Unga Ísland - 15.07.1913, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 15.07.1913, Blaðsíða 6
54 UNQA ÍSLAND þar hefir hann verið leikinn ár eftir ár. í sveitum hefir leikritið verið lesið og er unglingum líka kunnugt þar, þótt þeir hafi ekki séð það leikið. Hér birtast tvær myndir úr Skugga- sveini, frá því er hann var síðast leikinn hér í Reykjavík. Á fyrri myndinni er Grasagudda og Gvendur smali og á síðari myndinni Ásta í Dal og Gvendur smali. Frú Stefanía Guðmundsdóttir leikur Ástu í Dal, ungfrú Guðrún lndriðadóttir leikur Gvend smala, en Árni Eiríksson kaupm. leikur Crasaguddu. H.J. •*> -----&----- Kenslustund í norskum barnaskóla. N. N. segir svo frá í norsku blaði 7. júní 1913: Fyrir nokkrum vikum var ég á ferð suður í Þrændalögum. Kom ég í skóla einn, sem ég hafði ekki komið í áður. Bað ég kennarann að lofa mér að sitja í kenslustund hjá sér. Hann varð við bæn minni og sagðist ætla að kenna móðurmál. Nú komu börnin inn, ég sá að þau voru 11 til 12 ára. Sungu þau sálminn sinn, áður en kenslan byrjaði, og þótti mér söngur þeirra fagur Þegar úti var söngurinn, tóku börnin upp ritæfingabækur sínar, og kennarinn byrjaði að tala við þau. Það sem þau rituðu, hafði aldrei verið skrifað áður né prentað. Það var samið þarna inni um leið. Kennarinn stýrði samtalinu. Börnin rituðu um snjóinn, ísinn, sólina, — það var glaða sólskin, — um ána, er rann um héraðið og margt, margt fieira. Ég gekk á milli og leit á hjá börnun- um. Þótti mér mikil furða, hve skýrt þau hugsuðu, hve vel þau orðuðu og hve rétt þau stafsettu. í lok kenslustundar, sungu börnin kvæði. Tíminn beið ekki, og ég varð að kveðja börn og kennara. Gaman væri að geta sagt þetta sama um íslensk börn á 11. og 12. ári. Það er mikilsvert að Iæra að rita móður- mál sitt og geta börn lært talsvert af sjáfum sér, með því að lesa góðar bækur og rit. En mest og best hjálpa góðir kennar- ar, og undir hendi þeirra eiga börnin að nota tímann vel. H. J. Oft er það sagt um hundinn, að hann sé áleitinn og ertinn, sérstsklega við þau dýr, sem eru honum minni máttar, en að sama skapi huglaus, ef hann þarf að verja sig, og það því fremur, sem hann hefir við meira ofurefli að eiga. Og þeir menn munu allmargir, sem telja hann aðeins hafa góð þeffæri og að hann sé allfylgispak- ur. Meira sjá þeir ekki. Að vísu eru það nú helst þeir menn, sem litla eftirtekt hafa veitt hundinum, er dæma hann þannig. Þegar menn dæma um dýr, vitsmuni þeirra, lunderni og háttu, verða menn að þekkja þau vel og hafa hugfast, hvort dýrið hefir sætt áhrifum frá manninum, og ef svo er, hvernig þau áhrif eru. Komi áhritin frá hendi mannsins í bága við lifnaðarhætli dýrsins meðan það var vilt, breytir það dýrinu mikið, og oftast til hins verra. Hundurinn hefir í fjölmargar aldir sætt mjög illri meðferð af manninum. Hann hefir heimtað af hundinum meiri vinnu, en hann hefir verið fær um að vinna og látið hann eiga mjög ílt atlæti. Á allmörgum heimilum er enginn, sem skeytir neitt um hundinn. Það er ekki einu sinni hugsað um að sletta einhverju í hann, en finnist mönnum hann fyrir, dynja skammaryrðin yfir hann, og þeir

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.