Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 13.11.1929, Blaðsíða 10

Skólablaðið - 13.11.1929, Blaðsíða 10
M I N' N I ISLANDS. (Flutt á Jólagleöi Mentaskólans 28. des. 1P28) Vort fööurland, sem nyrst í úthafsöldum gegn öllu tjóni veitir skjól og hlíf, vort móöurland, sem "berö á hrjóstum köldum Þinn harnahóp, ert velferð hans og líf. pú unga land meö safn af fornum frœöum og frœgöaröld, sem aldrei gleymast má, ert töfraland meö glóöir elds í æöum, Þótt ísinn krýni hnúkafjöllin hlá. Þú fr&göarland, sem geymir Gunnars minning, varst Grettis fóstra, móöir hrennu-Njáls, Þú hefur Völuspá og Gylfaginning meö gullnu letri skráö - hins forna máls. £>ú hefur marga merka hluti' aö hjóöa, já, margt sem aöeins hefur geymst hjá Þjer, Því Þú varst skjöldur alls hins gamla* og góöa og griðastaöur Þess, sem norrænt er Jeg ann Þjer land með fjöllin himinháu og hjúpinn hvíta glæstum tindum á meö friösæld dala, f'jallavötnin hláu og fossins Þrumu niö í klettagjá. pjer hestu skáld vor hrós og heiöur sungu og hyltu Þig í lotning,' sagnadis. sem síösta hæli hinnar gömlu tungu meö höfuödjásn úr sólargyltum ís. En útlent kongsvald færöi Þig í fjötra, og frelsiö góöa af Þjer tekiö var, svo Þú varst látin hera hetlitötra. en höl og eymd Þitt móöurhjarta skar. En ekkert kæföi frelsisandann forna og framgjörn kynslóö mölhraut hlekki Þá, svo eftir sortann aftur tók aö morgna, og öldin dimma hvarf í tímans sjá. Og tíminn leiö en hækka tók Þinn hagur, Því horfin voru* hin drungafullu ský, Þá uppreis dýröarfagur frægöardagur og frelsissólin gamla skein á ný. Hún er Þaö ljós, sem hest kann okkur henda á hrautu Þá, sem vísar fram á leið. Min von er sú aö aidrei taki enda Þitt unga, nýja Þroska- og vaxtarskeið. Eftir Guölaug Larusson.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.