Unga Ísland - 01.06.1924, Qupperneq 4

Unga Ísland - 01.06.1924, Qupperneq 4
44 UNGA fSLAND Nú voru eftir ein 18 þúsund, lang- þreyttir menn og klæðlitlir, illa búnir að vopnum og öllum hergögnum. En verst var þó, að Karl 12. hafði særst á fæti af skoti og Iá mjög þungt haldinn. Pjetur tsar hafði 45 þúsuDd manns, vel búna að klæðum, vopnum og matvæl- um. Þeir höfðu og gott vígi. Svo ærið var leikurinn ójafn. Fylkingarnar sigu saman og sló í blóðugan bardaga. Gerðust þá mörg tiðindi í senn og væri of langt frá að segja. Karl 12. þoldi ekki við á sjúkrabeðnum. Hann var fluttur á kviktrjám1) í bardagann. Þar lá hann með brugðið sverð í höndum og eggjaði lið sitt. En ekkert stóðst við ofureflinu. Kúlur óvinanna hittu kvik- trjen. Alt í kring fjellu menn hans. Óvinirnir áltu ekki eftir méir en 50 fel að börunum, þegnr menn hans tóku hann, nauðugan þó, og lyftu honum á hestbak. Komst hann undan riðandi og ljet veika fótinn liggja á söðulnefinu, en sárabindin flögruðu fyrir vindinum. Karl 12. hafði beðið fullnaðar ósigur. En Pjetur tsar sagði: »Nú stendur Pjetursborg óhagganleg«. Hann hafði þá með þrautseigju sinni og dugnaði unnið lönd af Tyrkjum við Svartahaf, en Svíum við Eystrasalt. Að því hafði hann stefnl frá því hann var ungur, lil þess að geta eignast herskipaflota og efll samgöngur milli Rússlands og hinna miklu mcnningarlanda. (Niðurlag í næsta blaði). st Gerðu pað ckki öðrum, seru þú vill ekki að þjer sje gert. Dæmdu ekki aðra hart. 1) Sjúkrabörur, scm hestar bera. Fróðleikur. Uppfnntlningar. Hamarinn eða sleggjan mun vcra fyrsta áhaldið sem mannkynið fann upp á að nota. Hversu langt er siðan veit enginn, en um hundruð þúsundir ára hefir mannkynið streitast við að finna upp tæki til að gera vinnuna ljettari og fjölga frístundunum. Mest hefir miðað áfram á 19. öldinni. Þá voru fundin fleiri á- höld, tæki og vjelar en á öllum öðrum öldum samtölum. Hinar mikilsvcrðuslu uppgötvanir, svo sem að nota eldinn í þjónuslu mannanna, aö íleyta sjer yfir sjóinn o. fl., hafa þó verið gerðar fyrir æfalöngu. Þráfaldlega hafa menn látið MtCCrtNO Mekkano-vigvjel. sjer nægja að kúga aðra til að vinna fyrir sig í slað þess að reyna að temja náttúruöflin og láta þau afkasta erfiðinu. En nú orðið er ekkert þrælahald hjer í Norðurálfu, enda hefir vinnuaðferðum aldrei fleygt eins fram og á sfðustu öld- inni, eins og áður var sagt. Vindurinn, vatnið og eldurinn hafa nú verið hneptir í þrældóm og vinna nú það sem áður þurfti þúsundir þræla til að afkasta. Náttúruöflin eru stcrkari en þursarnir í þjóðsögunum. Gufuvjelin er látin reka flestar aðrar stórar vjelar. Hún knýr vefstóla, sög- unarvjelar, eimreiðarnar og stærstu skipin

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.