Landneminn - 26.06.1953, Blaðsíða 1

Landneminn - 26.06.1953, Blaðsíða 1
9. tbl. 26. J C N t 1953 7. árg. BURT MEÐ ERLENDA HERINN! ENGAN INNLENDAN HER! — eru vígorð íslenzkrar œsku íslenzk œskaí A sunnudaginn kemur, hinn 28. júni gefst þér tœkifœri til að refsa þeim þjóðsvikur- um, sem hleypt hafa bandaríska hernum inn í landið og koma í veg fyrir áform þeirra um stofnun innlends hers. Á sunnudaginn kemur þurfa hernámsflokkarnir að fá þau málagjöld, sem þeim eru makleg, og þann dag þarf hinni þjóðhollu fylkingu Sósíalistaflokksins og andspymu- hreyfingarinnar að vaxa svo styrkur, að unnt verði að hindra frekari þjóðsvik. Dvöl erlenda hersins í landinu stefnir hamingju þinni í voða. Þú átt að varðveita menn- ingararfinn, tunguna og öll okkar þjóðlegu einkenni, þú átt að gceta landsins, gœða þess og hagsœldar, en í tvíbýli við erlent herlið í landinu, sem er rétthœrra en þú, er vand- inn sem fylgir því að vera uppvaxandi íslendingur margfalt meiri en áður. Líf þjóðar- innar og framtíð er í þínum höndum. > Dvöl erlenda hersins og hernaðarframkvœmdir hans fœra allt efnahagskerfi lands- ins úr skorðum og í nánu samstarfi við forkólfa yfirstéttarinnar er verið að gera Is- lendinga að nýlendubúum að nýju. Þar með á að eyðileggja alla þína framtíðardrauma um fagnandi þátttöku í eðlilegu athafnalífi og farsœlu þjóðlífi á okkar kœra landi. Áformunum um innnlenda herinn er stefnt gegn þér. Innlendi herinn verður stofnaður, ef þú gœtir þín ekki í þessum kosningum. Ákvörðun er þegar tekin, og hún verður framkvœmd eftir kosningar. Hlutverk hersins verður að halda verkalýðnum í skefjum og brjóta á bak aftur þá andspyrnuhreyfingu gegn hernámi landsins, sem skapast hefur hin síðari ár. Þá verður þú kvödd til vopna og þér verður sigað á meðbrœður þína eins og hvítliða- skrílnum 30. marz 1949. Þeirri ógœfu verður þú að forða og þar við ligg- ur heiður þinn og manndómur. Þú verður að gera þér grein fyrir mikilvcegi og þýðingu þessara kosninga. Og þú verður að vita, að þú ert voldug og sterk. Þú getur ráðið úrslitum í kosningunum, ef þú fylkir þér um Sósíalistaflokkinn. Sósíalistaflokkurinn er eini flokkurinn, sem af einlœgni berst gegn hernámi landsins og innlenda hernum. Stefnumið hans eru mannsœm- andi lífskjör hins vinnandi fjölda til handa, þroskavœnleg uppvaxtarskil- Yrði og menntunarskilyrði unga fólksins, heilbrigt athafnalíf, sem bygg- lst á skynsamlegri hagnýtingu auðlinda og vinnuafls þjóðarinnar, frjálst °9 fullvalda ísland. Þessvegna hlýðir þú kalli íslands og k ýst Sósíalistaflokkinn. Hinn 30. marz 1949 var Islenzka þjóðln barln lnn I Atlantshafsbandalaglð. Tll barsmjðarinnar var notað kylfulið Heimdallar, sem nazistlnn Olafur Pétursson haíði æft vel og lengi. Kylíuliðíð óð áíram í gas- bombureyk á Austurvelll og barði á báðar hendur. Einn í hópnum, sem fyrir barsmíð- inni varð, var hinn vin- sæll útvarpsbulur Jón Múii Árnason. Seinna varð hann sakir ljúgvitna dæmdur af Hæstarétti i 6 mánaða fang- elsl og sviptur borgaraleg- um réttindum. Dóml Hæsta- réttar verður ekkl breytt né áfrýjað. Þess vegna hafa 28 búsund Islendlngar — þar á meðal stór hlutur reyk- Jón Múli viskrar æsku — krafizt bess að Jóni Múla og féiög- um hans verðl skilyrðislaust reitt full sakaruppgjöf. Bless- aður forsetinn má ekki vera að því að sinna slíkri belðnl, sem hann þó birtl í kosn- ingablaði sinu og Bjarni Benediktsson dómsmálaráö- herra vill ekki að sakarupp- gjöfin verðl veitt — og þvi fær Jón Múll ekki að kjósa núna til Alþingis. Reykvisk æska á að launa valdhöfum þessar réttarof- sóknar með þvi að neyta þess réttar, sem Jóni Múla er melnað að neyta, á þann hátt að slgur Sósíallsta- flokksins sé tryggður. Þess vegna kýs hún C-listann. Æskan kýs C-lisiann

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.