Unga Ísland - 15.07.1913, Page 7

Unga Ísland - 15.07.1913, Page 7
UNGA ÍSLAND 55 sem mest vilja láta til sín taka, sparka dug- lega í hann, ef þeir ná til hans. Auðvitað eru undantekningar frá þessu, því fjölmörg heimili láta sér ant um að fara vel með húsdýr sín. Affur á móti gjöra flestir sér það að skyldu að siga hundinum á alt lifandi, sem menn koma auga á, hvort seppa er það ljúft eða leitt, eða hvort hann getur ráðið við það eða ekki. Um það er ekki fengist. Það kemur stundum fyrir, að seppa er vel til dýra, sérstaklega ungviða. Maðurinn fer ekki að því og sigar honum engu síður á þessi dýr en önnur. Gegni seppi ekki, sætir hann þungri refsingu. Séð hefi ég spakur, að hann má helst aldrei sjá af honum. Hann tekur öllum skynlausum skepnum fram að trygð og minni. Ef á húsbónda hans er ráðist, ver hann hann með aðdáanlegu hugrekki, meðan fjörið endist. Að hundurinn sýnir ekki altaf hraust- lega vörn, þegar á hann er ráðist, kemur til af því, að harin er friðsamur og vill ekki eiga í ilhlyndum að óþörfu. Af þessu gætu mennirnir mikið iært. Og ekki finst mér að undra, þó hundurinn veigri sér við að eiga í illu við manninti, ef ann- ars er kostur, við jafnmikið ofurefli, sem þar er að etja. það eitt sinn, þegar átti að reka kálfa úr túni og seppa var sigað á þá, að hann fekst ekki til að fara. Maðurinn barði hann fyrir þrjóskuna, en það kom fyrir ekki. Seppi labbaði þá aðeins til kálfanna og stóð svo hjá þeim og hafðist ekkert að, en við fullvaxna nautgripi var hann illskeytinn. Seppa hefir ekki fundist gust- uk að áreita óvitana litlu. Það eru einmitt einkenni hundsins, að hann er mjög skynugur. Hann velur sér fyrir vin, þann mann, er hann finnur hjá innilega vináttu, og er fljótur að finna í hvaða huga við hann er búið. Hús- bónda sínum er hundurinn svo fylgi- Þú ntyndir kalla þann mann heimskan, sem ætti í ófriði við 4—6 sfna líka, en hjá hundinum kallarðu það hugleysi. 111 meðferð á hundinum gjörir hann skap styggan og ertmn, en að upplagi er hann það ekki. Frh. y. b. Hérar og froskar Þýtt. Langa lengi hafði veiðimaðurinn of- sótt hérana. Þeir komu sér því saman um að fyrirfara sér, af ótta við hann. Þeir

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.