Nýi tíminn


Nýi tíminn - 22.09.1955, Síða 5

Nýi tíminn - 22.09.1955, Síða 5
Fimmtudagur 22. september 1955 — NÝI TlMINN — (5 Sovétríkin afsala sér herstöð sinni á Sovétstjórnin skorar á öll önnur ríki að fara að dæmi hennar og leggja niður herstöðvar í öðrum löndiun Sovétríkin haía ákveðið að aísala sér her- og ílotastöðinni á Porkkalaskaga í Finnlandi, sem þau íengu til 50 ára með vopnahléssamningnum 1944 og munu flytja burt allt herlið sitt þaðan. Jafnframt hefur Búlganín, forsætisráðherra Sovétríkjanna, skorað á öll ríki, er herstöðvar hafa í öðrum löndum, að fara að dæmi Sovétríkjanna og flytja burt allt herlið sitt af erlendri grund. Frá þessu var skýrt í Moskva um þess, muni ríkin koma hvort s.l. laugardag eftir fyrsta við-! öðru til aðstoðar. Samningur- ræðufund þeirra Búlganíns og inn framlengist sjálfkrafa um Kekkonens, forsætisráðh. Finn- lands. Vegua bættra frioarhorfa Strax í upphafi fundarins sagði Búlganín, að þar sem frið- arhorfur hefðu batnað i heimin- um að undanfömu og sambúð og vinátta Finnlands og Sovétríkj- anna væri á traustum grundvelli áliti sovétstjómin nú mögulegt að afsala sér herstöðinni á Porkkalaskaga og flytja burt herlið sitt þaðan. Á því leikur enginn vafi, sagði Búlganín ennfremur, að ástand í alþjóðamálum myndi stórum batna ef önnur ríki færu að dæmi Sovétríkj- anna og legðu niður herstöðv- ar sínar í öðrum löndum. Siíkt myndi draga úr tor- tryggni og tryggja friðinn i heiminum. Þessi ákvörðun sovétstjómar- innar er í samræmi við allt starf ihennar til að draga úr viðsjám í iheiminum og bæta sambúð við önnur lönd, ekki einungis Finn- land heldur öll önnur ríki heims, sagði Búlganín. Sovétstjómin er þess fullviss að þessi ákvörð- un mun bæta mjög friðarhorfur í heiminum. Vináttusamningur framlengdur Þá spurði Búlganín hvort finnska stjómin myndi fús til að framlengja vináttusamning Finnlands og Sovétríkjanna, sem gerður var árið 1948 til 10 ára. Hann sagði að sovétstjórn- in áliti að samningurinn og framkvæmd hans hefði uppfyllt þær vonir sem stjómir landanna gerðu sér með hann, er hann var undirritaður; hann væri sá grundvöllur sem hin góða sam- búð og samvinna ríkjanna væri byggð á. Sovétstjórnin áliti því rétt að framlengja samninginn þegar hann rennur út árið 1958. Kekkonen þakkadi fyrir hönd stjómar sinnar og finnsku þjóð- arinnar hið rausnarlega boð sovétstjórnarinnar og sagðist vera á sömu skoðun og Búlgan- ín um nauðsyn þess að vináttu- samnmgurinn væri endurnýj- aður. í vináttusamningnum er m. a. gert ráð fyrir, að ef ráðizt yerði á Finnland eða árás gerð á Sovétríkin yfir finnskt land af Þýzkalandi. eða bandamönn- 5 ár, segi hvoragur aðili .honum upp með lögmætum fyrirvara. Nefnd skilar tillögum fyrir fund á morgun Tilkynnt var í Moskva í gær- kvöld, að samkomulag hefði orðið um að setja á laggirnar nefnd, skipaða fulltrúum beggja aðila, til að gera tillögur um nánari framkvæmdaratriði við brottflutning sovézka herliðsins og afhendingu herstöðvarinnar. Kom nefndin þegar saman á fund í gærkvöld og á hún að leggja tillögur sínar fyrir fund forsætisráðherranna á. morg- un. Þessum fréttum hefur eðli- lega verið fagnað mjög í Finn- landi. Fréttaritarar segja, að þær hafi komið mjög á óvart þar og svo hafi virzt í fyrstu sem Finnar tryðu þeim ekki. Brátt tók þó mannfjöldi að safnast saraan á götum úti í Helsinld og lét óspart í Ijós fögnuð sinn yfir endurheimt Porkkala og endurnýjun rín- áttusamningsins við Sovétríkin. Fagerholm, forseti þingsins, varð fyrstur stjórnmálamanna í Finnlandi til að láta í ljós fögn- URHO KEKKONEN, forsætisráðlierra Finnlands. uð sinn yfir fréttunum frá Moskva. Hann er sjálfur fæddur í Porkkalahéraði. I Svíar samíagna Finnum j Undén, utanríkisráðherra Svíþjóðar, varð fyrstur erlendra ' stjómmálamanna til að ræða gleðitíðindin frá Moskva. Sagði hann að Svíar hlytu að sam- jfagna Finnum með þau, en þetta væra gleðitíðindi fynr allar þjóðir heims, til þess fallin að bæta sambúð þjóða og draga úr stríðsóttanum. I 39 ár eftir aí samnings- tímanum ; Þegar samið var vopnahle milli Sovétríkjanna og Finn- lands árið 1944, fengu Sovétrík- in umráð yfir Porkkalaskaga til 50 ára og era því eftir 39 ár af samningstámanum nú, þegar Sovétríkin afsala sér herstöð- inni. Porkkalaskagi er um 20 km frá höfuðborg I'innlands, Hels- inki, og landsvæði það sem Sov- étríkin hafa haft til umráða er um 1.800 ferkilómetrar. Það var eitt frjósamasta landbúnaðar- hérað Finnlands og bjuggu þar um 12.000 manns, þegar Sovét- ríkin tóku við herstöðinni 29. september 1944. Þeir voru all- ir fluttir á brott og komið fyrir í öðrum héruðum Finnlands og fengu skaðabætur greiddar úr finnska ríkissjóðnum. Sovétrík- in hafa hinsvegar greitt 5 millj. finnsk mörk í leigu fyrir her- stöðina á ári. „Lengstu jarðgöng i Evropu Ein helzta járnbraut Finn- lands, milli Helsinki og Turku, liggur um Porkkala. I samn- ingnum frá 1944, sem síðar var staðfestur með friðarsamning- NIKOLAJ BÚLGANÍN, forsætisráðherra Sovéíríkjanna. unum 1947, var ekki gert ráð fyrir að Finnar fengju að nota jámbrautina, en frá áramótum 1947—1948 fengu Finnar rétt til þess, þó með ýmsum sldlyrð- um. Þannig varð að skipta um eimreiðir þegar ekið var inn í herstöðina og út úr henni, gluggar allir voru byrgðir og vopnaðir sovézkir hermenn gætu hvers vagns. Sögðu Finn- ar að í Porkkala væru „lengstu járnbrautargöng í Evrópu“. Verður James Griffiths eftirmaður Attlees? Morrison, Gaitskell og Bevan einnig til- neíndir. Brezk blöð telja ekki ólíklegt að James Griffiths verði fyrir vali sem eftirmaður Clement Attlee í forystu Verka- mannaflokksins brezka. Hefur blaðið News Cronicle átt tal við Attlee sjálfan um •málið, og kvaðst hann hafa full- an hug á að draga sig í hlé, af heilsufarsástæðum. Vænti hann þess, að á þingi Verkamanna- flokksins, sem halda á í Mar- gate, náist eining um yngri mann, hæfan til að gegna for- ystu flokksins. Sem eftirmenn Attlees eru helzt tilnefndir James Griffiths, Hugh Gaitskill, Herbert Morri- son og Aneurin Bevan og er ekki talið ólíklegt að Griffiths kunni að verða fyrir valinu, en hann hefur lítið komið við sögu í flokksdéilunum. Erlendur Patursson krefst að Færeyingar taki utanríkisvið- skiptin í sínar eigin hendur Færeyskir sjálfstæðismenn gera j>á kröfu nú að Færey- ingar taki alla utanríkisverzlun sína í eigin hendur. Á- stæðan er sú að þeir hafa misst mikilvægan markað í Sovétríkjunum fyrir saltsíldina vegna þess að danska stjórnin vill ekki gera verzlunarsamning við þau. Clement Attlee f ritstjómargrein í málgagni Þjóðveldisflokksins í Faereyjum, 14. september, en ritstjóri þess er Erlendur Patursson, er ný- lega komizt svo að orði: „Við vitum að Rússamir voru ánægðir með þá síld sem við seldum þeim í fyrra, svo að allt ætti að vera í lagi. Við vitum einnig, að Rússar hafa keypt saltsíld af Skotum, Hol- lendingum og íslendingum, eft- ir að þeir neituðu að kaupa okkar síld, svo að sú fullyrð- ing að þeir hefðu þegar fengið næga síld fær ekki staðizt. Hver er þá ástæðan? Hennar er að leita hjá þeim manni sem ræður yfir utan- ríkisverzlun okkar, þ.e. danska utanríkisráðherranum. Hvað honum og Rússum hefur farið á milli vitum við ekki og fáum sennilega aldrei vitneskju um það. Sumir tala um olíuflutn- íngaskip, aðrir um annað. En þessi deila Dana og Rússa kem- ur niður á okkur. Við megum ekki selja síld okkar, af því að Danir og Rússar deila, og þess vegna vilja Rússar ekki kaupa vörur frá Danmörku, heldur ekki síldina okkar. Nú vita færeyskir útgerðarmenn og fiskimenn hvert þeir eiga að senda reikninginn fyrir tekju- missinn af síldveiðunum: Til danska utanrikisráðuneytis- ins..“ Blaðið segir ennfremur að á þessu hafi Færeyingar ekki ráð — þeir verði að segja skilið við Danmörku og taka utanrík- isverzlun sína í eigin hendur. Vmstristjórri í ísrael j Ben Gurion, foringi sósíal- demókratafiokksins Mapai i Israel, er nú að ljúka við stjórnarmyndun. Verður stjórn- in sú vinstrisinnaðasta sem setið hefur í ísrael síðan ríkið var stofnað. Róttæku sósíal- istaflokkarnir Mapam og Ahut Avoda eru nú aðilar að ríkis- stjórn í fyrsta slíipti. Jafnframt hætta sósíaldemókratar stjórn- arsamstarfi við hinn aftur- lialdssama flokk bókstafstrú- aðra gyðinga, sem leggur mdg- ináherzlu á lagasetningu uni strangt hvíldardagahald, bann við svínarækt og lögfestingu annarra boða Móselögmáis i Israel. j."

x

Nýi tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.