Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Qupperneq 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010
Legsteinarnir yfir Hallgrími Jónssyni og konu hans
Valgerði eru skakkir og nánast að falli komnir. Upp
að legsteini Valgerðar hallast laus plata með grafskrift
Vigfúsar Bjarnasonar Thorarensen, fy rri manns hennar.
A þessi tvö leiði eiga nýju, veglegu steinarnir frá Björg
Gunnarsdóttur, langömmubarni Hallgríms, að koma.
Framan við lcgsteina þeirra Staðarfellshjónanna,
Hallgríms og Valgerðar, eru hvítir marmaralegstein-
ar, yfir Boga Benediktssyni þeim mikla fræðimanni og
bónda á Staðarfelli og Jarðþrúði Jónsdóttur konu hans.
Þeir mega muna sinn fífil fegri. Þeir eru mjög illa farnir,
sprungnir og hálf sokknir í jörðu.
Ástralíu 1862-1870, í Ólafsvík og á Búðum 1870-
1879 og í Stykkishólmi 1879-97 þar sem hann kynnt-
ist Ingibjörgu langömmu Bjargar.
Holgeir var þingmaður Snæfellinga 1881-1885.
Hann var í Reykjavík frá 1897 til dauðadags 1901.
Hann átti fjölda barna með fjórum konum. Ingibjörg
gat heldur ekki haft Hjört son sinn hjá sér, en hann
mun hafa verið einhvern tíma á Staðarfelli hjá
Hallgrími og Sylveríusi hálfbróður sínum.
Vissi lítið
-Ég vissi ákaflega lítið um ættir mínar þegar ég byrj-
aði að grúska í þeim. Ég kunni ekki einu sinni að lesa
Ormsættina eða aðrar ættartölur sem að mér snéru.
En áhugi minn var vakinn og ég fór að afla mér upp-
lýsinga og grúska í gömlum skjölum og myndum.
Ég fann fullt af gömlum sögum og sögnurn, m.a. á
Ingibjörg langamma mín að hafa sagt að hún hefði átt
börn með tveim bestu mönnunum við Breiðafjörðinn,
þeim Hallgrími Jónssyni og Holgeiri Peter Clausen!
Það eru ekki allir barnsfeður sem fá slík lofsyrði.
-Ég vissi svo lítið um líf Ingibjargar langömmu
þar sem tengslin við Sylveríus afa minn rofn-
uðu strax í bernsku hans. En langamma var víða á
Fellsströndinni og gat fylgst með syni sínum úr fjar-
lægð. í sóknarmannatölunum sé ég að hún er komin til
Jónasar Jónssonar í Skógum á Fellsströnd árið 1889
og 1890 er hún hjá Hákoni Oddssyni silfursmið á
Kjarlaksstöðum í sömu sveit, en eitthvað hafði hún líka
verið á Kjarlaksstöðum í bernsku sinni. 1896 er hún á
Hallsstöðum en 1901 er hún komin að Knarrarhöfn í
Hvammssveit til Þorgils og Halldóru konu hans.
Mynd af langömmu
-Halldóra lést frá fjölda ungra barna árið 1909 og þá
var langamma honum til halds og trausts. Síðan var hún
á Breiðabólsstað hjá Steinunni Þorgilsdóttur og Þórði
Kristjánssyni manni hennar allt þar til hún dó 1930. Þær
Steinunn voru alla tíð mjög nánar. Flest það sem ég veit
um langömmu er kornið frá Breiðabólsstaðarfólkinu,
aðallega frá Guðbjörgu Helgu, dóttur Steinunnar, en
hún var níu ára þegar langamma dó.
-Hún sagði mér ýmislegt um hana, meðal annars
það að hún hefði verið mjög skemmtileg og kunnað
svo mikið af kvæðum og farið með þau fyrir þau börn-
in. Hún var þeim systkinunum mjög góð og var allt-
af að segja þeim sögur. Ég á Steinunni Þorgilsdóttur
líka það að þakka að til er mynd af langömmu minni,
ein einasta mynd, en hún er líka góð. Steinunn klæddi
langömmu upp í peysuföt af móðursystur sinni og tók
svo þessa frábæru mynd af henni.
-Guðbjörg Helga sagði mér líka að langamma hefði
átt rauðbrúna kistu sem hefði verið seld að Túngarði
eftir hennar dag. Þessi kista var hennar eina verald-
lega eign. Ég er að vona að hún sé á Byggðasafninu á
Laugum í Sælingsdal. Ég á eftir að athuga það.
-Ég er á kafi í að safna fróðleik um þessa forfeð-
ur mína, en það er margt erfitt og mikið fyrir hverju
skrefi haft, því nú er enginn lengur til að spyrja!
í þessum garði hvílir
Ingibjörg Sigríður
Marísdóttir
f 28. ágúst 1846
á Breiðabólstað
d. 4. febrúar 1930
á Breiðabólstað
Lit ég yfir liðna slóð,
leynist skuggi i slakka.
Gömlum vinum geislaflóð
og gæðin öll ég þakka.
S. Þ.
Guð blessi minningu þína
elsku amma, langamma
Legsteinn Ingibjargar Sigríðar Marísdóttur, langömmu
Bjargar Gunnarsdóttur, í kirkjugarðinum í Hvamnii
í Hvammssveit. Leiði Ingibjargar er týnt en steinninn
stendur undir stóru reynitré í miðju garðsins.
http://www.ætt.is
18
aett@aett.is