blaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 8
8 erlent
0 ,
teláttur!
Allar EGO kvittanir veita
25% afslátt í Laugarásbíó
Leiðtogar allra þjóða:
Sorg, reiði og samstaða
Samúðar- og baráttukveðjur bárust
frá leiðtogum flestra - ef ekki allra
- þjóða heimsins til Breta í gær. Auk
þess komu kveðjur frá Benedikt XVI.
páfa, Alberto Ruiz-Gallardon, borg-
arstjóra Madrídarborgar og Miehael
Bloomberg, borgarstjóra New York
borgar ásamt fleirum.
George Bush Bandaríkjaforseti:
„Mér þykir munurinn á því sem er
að gerast hér [á G8 fundinum] og
því sem sést á sjónvarpsskjám frá
Lundúnum gífurlegur. Annars vegar
höfum við fólk sem vinnur að því að
minnka fátækt í heiminum og að losa
heiminn við alnæmisfaraldurinn.
Fólk sem er að reyna að finna leið til
þess að hreinsa náttúruna. Hins veg-
ar höfum við fólk sem myrðir blásak-
laust fólk. Munurinn gæti ekki verið
ljósari á fyrirætlunum og hjartalagi
okkar sem kærum okkur um mann-
réttindi og frelsi annars vegar og hins
vegar þeirra sem drepa."
Jacques Chirac
Frakklandsforseti:
„Ég vil tjá þann hrylling
fyllist þegar ég sé hryðju-
verkaárásimar sem böð-
uðu ensku höfuðborgina í
blóði. Ég vil koma á fram-
færi til allra Lundúnabúa
og allra Englendinga sam-
stöðu, samúð og vináttu
Frakklands og frönsku
þjóðarinnar allrar. Þessu
hef ég komið á framfæri
til leiðtoga stærstu þjóða
heimsins sem hér eru
komnir saman, til hennar
hátignar drottningar Eng-
lands, Tony Blair forsætis-
ráðherra og allra breskra
yfirvalda."
sem eg
Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna:
„Þessar ógeðfelldu spreng-
ingar valda mér gífurlegri hryggð.
Þessar hræðilegu árásir hafa skorið
okkur öll inn að beini því þær ráðast
á mannkynið allt. í dag stendur heim-
Þessar
hræðilegu
árásir hafa
skorið okk-
ur öll ínn
að beini
því þær
ráðast á
mannkynið
allt.
urinn allur bak í bak við Breta sem
ásamt öðmm í heiminum hafa barist
af svo miklum krafti gegn fátækt í
heiminum og veðurfarsbreytingum
fyrir G8 leiðtogafundinn.
Ég er þess fullviss að þeir
muni taka þessari þraut
af sama hugarfari, kjarki
og ákveðni."
Benedikt XVI páfi:
„Ég er gífurlega sorg-
mæddur að heyra þær
fréttir sem bárust í morg-
un um hryðjuverkaárás-
irnar. Égbið mínar einlæg-
ustu bænir til þeirra sem
létu lífið og þeirra sem
syrgja. Á meðan ég for-
dæmi þessar villimanns-
legu árásir á mannkyn
bið ég um að fólk hugsi
til þeirra sem eiga um
sárt að binda. Ég kalla á
þá huggun fyrir íhúa Bret-
lands sem einungis Guð getur veitt á
stundu sem þessari."
S«il LOFTHREINSITÆKI
Bætt líðan L
með betralofti
Nánari upplýsingar á www.ecc.is
ECC ehf. Skúlagötu 63
sími 511 1001
Opið 10 -18
r
„Hélt ég myndi deyja“
Michael Henning var á leiðinni í vinn-
una með neðanjarðarlest við Liverpo-
ol Street stöðina laust fyrir klukkan
9 í gær. Fréttamaður BBC náði tali
af honum. „Stuttu eftir að við lögð-
um af stað frá brautarstöðinni sá ég
skyndilega ekkert nema skærgult
ljós og glerbrot sprungu út um allt.
Ég kastaðist í jörðina og vissi ekkert
hvað var að gerast," sagði Henning.
„Vagninn fylltist af reyk og ég fann
blóð streyma niður andlitið á mér.
Skyndilega varð allt dimmt og ég
hélt að ég myndi ekki hafa það af. Ég
er ótrúlega heppinn maður, sérstak-
lega þar sem ég sá það sem gerðist
í næsta vagni. Sprengjan hlýtur að
hafa sprungið innan við fjóra metra
írá mér en hinn vagninn tók mesta
höggið á meðan glerbrot rigndu yfir
okkur. Við heyrðum ekkert nema
öskrin úr hinum vagninum þar sem
fólkið þar var fast inn í beygluðum
málmi.“
Allt mannh'f Lundúnarborgar er
sem lamað eftir sprengingarnar í
gær. Borgarbúar hafa þó sýnt mikla
samstöðu og hrósaði Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, þeim sér-
staklega í ávarpi sínu þar sem hann
sagði þá hafa sýnt einstaka rósemi.
SUMARIÐ ER TÍMINN
n ÞAKMÁLUN S: 697 3592 / 844 1011
Viðbúnaðarstig
aukið um heiminn
Vígbúinn lögreglumaður gengur um neðanjarðarlestarkerfið í Washingtonborg í
gærdag en öryggisviðbúnaður hefur verið aukinn víða um heim í kjölfar árásanna á
Lundúni í gærdag.
Viðbúnaðarstig vegna hugsanlegra
hryðjuverka hefur verið aukið víða
um Evrópu í kjölfar árásanna á Lund-
úni í gær. Jan Peter Balkenende,
forsætisráðherra Hollands, tilkynnti
fljótlega upp úr hádegi í gærdag að
yfirvöld hefðu aukið viðbúnað við
iandamæri landsins og skömmu síðar
tilkynntu ítölsk yfirvöld um samskon-
ar aðgerðir á Ítalíu. Halldór Ásgríms-
son, forsætisráðherra, sagði við fjöl-
miðla í gærkvöld að einnig yrði aukið
eftirlit við Leifsstöð. Þá hefur einnig
verið gripið til aukinna öryggisráð-
stafana við neðanjarðarlestakerfí
víða í Bandaríkjunum og í Kanada er
fólk hvatt til að sína aðgát þegar það
nýtir sér samgöngukerfi landsins,
neðanjarðalestir og strætisvagna.
föstudagur, 8. júlí 2005 I blaðið
Tony Blair:
„Sérstaklega
villimannslegt“
bjornbragi@vbl.is
Tony Blair, for-
sætisráðherra
Bretlands, var
augljóslega mik-
ið niðrifyrirþeg-
ar hann talaði
M á blaðamanna-
fundi í kjölfar sprengjuárásanna.
Sagði hann að nokkuð ljóst væri að
sprengingarnar væru hryðjuverka-
árásir sem gerðar væru vegna G8
fundarins í Gleneagles.
„Það er sérstaklega villimannslegt
að þetta eigi sér stað á sama degi og
fólk fundar með það að markmiði
að hjálpast að við að berjast gegn fá-
tækt í Afríku og að finna úrlausnir
á langtímavandamálum vegna lofts-
lagsbreytinga", sagði Blair og vísaði
til G8 fundarins. Blair sagði það vera
ósk allra þjóðarleiðtoganna að fundur-
inn héldi áfram í hans fjarveru. „Svo
við getum haldið áfram að ræða þau
málefni sem við ætluðum að ræða og
komist að þeim niðurstöðum sem við
ætluðum" bætti hann við. „Öll lönd-
in sem eiga leiðtoga við borðið hafa
einhveija reynslu af afleiðingum
hryðjuverka og allir leiðtogarnir eru
jafn staðráðnir í að ráða niðurlögum
á hryðjuverkum."
Staðfesta okkar meiri en þeirra
Blair sagði að hryðjuverkamönnum
myndi ekki takast ætlunarverk sitt.
„Það er mikilvægt að þeir sem aðild
eiga að hryðjuverkum átti sig á því
að staðfesta okkar í að verja gildi
okkar og lífshætti er miklu meiri en
staðfesta þeirra í að valda dauða og
hörmungum hjá saklausu fólki í von
um að geta tranað fram öfgastefnu
sinni um heiminn“, sagði forsætis-
ráðherrann. „Hvað sem þeir gera er
það staðfesta okkar að þeim muni
aldrei takast að eyðileggja það sem
okkur er kært í þessu landi og f öðr-
um siðfáguðum löndum heimsins."
Blair flaug til London eftir blaða-
mannafundinn til að ræða við lög-
reglu og yfirmenn hjálparstarfs.
Hann mætti aftur til Gleneagles síð-
degis í gær til að halda áfram fundin-
um sem klárast í dag.
Atburðarrásin:
08:51 Sjö deyja í sprengingu í
Iesttæpa100 metrafrá
Liverpool Street stöð
inni.
08:56 21 lætur lífið í sprengju
sem sprakk í lest milli
Russell Square og King’s
Cross stöðinni.
09:17 Sjö láta lífið í sprengju í
iest á Edgware Road lestar
stöðinni.
09:47 Tveir deyja í sprengingu í
strætisvagni við Tavistock
Place.
bmaauqiysmqar
510-3737
jinivQii
lu
510-3744
blaði6=