Unga Ísland - 01.03.1912, Page 2

Unga Ísland - 01.03.1912, Page 2
2 UNGA ÍSLAND „Unga Island” „ungmenrablað.” Sú breyting verður nú á blaði voru frá síðastl. nýári, að eg hefi ássett mér að gera það að »ungmennab/aði♦ í stað þess, er það áður var *myndablað handa börnum og unglingum.« Vera má, að margur ætli það vera orðbreytingu eina og eigi meira, þar eð börn og ungling- ar sé einmitt það, er vér köllum ung- menni með öðru nafni, enda verður því eigi neitað. — En fyrir mér vakir annað meira en orðabreyting tóm, vi! eg n.yna að skýra frá því í stuttu máli. »Ungmenuabiað« kalla eg nú blað vort, sökum þess, að eg ætla héðan af að láta það starfa á þeim grundvelli, sem sungmennafélög. vor eru stofnuð á, og i þeim anda, sem þeim er ætlað að starfa í til þess að ná því takmarki, sem allar þjóðir þrá: að verða hamingjusöm þjóð í farsælu landi. — Vil eg nú þegar geta þess, að allmargir mætir kaupendur »Unga ísl.« hafa minst á það við mig í bréfum, að æskilegt væri, að blaðið hefði hinn uppvaxandi æskulýð vorn fyrir augum og staríaði að þroskun hans og framför- um. Þótti mér einkar vænt um þær bendingar, því heitasta löngun mín hefir altaf verið sú að geta stutt að uppeldi ísl. æskulýðs á þann hátt, er eg tel best henta. Þangað til í haust síðastl. hafði ég með höndum ritstjórn *Skinfaxa« (blaðs Ungm.félaga fslands), og hefi eg þar borið fram ýmsar hugsanir mínar ogskoð- anir á »ungmennamálum« vorum. Lét eg því U. ísl. halda fyrri stefnu sinni, sem barnablað að mestu leyti, meðan eg hafði bæði blöðin undir höndum. Nú hefir hin nýja sambandsstjórn U. M. F. í. tekið við »Skinfaxa«, og heldur hann áfram sem áður og er í góðum höndum. Get eg nú því snúið mér aðallega að mínu eigin blaði og látið það flytja »huga« minn út um Iand alL Eigi er hætt við, að »U. í.« verði of- aukið sem ungmennablaði þó »Skinfaxi« sé fyrir, því fyrst er það, að sjaldan er góð vísa of oft kveðin, og svo einnig hitt, að blöðin munu í raun og veru starfa sitt á hvorn hátt og verða því hvert öðru til uppfyllingar. »Skinfaxi< er málgagn »Sambands U. M. F. í.c og flytur fréttir af störfum þess, ræðir mál þess o. s. frv. en »Unga /sland* mun ræða »ungmenna- málc frá almennu sjónarmiði, hvetja og leiðbeina og búa æskulýð vorn undir ungmennafélagsstarfið. — Hefi eg í huga ótal mörg »ungmennamálefni,« er mér hefir eigi enst tími til að koma á fram- fari, enn sem komið er. Og er þeim flestum þann veg farið, að þau snerta jafnt eldri sem yngri meðal þjóðar vorrar, því skoðun mín er og liefir frá upphafi ver.ð sú, að eigi »urigmennastarf« vort að ná tilgangi síuum, að verða til bless- unar landi og lýð, þá sé þess brýn nauðsyn, að »eldra fólkið* standi mannjamt að baki æskulýðnum og styðji hann að verki með ráðuin og dáð. Mun eg minnast frekar á þetta atriði síðar og benda í ýmsar leiðir að því takmarki, sem er oss nauð- synlegt til þjóðþrifa: samtök og samheldi! Eigi þurfa hiniryngri kaupendur »Unga íslands að óttast breytingu þá, er á blað- inu verður, og munu þeir einskis í missa. Þekki eg svo vel þroska og hugsunarhátt íslenskra barna og unglinga, að eg treysti mér vel að ræða jafnvel »háleit efni« svo þau skilji vel. Enda mun blaðið framvegisflytja myndir, gátur, sögur, kvæði heilabrot o. s. frv. — að »Orðabeignum« ógleymdum! Er nú »margt gott« fyri.r höndum, sem í hann á að fara, og þarf eigi að óttast, að hann fyllist á svipstundu! Veit eg vel, að í huga ísl. sveitabarna felst margt »g llkorn«, er vel á skilið að birtast jafnvel á betri stað en í »orða- belgnum, þó góður sé. — Og því skal eigi leyna, að það eru ungmenni íslands til sveita — er eg ber rnest fyrir brjósti sökum þess, hve þau eru einangruð og standa á ýmsan hátt miklu ver að vígi

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.