Unga Ísland - 01.01.1926, Blaðsíða 3

Unga Ísland - 01.01.1926, Blaðsíða 3
Tryggvi Magnússon, listmálari. c, ■■ Haustið 1916 kom í Gagnfræðaskól- ann á Akureyri pilt- ur að nafni Tryggvi Magnússon, ættað- ur úr Strandasýslu, bróðursonur Stefáns skálds frá Hvítadal. Hann var fátæk- lega búinn og ljet ekki mikið yíir sjer, en við nánari kynn- ingu komu í ljós hjá honum miklar sjer- gáfur og einkennilega staðgóð þekking á ýmsu þjóðlegu, sem virtist hafa mótað skaplyndi hans meira en títt er um ung- linga á þeim aldri. Skólanámið gekk honum greiðlega, því að hann var bæði greindur og fróðleiks- fús. En þar sem flestir aðrir Ijetu sjer Dægja að lesa undir tímana, Ijet hann ekkert færi ónotað til þess að afla sjer víðtækari fróðleiks, sem að vísu heyrði ekki undir skólanámið, en miðar eigi að síður til þess að þroska manninn. Þannig byrjaði hann í Gagnfræðaskól- anum að lesa bæði þýsku og latínu, þó að það væru ekki skyldu námsgreinar. Ein námsgrein var það þó, sem engum tjáði að þreyta við hann, og sem hann hafði meiri leikni í þegar hann kom i skólann, heldur en ílestir aðrir, þegar þeir fara þaðan eftir þriggja vetra nám. Sú námsgrein var teikning. það var eigi aðeins, að hann skaraði fram úr öll- um öðrum í því að teikna og mála með vatnslitum eftir ýms- um fyrirmyndum, sem var aðallega kent þar í skólanum, heldur teiknaði hann og málaði myndir af ýmsum at-

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.