Dagsbrún - 01.02.1944, Page 1

Dagsbrún - 01.02.1944, Page 1
ÚTGEFANDÍ: VERKAHAN ií AFÉLAGI DAGSBRÚN Sigurður Sigurðsson, ráðunautur, fyrsti form. Dagsbrúnar Héðinn Valdimarsson, formaður Dagsbrúnar í 15 ár Sigurður Guðnason, Sigurður Guðmundsson, Njarð 61, núverandi formaður Dagsbrúnar einn af stofnendum Dagsbrúnar Dagsbrún 38 ára Hinn 26. jan. 1906 var formlega geng- ið frá lögum og stofnskrá verkamanna- félagsins ,,Dagsbrún“. Dagsbrún er þannig nú 38 ára gömul. Saga Dags- brúnar þessi 38 ár er minningamerk fyrir reykvíska verkamenn. Hér verður ekki gerð tilraun til að rekja sögu þessa félags, sem skipað hefur forustusæti í íslenzkri verklýðshreyfingu öll þessi ár, þess aðeins minnst að sú verkamanna- kynslóð er nú nýtur manndómsára sinna, á „Dagsbrún“ meira að þakka en unnt er að lýsa í fám orðum. Á öðrum tíma og öðrum stað verður það að sjálf- sögðu hlutverk Dagsbrúnarmanna að sjá svo um, að saga félags þeirra verði skráð, og þeirra forustumanna minnst á viðeigandi hátt, sem drýgstan skerf hafa lagt til stofnunar þess og uppbygg- ingar. Af stofnendum Dagsbrúnar, þeim er óslitið hafa verið í félaginu, eru nú lifandi 33. Þessir frumherjar og braut- ryðjendur Dagsbrúnar hafa að sjálf- sögðu margs að minnast í sambandi við stéttabaráttu reykvískra verkamanna, ekki sízt fyrstu árin, meðan róðurinn var þyngstur og hver sigur, sem vannst svo dýrkeyptur að óhugsandi er við þær aðstæður sem þá voru, að aðrir en þeir, sem snortnir voru krafti nýrra hug- sjóna, vígðir framsóknarbaráttu nýrrar aldar fengju staðizt. Og þó var oft um smátt barist. i£n lítill sigur boðar annan stærri. Og þannig hefur barátta og starf Dagsbrúnar gengið öll árin. Alltaf mið- að í rétta átt og heildarárangurinn af störfum félagsins er stórkostlegt og glæsilegt átak, sem valdið hefur alda- hvörfum í lífi verkamannastéttarinnar í Reykjavík. Störfum Dagsbrúnar hefur jafnan fylgt mikil gifta. Félagið hefur líka undantekningarlítið notið forustu góðra og dugandi manna. Fyrsti formaður þess var Sigurður Sigurðsson búfræðingur, síðar ráðunaut- ur. Hollráður umbótamaður og liðlegur stjórnandi. Árið 1922 verður Héðinn Váldimars- son formaður Dagsbrúnar. Undir for- ustu hans má segja með miklum rétti, að félagið verði að stórveldi í stétta- baráttu verkamanna, ekki aðeins 1 Reykjavík heldur einnig á landsmæli- kvarða. Gáfur Héðins og atorka naut sín vel í samvinnu við verkamenn. For- usta Héðins í málum Dagsbrúnar var sterk og krafðist mikils fylgis af þeirra hálfu, enda veittu verkamenn Héðni og þeim málum er hann bar fram fyrir þeirra hönd, óskorað brautargengi. Hinn minnisverði hlutur Héðins Valdimars- sonar í starfi og baráttu Dagsbrúnar er ekki sízt merkilegur fyrir þá sök. að hann hefur ekki þurft að heyja sjálf- ur hina erfiðu lífsbaráttu verkamanns- ins. En þrátt fyrir þetta einstæða da.-mi um utanstéttarmanninn, sem verður um langt skeið athafnasamur og mikiivirk- ur foringi í verkamannafélagi, mega verkamenn ekki láta sig dreyma um það, að samtökum þeirra verði að jafn- aði vel stjórnað nema af þeim sjálfum. Þetta hafa Dagsbrúnarmenn látið sér skiljast. Um leið og Héðinn Valdimars- son hvarf úr forustu í félaginu völdu þeir úr eigin hópi formann fyrir félag- ið. Sig. Guðnason hefur verið tvisvar í röð sjálfkjörinn formaður Dagsbrún- ar Undir hans forustu hefur Dagsbrún náð þýðingarmiklum áfanga í eining- arbaráttu verkalýðsstéttarinnar. Og reynslan af forustu Sigurðar Guðna- sonar hefur staðfest það með glæsi- legum hætti að verkamenn eiga allt undir sjálfum sér og geta líka átt það öruggir. Á. Ág.

x

Dagsbrún

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.