovétrík-
in hafa hinsvegar greitt 5 millj.
finnsk mörk í leigu fyrir her-
stöðina á ári.
„Lengstu jarðgöng
i Evropu
Ein helzta járnbraut Finn-
lands, milli Helsinki og Turku,
liggur um Porkkala. I samn-
ingnum frá 1944, sem síðar var
staðfestur með friðarsamning-
NIKOLAJ BÚLGANÍN,
forsætisráðherra Sovéíríkjanna.
unum 1947, var ekki gert ráð
fyrir að Finnar fengju að nota
jámbrautina, en frá áramótum
1947—1948 fengu Finnar rétt
til þess, þó með ýmsum sldlyrð-
um. Þannig varð að skipta um
eimreiðir þegar ekið var inn í
herstöðina og út úr henni,
gluggar allir voru byrgðir og
vopnaðir sovézkir hermenn
gætu hvers vagns. Sögðu Finn-
ar að í Porkkala væru „lengstu
járnbrautargöng í Evrópu“.
Verður James Griffiths
eftirmaður Attlees?
Morrison, Gaitskell og Bevan einnig til-
neíndir.
Brezk blöð telja ekki ólíklegt að James Griffiths verði
fyrir vali sem eftirmaður Clement Attlee í forystu Verka-
mannaflokksins brezka.
Hefur blaðið News Cronicle
átt tal við Attlee sjálfan um
•málið, og kvaðst hann hafa full-
an hug á að draga sig í hlé, af
heilsufarsástæðum. Vænti hann
þess, að á þingi Verkamanna-
flokksins, sem halda á í Mar-
gate, náist eining um yngri
mann, hæfan til að gegna for-
ystu flokksins.
Sem eftirmenn Attlees eru
helzt tilnefndir James Griffiths,
Hugh Gaitskill, Herbert Morri-
son og Aneurin Bevan og er
ekki talið ólíklegt að Griffiths
kunni að verða fyrir valinu, en
hann hefur lítið komið við sögu
í flokksdéilunum.
Erlendur Patursson krefst að
Færeyingar taki utanríkisvið-
skiptin í sínar eigin hendur
Færeyskir sjálfstæðismenn gera j>á kröfu nú að Færey-
ingar taki alla utanríkisverzlun sína í eigin hendur. Á-
stæðan er sú að þeir hafa misst mikilvægan markað í
Sovétríkjunum fyrir saltsíldina vegna þess að danska
stjórnin vill ekki gera verzlunarsamning við þau.
Clement Attlee
f ritstjómargrein í málgagni
Þjóðveldisflokksins í Faereyjum,
14. september, en ritstjóri þess
er Erlendur Patursson, er ný-
lega komizt svo að orði:
„Við vitum að Rússamir
voru ánægðir með þá síld sem
við seldum þeim í fyrra, svo
að allt ætti að vera í lagi. Við
vitum einnig, að Rússar hafa
keypt saltsíld af Skotum, Hol-
lendingum og íslendingum, eft-
ir að þeir neituðu að kaupa
okkar síld, svo að sú fullyrð-
ing að þeir hefðu þegar fengið
næga síld fær ekki staðizt. Hver
er þá ástæðan?
Hennar er að leita hjá þeim
manni sem ræður yfir utan-
ríkisverzlun okkar, þ.e. danska
utanríkisráðherranum. Hvað
honum og Rússum hefur farið á
milli vitum við ekki og fáum
sennilega aldrei vitneskju um
það. Sumir tala um olíuflutn-
íngaskip, aðrir um annað. En
þessi deila Dana og Rússa kem-
ur niður á okkur. Við megum
ekki selja síld okkar, af því
að Danir og Rússar deila, og
þess vegna vilja Rússar ekki
kaupa vörur frá Danmörku,
heldur ekki síldina okkar. Nú
vita færeyskir útgerðarmenn og
fiskimenn hvert þeir eiga að
senda reikninginn fyrir tekju-
missinn af síldveiðunum: Til
danska utanrikisráðuneytis-
ins..“
Blaðið segir ennfremur að á
þessu hafi Færeyingar ekki ráð
— þeir verði að segja skilið
við Danmörku og taka utanrík-
isverzlun sína í eigin hendur.
Vmstristjórri
í ísrael j
Ben Gurion, foringi sósíal-
demókratafiokksins Mapai i
Israel, er nú að ljúka við
stjórnarmyndun. Verður stjórn-
in sú vinstrisinnaðasta sem
setið hefur í ísrael síðan ríkið
var stofnað. Róttæku sósíal-
istaflokkarnir Mapam og Ahut
Avoda eru nú aðilar að ríkis-
stjórn í fyrsta slíipti. Jafnframt
hætta sósíaldemókratar stjórn-
arsamstarfi við hinn aftur-
lialdssama flokk bókstafstrú-
aðra gyðinga, sem leggur mdg-
ináherzlu á lagasetningu uni
strangt hvíldardagahald, bann
við svínarækt og lögfestingu
annarra boða Móselögmáis i
Israel. j."