Bændablaðið - 30.08.1995, Síða 10
10
Bændablaðið
Miðvikudagur 30. ágúst 1995
Árangursríkt fjárval
Nauðsynlegl é nýta all-
ar tiltækan upplýsingar
Um langt árabil hefur verið venja
að birta á haustin upplýsingar um
einkunnir hrúta á sæðingar-
stöðvunum eins og þær hafa verið
á hverjum tíma.
Við árangursríkt fjárval er
nauðsynlegt að nýta allar tiltækar
upplýsingar. Afkvæmi og afkom-
endur hrúta á sæðingarstöðvunum
eru þeir gripir sem hvað mest
athygli beinist að hverju sinni í
fjárvalinu af skiljanlegum ástæð-
um. Þess vegna er nauðsynlegt við
hauststörfm að hafa við hendina
nýjustu upplýsingar. Þessar upp-
lýsingar birtast því hér.
Eins og áður eru upplýsingar
birtar í töflu og er form hennar það
sama og verið hefur undanfarin ár.
Upplýsingar innan sviga eru upp-
lýsingar úr heimafélagi. Allar
aðrar upplýsingar eru um afkvæmi
tilkomin við sæðingar. Þær tölur
sem birtast eru allar upplýsingar
sem fyrir liggja um afkvæmi við-
komandi hrúts. Samanburður við
dætraeinkunn hrútanna sérstaklega
Á dögunum voru staddir hér á
landi fulltrúar danska loðdýrasam-
bandsins og uppboðshúsins í
Kaupmannahöfn. Þetta voru þeir
Torben Nielsen forstjóri og Mikael
Santin sölu- og umboðsmaður er-
lendu loðdýrabændanna sem selja
loðskinn hjá uppboðshúsinu ‘Til-
gangurinn með komu okkar er að
segja frá sölumálum og horfum á
markaðsvæðum og samvinnu á
alþjóðasviðinu og nýjungar í sölu-
málum,” sagði Torben Nielsen í
samtali við Bændablaðið en þeir
félagar héldu þrjá fundi með
íslenskum loðdýrabændum. í för
með þeim var Arvid Kro, starfs-
maður SÍL.
Sala og markaósmál
Um þessar mundir er heims-
framboð á minkaskinnum um 24,5
milljónir og 3,4 milljónir refa-
skinna. Þetta er um helmingurinn
af því sem var á heimsmarkaði á
árunum 1987-89 þegar framboð
var í hámarki.
í máli Dananna kom fram að
nú er um helmingur alls loðskinns-
fatnaðar, sem seldur er í
heiminum, saumaður í Kína eða
S.-Kóreu. Ástæðan er einfaldlega
sú að vinnulaun á þeim slóðum eru
aðeins brot af því sem þekkist á
Vesturlöndum en mánaðarlaun
þeirra sem sauma eru um 10
þúsund krónur íslenskar! Fjórð-
ungur fatnaðar úr loðskinnum er
saumaður í Grikklandi og afgang-
urinn dreifst víða um heim. Af-
kastageta stóru verksmiðjanna í
Kína og S.-Kóreu hefur aukist og
afgreiðslutími styst.
Vinnulaun við að sauma eina
kápu í Danmörku um 150.000
íslenskar krónur en laun vegna
samskonar kápu eru um 35 þúsund
í Grikklandi og 17 þúsund í Kína.
Danirnir sögðu að á síðustu fimm
árum hefði eftirspum á eldri
markaðssvæðunum minkað um
fyrir árið 1994 sýnir yfirleitt engin
frávik sem virðast skipta máli.
Margoft hefur verið bent á að
ekki er ástæða til að leggja mjög
mikla áherslu á einkunn fyrir
þunga lamba. Allir hrútar sem
koma til notkunar á stöð eru áður
reyndir að því að skila hið minnsta
viðunandi vænleika (yfirleitt mjög
góðum) hjá afkvæmum sínum. Að
vísu kemur fram allmikill væn-
leikamunur afkvæma hrútanna.
Þar vekur sérstaklega athygli
mikill vænleiki lamba undan hrút-
unum frá Hesti sem áttu sín fyrstu
afkvæmi eftir sæðingar haustið
1994 ( Deli 90-944, Gosi 91-945
og Keli 89-955).
Mikilsverðustu upplýsingamar
úr skýrsluhaldinu eru tvímælalaust
þær sem fást um dætur hrútanna.
Eins og áður hefur verið bent á þá
þarf að hafa eðlilega fyrirvara um
einkunnir hrúta sem eingöngu eiga
veturgamlar ær sem mynda grunn
að einkunn en það á við um alla þá
hrúta sem áttu fyrstu afkvæmi úr
helming en eftirspum í löndum
eins og Kína, S.-Kóreu og
Rússlandi hefur aukist til muna.
og útlit er fyrir enn meiri aukningu
á næstu ámm. í þessum þremur
löndum er mikil hefð fyrir notkun
á skinna.
Framleiðsla á loðskinnum í
Rússlandi hefur minkað úr 17 í um
5 milljónir skinna vegna hmns á
samgöngukerfí og verðbólgu.
Gert er ráð fyrir að Rússa vanti
nokkrar milljónir skinna á næstu
ámm. Efnahagsbati t.d. á
frísvæðum í Kína er umtalverður. í
Shanghai - svo dæmi sé tekið - em
leðurjakkar með loðskinnskrögum
mjög vinsælir og em þeir
framleiddir í millj. tali.
Frá því að uppboðið var haldið
í júní hefur verið mikil eftirspum
eftir loðskinnum og verð hefur
hækkað um 10% og sögðu þeir
Torbens og Mikaels að allt benti til
að verðlag yrði gott á uppboðum í
september. Þeir sögðu að verð
fyrir minkaskinn væri á uppleið en
refaskinnum hefur fjölgað um 15-
20% milli ára. “Það er því svolítil
óvissa hvað varðar uppboð í
febrúar á næsta ári. Jafnvel em
horfur á einhverri verðlækkun á
árinu.”
Á septembemppboðinu í
Kaupmannahöfn verða boðin upp
refaskinn. Mikael sagði að þetta
væri í fyrsta skipti sem slíkt
gerðist. Hann gat þess líka að
undanfarin tíu ár hefði uppboðið í
september gefið í 9 af 10 tilfellum
hæsta verð á 1. fl. skinnum og taldi
sölunefndin rétt að prófa að selja
um 10% af innsendum refaskinn-
um í september. Þar að auki verða
boðin um 2,9 milljónir minka-
skinna. Takist að selja þau kemur
upp sú staða að allar birgðir
Norðurlöndunum verða uppumar.
“Ég vildi þakka fyrir gott
samstarf SÍL, loðdýrabændur og
forsvarsmenn BÍ undanfarin ár,”
sagði Torben.
sæðingu fædd vorið 1993. Þurfi
einhverjir að leita upplýsinga þar
um er bent á greinar í Sauð-
fjárræktinni eða Handbók bænda.
Mikill meirihluti hrútanna sýn-
ir ákaflega góðar niðurstöður fyrir
dætur. Samt má nú greina mis-
jafnari niðurstöðu í þessum efnum
en verið hefur nokkur undanfarin
ár. Áður hefur hins vegar verið
bent að val á hrútum á stöðvamar
hefur allmikið breyst á síðustu
ámm. Mesta breytingin er sú að
áhersla hefur verið lögð á að ná til
notkunar á stöðvunum ungum
hrútum sem fengin er góð reynsla
á sem lambafeður. Þar hafa niður-
stöður ómsjármælinga komið að
miklum notum til að meta
afkvæmi ungu hrútanna allra
síðustu ár. Einnig er aukin áhersla
lögð á mælingar á föllum lamba
undan þeim í afkvæmarannsókn-
um. Þetta hefur hins vegar leitt til
að þessir ungu hrútar em af
skiljanlegum ástæðum ekki reynd-
ir sem ærfeður. Þar verður valið að
byggja á ættemi. Allir þekkja hins
vegar að það val hefur aldrei nema
takmarkaða nákvæmni. Þess vegna
má ætíð vænta þess að það bregði
til beggja vona. Þetta má greini-
lega merkja á niðurstöðum nú. Þeir
hrútar sem þama valda ef til vill
mestum vonbrigðum að þessu
sinni em Vaskur 90-937 og Þéttir
91-931 þó að ástæða sé til að
benda á að þetta em eingöngu
niðurstöður um veturgamlar ær.
Þegar þetta er skrifað er lokið upp-
gjöri frjósemisupplýsinga fyrir um
13.000 ær frá vorinu 1995 en þær
bæta því miður ekki stöðu um-
ræddra hrúta. Að öðm leyti em
ekki í þeim niðurstöðum fram
komnir neinir hlutir sem hægt er
að leggja áherslu á.
Enginn hrútur hefur fengið jafn
mikla notkun hér á landi og Kokk-
ur 85-870 frá Hesti sem var felldur
eftir notkun í vetur þá á 10. vetri.
Þeir sem vel þekkja þessar niður-
stöður sjá að tölur þær sem hér
birtast um dætur hans em eldri
upplýsingar. Hins vegar þá em
niðurstöður frá haustinu 1994 fyrir
um 800 dætur hans nokkm betri en
það sem hér kemur fram. Hina
góðu niðurstöðu um dætur fær
hann vegna góðrar frjþsemi þeirra.
í sumum hémðum hef ég orðið var
við staðhæfingar um áð dætur hans
væm ekki nægjanlega mjólkur-
lagnar. Til að kanna þetta nánar
var skoðuð dreifing á afurðastigi
hjá rúmlega 700 dætmm hans sem
fengu það reiknað haustið 1994.
Þær niðurstöður sýna meðaltal
4,98 og er því augljóst að þær
liggja þama örlítið undir meðaltali.
Aðrir kostir afkvæma hans em
hins vegar það miklir að óhaggað
stendur að hann er einn mesti kyn-
bótagripur sem enn hefur komið til
nota þó að flest bendi til að margir
af yngri hrútunum frá Hesti standi
hinum framar nema hvað ullar-
gæði varðar þar sem yfirburðir
hans em ótvíræðir.
Hér verður ekki nánar fjallað
um niðurstöður fyrir einstaka
hrúta. Læt ég lesendum eftir að
lesa frekari upplýsingar úr töflunni
fyrir þá hrúta sem áhugaverðir em
vegna fjárvals á eigin búi núna í
haust.
í lokin skal aðeins minnt á nið-
urstöður ómsjármælinga. Þær em
gífurlega góð vísbending í sam-
bandi við val fyrir kjötgæðum.
Niðurstöður fyrir afkvæmi
stöðvarhrútanna frá haustinu 1994
er að finna í Sauðfjárræktinni. Ég
hvet alla bændur til þess að nýta
sér þjónustu búnaðarsambandanna
með ómsjármælingar vel í haust.
Að því ber að stefna að ekki verði
settir á lambhrútar nema þeir hafi
verið mældir þannig að byggt sé á
eins góðu mati og kostur er.
Jón Viðar Jónmundsson
Danir heimsækja loðdýrabændur
Einkunnir hrúta á sæðingarstöðvum að
loknu uppgjöri ársins 1994
Óðinn 83-904 1216 99 809 12 112
Máni 83-919 376 100 324 7 107
Hlíðar 84-860 1270 101 723 0 101
Freyr 84-884 1071 98 847 7 107
Laukur 84-888 681 99 650 2 102
Prúður 84-897 1214 97 980 8 108
Lopi 84-917 663 108 693 10 111
Sami 85-868 1657 103 898 2 103
Kokkur 85-870 2368 103 903 10 110
Broddi 85-892 1007 101 887 14 113
Þröstur 85-912 381 101 209 14 113
Vísir 85-918 647 100 532 24 123
Oddi 85-922 1025 99 391 22 120
Dropi 85-923 290 99 132 14 112
Sveppur 85-941 125 108 (455 46 141)
Svoli 86-889 912 98 869 1 101
Gjafar 86-903 224 100 158 -7 93
Baldur 87-909 353 103 231 2 102
Álfur 87-910 747 100 191 8 107
Strammi 87-919 263 101 178 0 98
Krákur 87-920 907 104 880 -2 97
Durgur 87-939 236 110 87 -1 98
Djarfur 87-946 100 109
Móri 87-947 135 104 (32 4 103)
Mergur 87-951 105 101 (46 0 97)
Stúfur 87-959 (317 102 85 -3 97)
Fóli 88-911 1724 104 608 5 105
Lykill 88-926 408 98 89 4 103
Glói 88-927 766 102 161 -1 97
Galsi 88-929 90 107 47 4 104
Fannar 88-935 303 107 74 9 112
Nökkvi 88-942 474 105 (21 -5 102)
Hólmst 88-948 102 102 (22 -10 95)
Bossi 88-952 313 99 12 -15 95
Glitnir 88-953 89 101 (58 4 104)
Reki 89-925 250 105 69 -1 99
Goði 89-928 1202 101 274 10 110
Klettur 89-930 600 101 80 7 106
Brúskur 89-932 239 102 28 2 102
Björn 89-933 381 102 67 -1 99
Raggi 89-949 207 105 (41 -15 92)
Búi 89-950 115 101 (10 -10 96)
Kjói 89-954 291 104 (9 31 105)
Keli 89-955 344 108
Stakkur 89-957 211 104
Bassi 89-960 (163 101 48 9 107)
Flekkur 89-965 (251 103 54 20 116)
Valur 90-934 445 106 79 -4 100
Tumi 90-936 270 107 61 15 112
Vaskur 90-937 672 104 139 -6 95
Fóstri 90-943 286 105 (20 10 104)
Deli 90-944 246 111
Þéttir 91-931 591 100 72 -5 96
Gosi 91-945 495 112
Hnykkur 91-958 379 108 (14 -18 96)
Váli 91-961 (85 97)
Gnýr 91-967 (100 105 11 13 105)
Svanur 92-966 (11 93)
Skjanni 92-968 (62 107 3 47 105)
Galsi 93-963 (37 96)
Aðalfundur SÍL 1995
Aðalfundur Samband íslenskra loðdýraræktenda
verður haldinn í Bændahöllinni (bókasafni)
laugardaginn 30. september 1995 og hefst kl. 10:00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Tillögur til fundarins þurfa að berast skriflega fyrir 15.
september, svo að unnt sé að kynna þær fyrir
loðdýraræktarfélögum.
Vinsamlega ganglð frá félagaskrá og félagsgjaldi fyrir
fundinn.
F.h. stjórnar félagsins,
Arvid Kro