blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 25

blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 25
blaöiö ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 MENNING I 3J -t- Tveir meistarar spennusagnanna Bókaútgáfan Ugla hefur sent frá sér tvær spennusögur. Óvanaleg grimmd eftir Patriciu Corn- well hlaut hin \ virtu verðlaun „Gullnarýtinginn' sem besta skáld- saga ársins í Bret- landi. Cornwell er meðal vinsælustu spennusagnahöf- unda heims. Klukkan 11:05 eitt desemberkvöld í Richmond, Virgin- íu, var Ronnie Joe Waddell, dæmdur morðingi, lýstur lát- inn í rafmagnsstóln- um. í líkhúsinu bíður dr. Kay Scarpetta eftir líkinu af Waddell. Það er einkennileg reynsla að undir búa líkskoðun fyrir andlátið, en Scarpetta hefur staðið í þessum sporum áður. Og það er fleira í fréttum þetta nístingskalda kvöld: hræði- lega útleikið lík af ungum dreng fannst stillt upp við ruslagám. Það fer hrollur um Kay Scarp- etta þegar það rifjast upp fyrir IRCK higmhs -PATRICUI MUell Lj i Ær ■lil líí. *!' ft, M * &p«f *: henni að skilið var við lík fórnar- lambs Waddels með svipuðum hætti... Ugla gefur einnig út bókina Vondur félagsskapur eftir Jack Higgins. Þegar fall Berlín- ar vofði yfir fól Ad- olf Hitler ungum aðstoðarmanni að varðveita dagbók sína. I dagbókinni er sannkallað sprengiefni. Vold- ugir og hættuleg- ir menn beita öllum brögðum til að komast yfir dagbók- ina - og það er undir Sean Dillon, Ferguson hershöfðingja, yfir- manns leyniþjónustu breska forsæt- isráðherrans, og Blake Johnson, sérsveit- armanns Hvíta húsins, komið að aftra því. Við sögu koma skrautlegir karakt- erar - gamall nas- istaforingi sem á fjallháar innistæður í svissneskum bönk- f um, ríkasta kona 1 Arabalanda, hryðju- verkamenn IRA, Sadd- am Hussain, félagar úr glæpagengi Lundúna- borgar, auk hins óvið- jafnanlega Seans Dill- ons og samstarfsmanna hans. ■ Ben Kingsley í hlutverki Fagins í útgáfu Poianskis af Oliver Twist. Oliver Twist veldur vonbrigðum Um tuttugu kvikmynda- og sjón- varpsútgáfur eru til af Oliver Twist, hinni klassísku sögu Charles Dick- ens. David Lean gerði frábæra mynd eftir sögunni árið 1948 og Carol Reed sendi frá sér skemmtilega söngleikja- útgáfu árið 1968. Nýjasta útgáfan er mynd Roman Polanskis og hún fær ekki góða dóma breskra blaða. Gagnrýnandi Sunday Times segir myndina dæmigerða útgáfu af klass- ísku bókmenntaverki og Polanski hafi ekkert frumlegt til myndarinn- ar að leggja. Sýn hans á London Vikt- oríutímans sé klisjukennd. Það er engin dramatísk spenna í myndinni og ekkert fjör, segir gagnrýnandinn og bætir við að Polanski hafi ekki tekist að fá leikarahópinn til að sýna fyrsta flokks leik. Eini leikarinn sem standi sig sómasamlega sé Ben Kingsley í hlutverki Fagin. Að öðru leyti sé myndin líflaus. Gagnrýnandi Guardian tekur í sama streng og segir að myndin valdi vonbrigðum en tekur fram að ‘ hún sé alls ekki illa leikin. ■ HYUNDAI - RENAULT- BMW - LAND ROVER Sama hvernig þaö lítur út fáöu kaupaukann beint í veskiö *Frl ábyrgðar- og kaskótrygging 11 ár. Gildlr ekki með öðrum tilboðum. Bensínkort með 50 þúsund króna inneign og frí ábyrgðar- og kaskótrygging* fylgir nú öllum nýjum bílum frá B&L. Ef þú ert í bílahugleiöingum, fáöu þér nýjan og glæsilegan Hyundai, Renault, Land Rover eöa BMW með kaupauka sem þú færö beint í veskiö, að verðmœti allt að 140 þúsund krónur. Komdu viö hjá okkur. Við erum með bílinn handa þér. FAOfl BClhlT vonoun HYUnDRI hefur gæðin B&L - Grjóthálsi 1 -110 ReykjavÍk - 575 1200 - www.bl.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL 12 TIL l6. GO BEYOND” . £ LYSING Bllasala Akureyrar stmi 461 2533 • Bllás Akranesi stmi 431 2622 • SG Btlar Reykjanesbæ stmi 421 4444 Áki Sauöárkróki stml 453 6140 • Bíla- og búvélasalan Hvammstanga stmi 451 2230 • Álaugarey Höfn stmi 478 1577

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.