Unga Ísland - 15.07.1913, Qupperneq 5

Unga Ísland - 15.07.1913, Qupperneq 5
UNGA ÍSLAND 53 þekti ég, og þá varð ég fegin manneskja. Og þarna var hann kominn með 40 ísuspyrður á bakinu og hafði gengið þingmannaleið í því líku veðri frá því um morguninn, og vaðið fönnina jafnt og þétt upp í háls eða nef og hananú. Gvendur: Hvar er þetta *nef-hananú« á manneskjunni? Gudda: Hananú, hérnanú! þar slær aftur útífyrirþér. Æ, komdu nú, hrætötrið mitt, og kepstu við að tína, þaugað til húsbóndinn kallar. — — — — — — Gvendur: Hvar má ég vera, hvar má ég standa, hvar má ég liorta? Alt er fult með útilegumenn, stríðsmenn og sýslu- manninn og húsbóndann! Og svo þessi nýi stóri maður, sem hótaði að deyða mig, ef ég sækti ekki hana Ástu. Æ, ég skelf á báðum beinunum. — — — — Ásta: Hvað viltu? Hvað gengur 'að þér, piltur? Gvendur: Þú átt strax að koma fram í beitarhús til stóra, stóra mannsins. Hann ætlar að deyða mig. Ásta: Hvað segirðu,stóra mann? Deyða þig? Gvendur: Hann elti mig ógtiar—stóri úlilegumaður- inn og náði tnér við Trölla- gil, en gerði mér ekkert. Hann er eins sterkur eins og hinn var eða sterkari. Hann bar mig undir hend- intú yfir ána. Ásta: Ég skil þig ekki drengur! Þú segir hann vilji finna þig, hann vilji deyða Þ'g- Gvendur: já, farðu strax, hann vill finna þig. Ásta: Spurði nann þig einskis? Gvcndur: Jú, um mann- inn, sem fangaður var á grasafjaliinu, og bað mig fyrst að ná honum. Asta: Og hvað sagðir þú? Gvcndur: Ég sagðist ekki geta það, og þá sagði hann mér að sækja þig, annars dræpi hann okkur öll og brendi allan bæinn. Ásta: Eru hestar nærri? Er hann í fremri luísunum? Gvendur: Hann er í heimari húsun- um. Asta: Þá í Jesú nafni! Seg þú eng- um hvar ég er, — nei, komdu líka! Gvendur: Æ, ég þori ekki, ég skelf, en ég þori ekki að vera heima heldur, þeir kunna að hengja mig t ógáti. Skuggasveinn er alþekt leikrit eftir Matthías Jochumsson, það er fyrsta leik- ritið hans. Unglingum er Skuggasveinn kunnur, sérstaklega í kauptúnum landsins, því

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.