blaðið - 12.09.2006, Side 8
28 I HEILSA
I
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2006 blaöiö
og aftur grænmeti
Lárpera
Lárperan er sérstaklega hollur
ávöxtur og ríkur af kalíum auk
þess að búa yfir miklu af andoxun-
arefnum. Frábær ávöxtur í salatið
eða forréttinn.
Viö eigum öll aö boröa eins mikiö af grænmeti og
ávöxtum og kostur er. Grænmeti er bæöi hollt og
gott, auk þess sem það lætur okkur líða vel og
líta vel út. Grænmeti eða ávextir í poka er mun
heillvænlegra en nammi í poka og þegar sætinda-
þörfin gerir vart viö sig ættu allir að arka í ísskáp-
inn og finna sér hollan bita til þess aö narta í.
Flestar grænmetis- og ávaxtategundir hafa sína
sérstöðu og innihalda ákveðin næringarefni sem
eru góð fyrir líkamann, en meðfylgjandi eru nokkrir
fróðleiksmolar sem ekki allir vita af.
Spergilkál
Spergilkál er mjög hollt og í því
eru mörg þeirra efna sem vinna
gegn krabbameini, svo sem karótín,
plöntuefnin kversetín, indól, C-vít-
amín, kalk og fleiri vítamínstegundir
sem vinna gegn beinþynningu og
háum blóðþrýstingi.
Laukur
Laukur og hvítlaukur innihalda efni
sem geta dregið úr líkum á hjarta-
sjúkdómum, sykursýki, krabba-
meini og sýkingum. í laukum eru
einnig andoxunarefni sem virka
vel til varnar lungnasjúkdómum og
asma.
Tómatar ||
Tómatar eru ríkir af karótíni sem
talið er góð vörn gegn gláku. Þá
hefur litarefnið í tómötum góð áhrif
á briskirtilinn.
Við lífræna ræktutj er hvorki notað
skordijareitur né tilbúinn áburður.
Þetta leiðir til umhverfisvænni ræktunar,
betri heilsu og betra bragðs.
G\ ut &.
C\ erv\e
BvO
- ,v-
U/NSAMe/i i
jmcEo
FRUCHTt
MUSU
nán*
tem
hÚhnef ~!j
iHUHvmn !l
BtO
Heilsa býður nú upp á fjölbreytt úrval af lífrænt ræktaðri matvöru frá Gut & Gerne,
einum virtasta framleðanda í Evrópu á sínu sviði. Allar vörur Gut&Gerne eru lífrænt
vottaðar af Evrópusambandinu og hafa unnið til fjölmargra verðlauna.
Vörurnar frá Gut & Gerne fást I Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, heilsudeild Nóatúns I Hafnarfiröi, Samkaupum, Nettó og Blómaval.
hafou það gott
Jarðarber
Auk þess að bragðast sérlega vel
og henta í flestöll salöt eða eftirrétti
innihalda jarðarber litarefnið lýko-
pen sem hefur góð áhrif á briskirtil-
inn og starfsemi hans.
Ananas
Þegar sætindaþörfin gerir vart við
sig er ekki úr vegi að skera niður
ananas og narta í hann yfir sjón-
varpinu. Ananas er ferskur, hollur
og virkilega góður, auk þess að
innihalda mangan sem vinnur sem
vörn gegn beinþynningu.
■«S3ESS***
Gulrætur
Innihalda mikið af beta-karótíni
og alfa-karótíni sem eru fyrirbyggj-
andi gegn krabbameini. Efnin geta
aukið framleiðslu húðarinnar á
eigin sólarvörn og minnkað skaða
af sólböðum.