Unga Ísland - 01.06.1924, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.06.1924, Blaðsíða 6
46 UNGA ÍSLAND draga heila lest af þungum vögnum eftir teinum. Það köllum við eimreið. En nú á síðustu árum hafa hreyfivjelar verið settar í vagna, sem geta farið hvaða veg sem er. Það heita bifreiöar og er hin besta samgöngubót. Þá má ekki gleyma loftförum og flugvjelum. Nú má því svo segja, að menn geti farið loft, láð og lög eins og galdra- menn forðum, með slíkum hraða að ljón, örn og stórhveli mega öfundast yfir. Álíka stórstígar hafa framfarið verið á mörgum öðrum sviðum, en hjer varður ekki fleira talið en samgöngu- lækin. Á líkan hátt og fullorðnir menn starfa leika börnin sjer. í sveitum eru kjálkar og leggir hafðir fyrir kýr og hesta. Við sjóinn er hver spíta höfð fyrir bát. Á þessari vjelaöld er mjög farið að tíðkast leikfang, sem nefnist »mekkanó«. t*að eru stálfjaðrir, hjól, skrúfur og rær, sem setja má saman með margvislegu móti, eins og myndin sýnir. Þetta leikfang er hið gagnsamlegasta, því það eflir ímyndunarafl barna og úlsjónarsemi. Hver veil nema það geti átt sinn þátl í að ala upp uppfundningamenn og vjelfræðinga meðal vor íslendinga. — (Ottó B. Arnar, Reykjavik útvegar leik- fangið hverjum^ sem þess óskar). SL Varastu aö vcrja fyrri hlula æfinnar til þcss aö ónýla seinni lilula hcnnar. Sá, sem metur mcira peninga heldur cn sóma sinn, hann er livorki vcrður fjár njc sóma. s& Frjettir. Fiskiranusóknir. í sumar rekur danskt skip fiskirann- sóknir hjer við land. Fiskiveiðar eru arðsamasti atvinnuvegur þjóðarinnar og biða því margir með óþreyju eftir á- rangrinum. Bjarni Sæmundsson, sem er einn af ágætustu fiskifræðingum Norð- urálfunnar, verður með skipinu, en for- maður fararinnar er dr. Schmidt, sem er frægur maður fyrir rannsóknir sínar. Lengi var það ókunnugt hvar állinn hrygnir. En dr. Schmidt hefir nýlega leyst þá gátu eftir langar og örðugar rannsóknir. Hann hefir fundið að áll- inn hrygnir sunnarlega í Atlantshafinu móts við Mið-Ameríku langt úli á hafi á nokkuð stóru svæði. Þegar álsseyðin koma úr hrogninu eru þau þunn eins og hnifsblað. A þriðja ári eiu þau bú- in að fá álslögun. Pá eru þau gagnsæ og nefnast gleráll. Þá ganga þau upp í ár og stöðuvötn. F*egar þau rekast á fossa skríða þau eins og ormar upp eftir rökum klettunum, og milli tjarna kom- ast þau yfir þurt land, einkum þegar rigningar ganga, rjett eins og hornsilin. Síðan lifir állinn í ósöllu vatni þar til hann er orðinn 15 til 17 ára, en þá gengur hann til sjávar og fer alla leið til hrygningarstöðvanna. Þar hrygnir hann og deyr að því loknu. Állinn er merkilegur fiskur og ferðast lengra um sína æfidaga en flestum mönnum auðn- ast. — Schmidt hefir áður verið við rannsóknir hjer við land. Þá fann hann margt nýlt um sögu þorsksins. Forskur- inn gengur síðari hluta vetrar upp að Suður- og Veslurlandinu og hrygnir þar. Hrognin fljóta á yfirborði og berast með vindi og straumi. En í kringum ísland

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.