Unga Ísland - 01.06.1924, Síða 2

Unga Ísland - 01.06.1924, Síða 2
42 UNGA ÍSXAND bera hlýjan hug til hins unga konungs. En ekki leið á löngu áður en þeir rjeð- ust á Karl að óvörum. Þá var Karl 18 ára að aldri. Hann var á veiðum, er honum barst hersagan. Hann var alveg óviðbúinn. Hann var sjálfur svo dreng- lyndur, að hann gat ekki ætlað öðrum svik. En upp frá þessu treysti hann aldrei þessum nágrönnum sínum, þar sem þeir einu sinni höfðu svikið hann. Fyrst snerist hann gegn Friðrik IV, Danakonungi. Þegar hann steig á land á Sjálandi hvinu kúlur óvinanna í kring- um hann. »Við þennan söng mun jeg una upp frá þessu«, varð honum að orði. Stóðst Friðrik honum ekki snún- ing og varð þegar að semja frið. Sner- ist hann þá gegn Pjelri mikla, tsar1) á Rússlandi. Pjetur hafði aðsetur við Narva og hafði 50 þúsund manns. En Karl kom til móts við hann með 8 þús. manns. Herforingjar hans vildu bíða eftir liðsauka. En Karl vildi berjast þegar. »Jeg hefi guð min megin og góðan mál- stað«, sagði hann. Svo varð jafnan að vera sem hann vildi. í kafaldshríð hjelt hann liði sínu móti hinum rússnesku fylkingum. Hríðin stóð Rússum í fangið og gerði þeim óhægt. En þegar fylking- arnar mættust stytti upp. SIó þá ótta á Rússa, því þeir höfðu ekki búist við áhlaupinu, og tvístruðust þeir víða, fjellu í hópum og flýðu unnvörpum. Karl 12. gekk sjálfur fram eins og berserkur. Þegar kvölda tók og ekki sást lengur til að berjast, íleygði konungurinn sjer niður í öllum vosklæðum við eitt bálið, sem hermenn hans kveiktu, lagði höf- uðið í kjöltu óbreitts hermanns og var þegar sofnaður. Sigurinn var mikill. 1) Svo nefndu Rússar keisara sinn. »Tsar« er stytting úr Gæsar = keisari. Frægð Karls 12. flaug út um Evrópu. Pvert ofan í ráð herforingja sinna hafði hann gert áhiaupið og sigrað þó fimm Rússar væru um einn Svía. En sigur- inn varð þó dýrkeyptur, því upp frá þessu fór Karl 12. sjaldnast að ráðum herforingja sinna og fyrirleit Rússa. — Pað kom síðar á daginn, að Karl 12. hefði betur fylgt sigrinum eftir og gengið frá Rússum til fulls, en f þess slað snerist hann nú gegn Ágúst sterka, Pólverjakonungi, er hann taldi skæð- astan óvina sinna. Á einu ári vann Karl 12. þrjár stórar orustur. Vildu þá óvinir hans semja frið. Pegnar hans voru þess og fýsandi. En Karl 12. sagði: »Jeg get ekkert trausl borið til þeirra, sem einu sinni hafa svikið mig«. Hann taldi því til einskis að gera við þá friðarsamning og vildi ekki hætta ófriðnum fyr en búið var að ganga milli bols og höfuðs á óvin- unum. í þrjú ár barðist hann í Póllandi og tókst að lokum að kúga þjóðina til að segja Ágúst sterka upp hlýðni og hollustu. Pá kostaði það önnur þrjú ár að fá Pólverja til að taka þann kon- ung, er Karl 12. vildi, og festa hann í sessi. En Karl taldi það ekki eftir sjer. Herinn bjó oft við þröngan kost á þeim árum. En konungurinn þoldi kulda og hungur eins og hver annar. Pess vegna kvartaði enginn. í hörku frostum bjó hann í tjaldi, sem hitað var upp með glóandi fallbyssukúlum. Hann drakk aldrei vin, heldur eingöngu vatn og mjólk. Pegar hann var ungur, hafði hann einu sinni drukkið sig fullan, og orðið sjer til skammar með drykkjulátum. Pá hjet hann að drekka aldrei vin framar. Pað heit hjelt hann meðan hann lifði. Karl 12. sveik hvorki sjálfan sig eða aðra. Pegar Karl 12. hafði gjörsigrað Pólverja

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.