Unga Ísland - 01.01.1909, Blaðsíða 5
UNGá ísland.
3
Styrktarmenn Unga íslands.
forkell Erlendsson.
Öllum, sem vænt þykir um Unga ís-
land, verðurað þykja væntum styrkt-
ar menn þess. Dugnaði þeirra er það
að þakka að blaðið getur boðið þau
miklu hlunnindi er því fylgja. U. ísl.
Porkell Erlendsson.
flytur við og við myndir af þeim sem
skara fram úr og kemur þá Þorkell
Erlendsson frá Fremstagili í Langa-
dal. Hann er fæddur 23. ágúst 1890
á þeim bæ og hefur verið þar hjá
foreldrum sínum, en er nú nemandi í
gagnfræðaskólanum á Akureyri. Hann
útvegaði 41 nýjan kaupanda að blað-
inu 1907 og hlaut að verðlaunum
vandað vasaúr. Hann hefur einnig
leyst verðlaunaþrautir og haft mikinn
huga á að greiða fyrir blaðinu sem
bezt. Aftur á móti liefur svo illa og
ómaklega viljað til með þennan góða
vin vorn, að hann hefur lítið fengið
af verðlaunum þeim, sem honum
báru. Þetta verður raunar bætt und-
ir eins og samgöngur batna og hann
beðinn mjög velvirðingar á drættin-
um.
Sjeu fleiri, sem vanta verðlaun sín
gjöra þeir blaðinu mikinn greiða með
þvi að segja til þess sem fyrst. Blað-
ið vill standa í skilum. — Það hefur
skipt um afgreiðslustað þrisvar á einu
ári og útgefandinn verið á ferðalagi
erlendis. Auk þess hafa bæði útgef.
og afgreiðslumaður orðið að hafa
störfm við blaðið í hjáverkum. Þetta
veldur því,að fyrir geta komið vanskil á
verðlaununum. — En þetta stendur til
bóta. Eptir því sem kaupendur fjölga
verður liægt að leggja meiri tíma
fram lianda blaðinu og nú fjölgar
kaupendum árlega um rneir en liálft
þúsund.
Bestu þakkir öllum styrktar-
mönnum blaðsins.
Bi'jefaviðskipti. Blaðið vildi mjög
gjarnan standa í brjefaviðskiftum við
kaupendur sína, en enn sem komið er,
hefur ekki orðið .komist yfir að svara
nerna litlum hluta af brjefum þeim,
sem blaðinu berast liundruðum sam-
an. Kæru vinir, takið þetta ekki illa
upp, er þið þekkið ástæðurnar og
vilið ekki fyrir ykkur að skrifa uftur
ef að þið hafið áhugamál fram að
bera.
Georg Wasliiugton og íleira frá
fyrra ári kemst ekki að vegna rúm-
leysis í blaðinu að þessu sinni.
Býflugur.*
[Grein pessi er ágrip af ritgerð eptir
Gaston Bonnier, franskan háskólakennara
í grasafræði; hann er meðal frægustu
grasafræðinga Norðurálfu og fjelagi í vís-
indaQelaginu franska].
Nú á dögum er margt rætt og rit-
að um fjelagslif, eu í mannlegu lífi er
ekki hægt að finna þess fullkomin
dæmi. Meðal býflugna er aptur ágætt
færi til þess að rannsaka fjelagslíf út
í ystu æsar. Jeg ætla þvi að fara
’ Býflugnarækt er stunduð viða i heit-
um löndum. Fiugurnar gefa af sjer liun-
ang og vax. Náskyldar þeim eru hun-
angsflugur hjer á landi.