Bændablaðið - 01.07.1988, Side 6
Mcin)>rímur Viklorsson }>limir virt úl.
f f f
ÞAÐ IV # A N n w IR Al ■■ . 1 E :VE w I0PU
OG Nl DG Tl IL 1 1 V OTNUN UNI H ER HEINIA
— ættum aö sökkva Flóanum og gætum skapað hér atvinnu fyrir
fjölda bænda, segir Steingrímur Viktorsson álamaður á Selfossi
Gela álaveiðar orðið arðvæn-
lc’” atvinnugrein á Islandi? I
krinj>um 1960 veiddu bændur á
nokkrum stöðum í landinu ál
sem var ýmist flultur lifandi í
vinnslu erlendis eða reyktur í
Reykjavík. Af einhverjum
ástæðum datt þessi útflu(ninj>-
ur niður eftir fáein ár en nýlegar
tilraunir bænda á Suðurlandi,
undir forystu Steinj>ríms
Viktorssonar kjötiðnaðar-
manns, benda lil að þarna j»eti
verið álilleo „aukabúj»rein“
fyrir talsverðan hóp manna. Is-
lenskur áll hcfur í sumar fenj>ist
í þremur verslunum oj> á einum
veitingastað er boðinn steiktur
áll.
Smásöluverð á reyktum ál í
Danmörku er 1700 krónur íslenskar
fyrir hvert kíló. Þar i landi er skila-
verð til bænda 250 til 400 krónur
íslenskar á hvert kíló. Þar eru árlega
veidd um 5000 tonn afál en í Noregi
nemur ársveiðin ekki nema um 300
tonnum. Ef tækist að veiða 300
tonn hér á landi gæti það skapað
sem samsvarar árstekjum 60 til 100
bænda. Steingrímur Viktorsson
sem hefur talsvert kynnt sér þessi
mál telur að eftirspurn eftir þessum
sérstæða fiski sé mun meiri en
framboðið, — sérstaklega hefur
verið bent á Holland, Frakkland og
Belgíu sem fýsileg markaðslönd.
Allinn er þekktur austur á
Héraðsflóa og suður um allt til
Snæfellsness og vitaö að hann getur
lifað talsvert langt inni í landi, —
hefur fundist í neðanverðum Bisk-
upstungum, — en lífsskilyrði hans
hafa þó vafalítið versnað með auk-
inni ræktun og minna mýrlendi en
var. Sjá nánar um þessi atriði í við-
tölum við álaveiðimenn hér til hlið-
ar. Stofnkostnaður við álaveiði er
lítill. Steingrímur Viktorsson taldi
að 20 gildrur og lítinn bát gætu
menn fengið fyrir 100 til 200 þús-
und krónur.
Állinn er færður lifandi úr gildr-
unum og geymdur þannig í vatni
þar til komið er að því að vinna
hann. Þá er bætt salti í vatnið sem
bæði drepur fiskinn og gefur
honum hæfilegt saitbragð. Síðan er
hann reyktur í heilu Iagi og seldur
sem álegg á brauð. Steingrímur seg-
ir að á sýningu sem hann sá í Bella
Center fyrir ári hafi lax verið seldur
á 100 til 150 krónur danskar en áll
aftur á móti á 295 krónur. Dýrastur
er fiskurinn þegar liann er orðinn
kynþroska og á leið til hafs, — þá
nefnist hann bjartáll og sá veiðist
helst á haustin. í sumar og síðasta
sumar hafa tilraunaveiðar á ál verið
stundaðar á nokkrum btejum ‘ í
Árnessýslu og einn bóndi í Rangár-
vallasýslu hyggur nú á álaveiðar.
Víða er fiskurinn smár en ekki talið
útlokað að vötnin séu ofsetin. En
gefum Steingrími orðið:
„Þetta er gleymdi fiskurinn á ís-
landi. Við erum að horfa uppá það
að þaö er vöntun á þessum fiski
allsstaðar í Evrópu. Framboðið er
heldur ntinna en eftirspurnin og á
sama tima er verið aö etja bændum
um allt land í loðdýrarækt og fleira
sem gengur ekki upp. Hjá mér er
þetta rúmlega ársgamalt áhugamál
og fyrst þegar ég fór að ræða þetta
við menn hefði ég þurft að framvísa
geöheilbrigðisvottorði til þess að
það væri tekið mark á mér. Eg hafði
samband við Veiðimálastofnun og
var sagt þar að állinn hér á landi
væri alltof lítill, — en ég hafði heyrt
hitt og trúði frekar náttúrubörnun-
um en fræðingunum. Álasögur sem
ég hef heyrt úr Flóanum, Safamýri
og víðar að eru flestar um 20 ára
gamlar. Þá veittu menn vatni á
engjarnar á vorin og tóku það svo
af í júní eða júlí. Á þessum tíma
lifði állinn á engjunum og hafði
óhemjusvæði til að stækka og
dafna. Kaupakonurnar voru að fá
álinn á hrífurnar og sláttumenn
slógu í hann. Hann var þá oft á
ferðalagi í blautu grasinu og það er
hugsanlegt að þetta hafi verið kyn-
þroska áll á leið til sjávar, en þá
skríður hann oft beinustu leið á
þurru landi. Hrygningastöðvarnar
eru svo í Saragossahafinu í Mexíkó-
flóa og þangað syndir hann eða
lætur sig berast með straumum og
fer yfir 30 kílómetra á dag. Frá
þessum tíma hef ég heyrt sögur um
ála sem voru álíka sverir og hand-
leggurinn á manni og yfir meters
langir.
Eg hef sagt að ég vildi helst
sökkva öllum Flóanum í vatni aftur
og breyta honum í álatjarnir. Núna
erum við að tala um að það sé veru-
legur samdráttur í hefbundnum
landbúnaði og þá höfum við ekkert
að gera við alla þessa ræktun sem er
komin og það mætti þvi hugsa sér
að gera eitthvað að mýrlendi aftur.
Það eru óþrjótandi rannsóknar-
verkefni varðandi álinn sem ekki
hefur verið unnið að. Við höl'um
áhuga á því að reyna að veiða svolít-
ið al' glerál í sumar og reyna eldi á
honum. í einu kílói af glerál eru um
3000glerálar sem má selja í eldi á 10
krónur stykkið. Þegar menn eru að
tala um að flytja álinn inn frá Bret-
landi til þess að ala hann hérna, þá
finnst mér skína í gegn hvað það er
lítil trú á landsins gæðum. Úti í Sví-
þjóð hafa menn orðið áhyggjur af
sjúkdómum í áli frá Bretlandi og
þessvegna verið rætt um það þar að
fá ál frá íslandi. Þar búa menn til
tjarnir lyrir álinn og náttúran er lát-
in sjá um að ala hann upp.“
Steingrímur kvaðst ætla að á 14
til 16 mánuðum verði 1 kílóafglerál
að um hálfu tonni af ál við 20 til 25
gráðu hita. Bændur sem hel'ðu ála-
veiðar sem atvinnu að sumrinu
gætu alið tvö til þrjú tonn til við-
bótar með litilsháttar glerálaveiði.
Nú nýlega hefur Steingrímur orðið
sér út um glerálagildrur sem vænt-
anlega verða reyndar næsta vor.
Fram til þessa hefur álaveiði ver-
ið tilraunastarf þó svo að nokkur
hundruð kíló hafi borist á land i
sumar. Stærri álana hefur Stein-
grímur tekið til reykingar og fékk
nokkra tilsögn i þeim efnum á Jót-
landi nú á liðnu vori. Þó kvaðst
hann ekki enn hafa náð fullu valdi
á þessarri verkun og því ekki farinn
að senda reyktan ál í búðir. Aftur á
móti hefur ferskur áll til steikingar
verið boðinn í þremur verslunum;
vöruhúsi KÁ á Selfossi og Flag-
kaupsbúðunum í Kringlu og
Skeifu. Lítið hefur selst af fiskinum
og sagði Steingrímur að greinilega
væri erlitt að yfirvinna séríslenska
fordóma gagnvart þessum fiski. Til
þess að þoka því striði áfrani hefur
áll nú verið boðinn á veitingahúsinu
Úlfar og Ljón á Grensásvegi. Auk
þess að vera á matseðli býður eig-
andinn og yfirkokkurinn Úlfar
Eysteinsson gestum ókeypis smakk
af steiktum ál í hádeginu.