Dagsbrún - 01.11.1976, Page 10
Starfsaldurshækkun á kaupi
Verkamenn, sem öðlast hafa rótt til óskerts vikukaups. skuiu
eiga rétt á 4% grunnkaupshækkun eftir 1 árs starf hjá sama
vinnuveitanda (sjá ennfremur kauptaxta mánaðarkaupsmanná)
hó skulu verkamenn í fiskvinnu, byggingarvinnu, fagvinnu og
hafnarvinnu ávallt eiga rétt á framangreindri kauphækkun eftir
eins árs samfellt starf í starfsgreininni, þótt hjá fleiri en einum
vinnuveitanda sé. svo og föstu vikukaupi amkvæmt þar að iút-
andi reglum og heldur hann þessum réttindum, þótt hann flytjist
milli vinnuveitenda í starfsgreininni.
Reglur um orlof og orlofsfé
Lágmarksorlof er 24 virkir dagar. Orlofsfé er 8,33% af öllu kaupi.
Veikist launþegi hér innanlands í orlofi það alvarlega, að hann
geti ekki notið orlofsins, skal hann á fyrsta degi, t.d. með sím-
skeyti, tilkynna vinnuveitanda um veikindin og hjá hvaða lækni
hann hyggst fá læknisvottorð.
Fullnægi hann tilkynningunni og standi veikindin samfellt lengur
en 3 sólarhringa, á ianuþegi rétt á uppbótarorlofi jafn langan tíma
og veikindin sannarlega vöruðu. Undir framangreindum kringum-
stæðum skal launþegi ávallt færa sönnur á veikindi sín með
læknisvottorði. Vinnuveitandi á rétt á að láta lækni vitja laun-
þega, er veikst hefur í orlofi. Uppbótarorlof skal eftir þvi sem
kostur er, veitt á þeim tíma, sem launþegi óskar, og skal veitt
á tímabilinu 1. maí—15. september, nema sérstaklega standi á.
Réttindi verkamanna, sem vinna hiuta
úr degi
Verkamenn, sem vinna hluta úr degi samfellt hjá sama atvinnu-
rekanda, skulu njóta sama réttar um greiðslur fyrir samnings-
bundna frídaga, veikinda- og slysadaga, starfsaldurshækkánir
o. fl. og þeir sem vinna fullan vinnudag, og skulu greiðslur
miðaðar við venjulegan vinnutíma aðila.
Reglur um fast vikukaup
Hafi verkamaður unnið hjá sama atvinnurekanda samfellt í 3
mánuði eða lengur skal honum greitt óskert vikukaup þannig, að
samningsbundnlr frídagar, aðrir en sunnudagar, séu grelddir.
Um matar- og kaffitíma
Sé unnið í matar- og/eða kaffitíma á dagvinnutímabili skal
hann eða sá hluti hans, sem unninn er, greiddur í nætur-
vinnu.
Um iaunaseðia
I hvert skipti sem laun eru greidd skal launagrelðandi afhenda
launþega launaseðil, er sýni fjárhæð Iauna og greinilega sund-
urliðaðan allan frádrátt launa.
Gætið launaseðilsins vel!
10