Unga Ísland - 15.07.1913, Síða 8
56
UNGA ISLAND
gengu nú niður að tjörn nokkurri, stað-
ráðnir í að drekkja sér í henni. En á
tjarnai bakkanum sátu nokkrir froskar. Þeg-
ar þeii sáu hérana, urðu þeir Iafhræddir
og stukku út í vatnið, til að forða lífi
sínu. Þá glaðnaði yfir hérunum og einn
þeirra sagði: »Þetta sýnir Ijóslega að allir
eiga við eilthvað að stríða, og margir
við miklu meiri raunir en við. Einhvern
tíma linnir ofsóknunum sem nú skelFa
okkur og þá Ifður okkur betur en nú.«
Hinir hérarnir féllust allir á þetta og
nú fanst engum þeirra ástæða til að
drekkja sér. Og þeir skundtiðu aftur til
skógar. M. J.
~m
Jundrað dra.
Það er ekki ómögulegt að verða 100
ára, en ætlir þú þér það, lesari góður,
verðurðu að halda þessi boðorð:
1. Gættu hófs bæði í mat og drykk.
2. Neyttu fæðu, sem er nærandi, en ekki
skaðleg.
3. Andaðu að þér hreinu lofti.
4. Þvoðu líkama þinn, og óhreinkaðu ekki
sálina.
5. Reiðstu aldrei.
6. Elskaðu starfsemi; Ietinginn verðuraldr-
ei hundrað ára.
7. Farðu snemma að hátta og sofðu eins
lengi og þú þarft.
8. Kjós þér góðan förunaut á lífsleiðinni,
en ekki of snemma.
Stríðið á Balkanskaganum.
Stjórnvitringur í Serbíu hefir reiknað
út, hvað stríðrð hefir kostað Balkanríkin.
Yfirlit þetta birtrst í einu Wienarblað-
anna.
Búlgaríu kostaði stríðið 450 mill.franka
Serbíu — — 402 — —
Grikkland — — 250 — —
Montenegro — — 54 — —
í frankanum eru 72 aurar.
Löndin sem þessar þjóðir hafa unnið
eru margfalt meiravirði en það, sem Balkan-
þjóðirnar hafa lagt f kostnað.
geikföng
heitir kver eitt, sem nýlega er komið
út. í því eru smásögur frumsamdar.
Tuttugu heilsíðumyndir eru í kver-
inu ogein smærri; fylgir mynd hverri
sögu.
20 aura af hverri bók fær sá,
sem tekur að sér að selja 3 til 10
eintök og 25 aura af bókinni fá þeir,
sem selja yfir 10 eintök, en borgun
verður að fylgja pöntun.
Hverjir vilja nota tækifærið?
Leikföng fást við Nýlendugötu 23
og Grundarstíg 3.
Verð 1 króna.
Unga Island
þakkar áreiðanlegum kaupendum
viðskiftin og sertdir þeim myndina,
er heitið var fyrir skilvísi.
Unga ísland fæst við Grundarstíg 3.
Þangað geta mertn súnið sér með ýms
erindi viðvíkjandi blaðinu.
Þar fást allir árgangar þess, þar eru tit
ýmsar barnabækur, og þar fást bréfspjöld.
Skrifstofa Unga íslands
Grundarstíg 3.
Hallgr. Jónsson, Steingr. Arason.
Frá 1. jan. 1913 greiðist allar skuldir
blaösins, gamlar og nýjar, til Jörundar
Brynjólfssonaþ, Ný[endugötu 23. Kaup-
endur eru alvarleg'a mintir á aö snúa
sér eingöngu til hans með
greiðsluna.
Nýir kaupendur að Unga íslandi
snúi sér til undirritaðs, með pöntun
biaðsins.
Jörundur Brynjólfsson
Nýlendugötu 23.
Útgefendur: Þrímenningarnir.
Prentsraiöja D. ÖitlumU.